Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Stórmót Árbćjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur

IMG 6567Stórmót Árbćjarsafns og Taflfélags Reykjavíkur  fer fram sunnudaginn 14. ágúst. Teflt verđur í Árbćjarsafni og hefst  tafliđ kl. 14. Tefldar verđa 7 umferđir međ umhugsunartímanum 7 mínútur á  skák.

Á undan, eđa kl.13, fer fram lifandi tafl, en lifandi tafliđ er fyrir  löngu orđinn árviss og skemmtilegur viđburđur í dagatali skákmanna.

Veitt verđa verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin í Stórmótinu, 12.000 kr., 8.000 kr. og 5.000 kr.

Ţátttökugjöld í Stórmótinu eru kr. 1000 fyrir 18 ára og eldri, en ókeypis  fyrir yngri en 18 ára og eru ţátttökugjöld jafnframt ađgangseyrir í  safniđ.  Ţeir sem eiga ókeypis ađgang í safniđ, t.d menningarkort, ţurfa ekki ađ borga ţátttökugjöld í mótiđ.

Ekkert kostar ađ taka ţátt í Stórmótinu fyrir ţá sem taka ţátt í lifandi taflinu.

Enn eru laus pláss í lifandi taflinu og leika peđ, riddara, biskup,  hrók, kóng eđa drottningu.

Áhugasamir hafi samband viđ Sigurlaugu Regínu  í sigurlaug.regina@internet.is.  Skráningu í lifandi tafliđ lýkur fimmtudaginn 11. ágúst.  Ţeir sem taka ţátt í lifandi taflinu ţurfa ađ mćta á Árbćjarsafn ţann 14. ágúst kl.12.30 til ađ fara í búninga.


Góđ barátta beggja liđa ţegar Víkingasveitin vann Fjölni

IMG 7821Síđari viđureignin í forkeppni Hrađskáksmóts taflfélaga fór fram í Rimaskóla mánudagskvöldiđ 8. ágúst ţar sem fjölmenn sveit Fjölnis tók á móti sterkri sveit Víkinganna. Helgi Árnason liđsstjóri ţurfti í upphafi ađ leysa ákveđiđ vandamál af jákvćđari sortinni, ţ.e. ađ skipta inná og nota alla ţá fjölmörgu liđsmenn sem mćttu til leiks. Voru ţar Íslandsmeistarasveitir Rimaskóla í meirihluta. Máliđ var leyst međ "varamannaskákmóti" sem fram fór jafnhliđa viđureigninni.

Í fyrstu umferđ komust Fjölnismenn nokkuđ óvćnt yfir en í framhaldinu setti Víkingasveitin í réttan gír og tefldi af miklum móđ gegn baráttuglöđum Fjölnismönnum út mótiđ. Í hálfleik var forysta Víkingasveitarinnar orđin nokkuđ örugg 25 - 11 en ţeir Víkingar gáfu ekkert eftir í síđari hálfleik og sýndu Fjölnismönnunum ungu ekkert vanmat. Síđari hálfleikur fór nokkuđ svipađ 25,5 - 10,5. Heildarúrslit 50,5 - 21,5 Víkingasveitinni í vil.IMG 7824

Í sigursveitinni stóđu ţeir sig allir mjög vel ţeir Magnús Örn, Ólafur, Stefán, Gunnar Freyr og Sigurđur Ingason. Ţeir tefldu allar skákirnar og fengu 8 - 10 vinninga hver.

Í sveit Fjölnismanna skorađi Erlingur Ţorsteinsson mest međ 7 vinninga úr 11 skákum og nćstur kom Ingvar Ásbjörnsson međ 4,5 vinning.  Allir fengu liđsmenn Fjölnis ađ tefla ţetta tvćr til ellefu skákir.

Ţess má geta ađ "varamannaskákmótiđ" tókst mjög vel og var spennandi til síđustu skákar. Alls ellefu skákmenn tóku ţátt í mótinu og tefldu ţeir allt frá einni og upp í átta skákir. Ţau Oliver Aron, Jón Trausti og Nansý Davíđsdóttir urđu efst međ 4 vinninga. 

Víkingasveitin:   

Ólafur B. Ţórsson, Stefán Sigurjónsson og Magnús Örn Úlfarsson 10 vinninga (12)
Gunnar Freyr Rúnarsson  9 vinninga (12)
Sigurđur Ingason  8 vinninga (12)
Svavar Viktorsson  3,5  (11)
Jón Úlfljótsson 0,5 (1)

Skákdeild Fjölnis:

Erlingur Ţorsteinsson 7 vinninga (11)
Ingvar Ásbjörnsson  4,5 vinninga (10)
Oliver Aron Jóhannesson (8) og Jón Árni Halldórsson (11)  3 vinninga
Jón Trausti Harđarson (7) og Dagur Ragnarsson (9)   2 vinninga

Ađrir sem tefldu fyrir Fjölni voru: Hörđur Aron Hauksson, Kristófer Jóel Jóhannesson, Nansý Davíđsdóttir, Jóhann Arnar Finnsson og Svandís Rós Ríkharđsdóttir.


Hjörvar hafđi sigur á hádegismóti í Akademíunni

P1010363Hens una sumus (Viđ erum ein fjölskylda) mótiđ hófst á hádegi í dag. Mótiđ var haldiđ í tilefni af söfnun handa hungruđum börnun í Sómalíu um helgina í Ráđhúsi Reykjavíkur, ţar sem nemendur Skákakademíu Reykjarvíkur stóđu vaktina alla helgina međ einstakri prýđi.

Teflt var í blíđviđrinu á Tjarnargötu, fimm umferđa hrađmót. Eftir fjórar umferđir var gert smáhlé á mótinu sjálfu, og ţátttakendum sem gestir gćddu sér á ljúfengri, og fagurskreyttri fjölskyldu-súkkulađiköku.P1010393

Í fimmtu umferđ mćttust Páll Andrason og Hjörvar Steinn Grétarsson í hreinni úrslitaskák, og ţrátt fyrir vafasama byrjun hjá Hjörvari 1.e4- f5? Hafđi Hjörvar sigur og vann mótiđ međ fullu húsi.

Tjarnargatan iđađi á lifi í hádeginu og mátti sjá marga bílana stoppa viđ og rýna í snilldina í gegnum bílrúđuna.

Lokaniđurstađan var ţessi ; GENS UNA SUMUS.

Lokastađan:

SćtiNafnVinnStig
1Hjörvar Steinn Grétarsson59,0
2-3Gunnar Björnsson410,0
 Páll Andrason48,0
4-5Jón Trausti Harđarsson3,59,5
 Gauti Páll Jónsson3,56,5
6-10Vignir Vatnar Stefánsson39,0
 Stefán Bergsson37,0
 Donika Kolica37,0
 Hilmir Freyr Heimisson36,5
 Inga Birgisdóttir36,0
11-16Oliver Aron Jóhannson29,5
 Hrund Hauksdóttir29,0
 Kristófer Jóel Jóhannesson28,0
 Nansý Davíđsdóttir27,0
 Jóhann Arnar Finnson27,0
 Heimir Páll Ragnarsson24,0
17-19Haukur Halldórsson17,0
 Símon Ţórhallson17,0
 Svandís Ríkharđsdóttir16,0
20Alísa Svansdóttir08,5


Myndaalbúm (BÍK og fleiri)


Meistaramót Hellis hefst 22. ágúst - hćkkuđ verđlaun

Meistaramót Hellis 2010 hefst mánudaginn 22. ágúst klukkan 19:30. Mótiđ er 7 umferđa opiđ kappskákmót sem lýkur 8. september.   Vegleg og fjölbreytt verđlaun eru í bođi. Ţar sem Hellir á 20 ára afmćli á árinu eru ađalverđlaun höfđ hćrri en venja hefur veriđ. Umhugsunartíminn verđur 1˝ klst. á skákina auk hálfrar mínútu á hvern leik.

Mótiđ er öllum opiđ og er reiknađ til alţjóđlegra skákstiga.  Skráning er hafin á heimasíđu Hellis.  Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má nálgast hér.

Teflt er á mánudögum og miđvikudögum og svo er tekin ein ţriđjudagsumferđ í byrjun móts.  Umferđir hefjast kl. 19:30.  Hlé verđur á mótinu ţegar Norđurlandamótiđ grunnskólasveita fer fram í Reykjavík.

Ađalverđlaun:

  1. 50.000
  2. 25.000
  3. 15.000

Upplýsingar um aukaverđlaun koma síđar.

Ţátttökugjöld:

  • Félagsmenn kr. 2.000; ađrir 3.000-
  • Unglingar 15 ára og yngri: Félagsmenn: 1.500; Ađrir 2.000.
  • Allir titilhafar fá frítt í mótiđ


Umferđartafla: 

  • 1. umferđ, mánudaginn, 22. ágúst, kl. 19:30
  • 2. umferđ, ţriđjudaginn, 23. ágúst, kl. 19:30
  • 3. umferđ, miđvikudaginn, 24. ágúst, kl. 19:30
  • 4. umferđ, mánudaginn, 29. ágúst, kl. 19:30
  • 5. umferđ, miđvikudaginn, 31. ágúst, kl. 19:30
  • 6. umferđ, mánudaginn, 5. september, kl. 19:30
  • 7. umferđ, miđvikudaginn, 7. september, kl. 19:30
Heimasíđa Hellis

Bjarni í TV

Bjarni Hjartarson og Hannes HlífarBjarni Hjartarson (2093) er genginn í rađir TV en hann hefur teflt fyrir Fjölni í efstu deild undanfarin misseri. Bjarni hóf sinn feril í TR í kringum heimsmeistareivígiđ 1972 og ţótti fljótt á međal efnilegustu unglinga landsins. Hann hefur veriđ tíđur gestur á Reykjavíkurkákmótunum undanfarin ár.


Enn fleiri Mátar

Halldór BlöndalŢađ fjölgar í ýmsum taflfélögum ţessa dagana.  Nýlega gengu stórkanónur í Taflfélagiđ Máta og má ţar fyrst nefna fyrrum ráđherra!

Nýju Mátarnir eru; feđgarnir Halldór og Pétur Blöndal, Ágúst Bragi Björnsson og Steinar Ţór Sverrisson.

 


Atkvöld hjá Helli í kvöld

Taflfélagiđ Hellir heldur atkvöld mánudaginn 8. ágúst nk. og hefst tafliđ kl. 20:00. Fyrst eru tefldar 3 hrađskákir ţar sem hvor keppandi hefur 5 mínútur til ađ ljúka skákinni og síđan ţrjár atskákir, međ fimmtán mínútna umhugsun. Um er rćđa styttingu á umhugsunartíma ţannig ađ ćfingin ćtti ađ vera lokiđ um kl. 22. Teflt er í félagsheimili Hellis í Álfabakka 14a í Mjóddinni. 

Sigurvegarinn fćr í verđlaun pizzu frá Dominos Pizzum. Ţá verđur einnig dreginn út af handahófi annar keppanda, sem einnig fćr pizzu hjá Dominos Pizzum. Ţar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu. Ţátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir ađra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri)


Hádegisskákmót í Akademíunni

Skákakademía Reykjavíkur

Fjársöfnunin Viđ erum ein fjölskylda gekk eins og víđa hefur komiđ fram hreint út sagt frábćrlega. 

Skáksamband Íslands og Skákakademía Reykjavíkur vilja í verki sýna ţakklćti sitt til allra er lögđu hönd á plóg međ ţví ađ bođa til hádegisskákmóts á morgun í Skákakademíunni ađ Tjarnargötu 10 A. 

Hetjurnar frá helginni, okkar efnilegu skákkrakkar verđa á stađnum.Skáksamband Íslands

Tefldar verđa fimm umferđir hrađskák og hefst taflmennskan 12:00. 
Međfram taflmennskunni verđur svo ljúffengri súkkulađiköku frá Bakarameistaranum Suđurveri gerđ hin bestu skil.

Ţátttökugjald: 500 kr.

Fćreyingar unnu landskeppnina

Fćreyingar Fćreyingar stóđust öll áhlaup íslensku sveitarinnar í seinni umferđinni í dag. Áđur en hendi var veifađ höfđu ţeir náđ 3-0 forskoti og eftir ţađ varđ ekki viđ neitt ráđiđ. Ţeir gátu ţví bókađ öruggan sigur = 12,5-9,5.  Ţetta er annađ skiptiđ í röđ sem Fćreyringar leggja Íslendinga í landsdystinum.

Síđari umferđin var tefld í Hofi á Akureyri.

 

Úrslit síđari umferđarinnar: 

 1. Sigurđur Dađi Sigfússon - John Rřdgaard  ˝-˝ 
 2. Áskell Örn Kárason - Sjúrđur Thorsteinsson ˝-˝
 3. Halldór Brynjar Halldórsson - Wille Olsen 0-1
 4. Rúnar Sigurpálsson - Herluf Hansen 1-0
 5. Ţór Valtýsson - Jákup á Rógvu Andreasen 0-1
 6. Viđar Jónsson - Andreas Andreasen 1-0
 7. Sigurđur Arnarson - Arild Rimestad 0-1
 8. Mikael Jóhann Karlsson - Wensil Hřjgaard 0-1
 9. Hjörleifur Halldórsson - Rogvi Olsen ˝-˝
 10. Jakob Sćvar Sigurđsson - Einar Olsen ˝-˝
 11. Jón Kristinn Ţorgeirsson - Hanus Ingi Hansen ˝-˝



Hrađskákkeppni taflfélaga: Taflfélag Akraness áfram eftir sigur á Vinverjum

Pétur Atli LárussonSkákfélag Vinjar keypti heimavallarréttinn gegn reynsluboltunum í Taflfélagi Akraness í Íslandsmótinu í hrađskák gegn veglegum veitingum. Liđin mćttust í dag, sunnudag, og var keppnin lengst af í járnum. TA hafđi yfir 19-17 í hálfleik en liđin skiptust á ađ vinna umferđirnar. Ţó sigu Skagapiltarnir fram úr ţegar leiđ á og fyrir lokaumferđina var ljóst ađ Vinjargengiđ ţyrfti ađ vinna 5-1 svo ákveđiđ var ađ taka Blackburn á ţetta, dúndra öllu fram og vona ţađ besta. Hoknir af reynslu stóđust Skagamenn áhlaupiđ og lönduđu sigri međ 39 vinningum gegn 33.

Pétur Atli Lárusson, sem hefur sótt nokkur mótin í Vin fílađi sig sem á heimavelli og var međ 10,5 af 12 fyrir Akurnesinga. Árni Böđvarsson var í stuđi og tók 8. Brćđurnir Gunnar og Magnús Magnússynir voru međ 5,5. Unnar Ţ. Guđmundsson var međ 5 og Valgarđ Ingibergsson tók 4.

Haukur Angantýsson dró vagninn fyrir Vinjarliđiđ og var međ 9 af 12. Árni H. Kristjánsson var međHaukur Angantýsson 6,5 og Hrannar Jónsson međ 6 af 11. Jorge Fonseca tók fimm og hálfan og ađrir sem tefldu voru Aron Ingi Óskarsson, Jón Birgir Einarsson, Csaba Daday og Haukur Halldórsson.

Ţess má geta ađ einhverjir hituđu upp, og ađrir fóru eftir mótiđ í Ráđhúsiđ og tefldu viđ öfluga krakka sem hafa stađiđ sig ótrúlega vel fyrir Skákakademíuna í söfnun Rauđa kross Íslands fyrir matvćlakaup í Sómalíu. 

Skagamenn voru gríđarlega sáttir međ frammistöđuna og sögđust klárlega tilbúnir ađ mćta Kristjáni Erni og hinum unglingunum í Skákfélagi  Íslands í 16 liđa úrslitunum.

Heimasíđa Hellis


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 97
  • Frá upphafi: 8778337

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 71
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband