Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Skákţáttur Morgunblađsins: Hannes Hlífar efstur á Opna tékkneska

Hannes í Pardubice 2011Hannes Hlífar Stefánsson hefur heldur betur byrjađ af krafti á Opna tékkneska meistaramótinu sem stendur yfir ţessa dagana í Pardubice í Tékklandi. Hannes var einn í efsta sćti ţegar tefldar höfđu veriđ sex umferđir međ 5 ˝ vinning og frammistöđu sem reiknast upp á 2824 elostig. Mótinu lýkur um helgina. Alls taka 279 skákmenn ţátt í mótinu ţar af 50 stórmeistarar en auk Hannesar taka ţeir Guđmundur Kjartansson og Guđmundur Gíslason einnig ţátt í mótinu. Kjartansson var međ 4 vinninga og Gíslason međ 3 ˝ vinning.

Eftir ađ hafa hlotiđ 2 ˝ vinning úr fyrstu ţrem skákum sínum tók Hannes mikinn sprett, vann tvo öfluga rússneska skákmenn og síđan Indverjann Panchanathan í eftirfarandi skák.

Stóra stundin rann upp ţegar Hannes ákvađ ađ fórna manni í 27. leik. Andstćđingur hans stóđ frammi fyrir tveim kostum: ađ taka fórninni og reyna ađ standast áhlaupiđ eđa finna ađra leiđ. Undir svona kringumstćđum er nauđsynlegt ađ „reiknivélin" sé í lagi. Horfi menn nógu lengi út í loftiđ, eđa í „gegnum andstćđinginn" ađ hćtti Gelfands eđa Ivantsjúks, flögrar kannski ađ manni gömul speki á viđ ţá ađ besta ráđiđ viđ fórn sé ađ taka henni. Góđ lína, sem Kortsnoj mun hafa fylgt dyggilega á sínum yngri árum, en tryggir ţó ađ öđru leyti engan veginn ađ menn sleppi lifandi út úr ţví völundarhúsi sem skákin er. Indverjinn hefur sennilega veriđ í allt öđrum hugleiđingum, hann sá möguleika á gagnsókn en hafđi ekki reiknađ dćmiđ nćgilega vel:

Pardubice, 6. umferđ:

Chandran Panchanathan - Hannes Hlífar Stefánsson

Slavnesk vörn

1.d4 d5 2.Rf3 Rf6 3.c4 c6 4.Rc3 e6 5. e3 Nbd7 6. Qc2 b6!? 7. b3 Bb7 8. Be2 Be7 9. O-O O-O 10. Bb2 Qc7 11. Rad1 Rfd8 12. Rfe1 Rac8 13. Bd3 h6 14. Qe2 Re8 15. Bb1 c5 16. cxd5 exd5 17. Bf5 Rcd8 18. Rc1 Bf8 19. Red1 Bc6 20. Qa6 Nb8 21.Qf1 Nbd7 22. Bd3 Ne4 23. Bb5 Ndf6 24. h3 Re6 25. Na4 Bxb5 26. Qxb5 c4!?

Eftir ţunglamalega byrjun lćtur Hannes til skarar skríđa. Ţessi leikur, sem er undanfari mannsfórnarinnar í 27. leik, sker á samgang drottningarinnar viđ kóngsvćnginn.

26. ... c4!? 27. bxc4

gh0nq3e2.jpg27. ... Nxf2!?

Hér er ţvingađ leika 28. Kxf2 Re4+ 29. Kg1 Dg3 og nú er best ađ leika 30. Hf1! t.d. 30. ... Hg6 31. Hc2 og 31. ... Bd6 má svara međ 32. c5! og drottning kemst í vörnina. Stađan eftir 30. Hf1 eđa 30. Hc2, sem er lakari leikur er stórskemmtileg og verđugt rannsóknarefni.

28. Ne5?? Nxd1 29.cxd5 Hxd5!

Indverjanum hafđi greinilega sést yfir ţennan einfalda leik.

30. Qb3 Qd8 31. Nxf7 Kxf7 32. Rxd1 Ne4 33. Rf1+ Kg8 34. Nc3 Nxc3 35.Bxc3 Qd7

- og hvítur gafst upp.

Fyrsta tap Magnúsar í hálft ár

Daginn eftir ađ fréttir bárust af hryđjuverkunum í Noregi tapađi Magnús Carlsen sinni fyrstu Magnus Carlsenkappskák í hálft ár. Ţađ var Frakkinn Vachier Lagrave sem náđi ađ leggja Norđmanninn í 95 leikja maraţonskák. Hann vann ţó nćstu skákir en gerđi svo jafntefli viđ helsta keppinaut sinn, Alexander Morozevic. Ţriggja stiga reglan gildir í stórmeistaraflokki skákhátíđarinnar í Biel og samkvćmt henni er stađan ţessi eftir átta umferđir:

1. Carlsen 17 stig ( 6 v. ) 2. Morozevich 14 stig ( 5 ˝ v. ) 3. - 4. Lagrave og Shirov 10 stig ( 4 v. hvor ) 5. Caruna 6 stig ( 2 ˝ v. ) 6. Pelletier 4 stig ( 2 v. ).

Helgi Ólafsson | helol@simnet.is

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is u.ţ.b. viku síđar en í blađinu sjálfu.  

Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 31. júlí 2011.

Skákţćttir Morgunblađsins


Viđ erum ein fjölskylda: Upphćđin dugar til ađ hjúkra 1300 alvarlega vannćrđum börnum til heilsu!

Elín NhungSkákhátíđinni Viđ erum ein fjölskylda lauk í Ráđhúsi Reykjavíkur klukkan 18 á sunnudag, međ skák Friđriks Ólafssonar stórmeistara og fv. forseta FIDE, og Nansýar Davíđsdóttur, 9 ára. Ţau gerđu jafntefli í hörkuskák -- en sigurvegarar helgarinnar eru börnin í Sómalíu.

,,Upphćđin sem hefur safnast, bćđi hér í Ráđhúsinu og međ símhringingum, međan á maraţoninu stóđ dugar til ađ kaupa bćtiefnaríkt hnetusmjör til ađ hjúkra 1300 alvarlega vannćrđum börnum til heilbrigđis," sagđi Ţórir Guđmundsson hjá Rauđa krossinum. ,,Krakkarnir geta ţví sannarlega veriđ stoltir af framlagi sínu."

Alls söfnuđu krakkarnir í Ráđhúsinu nćstum heilli milljón króna međ taflmennsku sinni, og Ţórir sagđi ađ öll umfjöllunin kringum maraţoniđ hefđi skilađ sér í skriđu hringinga í styrktarsíma Rauđa krossins, 904-1500.

Ţannig hefđu 500 hringt í gćr, sem skilađi 750 ţúsund krónum, til viđbótar viđ ţá tćpu milljón sem gestir Ráđhússins létu af hendi rakna.

Afrakstur!Um 20 börn tóku ţátt í maraţoninu, og stóđu sig međ miklum sóma. Ţau unnu hug og hjörtu, ţeirra mörghundruđ gesta sem lögđu leiđ sína í Ráđhúsiđ um helgina. Ţeim til halds og trausts voru fjölmargir sjálfbođaliđar úr skákhreyfingunni, auk ţess sem foreldrar skiluđu ómćldri vinnu.

Skákakademía Reykjavíkur og Skáksamband Íslands stóđu ađ verkefninu.

Til hamingju, krakkar. Ţiđ stóđuđ ykkur frábćrlega í ţágu málstađarins!


Hápunktur og lokapunktur glćsilegrar hátíđar í Ráđhúsinu: Friđrik Ólafsson og Nansý Davíđsdóttir gerđu jafntefli!

Friđrik og Nansý.Hápunktur og verđugur lokapunktur glćsilegrar skákhátíđar í Ráđhúsinu var ţegar Friđrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Íslendinga og fv. forseti FIDE, gerđi jafntefli í hörkuskák viđ Nansý Davíđsdóttur, 9 ára.

Friđrik, fćddur 1935, var um árabil međal allra bestu skákmanna heims, og sá Íslendingur sem lagt hefur flesta heimsmeistara ađ velli. Hann sigrađi t.d. Bobby Fischer og Mikael Tal í tvígang.

Friđrik Ólafsson átti mikinn ţátt í stofnun Skákakademíu Reykjavíkur, og sat í undirbúningshópnum sem kom SR á laggirnar. Friđrik er jafnframt sérlegur verndari Akademíunnar.

,,Kannski er ţetta í fyrsta sinn sem alţjóđaskákhreyfingin vinnur raunverulega í anda kjörorđa sinna," sagđi Friđrik, og bar mikiđ lof á framgöngu íslensku krakkanna, sem teflt hafa linnulaust í Ráđhúsinu til ađ safna fé fyrir sveltandi börn í Sómalíu.

Hann hreifst af kunnáttu ungu meistaranna, og bar mikiđ lof á taflmennsku Nansýar. ,,Ţú átt framtíđina fyrir ţér," sagđi meistarinn ţegar hann stóđ upp frá taflborđinu.

Skák Friđriks og Nansýar verđur birt međ skýringum á skákhorninu í kvöld.


Nansý og krakkarnir vekja ađdáun í Ráđhúsinu

Nansý og DavíđNansý Davíđsdóttir, 8 ára, hefur fariđ á kostum í Ráđhúsinu alla helgina og vakiđ mikla ađdáun fyrir taflmennsku sína og framkomu.

FIDE-meistarinn Davíđ Kjartansson skorađi á Nansý, svo úr varđ ćsispennandi skák. Davíđ sagđi eftir skákina ađ hann hefđi stađiđ mjög tćpt og veriđ heppinn ađ vinna.

Nansý hefur lagt marga öfluga skákáhugamenn ađ velli í Ráđhúsinu, og undirstrikađ rćkilega hvílíkt efni er ţarna á ferđinni.

Öll börnin og unglingarnir hafa stađiđ sig einsog sannkallađar hetjur, og veriđ skákhreyfingunni og ungu kynslóđinni til sóma.

Framtíđin er björt!


Böđvar og gömlu kempurnar mćta vel í Ráđhúsiđ

Böđvar Böđvarsson og Elín NhungMargar gamlar skákkempur hafa mćtt í Ráđhúsiđ til ađ tefla viđ unga fólkiđ. Í ţeim hópi er trésmíđameistarinn Böđvar Böđvarsson, einn harđskeyttasti hrađskákmađur landsins.

Böđvar, sem orđinn er 77 ára, hefur veriđ virkur í skáklífinu í áratugi. Hann tefldi til dćmis í fjöltefli viđ argentíska stórmeistarann Hermann Pilnikk, sem kom hingađ í tvígang á sjötta áratugnum og tefldi  sögufrćg einvígi viđ Friđrik Ólafsson.

Böđvar gerđi jafntefli viđ Pilnikk í fjölteflinu um áriđ, og segir ađ stórmeistarinn hafi ţar veriđ stálheppinn.

Böđvar er einn skemmtilegasti kvisturinn í íslenskri skákhreyfingu og skák hans viđ Elínu Nhung var ćvintýraleg.


Nýtt met í Ráđhúsinu: Jón Gerald borgađi 50 ţúsund fyrir eina skák

Jón Gerald. Björn Ívar straujar.Nýtt met var slegiđ í Ráđhúsinu ţegar Jón Gerald Sullenberger kaupmađur mćtti á maraţon krakkanna.

Gerald borgađi 50 ţúsund krónur fyrir skák Stefáns Bergssonar og Doniku Kolica.

Margir góđir gestir hafa lagt leiđ sína í Ráđhúsiđ eftir hádegiđ, og lagt sitt af mörkum í ţágu málstađarins.

Krakkarnir ţakka Jóni Gerald og öđrum gestum kćrlega fyrir komuna og vona ađ sem flestir komi til viđbótar, nú ţegar tveir og hálfur tími er eftir af maraţoninu mikla!


Hörkuskák hjá Guđmundi Sigurjónssyni og Vigni Vatnari

Vignir og Guđmundur Sigurjónsson

Guđmundur Sigurjónsson stórmeistari kom í heimsókn í Ráđhúsiđ og lagđi sitt af mörkum í ţágu málstađarins.

Guđmundur varđ stórmeistari í skák áriđ 1970, 23 ára ađ aldri. Hann varđ ţrisvar Íslandsmeistari á árunum 1965-1972 og lagđi marga sterkustu skákmenn heims.

Guđmundur sagđist ekki hafa teflt í 20 ár ţegar hann settist ađ tafli gegn Vigni Vatnari, 8 ára. Úr varđ hörkuskák og ţurfti stórmeistarinn ađ rifja upp gamla takta gegn hinum geđţekka meistara framtíđarinnar.

Ţar međ hafa ţrír af stórmeisturum okkar lagt leiđ sína í Ráđhúsiđ, Ţröstur Ţórhallsson, Helgi Ólafsson og Guđmundur Sigurjónsson.

 


Listmálari gefur fallegt málverk í söfnunina fyrir börnin í Sómalíu: Hver býđur best?

Ingunn og Stefán.Krakkarnir sem nú tefla í Ráđhúsi Reykjavíkur til bjargar sveltandi börnum í Sómalíu fengu aldeilis liđsstyrk.

Listmálarinn Ingunn Nielsen sem nú heldur einmitt sýningu í Ráđhúsinu, fćrđi söfnuninni málverk, sem bođiđ verđur upp og selt hćstbjóđanda.

Ingunn sagđist hrífast af framtaki krakkanna, og vildi leggja sitt af mörkum.

Gestir í Ráđhúsinu í dag geta skođađ ţetta fallega málverk.

Skákkrakkarnir ţakka Ingunni hlýhuginn.

Og bíđa eftir tilbođum!


Henrik tapađi í lokaumferđinni - endar í 16.-36. sćti

HenrikHenrik Danielsen (2535) tapađi fyrir kínverska stórmeistarann Hua Ni (2662) í 10. og síđustu umferđ Politiken Cup sem fram fór í morgun.  Henrik hlaut 7 vinninga og endađi í 16.-36. sćti.  Rússneski stórmeistarinn Igor Kurnosov (2633) sigrađi á mótinu en hann hlaut 8,5 vinning. 

Í 2.-6. sćti međ 8 vinninga urđu stórmeistararnir Julian Radulski (2556), Búlgaríu, Boris Savchenko (2615), Rússlandi, Robert Hess (2609), Bandaríkjunum, Peter Heine Nielsen (2681), Danmörku og áđurnefndur Nua Hi.

Frammistađa Henriks samsvarađi 2556 skákstigum og hćkkar hann um 8 stig fyrir frammistöđu sína. 

Gunnar Finnlaugsson (2079) tapađi í lokaumferđinni, hlaut 5 vinninga, endađi í 126.-179. sćti, og stendur í stađ, stigalega séđ.

Skákir Henriks á mótinu má nálgast hér

311 skákmenn taka ţátt í ţessu móti, sem fram fer í 30. júlí - 7. ágúst, og ţar af eru 26 stórmeistarar.  Henrik er nr. 19 í styrkleikaröđ keppenda en Gunnar er nr. 126.  Tefldar eru 10 umferđir.


Viđ erum ein fjölskylda: Straumurinn er í Ráđhúsiđ!

Lilja og NansýGuđfríđur Lilja Grétarsdóttir mćtti fersk í Ráđhúsiđ og keypti skák fyrir tengdamóđur sína. Hún réđ Hrafn Jökulsson til ađ tefla viđ Nansý Davíđsdóttur fyrir 10 ţúsund krónur, sem renna í söfnunina til bjargar börnunum í Sómalíu.

Lilja, sem hefur 11 sinnum orđiđ Íslandsmeistari kvenna, lék fyrsta leikinn fyrir Nansý. Úr varđ mikil baráttuskák, međ ţungri undiröldu, en jafntefli urđu sanngjörn úrslit.

Jafn straumur fólks er í Ráđhúsiđ. Afi kom međ ţrjú barnabörn, sem öll spreyttu sig gegn skákkrökkunum, og borgađi 5000 krónur fyrir hverja skák.

Skákkrakkarnir í Ráđhúsinu senda skákmönnum kveđju og vonast til ađ sjá sem flesta í dag.

 Mikiđ er í húfi: Rauđi krossinn berst upp á líf og dauđa viđ hungursneyđina í Sómalíu.

Og eins og Donika Kolica sagđi í fréttum Stöđvar 2 í gćrkvöldi: Margt smátt gerir eitt stórt.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 6
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 102
  • Frá upphafi: 8778342

Annađ

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 76
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband