Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Caruana međ á Reykjavíkurskákmótinu

 

Ítalinn ungi Fabiano Caruana

 

Ítalski stórmeistarinn, Fabiano Caruana (2736), stigahćsti skákmađur heims undir tvítugu, er međal keppenda á Reykjavíkurskákmótinu sem fram fer 6.-13. mars nk. í Hörpu.   Ítalinn ungi er sá stigahćsti sem nokkurn tíma hefur teflt á Reykjavíkurskákmóti.  Caruana er ţó ekki sá eini međ yfir 2700 skákstig sem tekur ţátt ađ ţessu sinni ţví međal annarra keppenda má nefna Tékkann sterka David Navara (2712).

Međal annarra skráđra keppenda má nefna Úkraínumanninn Yuriy Kryvoruchko (2666), einn sigurvegara Reykjavíkurmótsins 2009, Englendinginn Gawain Jones (2653), Hollendinginn Ivan Sokolov (2641), sem hefur sigrađ á mótinu margoft, Bandaríkjamanninn Robert Hess (2625), sem var ađ sigra á sterku alţjóđlegu móti í Groningen og Úkraínumennina Kuzubov (2616) og Baklan (2612) sem báđir voru međal sigurvegara í fyrra.   Ísraelski stórmeistarinn Boris Avrukh (2605) tekur ţátt en margir íslenskir skákmenn hafa keypt skákbćkur eftir hann.

Íslensku stórmeistararnir Henrik Danielsen (2536), Hannes Hlífar Stefánsson (2534), fimmfaldur sigurvegari Reykjavíkurmótsins, Stefán Kristjánsson (2500) og Ţröstur Ţórhallsson (2400) eru einnig skráđir til leiks sem og landsliđsmađurinn ungi Hjörvar Steinn Grétarsson (2470). 

Alls eru 108 skákmenn nú ţegar skráđir en gert er ráđ fyrir ađ ţátt taki á milli 150 og 200 keppendur.

 


KORNAX mótiđ - Skákţing Reykjavíkur hefst á sunnudag - skráđir keppendur komnir yfir 50

KORNAX mótiđ 2012 - Skákţing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 8. janúar kl. 14. Tefldar verđa 9 umferđir eftir svissnesku kerfi og eru tímamörk 1˝ klst. á alla skákina auk 30 sek. á leik. Umferđir fara fram á miđvikudögum og föstudögum kl. 19.30 og á sunnudögum kl. 14.  Teflt er í húsnćđi Taflfélags Reykjavíkur ađ Faxafeni 12.

Nú ţegar eru 54 keppendur skráđir til leiks og ţar á međal 4 alţjóđlegir meistarar ţeir: Bragi Ţorfinnsson (2426), Jón Viktor Gunnarsson (2424),  Björn Ţorfinnsson (2406) og Guđmundur Kjartansson (2326) sem fór mikinn í Hastings og náđi nćrri áfanga ađ stórmeistaratitli.  Skráning í mótiđ fer fram á heimasíđu TR og upplýsingar um skráđa keppendur má finna hér.

Verđlaun:

  • 1. sćti kr. 100.000
  • 2. sćti kr. 50.000
  • 3. sćti kr. 25.000
  • Besti árangur undir 2000 skákstigum kr. 10.000 (íslensk stig gilda)
  • Besti árangur undir 1800 skákstigum kr. 10.000 (íslensk stig gilda)
  • Besti árangur undir 1600 skákstigum - bókaverđlaun (íslensk stig gilda)
  • Besti árangur undir stigalausra - bókaverđlaun

Sigurvegarinn hlýtur auk ţess nafnbótina Skákmeistari Reykjavíkur 2012 og farandbikar til varđveislu í eitt ár.  Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er Björn Ţorfinnsson.

Ţátttökugjöld:

  • kr. 4.000 fyrir 16 ára og eldri
  • kr. 2.000 fyrir 15 ára og yngri

Dagskrá:

  • 1. umferđ sunnudag   8. janúar  kl. 14
  • 2. umferđ miđvikudag 11. janúar  kl. 19.30
  • 3. umferđ föstudag     13. janúar  kl. 19.30
  • 4. umferđ sunnudag   15. janúar  kl. 14
  • 5. umferđ miđvikudag 18. janúar  kl. 19.30
  • 6. umferđ föstudag      20. janúar  kl. 19.30
  • 7. umferđ sunnudag    22. janúar  kl. 14
  • 8. umferđ miđvikudag 25. janúar  kl. 19.30
  • 9. umferđ föstudag      27. janúar  kl. 19.30

Skákţingiđ er reiknađ til alţjóđlegra skákstiga.

Skráning fer fram á heimasíđu Taflfélags Reykjavíkur, http://www.taflfelag.is.

Athugiđ ađ skráningu lýkur 15 mínútum fyrir auglýst upphaf móts, ţ.e. kl. 13.45.


Giri sigurvegari ofurmótsins í Reggio Emilia

Anish GiriHinn ungi og efnilegi hollenski17 ára  skákmađur Anish Giri (2714) sigrađi á ofurmótinu í Reggio Emila sem lauk í dag.  Giri, sem gerđi jafntefli viđ annan ungan og efnilegan skákmann, Caruano (2727) í lokaumferđinni, hlut 16 stig.  Caruana, Morozevich (2762) og Nakamura (2758) komu nćstir međ 15 stig.  Mjög fjörlega var teflt á mótinu og allt annar yfirbragđ en á mörgum ofurmótum.

Stađan:
  • 1. Giri (2714) 16 stig
  • 2.-4. Morozevich (2762), Nakamura ( 2758) og Caruana (2727) 15 stig.
  • 5. Ivanchuk (2775) 12 stig
  • 6. Vitjugov (2729) 8 stig

Heimasíđa mótsins


Henrik međ 3˝ vinning eftir 5 umferđir í Chennai

HenrikStórmeistarinn Henrik Danielsen (2536) hefur 3˝ vinning eftir 5 umferđir á alţjóđlegu skákmóti sem fram fer í Chennai í Indlandi.  Henrik vann sína skák í gćr en gerđi jafntefli í tveimur skákum í dag.  Hann er í 36.-72. sćti. 

Andstćđingur Henriks í gćr hafđi 2243 skákstig en andstćđingarnir í dag höfđu 2349 og 2215 skákstig.

Alls taka 297 skákmenn ţátt í mótinu og ţar af eru 16 stórmeistarar.   Henrik er nr. 5 í stigaröđ keppenda.  

Hćgt er ađ fylgjast međ átta skákum beint í hverri umferđ á Chessbomb.  Umferđirnar hefjast hins vegar allar hér eftir kl. 4 ađ nóttu!

 

 


Nýársmót Gallerý Skákar: Gunni Gunn fór međ sigur af hólmi

Gunnar GunnarssonNýársmót Gallerý skákar var haldiđ í gćrkvöldi í Listasmiđjunni, Bolholti og fór fram í góđu yfirlćti. Tuttugu keppendur tóku ţátt og tefldu 11 umferđir međ 10 mín. uht., eins og venjan er ţar á bć.

Hinn aldni skákmeistari Gunnar Kr. Gunnarsson (78) , fyrrv. Íslandsmeistari og forseti SÍ, sýndi styrk sinn og sannađi ţađ ađ lengi lifir í gömlum glćđum međ ţví ađ fara enn einu sinni međ sigur af hólmi í kappmóti, enda ţótt hrađskákmót vćri. 

Gunnar hlaut 9 vinninga og fór létt međ ţetta, en sérstaka athygli vakti ađ hinn ungi skákmađur Atli Jóhann Leósson náđi sér vel á strik og varđi í 2. sćti međ 8 vinninga.

Kristinn Bjarnason varđ ţriđji međ 7.5 v.  

Hiđ unga og upprennandi skákséní Vignir Vatnar Stefánsson, ađeins 8 ára, gerđi sér lítiđ fyrir og varđ í deildu 4.-6. sćti ásamt Gísla Gunnlaugssyni og Stefáni Ţormar Guđmundssyni, gamalreyndum refum,  međ 6 og hálfan. Ţrátt fyrir góđan árangur var hinn ungi meistari sár viđ sjálfan sig fyrir ađ missa nokkrar skákir fyrir borđ, en slíkt hendir einnig ţá eldri, sem hafa ekki úr háum söđli ađ detta hvađ ţađ varđar. Annars var mótiđ frekar jafnt og enginn vinningur auđsóttur frekar en fyrri daginn. Sigurvegararnir voru leystir út međ nammi. 

Önnur úrslit skv. töflu og nánar um mótiđ á www.galleryskak.net.

 

img_7650_1129769.jpg

 


Skákdagurinn rćddur

Fundur allmargra forystumanna í skákhreyfingunni fór fram í húsnćđi SÍ í gćr.  Stefán Bergsson ritađi fundgerđ sem má hér finna í heild sinni.

Fundur forystumanna í skákhreyfingunni um Skákdaginn

Skáksambandi Íslands

5. janúar 2012

20:00 - 21:30

 

Fundargerđ

Mćttir: Halldór Grétar Einarsson Taflfélagi Bolungarvíkur, Helgi Árnason Fjölni, Vigfús Óđinn Vigfússon Helli, Tinna Kristín Finnbogadóttir og Erla UMSB, Finnur Kr. Finnsson fulltrúi heldri skákmanna á höfuđborgarsvćđinu, Pálmi Pétursson Mátum, Eiríkur Björnsson TR, Áróra Hrönn Skúladóttir kennari Salaskóla og skákforeldri, Gunnar Björnsson forseti SÍ og Stefán Bergsson framkvćmdastjóri Skákakademíu Reykjavíkur.

Í gegnum Skype tóku ţátt Guđmundur Ingvi Jóhannsson og Jón Björnsson frá SAUST og Unnar Ingvarsson Skákfélagi Sauđarkróks.

1.     Kynning frá SÍ og SR.

Stefán Bergsson fór yfir hugmyndina međ Skákdeginum; ađ sem flestir skákviđburđir vćru um allt Ísland á Skákdaginn, sem flestir tefldu á öllum aldri, Friđriki Ólafssyni til heiđurs. Ţannig megi í senn sýna Friđriki Ólafssyni ţakklćti fyrir sitt framlag og um leiđ sýna ţjóđinni ţá stórsókn sem íslensk skákhreyfing hefur blásiđ til síđustu misserin, nú síđast međ samningi um Reykjavíkurskákmótiđ í Hörpu. Skákdagurinn verđur árlegur viđburđur.

2.     Fulltrúar taflfélaganna fóru yfir hvađ ţeirra félag hyggst gera á Skákdaginn.

TR: TR-ingar horfa til viđburđar um kvöldiđ í félagsheimili sínu í Faxafeni. Hafa hug á ađ heiđra Friđrik enda hann félagsmađur í Taflfélaginu alla tíđ.

Mátar: Mátar tefla reglulegar innanfélagsmentur á fimmtudögum. Mátar hyggjast virkja sem flesta nýja félagsmenn á Skákdaginn en margir Mátar gengu í Máta síđastliđiđ haust.

Hellir: Hellismenn líta jafnvel til göngugötunnar í Mjódd, en hafa ekki sal sinn til afnota á fimmtudögum.

Fjölnir: 19. Meistaramót Rimaskóla verđur haldiđ á Skákdaginn.

UMSB: Borgfirđingar stefna á fjöltefli stórmeistara um miđjan daginn á Hyrnutorgi. Sundlaugin í Borgarnesi verđur skákvćdd međ skáksetti frá Skákakademíu Reykjavíkur.

Skákhreyfing heldri borgara á höfuđborgarsvćđinu: Hiđ árlega TOYOYTA-mót verđur hugsanlega haldiđ í höfuđstöđvum fyrirtćkisins. Einnig er möguleiki á ađ heldri skákmenn tefli í Smáralindinni.

Bolvíkingar: Stefna á innanfélagsmót. Félagsmenn halda reglulegar ćfingar heima hjá hverjum öđrum.

Skákfélag Sauđarkróks: Sauđkrćklingar halda reglulegar skákćfingar og munu standa fyrir skákviđburđi á Skákdaginn. Kennsla er hafinn í skólum.

SAUST: Austfirđingar leggja áherslu á skákviđburđ innan skólanna en nokkur skákkennsla er á Austurlandi. Sverrir Gestsson skólastjóri og skákmađur stendur fyrir kennslunni.

Ađ auki barst fundinum erindi frá nokkrum félögum sem áttu ekki fulltrúa en munu standa fyrir skákviđburđum á Skákdaginn.

Skákfélag Akureyrar: - stefna ađ mótshaldi enda mikil skákhefđ nyrđra á fimmtudögum.

VIN: - minningarmót um Björn Sigurjónsson.

Gođinn: - mikil áform, sýningar, taflmennska og opiđ hús.

Strandir: - Strandamenn standa fyrir skákviđburđi.

3.     Hugmyndir og frjálsar umrćđur

Miklar og góđar umrćđur áttu sér stađ á fundinum međ ţátttöku allra fundarmanna. Bćđi í tengslum viđ Skákdaginn og skákstarf almennt. Hér ađ neđan verđa ţćr hugmyndir útlistađar á snarpan máta:

a)    Teflt úti á miđum á Skákdaginn gegnum netiđ.

b)    Hjörvar Steinn teflir viđ ţjóđina gegnum netiđ.

c)     Teflt í sem flestum skólum landsins á sama tíma. Áróra kennari í Salaskóla nefndi sambćrilegt dćmi um ţegar margir nemendur landsins hlustuđu á sömu sögu á sama tíma.

d)   Unnar Ingvarsson kom međ hugmynd um ađ skákmeistarar rúntuđu hringinn um landiđ og tefldu fjöltefli. Borgfirđingar tóku undir ţetta og nefndu vinsćldir fjöltefla Helga Ólafs í Borgarnesi fyrir nokkrum árum. Unnar nefndi stađi međ fullt af skákmönnum sem fjöltefli myndu lífga viđ, eins og t.d. Blönduóss ţar sem var mikiđ skáklíf fyrir 2-3 áratugum. Rćtt um fjölda plássa um allt land sem hafa í gegnum tíđina haft einhverja skákvirkni.

e)    Pálmi Pétursson talađi um vinnustađi ţar sem skákmenn tefldu. Taldi ţađ geta virkt slíka  áhuga skákmenn enn frekar međ heimsóknm skákmeistara.

f)      Upp kom hugmynd um ađ hafa sem flest meistaramót grunnskóla á sama tíma.

g)    Pálmi Pétursson stakk upp á ađ stefna stjórnarandstöđunni gegn ríkisstjórninni á skákborđinu.

h)   Halda yfirlit yfir fjölda tefldra skák á Skákdaginn.

i)      Hafa rafrćna gestabók landsmanna sem tefla á Skákdaginn.

 

Fundinn ritađi Stefán Bergsson.


Veitingasala verđur á Íslandsmóti barna í Rimaskóla

Á Íslandsmóti barna 2012, sem hefst kl. 11:00 á morgun laugardag,  verđur bođiđ upp á veitingasölu á mótstađ í Rimaskóla.

Ţađ er skákdeild Fjölnis sem sér um veitingasöluna ađ ţessu sinni. Bođiđ verđur upp á  mat og drykki, hollustu og óhollustu í góđu úrvali.

Hćgt verđur ađ greiđa međ korti og peningum en ekki í bođi ađ skrifa. Í Rimaskóla er gott rými og góđ ađstađa til ađ njóta góđra veitinga á sanngjörnu verđi.


Guđmundur tapađi í lokaumferđinni - fín frammistađa

Guđmundur KjaAlţjóđlegi meistarinn Guđmundur Kjartansson (2326) tapađi fyrir franska stórmeistaranum Andrei Istatescu (2627) í hörkuskák í  níundu og síđustu umferđ Hastings-mótsins sem fram fór í dag.  Guđmundur hlaut 6 vinninga og endađi í 8.-20. sćti.  Fín frammistađa hjá Guđmundi sem var nćrri stórmeistaraáfanga en hefđi ţurft sigur í lokumferđinni.

Frammistađa Guđmundar samsvarađi 2499 skákstigum.  Guđmundur hćkkar um heil 20 stig fyrir frammistöđuna.  

Kínverski stórmeistarinn Wang Yue (2697) sigrađi á mótinu en hann hlaut 7˝ vinning.  Istatescu varđ í 2.-4. sćti međ 7 vinninga ásamt indversku alţjóđlegu meisturunum Babu Lalith (2484) og Sundar Shyam (2462).

Skákir Guđmundar úr tveimur síđustu umferđunum fylgja međ fréttinni.

116 skákmenn tóku ţátt í Hastings.  Ţar á međal voru 13 stórmeistarar.  Guđmundur var nr. 30 í stigaröđ keppenda. 


Riddarinn: Sigurđur Herlufsen á mikilli sigurbraut

Sigurđur HerlufsenNýársmót Riddarans fór fram í 4. janúar í Vonarhöfn, ţar sem 23 aldnar skákkempur voru mćttar til tafls og hófu nýtt skákár. Reyndar höfđu ţó einhverjir í hópnum tekiđ forskot á sćluna í Ásgarđi í gćr enda virkir í báđum skákklúbbum eldri borgara.

Ađ venju voru tefldar 11 umferđir međ 10 mín. uht. í striklotu enda sötra keppendur kirkjukaffi eđa vígt vatn međan á atganginum stendur, sem gefur mönnum byr í seglin, hressir og kćtir.  

Athygli vakti ađ sigursćli og trausti skákmađur Sigurđur Herlufsen (75) fullkomnađi ţrennuna međ ţví ađ vinna ţriđja mótiđ í Riddaranum í röđ og nú međ 10 vinningum af 11 mögulegum. Skemmst er ađ minnast ađ hann vann Jólakappmótiđ í síđustu viku einnig, hlaut ţá 8.5v. og mótiđ fyrir Jólin međ
9.5v,  enda ţótt viđ ramman reip hafi veriđ ađ draga og ţrćlsterkir   fyrrv. meistaraflokksmenn međal keppenda. 

Reyndar er ţađ svo ađ Sigurđur hefur unniđ 5 af síđustu 6 mótum, sem er einnig klúbbsmet og hefur hlotiđ í ţeim hlotiđ 54.5 vinning af 66 mögulegum.  Geri ađrir betur. Einstaklega glćsilegur og góđur  árangur sérstaklega í ljósi ţess ađ hann teflir afar litlausan stöđubaráttustíl, svona í anda Botvinniks eđa Petrosians fyrrv. heimsmeistara. Kannski veldur lognvćran og látleysiđ ţví ađ mótherjum hans hćttir til ađ sofna á verđinum, ef ţeim verđur á  minnsta ónákvćmni er tafliđ tapađ, nema tímahrak komi til. 

Önnur úrslit skv. međf. töflu:

image0.jpg

Meira á www.riddarinn.net.     

 


Páll Leó ofurhrađskákmeistari SSON

Pall Leó Jónsson vinnur hrađskákmót af öryggi.  Níu keppendur mćttu til leiks í gćrkvöldi á ofurhrađskákmóti SSON og tefldu tvöfalda umferđ af 5 mínútna skákum alls 16 skákir hver. Páll Leó var međ fullt hús vinninga ađ loknum fyrri hlutanum en slakađi eilítiđ á í ţeim seinni, tapađi fyrir Ingvari Erni sem varđ annar á mótinu og gerđi jafntefli viđ formanninn og Ingimund.

Lokastađan:

1. Páll Leó           14
2. Ingvar Örn      11
3. Ingimundur     9,5
4. Magnús           9
5. Erlingur J         9
6. Inga               8,5
7. Grantas          6,5
8. Magnús Garđ  6
9. Arnar              0

Heimasíđa SSON


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.9.): 12
  • Sl. sólarhring: 26
  • Sl. viku: 150
  • Frá upphafi: 8780516

Annađ

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 86
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband