Fćrsluflokkur: Spil og leikir
9.4.2013 | 13:43
Ađalfundur SÍ fer fram 11. maí
Stjórn Skáksambands Íslands bođar hér međ til ađalfundar Skáksambandsins í samrćmi viđ 8. gr. laga S.Í.
Fundurinn verđur haldinn laugardaginn 11. maí nk. kl. 10.00 fyrir hádegi í Faxafeni 12, Reykjavík.
Dagskrá: Venjuleg ađalfundarstörf.
Stjórn Skáksambandsins sendir ennfremur međ fundarbođinu gögn varđandi skrá yfir fullgilda félagsmenn ađildarfélaga S.Í. Stjórnir ađildarfélaganna eru vinsamlegast beđnar ađ útfylla skrár ţessar vandlega og senda ţćr Skáksambandi Íslands í pósth. 8354, 128 Reykjavík eđa á netfang skaksamband@skaksamband.is fyrir 27. apríl 2013.
Bréf ţetta er sent ásamt gögnum í samrćmi viđ 9. gr. laga S.Í., en sú grein hljóđar svo:
Viđ atkvćđagreiđslu á ađalfundi á hvert félag eitt atkvćđi enda hafi ţađ a.m.k. 10 félagsmenn međ lögheimili á Íslandi í Keppendaskrá Skáksambandsins tveim vikum fyrir ađalfund. Eitt atkvćđi bćtist viđ hjá félagi fyrir hverja sveit sem ţađ sendir í Íslandsmót skákfélaga ţađ áriđ. Viđ atkvćđagreiđslu um kjörbréf í upphafi fundar skal gilda sú regla, ađ hvert félag fari ekki međ fleiri atkvćđi en ţađ hafđi á ađalfundi áriđ áđur. Enginn fulltrúi getur fariđ međ meira en eitt atkvćđi á fundinum. Viđ atkvćđagreiđslur á ađalfundi rćđur einfaldur meirihluti atkvćđa, nema um ţau mál sem sérstaklega eru tilgreind í ţessum lögum.
Einnig skal bent á 6. grein:
Standi ađildarfélag í gjaldfallinni skuld viđ sambandiđ hefur ţađ ekki rétt til ađ eiga fulltrúa á ađalfundi. Skákdeildir í félögum geta átt ađild ađ sambandinu, enda hafi ţá minnst 10 menn bundist slíkum samtökum. Heimilt er tveimur eđa fleiri ađildarfélögum í sama landshluta ađ stofna međ sér svćđissamband.
Taflfélögunum gefst kostur á ađ birta stutta skýrslu um starfsemi sína á síđasta starfsári í árrsskýrslu Skáksambands Íslands. Hafi félögin áhuga á ţessu ţarf efni ađ hafa borist skrifstofu S.Í. í síđasta lagi 27. apríl nk.
Virđingarfyllst,
SKÁKSAMBAND ÍSLANDS
9.4.2013 | 13:25
Gríđarlega fjölmennt Skólaskákmót Kópavogs
Skólaskákmót Kópavogs fór fram í tveimur hlutum vegna ţess hversu fjölmennt ţađ var. Fyrri hlutinn fór fram á föstudag en síđan var mótinu lokiđ í gćr í mánudag ţegar keppni nemenda í 3. og 4. bekk fór fram. Meira en 220 keppendur tóku ţátt en keppt var í fjórum flokkum. Teflt var í Álfhólsskóla.
1.-2. bekkur
Alls tóku 52 skákmenn ţátt í keppni ţeirra sem eru í 1. og 2. bekk. Ţar hafđi Róbert Luu, Álfhólsskóla, sigur međ fullu húsi en tefldar voru fimm umferđir. Í öđru sćti varđ Ingibert Snćr Erlingsson, einnig úr Álfhólsskóla međ 4˝ vinning og ţriđji varđ Daniel Sveinsson, sem er líka er Álfhólsskóla, međ 4 vinninga.
María Jónsdóttir, Salaskóli, varđ efst stúlkna, Freyja Birkisdóttir, Smáraskóla, önnur og Vigdís Lilja Kristjánsdóttir, Álfhólsskóla, ţriđja.
Lokastöđuna má finna hér.
3.-4. bekkur
88 skákmenn tóku ţátt. Vignir Vatnar Stefánsson, Hörđuvallaskóla, og Tinni Teitsson, Snćlandsskóla, komu efstir og jafnir í mark međ fullt hús eftir sex umferđir. Vignir vann úrslitaskák ţeirra á millum. Ţriđji međ 5 vinninga eftir stigaútreikning varđ Jón Ţór Jóhannsson, Salaskóla.
Dagmar Vala Hjörleifsdóttir, Álfhólsskóla, varđ efst stúlkna, Elísabet Alda Georgsdóttir, einnig úr Álfhólsskóla, varđ önnur og Elín Edda Jóhannsdóttir, Salaskóla, ţriđja.
Lokastöđuna má finna hér.
5.-7. bekkur
60 skákmenn tóku ţátt í flokknum. Dawid Pawel Kolka, Álfhólsskóla, sigrađi međ fullu hús vinninga í sjö skákum. Annar var Bárđur Örn Birkisson, Smáraskóla, međ 6 vinninga og ţriđji varđ Jason Andri Gíslason, úr Salaskóla međ 5 vinninga. Dawid og Báđur Örn hafa tryggt sér keppnisrétt á Kjördćmismóti Reykjaness.
Guđrún Vala, Salaskóla, varđ efst stúlkna, Tinna Ţrastardóttir, einnig úr Salaskóla önnur, og Móey María Sigţórsdóttir, sem líka er úr Salaskóla, ţriđja.
Lokastöđuna má finna hér.
8.-10. bekkur
Róbert Leó Jónsson, Álfhólsskóla, og Kristófer Orri Guđmundsson, Vatnsendaskóla, urđu efstir og jafnir í elsta flokki međ 6 vinninga í 7 skákum. 23 skákmenn tóku ţátt. Róbert hafđi betur eftir stigaútreikning. Hildur Berglind Jóhannsdóttir, Salaskóla, varđ ţriđja og efst stúlkna međ 5 vinninga Ludvik Árni Guđmundsson, Vatnsendaskóla, fékk ţriđja sćtiđ í strákaflokki en hann hlaut einnig 5 vinninga.
Sonja María Friđriksdóttir, Álfhólsskóla, varđ önnur stúlkna og Erna Pétursdóttir, Vatnsendaskóla, varđ ţriđja.
Róbert Leó og Kristófer Orri hafa unniđ sér rétt til ađ tefla á kjördćmamóti Reykjaness.
Lokastöđuna má finna hér.
Myndaalbúm (Tómas Rasmus)
Spil og leikir | Breytt 10.4.2013 kl. 15:23 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2013 | 23:57
Skák eflir skóla - nýútkomin skýrsla
Út er komin skýrslan Skák eflir skóla á vegum menntamálaráđuneytisins. Skýrslan var unnin á fyrstu mánuđum ţessa árs, og fjallar um skákkennslu í víđu samhengi; kosti hennar og umfang. Skýrslan er góđur leiđarvísir fyrir áframhaldandi skákvćđingu grunnskóla landsins og kemur ýmislegt athyglisvert og nytsamlegt fram í henni.
Í skýrslunni má m.a. finna:
- umsagnir kennara, stjórnenda og foreldra
- úttekt á erlendum rannsóknum á áhrifum skákkennslu
- könnun á umfangi og eđli skákkennslu í grunnskólum landsins
- vísi ađ tilraunaverkefni í skákkennslu ţar sem skák verđur kennd af almennum kennurum
Af síđu ráđuneytisins:
Í ársbyrjun 2013 skipađi mennta- og menningarmálaráđherra nefnd sem var faliđ ađ kanna kosti skákkennslu í grunnskólum međ sérstakri áherslu á áhrif skákkennslu á námsárangur og félagslega fćrni barna. Nefndinni var faliđ ađ kortleggja stöđu skákkennslu í grunnskólum á Íslandi, afla gagna og vitnisburđa og rýna í alţjóđlegar rannsóknir á áhrifum skákiđkunar í skólum. Auk ţess var nefndinni faliđ ađ gera tillögur ađ tilraunverkefni á sviđi skákkennslu.
Í nefndina voru skipuđ ţau Anna Kristín Jörundsdóttir, kennari, Guđfríđur Lilja Grétarsdóttir, Alţingismađur, sem jafnframt var skipuđ formađur, Helgi Árnason, skólastjóri, Helgi Ólafsson, skólastjóri, Hrafn Jökulsson, rithöfundur, Lenka Ptácníková, stórmeistari kvenna og Stefán Bergsson, framkvćmdastjóri. Stefán Baldursson, skrifstofustjóri, starfađi međ nefndinni af hálfu mennta- og menningarmálaráđuneytisins."
Nánar á vef menntamálaráđuneytisins.
8.4.2013 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Gelfand kom Magnúsi Carlsen til hjálpar

Samkvćmt tölfrćđi sem Jeff Sonas vann eru nú um 75% líkur á ţví ađ Magnús vinni mótiđ og 21% líkur á ţví ađ Aronjan vinni. Möguleikar ţess síđarnefnda eru ţó enn góđir. Verđi hann í efsta sćti ásamt Magnúsi ţá telst sá sigurvegari sem unniđ hefur fleiri skákir. Magnús getur ţ.a.l. ekki siglt fleyi sínu í jafnteflishöfn í lokaumferđunum en hann hefur hvítt í ţrem skákum af fimm. Elstu keppendurnir í London, Gelfand og Ivantsjúk, hafa náđ sér á strik eftir slaka byrjun. Gelfand vann Radjabov í 8. umferđ og í nćstu umferđ gerđi hann Magnúsi mikinn greiđa er hann lagđi Aronjan:
Boris Gelfand - Levon Aronjan
Drottningarbragđ
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3 Be7 5. Bf4 O-O 6. e3 Rbd7
Ţessi leikur hefur aftur tekiđ yfir sem vinsćlasta svariđ viđ Bf4-leiđinni. Á Ol í Novi Sad 1990 í viđureign Sovétríkjanna gegn Íslandi - ţeirri síđustu sem Sovétríkin háđu á Ólympíumóti - lék Gelfand 7. Dc2 gegn undirrituđum en velur nú ađra leiđ.
7. Be2 c6 8. O-O Rh5 9. Be5 f6 10. Bg3 f5 11. Be5 Rhf6 12. h3 Rxe5 13. Rxe5 Rd7 14. f4 Rxe5 15. fxe5 Bg5 16. Dd2 Bd7 17. Hac1 Hc8 18. a3 Kh8 19. b4 Be8 20. Bd3 Hc7 21. Re2!
Vandamál svarts snúast um ţađ hversu ţröng stađa hans og peđastađa hans er ekki góđ međ tilliti til endatafls.
21. ... Bh5 22. Rf4 Bxf4 23. exf4 Hd7 24. De3!?
Hann gat lokađ taflinu međ 24. c5 og opnađ síđan línur á drottningarvćng.
24. ... dxc4 25. Bxc4 Hxd4?
Hćpin ákvörđun Sjálfsagt var 24. ... He8 ţó hvítur eigi góđa möguleika međ 25. d5! exd5 26. Bd3 d4 27. Dd2.
26. Bxe6 Bf7 27. Bxf5 Bc4 28. e6 Dd6 29. Hfe1 He8 30. e7 Bf7 31. Hc5 g6 32. Bg4 h5?
Aronjan hefur stundum áđur gert sig sekan um ađ reyna ađ notfćra sér tímahrak andstćđingsins. Ţetta gerir ađeins illt verra og Gelfand lćtur tćkifćriđ sér ekki úr greipum ganga. Mun betra var 32. ... Hd3, t.d. 33. De5+ Dxe5 34. Hexe5 a6 og síđan - Kg7 og Kf6 viđ tćkifćri.
33. f5!
Međ hugmyndinni 33. .... hxg4 34. Dh6+ Kg8 35. fxg6 Bxg6 35. Hg5 og vinnur.
33. ... Kg7 34. fxg6 Bxg6 35. Bxh5
Einfaldara og betra var 35. Hxh5!; eftir 35. ... Bxh5 36. Bxh5 er svartur bjargarlaus.
35. .... Hd3 36. De5+ Dxe5 37. Hcxe5 Bxh5 38. Hxh5 Hxa3 39. Hf5!
Snjall leikur sem heldur opnum möguleikum á matsókn međ tveim hrókum.
39. ... Hd3 40. He4 Hd7 41. Hg4+ Kh6 42. Hf6+ Kh7
42. ... Kh5 virtist kom til greina en eftir 43. Hfg6! Hdxe7 kemur 44. H4g5+ Kh4 45. g3+! Kxh3 46. Hh6 mát.
43. Hf7+ Kh6 44. Hgg7 Hd1 45. Kh2 Hf1 46. Hh7+ Kg6 47. Hhg7+ Kh6 48. Hh7+ Kg6 49. Hfg7+ Kf6 50. h4 Ke6 51. Hg4 Kf5 52. Kg3 He1 53. Hf4+ Ke6 54. h5!
Einfaldast ţar sem frípeđ hvíts eru komin lengra.
54. ... Hxe7 55. Hxe7 Kxe7 56. Kh4 b6 57. h6 Hh1 58. Kg5 Ke6 59. Kg6 Ke5 60. Hf5+
- og Aronjan gafst upp.
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is----------------------------------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.
Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 1. apríl 2013.
Spil og leikir | Breytt 7.4.2013 kl. 21:14 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2013 | 17:08
Tímaritiđ Skák - skylduáskrift skákáhugamannsins
Tímaritiđ Skák 2013 kom út í febrúar. Um er ađ rćđa mjög veglegt árstímarit ţar sem fariđ er yfir liđiđ ár og fjallađ um helstu viđburđi eins og Reykjavíkurskákmótiđ, Skákţing Íslands og Íslandsmót skákfélaga.
Óhćtt er ađ segja ađ blađiđ hafi fengiđ góđar viđtökur skákáhugamanna.
Bođiđ er upp á áskirft á blađinu á 3.000 kr. og geta áhugasamir skráđ fyrir blađinu hér.
Međal efnis má nefna stórmerkileg viđtöl viđ Friđrik Ólafsson og Ţröst Ţórhallsson, ítarlegar greinar um ólympíuskákmótiđ og Íslandsmótiđ í skák.
Skylduáskrift skákáhugamannsins!
Allir skákáhugamenn eru hvattir til ađ gerast áskrifendur ađ ţessu glćsilega blađi og stuđla ađ ţví ađ ţví íslensk skáksaga varđveitist. Verđ á blađinu er 3.000 kr. Hćgt er ađ fá blađiđ frá í fyrra sent einnig greiđi menn til viđbótar 500 kr.7.4.2013 | 21:15
Skákţáttur Morgunblađsins: Gelfand kom Magnúsi Carlsen til hjálpar

Samkvćmt tölfrćđi sem Jeff Sonas vann eru nú um 75% líkur á ţví ađ Magnús vinni mótiđ og 21% líkur á ţví ađ Aronjan vinni. Möguleikar ţess síđarnefnda eru ţó enn góđir. Verđi hann í efsta sćti ásamt Magnúsi ţá telst sá sigurvegari sem unniđ hefur fleiri skákir. Magnús getur ţ.a.l. ekki siglt fleyi sínu í jafnteflishöfn í lokaumferđunum en hann hefur hvítt í ţrem skákum af fimm. Elstu keppendurnir í London, Gelfand og Ivantsjúk, hafa náđ sér á strik eftir slaka byrjun. Gelfand vann Radjabov í 8. umferđ og í nćstu umferđ gerđi hann Magnúsi mikinn greiđa er hann lagđi Aronjan:
Boris Gelfand - Levon Aronjan
Drottningarbragđ
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3 Be7 5. Bf4 O-O 6. e3 Rbd7
Ţessi leikur hefur aftur tekiđ yfir sem vinsćlasta svariđ viđ Bf4-leiđinni. Á Ol í Novi Sad 1990 í viđureign Sovétríkjanna gegn Íslandi - ţeirri síđustu sem Sovétríkin háđu á Ólympíumóti - lék Gelfand 7. Dc2 gegn undirrituđum en velur nú ađra leiđ.
7. Be2 c6 8. O-O Rh5 9. Be5 f6 10. Bg3 f5 11. Be5 Rhf6 12. h3 Rxe5 13. Rxe5 Rd7 14. f4 Rxe5 15. fxe5 Bg5 16. Dd2 Bd7 17. Hac1 Hc8 18. a3 Kh8 19. b4 Be8 20. Bd3 Hc7 21. Re2!
Vandamál svarts snúast um ţađ hversu ţröng stađa hans og peđastađa hans er ekki góđ međ tilliti til endatafls.
21. ... Bh5 22. Rf4 Bxf4 23. exf4 Hd7 24. De3!?
Hann gat lokađ taflinu međ 24. c5 og opnađ síđan línur á drottningarvćng.
24. ... dxc4 25. Bxc4 Hxd4?
Hćpin ákvörđun Sjálfsagt var 24. ... He8 ţó hvítur eigi góđa möguleika međ 25. d5! exd5 26. Bd3 d4 27. Dd2.
26. Bxe6 Bf7 27. Bxf5 Bc4 28. e6 Dd6 29. Hfe1 He8 30. e7 Bf7 31. Hc5 g6 32. Bg4 h5?
Aronjan hefur stundum áđur gert sig sekan um ađ reyna ađ notfćra sér tímahrak andstćđingsins. Ţetta gerir ađeins illt verra og Gelfand lćtur tćkifćriđ sér ekki úr greipum ganga. Mun betra var 32. ... Hd3, t.d. 33. De5+ Dxe5 34. Hexe5 a6 og síđan - Kg7 og Kf6 viđ tćkifćri.
33. f5!
Međ hugmyndinni 33. .... hxg4 34. Dh6+ Kg8 35. fxg6 Bxg6 35. Hg5 og vinnur.
33. ... Kg7 34. fxg6 Bxg6 35. Bxh5
Einfaldara og betra var 35. Hxh5!; eftir 35. ... Bxh5 36. Bxh5 er svartur bjargarlaus.
35. .... Hd3 36. De5+ Dxe5 37. Hcxe5 Bxh5 38. Hxh5 Hxa3 39. Hf5!
Snjall leikur sem heldur opnum möguleikum á matsókn međ tveim hrókum.
39. ... Hd3 40. He4 Hd7 41. Hg4+ Kh6 42. Hf6+ Kh7
42. ... Kh5 virtist kom til greina en eftir 43. Hfg6! Hdxe7 kemur 44. H4g5+ Kh4 45. g3+! Kxh3 46. Hh6 mát.
43. Hf7+ Kh6 44. Hgg7 Hd1 45. Kh2 Hf1 46. Hh7+ Kg6 47. Hhg7+ Kh6 48. Hh7+ Kg6 49. Hfg7+ Kf6 50. h4 Ke6 51. Hg4 Kf5 52. Kg3 He1 53. Hf4+ Ke6 54. h5!
Einfaldast ţar sem frípeđ hvíts eru komin lengra.
54. ... Hxe7 55. Hxe7 Kxe7 56. Kh4 b6 57. h6 Hh1 58. Kg5 Ke6 59. Kg6 Ke5 60. Hf5+
- og Aronjan gafst upp.
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is----------------------------------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.
Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 1. apríl 2013.
7.4.2013 | 21:00
Guđmundur og Dagur tefla í Búdpesti
Alţjóđlegu meistararnir Dagur Arngrímsson (2392) og Guđmundur Kjartansson (2443) eru međal keppenda á First Saturday-mótinu sem hófst í gćr í Búdapest. Dagur teflir í SM-flokki og Guđmundur í AM-flokki. Guđmundur hefur unniđ báđar sínar skákir en Dagur tapađi í fyrstu umferđ en vann í ţeirri annarri.
Fórnarlömb Guđmundar eru Ungverjinn Vilmos Balint (2212) og slóvenski FIDE-meistarinn Domen Krumpacnik (2338).
Dagur tapađi fyrir makedónska stórmeistaranum Dragan Kosic (2512) í fyrstu umferđ en vann ungverska FIDE-meistarann Gergely Kantor (2331) í annarri umferđ.
Međalstigin í flokki Dags eru 2412 skákstig. Guđmundur er nr. 6 í stigaröđ 10 keppenda. Međalstigin í flokki flokki Guđmundar eru 2299 skákstig er hann nćststigahćstur 12 keppenda.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 19:26 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2013 | 19:09
Klukkufjöltefli Helga Ólafssonar - Karl Egill vann stórmeistarann!
Ţađ er sama hvert litiđ er, allsstađar eru Framsóknarmenn ađ slá í gegn. Eins og venja er lauk Helgi Ólafsson stórmeistari Akureyrarheimsókn sinni međ klukkufjöltefli viđ félagsmenn. Helgi tefldi viđ 10 andstćđinga međ tímamörkunum 90:30. Urđu margar skákir afar spennandi en í flestum ţeirra seig stórmeistarinn fram úr á lokametrunum.
Hann tapađi ţó einni skák, fyrir Karli Agli Steingrímssyni eftir miklar sviptingar. Skák hans viđ Akureyrarmeistarann Harald Haraldsson var ţung stöđubarátta allan tímann og ţegar keppendur sćttust á skiptan hlut ađ loknum öđrum skákum var stađa Haraldar síst lakari. Viđureigninni laus sumsé međ sigri Helga 8˝ - 1˝. Ţeir sem tefldu, auk Karls og Haraldar, voru Sigurđur Arnarson og nafni hans Eiríksson; Smári Ólafsson, Einar Guđmundsson, Hjörleifur Halldórsson, Jón Kristinn Ţorgeirsson, Símon Ţórhallsson og Logi Rúnar Jónsson. Stóđu ţeir sig allir međ sóma.
7.4.2013 | 19:02
Skólaskákmóti Kópavogs lýkur á morgun
Skólaskákmóti Kópavogs lýkur á morgun en ţá fer fram keppni 3. og 4. bekks. Hinir flokkarnir voru tefldir á föstudaginn en ţá fór fram keppni 1.-2. bekks, 5.-7. bekk og 8.-10. bekks. Mótiđ á morgun fer fram kl. 8:30.
Keppnin fer fram í Álfhólsskóla, Digraneshlutanum (gamli Digranesskóli).
Frétt um öll úrslit á mótinu verđur birt á morgun.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 19:10 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
5.4.2013 | 22:02
Dađi Örn Jónsson alţjóđlegur meistari í bréfskák
Dađi Örn Jónsson verđur útnefndur alţjóđlegur meistari í bréfskák á nćsta ţingi alţjóđlega Bréfskáksambandsins (ICCF). Dađi er 12. Íslendingurinn sem hlýtur ţennan titil. Ekki er langt síđan Dađi byrjađi ađ tefla bréfskák ţannig ađ frami hans er óvenju skjótur.
Meginreglan er sú, ađ ţađ ţarf 24 skákir til ađ öđlast ţennan titil, en í tilfelli Dađa er byggt á 21 skák. Dađi tefldi 10 skákir í Evrópukeppni landsliđa (undanúrslit) ţar sem ţurfti 8 vinninga til ţess ađ ná áfanga. Dađi fékk hins vegar 9 vinninga og átti međ ţeim frábćra árangri stóran ţátt í góđu gengi íslenska liđsins á ţví móti. Síđan hefur Dađi lokiđ 11 skákum af 12 í undanúrslitum Evrópumóts einstaklinga. Ţar ţurfti 7˝ vinning til ađ ná áfanga, en Dađi er kominn međ 8 vinninga og á eina skák eftir ţannig ađ titillinn er í höfn, óháđ ţví hvernig síđasta skák Dađa fer.
Mikil gróska hefur einkennt íslenska bréfskák undanfarin misseri. Má ţar nefna ađ íslenska landsliđiđ hefur fariđ mikinn í Evrópukeppni landsliđa. Auk ţess lagđi liđiđ nýlega Holland ađ velli međ sannfćrandi hćtti, eđa 18,5 - 11,5. Landsliđiđ etur nú kappi viđ Dani og Ţjóđverja og hefur forystu í báđum viđureignunum, sjá http://www.simnet.is/chess/.
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring: 22
- Sl. viku: 103
- Frá upphafi: 0
Annađ
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 77
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar