Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Bođiđ upp á skákćvintýri í Stykkishólmi 20. apríl nk.

Árnamessa 2012Laugardaginn 20. apríl verđur Skákmót Árnamessu haldiđ í fjórđa sinn í grunnskólanum Stykkishólmi og hefst mótiđ kl. 13:00. Allir efnilegustu og áhugasömustu skákkrakkar landsins munu fjölmenna á mótiđ auk ţess sem grunnskólakrakkar á Snćfellsnesi eru sérstaklega hvattir til ţátttöku á ţessu glćsilega skákmóti. Bođiđ verđur upp á rútuferđ frá Reykjavík kl. 9:30 á laugardagsmorgni og til baka suđur ađ móti loknu.

Öllum ţátttakendum verđur bođiđ upp á pylsuveislu fyrir Árnamessa 2012mót og einnig ókeypis veitingar í skákhléi. Í skákhléi verđur einnig spurningakeppni skákfélaga sem er nýung á Skákmóti Árnamessu. Gáfađasta skákfélagiđ vinnur veglegan verđlaunagrip. Tefldar verđa sex umferđir á skákmótinu og í lok mótsins hefst mikil verđlaunahátíđ ţví ađ rúmlega 30 verđlaun og happadrćttisvinningar verđa í bođi fyrir sigurvegara og heppna ţátttakendur. Keppt er í ţremur flokkum, eldri og yngri flokk og flokki Snćfellinga. Sigurvegari hvers flokks fćr eignarbikar ađ launum.

Árnamessa 2012

Skákmót Árnamessu er kennt viđ Árna Helgason heiđursborgara Stykkishólms sem stóđ fyrir öflugu ćskulýđsstarfi í starfi barnastúkunnar Bjarkar nr 94 í áratugi og lést á tírćđisaldri áriđ 2008. Ţađ er skákdeild Umf. Fjölnis í Grafarvogi sem skipuleggur og sér um framkvćmd ţessa skákćvintýris. Mótstjórar verđa ţeir Helgi Árnason og Jóhannes B. Jóhannesson frá Fjölni. Um skákstjórn sér Páll Sigurđsson sem einnig var međal skákstjóra á alţjóđlega skákmeistaramótinu "Reykjavík Open" í Hörpu í mars sl.

Stykkishólmsbćr er ásamt Norvik og Skáksambandi Íslands helsti stuđningsađili mótsins en fyrirtćki á höfuđborgarsvćđinu og í Hólminum gefa vinninga. Nálgast má upplýsingar um mótiđ á www.skak.is og ţar verđur líka hćgt ađ skrá ţátttöku (vćntanlegt).

Hćgt er ađ skrá sig til leiks hér. Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má nálgast hér.


Nýtt fréttabréf SÍ

Nýtt fréttabréf Skáksambands Íslands kom út í fyrr í vikunni en bréfiđ kemur út tvisvar á mánuđi yfir vetrarmánuđina og er sent í tölvupósti til viđtakenda. Hćgt er ađ skrá sig fyrir fréttabréfinu hér á Skák.is (ofarlega til vinstri).

Međal efnis er:

  • Skák eflir skóla - starfshópur um skákkennslu í grunnskólum skilar af sér
  • Íslandsmót barnaskólasveita fer fram nćstu helgi
  • N1 Reykjavíkurskákmótiđ valiđ ţriđja besta opna skákmót ársins
  • Ađalfundur SÍ haldinn 11. maí
  • Skákţing Norđlendinga - heimsókn norđur
  • Yfir 200 manns á Skólaskákmóti Kópavogs
  • Landsmótiđ í skólaskák á Patreksfirđi 2.-5. maí
  • Carlsen mćtir Anand í heimsmeistaraeinvígi
  • Skráđir keppendur á Opna Íslandsmótinu í skák
  • Mót á döfinni

Fréttabréfiđ má nálgast hér.

Hćgt er ađ nálgast eldri fréttabréf hér.


Dómstóll SÍ stađfestir niđurstöđur mótsstjórnar Íslandsmóts skákfélaga - TR-b telst sigurvegari 2. deildar

Dómstóll SÍ hefur komist ađ niđurstöđu í tveimur málum. Í báđum tilfellum var úrskurđur mótsstjórnar Íslandsmóts skákfélaga samţykktur. Ţetta verđur til ţess ađ b-sveit Taflfélags Reykjavíkur telst sigurvegari 2. deildar og ávinnur sér keppnisrétt í fyrstu deild á kostnađ Skákdeildar Fjölnis.

Annars vegar var um ađ rćđu kćru Taflfélags Reykjavíkur vegna Alexander Arehchenko, Taflfélagi Bolungarvíkur, ţar sem ţess var krafist ađ hann vćri úrskurđađur ólöglegur. Niđurstađa Dómstólsins var sú ađ Arehchenko vćri löglegur ţar sem nafn hans vćri á keppendaskránni.

Dómstóll SÍ stađfesti úrskurđ mótsstjórnar Íslandsmóts skákfélaga um ađ Robert Ris, Skákdeild Fjölnis, vćri ólöglegur í viđureign félaganna í lokaumferđ mótsins ţar sem nafn hans vantađi á keppendaskránna. Fjölnir vann ţá viđureign 4,5-1,5 en skv. lögum SÍ teljast úrslitin nú vera 4,5-1,5 TR í vil. Ţađ ţýđir ađ TR telst nú sigurvegari 2. deildar, fćrist úr ţriđja sćti, Gođinn-Mátar fellur niđur í 2. sćtiđ og Fjölnir niđur í ţađ ţriđja. B-sveit TR fćr ţví sćti í efstu deild ađ ári en ekki Fjölnir. 

Dómarnir fylgja međ sem PDF-viđhengi.


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

Sćvar, Ţorvarđur og Hrafn efstir á öđlingamóti

Sćvar Sćvar Bjarnason (2132), Ţorvarđur Fannar Ólafsson (2225) og Hrafn Loftsson (2204) eru efstir og jafnir međ 3˝ vinning ađ lokinni fjórđu umferđ skákmóts öđlinga sem fram fór í gćr. Ţorvarđur gerđi jafntefli viđ Sigurđ Dađa Sigfússon (2324), Hrafn vann Ţór Má Valtýsson (2040) en Sćvar lagđi Vigfús Ó. Vigfússon (1988).

Öll úrslit fjórđu umferđar má nálgast hér.

Stöđu mótsins má nálgast hér.

Fimmta umferđ fer fram nk. miđvikudagskvöld. Ţá mćtast međal annars: Ţorvarđur-Hrafn og Sćvar-Sigurđur Dađi.

Pörun fimmtu umferđar má í heild nálgast hér


Sigurganga Vignis Vatnars heldur áfram

Vignir VatnarEins og áđur hefur veriđ frá greint var skákkvöldiđ í Gallerýinu í síđustu viku einkar velheppnađ sérstaklega fyrir suma.  Barist var grimmt enda ađ miklu ađ keppa ţar sem vegleg Geirfuglsegg voru í verđlaun. Til stóđ ađ keppa eftir aldursflokkum 80-60-40-20-10 ára og yngri. En ţar sem svo fór ađ yngsti keppandinn Vignir Vatnar Stefánsson ađeins 10 ára sigrađi í mótinu  og vann í öllum flokkum var úrskurđađ ađ hann hlyti verđlaunin ekki bara fyrir sigur í flokki 80 ára og yngri - heldur 10 ára eldri.  Hann hlaut 9˝ vinning af 11 mögulegum í keppni viđ aldna reynslubolta og nokkra harđsnúna yngri skákmenn.

Á mánudagskvöldiđ var hélt hinn ungi sveinn áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni og nú í hinum öfluga KR-klúbbi vestur í Frostaskjóli, ljónagryfjunni sjálfri, ţar sem ein allra svakalegustu hrađskákmót landsins eru háđ vikulega allan ársins hring, 13 umferđir takk međ 7 mínútna umhugsunartíma á skákina.  Eins og sjá má á međf. mótstöflu rúllađi sá stutti mótinu upp, vann flesta andstćđinga sín og gerđi ađeins ţrjú jafntefli og sigrađi  glćsilega međ  11.5 vinningi af 13 mögulegum. Ţetta verđur ađ teljast býsna vel af sér vikiđ og ţví ekki út í loftiđ ađ tala um "ungstirniđ undraverđa" ţar sem Vignir Vatnar fer. 

 

kr-_m_tstafla_rslit_8_apr_l_-_ese.jpg

 

Innan tíđar leggur sveinninn ungi upp í skákleiđangur til Rúmeníu til keppni á World Amateur Chess Championship  á vegum FIDE fer fram í Iasi, fallegri borg austur viđ  Svartahaf 21.-30. apríl nk. Sama mót og hinn stórefnilegi Oliver Aron Jóhannesson var nćstum búinn ađ vinna á í fyrra.  Mótiđ er ćtlađ áhugaskákmönnum á öllum aldri undir 2000 stigum hvađanćva ađ úr heiminum.  Ţađ verđur gaman ađ fylgjast međ árangri Vignis ţar enda stefnan sett hátt til undirbúnings Heimsmeistarakeppni ungmenna í ýmsum aldursflokkum í haust.

Teflt verđur í Gallerý Skák í dag ţegar degi hallar.  Ýtt á klukkurnar kl. 18 / ESE


Mikil spenna fyrir Íslandsmót barnaskólasveita!

DSC 0492Íslandsmót barnaskólasveita fer fram um helgina og er búist viđ ćsispennandi keppni sveitar Álfhólsskóla, sem er ríkjandi meistari, og hinnar sigursćlu skáksveitar Rimaskóla. Fleiri skólar geta blandađ sér í toppbaráttuna, og er búist viđ fjölmörgum skáksveitum á ţetta skemmtilega mót sem er fyrir nemendur í 1. til 7. bekk. Fjórir liđsmenn skipa hverja sveit og verđa tefldar 9 umferđir međ 15 mínútna umhugsunartíma. Íslandsmótiđ, sem haldiđ er í Rimaskóla, hefst klukkan 13, laugardaginn 13. apríl, og heldur áfram klukkan 11 á sunnudag.

Álfhólsskóli sigrađi á Íslandsmótinu 2012 eftir harđa keppni viđ Rimaskóla og náđi í kjölfariđ silfurverđlaunum á Norđurlandamótinu í haust. Vel er stađiđ ađ skáklífinu í Álfhólsskóla og fór skáksveit skólans t.d. í ćfingaferđ til Tékklands í fyrrasumar. Landsliđspilturinn Dawid Kolka teflir á 1. borđi, en af öđrum knáum liđsmönnum má nefna Felix Steinţórsson, Guđmund Agnar Bragason og Odd Unnsteinsson.

Vösk sveit Rimaskóla mun án nokkurs vafa gera harđa atlögu ađ titlinum. Landsliđsstúlkan Nansý Davíđsdóttir leiđir sveitina, og er gert ráđ fyrir Joshúa litli bróđir hennar tefli á 4. borđi. Ađrir í liđinu verđa vćntanlega Jóhann Arnar Finnsson, Svandís Rós Ríkharđsdóttir og Kristófer Halldór Kjartansson.

Fleiri skáksveitir munu örugglega láta ađ sér kveđa. Margra augu munu beinast ađ hinni kornungu sveit Ölduselsskóla en allir liđsmenn hennar eru í 2. til 4. bekk. Međal liđsmanna er Óskar Víkingur Davíđsson sem fór á kostum á Íslandsmóti skákfélaga á dögunum og lagđi alla andstćđinga sína ađ velli, og voru flestir mun eldri en hann. Ţá verđur gaman ađ fylgjast međ skáksveitum Salaskóla, ţar sem gríđarlega gott starf er unniđ, og hefur skólinn veriđ međal ţeirra bestu síđasta áratuginn.

Íslandsmót barnaskólasveita var fyrst haldiđ 1990 og ţá sigrađi sögufrćg skáksveit Ćfingadeildar KHÍ. Flestir liđsmenn ţeirrar sveitar skipuđu sér á nćstu árum í hóp bestu skákmanna Íslands. Má nefna brćđurna Braga og Björn Ţorfinnssyni og Arnar Gunnarsson sem allir eru alţjóđlegir meistarar.

Skráning fer fram hér á Skák.is. Lista yfir ţegar skráđar sveitir má finna hér.


Skákţing Norđlendinga 2013 - afmćlismót Haraldar Hermannssonar

SauđárkrókurSkákţing Norđlendinga verđur ađ ţessu sinni háđ á Sauđárkróki 19. - 21 apríl og verđur afmćlismót Haraldar Hermannssonar sem verđur nírćđur ţegar mótiđ stendur yfir. Haraldur hefur um langt skeiđ veriđ í fararbroddi ţeirra sem haldiđ hafa uppi skáklífi á Norđurlandi og er ţví vel viđ hćfi ađ mótiđ sé haldiđ í hans nafni. Haraldur teflir enn ţrátt fyrir háan aldur í góđra vina hópi.

Mótiđ verđur 7 umferđir og hefst á föstudagskvöldi klukkan 20:00 međ fjórum atskákum. Á laugardegi verđa tefldar tvćr kappskákir og ein kappskák á sunnudegi, en skákţinginu lýkur međ hrađskákmóti. Kappskákirnar verđa reiknađar til alţjóđlegra og íslenskra stiga. Ţegar ţetta er ritađ hafa 14 skákmenn skráđ sig til leiks og eru skákmenn hvattir til ađ skrá sig hiđ fyrsta í tölvupósti í netfangiđ unnar.ingvarsson@gmail.com  Listi yfir skráđa skákmenn verđur birtur á heimasíđu Skákfélags Sauđárkróks auk nánari upplýsinga um mótsfyrirkomulag og gistimöguleika á Sauđárkróki.

Athygli er vakin á ţví ađ verđlaunafé hefur veriđ hćkkađ á mótinu. Ţannig eru fyrstu verđlaun 60.000 krónur en heildar verđlaunafé verđur a.m.k.  150.000 krónur og getur hćkkađ enn međ aukinni ţátttöku. Nánari upplýsingar um mótsfyrirkomulag o.fl. má finna á heimasíđu Skákfélags Sauđárkróks.


Stigamót Hellis fer fram 24.-26. apríl

Stigamót Taflfélagsins Hellis verđur haldiđ í ellefta sinn sinn dagana 24.-26. apríl. Fyrirkomulag mótsins hefur veriđ mismunandi í gegnum tíđina en ađ ţessu sinni er mótiđ haldiđ í kringum sumardaginn fyrsta ţannig ađ keppendur munu eiga frí helgina á eftir.

Góđ verđlaun eru í bođi á mótinu og mótiđ er opiđ öllum. Teflt verđur í húsnćđi Skáksambands Íslands í Faxafeni 12. Skráning á mótiđ er á heimasíđu Hellis: http://www.hellir.blog.is. Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.

Ţátttökugjöld eru kr. 3.000 fyrir fullorđna og 2.000 kr. fyrir 15 ára og yngri og rennur óskipt í verđlaunasjóđ mótsins.  

Núverandi Stigameistari Hellis er Davíđ Kjartansson.

Umferđatafla:

  • 1.-4. umferđ, miđvikudaginn 24. apríl (19:30-23:30)
  • 5. umferđ, fimmtudaginn 25. apríl (11-15)
  • 6. umferđ, fimmtudaginn 25. apríl (17-21)
  • 7. umferđ, föstudaginn 26. apríl (19:30-23:30)

Verđlaun:
  • 1. 50% af ţátttökugjöldum
  • 2. 30% af ţátttökugjöldum
  • 3. 20% af ţátttökugjöldum

Skráning: 

Tímamörk:
  • 1.-4. umferđ: 20 mínútur + 5 sekúndur á leik
  • 5.-7. umferđ: 1˝ klst. + 30 sekúndur á leik

Guđmundur byrjar vel í Búdapest

Guđmundur Kjartansson

Guđmundur Kjartansson (2443) byrjar prýđilega í AM-flokki First Saturday-mótsins sem nú er í gangi í Búdapest. Eftir fjórar umferđir hefur Guđmundur hlotiđ 3 vinninga og er einn efstur.

Dagur Arngrímsson (2392), sem teflir í SM-flokki, hefur hins vegar ekki byrjađ jafn vel. Eftir jafn margar umferđir hefur hann hlotiđ 1 vinning og er í 7.-9. sćti.

Međalstigin í flokki Dags eru 2412 skákstig. Guđmundur er nr. 6 í stigaröđ 10 keppenda. Međalstigin í flokki flokki Guđmundar eru 2299 skákstig er hann nćststigahćstur 12 keppenda.


Ćsir - úrslit síđustu tveggja móta

Međfylgjandi eru mótstöflur síđustu 2ja skákmóta í Ásgarđi ţar sem bráđhressir eldri borgarar elda grátt silfur á 64 reitum sér til dundurs á ţriđjudögum yfir veturinn. Góđ ţátttaka er ţar jafnan og léttur keppnisandi yfir vötnunum.  Margir sćkja bćđi mótin ţar og einnig í Riddaranum daginn eftir og fá aldrei nóg - ţví skák er skemmtileg og hin besta heilsubót.

Sumpart sömu sigurvegarar í báđum klúbbunum eins hér sést:

 

_sir_m_tstafla_rslit_2_apr_l_2013_ese_1197195.jpg

 

 

_sir_-_m_tstafla_rslit_9_apr_l_2013_-ese_1197197.jpg

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 103
  • Frá upphafi: 0

Annađ

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 77
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband