Fćrsluflokkur: Spil og leikir
15.4.2013 | 09:47
Robert Byrne fallinn frá
Bandaríski stórmeistarinn Robert Byrne er fallinn frá. Einar S. Einarsson hefur skrifađ nokkur orđ um meistarann. Einar tók jafnframt saman myndirnar.
----------------------
Hinn góđkunni stórmeistari og Íslandsvinur Róbert Byrne andađist 12. apríl sl. 84 ára ađ aldri. Byrne tefldi á 5 Reykjavíkurskákmótum fyrst 1968 en síđan á fjórum í röđ árin 1980-1982-1984-1986 jafnframt ţví ađ taka ţátt í keppninni Bandaríkin-Norđurlönd. Hann fylgdist međ heimsmeistarareinvíginu 1972 fyrir New York Times en hann var skákfréttastjóri ţess frá ţeim tíma allt til 2006.
Íslenskir skákmenn minnast Roberts Byrne sem afar háttprúđs og skemmtilegs baráttu skákmanns sem ćvinlega dró ađ sér verđskuldađa athygli. Hans er minnst sem eins af merkustu skákmeisturum á seinni hluta síđustu aldar og ýmsar nýungar í skákbyrjunum viđ hann kenndar, m.a. á www.chessbase.com og í New York Times
/ESE
15.4.2013 | 07:56
Guđmundur vann í gćr - Dagur međ jafntefli
Guđmundur Kjartansson (2433) stendur sig vel í AM-flokki First Saturday-mótsins. Í gćr vann hann ungverska alţjóđlega meistarann Adam Szeberenyi (2321). Guđmundur hefur 7 vinninga eftir 9 umferđir og er efstur í flokknum.
Dagur Arngrímsson (2392), sem teflir í SM-flokki, gerđi jafntefli viđ ţýska alţjóđlega meistarann Hagen Poetsch (2426). Dagur hefur 3,5 vinning ađ loknum átta skákum og er í 6.-7. sćti. Flokki Dags lýkur í dag.
Međalstigin í flokki Dags eru 2412 skákstig. Dagur er nr. 6 í stigaröđ 10 keppenda. Međalstigin í flokki flokki Guđmundar eru 2299 skákstig er hann nćststigahćstur 12 keppenda.
14.4.2013 | 21:57
Hannes Hlífar tekur ţátt í Norđurlandsmóti
Ţegar hafa um 15 manns skráđ sig til leiks á Skákţingi Norđlendinga sem fram fer á Sauđárkróki nćstu helgi. Áhugasamir eru hvattir til ađ skrá sig sem fyrst í netfangiđ unnar.ingvarsson@gmail.com. Frekari upplýsingar um mótiđ má sjá á heimasíđu Skákfélags Sauđárkróks www.skakkrokur.blog.is
Skráning: Alţjóleg ELO Íslensk ELO
- Hannes Hlífar Stefánsson Kópavogi 2513 2587
- Stefán Bergsson Akureyri 2139 2121
- Sverrir Örn Björnsson Hafnarfirđi 2135 2117
- Sigurđur Eiríksson, Akureyri 1945 1927
- Jón Arnljótsson Skagafirđi 1915 1785
- Unnar Ingvarsson, Sauđárkróki 1909 1722
- Sigurđur H. Jónsson Njarđvík 1845 1780
- Sveinbjörn O. Sigurđsson, Akureyri 1802 1695
- Jakob Sćvar Sigurđsson Húsavík 1765 1677
- Ţorleifur Ingvarsson, Húnav.s. 1745
- Sigurđur Ćgisson Siglufirđi 1698
- Guđmundur Gunnarsson, Sauđárkróki 1494
- Hörđur Ingimarsson, Sauđárkróki 1602
- Jón Magnússon Akureyri
- Birkir Már Magnússon Sauđárkróki
Heimasíđa Skákfélags Sauđárkróks
14.4.2013 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Magnús Carlsen er áskorandi Anands
Lokaumferđir áskorendamótsins í London buđu skákáhugamönnum um heim allan uppá magnađ sjónarspil. Ţá var sú stađa komin upp ađ Armeninn Levon Aronjan hafđi misst af lestinni en Vladimir Kramnik, sem hafđi gert jafntefli í öllum skákum sínum í fyrri umferđinni, fór mikinn og vann hverja viđureigninni á fćtur annarri. Á föstudaginn langa gerđist ţađ ađ jókerinn" Vasilí Ivantsjúk vann Magnús Carlsen međ svörtu í 90 leikjum en Aronjan missti af auđfengnu jafntefli gegn Kramnik, sem međ sigri komst í efsta sćtiđ.
Norđmađurinn sýndi magnađan skapgerđarstyrk í 13. umferđ sem tefld var á páskadag er hann vann Radjabov međ svörtu í 89 leikjum. Ţar sem Kramnik tókst ekki ađ fá meira en jafntefli gegn Gelfand voru Kramnik og Magnús jafnir ađ vinningum en stađa Norđmannsins hafđi batnađ verulega ţví ađ vaknađ" hafđi merkur bálkur, úrskurđarregla nr. 2 sem ţýddi ađ fleiri sigrar í mótinu giltu ef innbyrđis viđureignum efstu manna lyki međ jafntefli. Sviđiđ fyrir lokaumferđina: Magnús var međ hvítt á Svidler en Kramnik međ svart gegn Ivantsjúk, sem hafđi tapađ fimm skákum mótinu.
Áhorf á ţessar skákir á hinum ýmsum vefsvćđum sló öll met. Magnús missti ţráđinn í flókinni miđtaflsstöđu í tímahraki og tapađi. Hann varđ ađ treysta á hinn óútreiknanlega Ivantsjúk sem brást ekki ađ ţessu sinni og vann Kramnik örugglega. Lokaniđurstađan varđ ţessi: 1. - 2. Carlsen og Kramnik 8 ˝ v. (af 13) 3. - 4. Aronjan og Svidler 8 v. 5. - 6. Gelfand og Grischuk 6 ˝ v. 7. Ivantsjúk 6 v. 8. Radjabov 4 v.
Magnús Carlsen sem er ađeins 22 ára hefur unniđ réttinn til ađ skora á heimsmeistarann Anand. Tal var tćpra 23 ára ţegar hann varđ áskorandi Botvinniks og Kasparov var nýorđinn 21 árs ţegar tefldi um titilinn viđ Karpov. Ţá fór áskorendakeppnin fram međ einvígisfyrirkomulagi sem verđur ađ teljast heppilegra keppnisform; í London var Magnús Carlsen staddur á málsvćđi sjö stórmeistara sem allir fćddust í gömlu Sovétríkjunum. Einvígiđ viđ Anand er á dagskrá í nóvember á ţessu ári.
Eins og svo oft áđur lá styrkur Magnúsar í góđri endataflstćkni og mikilli seiglu. Byrjanir hans ţykja ekki sérlega skarpar en hann tengir ţćr vel viđ stöđurnar koma upp í miđtöflunum. Hans besta skák kom sennilega í 10. umferđ:
Magnús Carlsen - Boris Gelfand
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5
Í tapskákinni viđ Ivantsjúk valdi Magnús ađ opna tafliđ međ - d4.
3. ... e6 4. O-O Rge7 5. He1 a6 6. Bf1 d5 7. exd5 Rxd5 8. 4 Rf6 9. Be3 cxd4 10. Rxd4 Bd7 11. c4 Rxd4 12. Bxd4 Bc6 13. Rc3 Be7 14. a3 a5 15. Dd3 O-O 16. Had1 Dc7 17. Be5 Db6 18. Dg3 Hfd8
19. Hxd8 Dxd8 20. Hd1 Db6?
Sennilega eina ónákvćmni Gelfands. Hann gat leikiđ 20. ... Df8 sem heldur vel í horfinu.
21. Bd4! Db3
21. .. Da6 er vel svarađ međ 22. b4.
22. Hd3 Dc2 23. b4 axb4 24. axb4 Rh5 25. De5 Bf6 26. Dxh5 Bxd4 27. Hxd4 Dxc3
28. Da5!
Međ hugmyndinni 28. ... Hxa5 29. Hd8+ og mátar.
28. ... Hf8 29. Db6 e5 30. Hd1 g6 31. b5 Be4 32. Df6 h5 33. h4 Bf5 34. Hd5 Dc1 35. Dxe5 Be6 36. Hd4 Ha8 37. De2 Kh7 38. Hd1 Dc3 39. De4 Ha1 40. Hxa1 Dxa1 41. c5 Dc3 42. Dxb7 De1
Hótar 43. ... Bc4. En áćtlun Magnúsar er einföld og snjöll.
43. b6 Bc4 44. Df3 Dxf1 45. Kh2 Db1 46. b7 Db5 47. c6 Bd5 48. Dg3
- og svartur gafst upp.
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is----------------------------------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.
Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 7. apríl 2013.
Spil og leikir | Breytt 8.4.2013 kl. 16:25 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2013 | 16:48
Álfhólsskóli Íslandsmeistari barnaskólasveita
Skáksveit Álfhólsskóla úr Kópavogi vann sigur í gríđarlega spennandi Íslandsmóti barnaskólasveita sem fram fór í Rimaskóla um helgina. Skáksveit Rimaskóla varđ í öđru sćti og skáksveit Hraunvallaskóla úr Hafnarfirđi tók ţriđja sćtiđ.
Sveitir Álfhólsskóla og Rimaskóla höfđu allmikla yfirburđi. Eftir fyrri dag mótsins voru sveitirnar jafnar og efstar međ 16 vinninga í 20 skákum. Í sjöttu umferđ unnu ţćr báđar 3-1 og í sjöundu og áttundu umferđ lögđu ţćr báđar andstćđinga sína 4-0. Ţćr voru ţví hnífjafnar fyrir lokaumferđ mótsins og margt sem benti til ţess ađ ţćr ţyrftu ađ heyja aukakeppni um titilinn. Til ţess kom ekki ţví Álfhólsskóli vann sveit Ölduselsskóla 4-0 en á sama tíma vann Rimaskóli Melaskóla 3-1 ţar sem Sigurđur Kjartansson, Melaskóla, gerđi sér lítiđ fyrir og vann sína skák. Ţar međ var ljóst ađ Álfhólsskóli hafđi variđ titilinn.
Ţessar sveitir höfđu mikla yfirburđi. Álfhólsskóli hlaut 31 vinning í 36 skákum, Rimaskóli 30 vinninga og svo voru sjö vinningar í nćstu sveitir sem voru Hraunvallaskóli úr Hafnarfirđi og Hörđuvallaskóli međ 23 vinninga. Hraunvallaskóli hlaut ţriđja sćtiđ. Geysigóđur árangur hjá ţessari sveit sem hefur aldrei áđur tekiđ ţátt á mótinu.
Hörđuvallaskóli sem varđ í fjórđu sćti fékk jafnframt verđlaun sem besta sveitin međ nemendur úr 1.-4. bekk.
Rimaskóli varđ efst b-sveita en Salaskóli varđ efst c-, d-, e- og f-sveita sem segir margt um ţá miklu breidd sem Tómas Rasmus hefur byggt upp í skólanum.
Menntamálaráđherra, Katrín Jakobsdóttir, afhenti verđlaunin á mótinu.
Afar góđ ţátttaka var á mótin en 45 sveitir tóku ţátt sem er nćstbesta ţátttakan í sögu mótanna. Ţađ ţýđir ađ međ varamönnum voru meira en 200 skákmenn í Rimaskóla í dag. Sveitirnar 45 voru frá 6 bćjarfélögum. Grunnskóli Hellu komst lengst frá en flestir sveitirnar voru úr Reykjavík (26) og nćstflestar úr Kópavogi (13).
Skáksveit Álfhólsskóla skipuđu:
- Dawid Kolka 6,5 v.
- Felix Steinţórsson 8,5.
- Guđmundur Agnar Bragason 9 v.
- Oddur Ţór Unnsteinsson 7 v.
Skákkennari og liđsstjóri er Lenka Ptácníková.
Skáksveit Rimaskóla skipuđu:
- Nansý Davíđsdóttir
- Jóhann Arnar Finnsson
- Svandís Rós Ríkharđsdóttir
- Kristófer Halldór Kjartansson
- Joshua Davíđsson
Sveit Hraunvallaskóla skipuđu:
- Brynjar Bjarkason
- Helgi Svanberg Jónsson
- Burkni Björnsson
- Ţorsteinn Emil Jónsson
Sveit Hörđuvallaskóla skipuđu:
- Vignir Vatnar Stefánsson
- Sverrir Hákonarson
- Andri Harđarson
- Stephan Breim
- Arnar M. Heiđarsson
- Óskar Hákonarson
Eftirtaldir hlutu borđaverđlaun:
- Vignir Vatnar Stefánsson, Hörđuvallaskóla, 9 v.
- Felix Steinţórsson, Álfhólsskóla, 8,5 v.
- Guđmundur Agnar Bragason, 9 v.
- Jón Hreiđar, Ingunnarskóla, og Joshua Davíđsson 9 v. af 9
Mótsstjóri var Stefán Bergsson en skákstjórar voru Gunnar Björnsson, Omar Salam og Donika Kolica.
- Chess-Results
- Myndaalbúm - fyrri dagur (HJ)
- Myndaalbúm - síđari dagur (HÁ og SB)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 19:41 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2013 | 06:48
Jón Kristinn skólaskákmeistari Akureyrar
Í gćr var háđ Skákţing Akureyrar í yngri flokkum sem jafnframt var skólaskákmót Akureyrar. Mótiđ var óvenju fámennt ađ ţessu sinni, hvort sem ţađ var vegna blíđviđris utandyra eđa af öđrum sökum. Ađeins 8 börn mćttu til leiks, úr fjórum skólum. Teflt var um titil í ţremur aldursflokkum á Skákţinginu, en tveimur á skólaskákmótinu. Hart var barist á mótinu og ađ lokum urđu ţrír jafnir og efstir:
1-3. Jón Kristinn Ţorgeirsson, Lundarskóla
Andri Freyr Björgvinsson, Brekkuskóla og
Símon Ţórhallsson, Lundarskóla 6 v.
4. Tinna Ósk Ompi Rúnarsdóttir, Glerárskóla 4
5. Óliver Ísak Ólason, Brekkuskóla 3
6. Kári Ţór Barry, Brekkuskóla 2
7. Kristján Blćr Sigurđsson, Brekkuskóla 1
6. Jana Gunnarsdóttir, Síđuskóla 0
Ţeir félagar tefldu svo einfalda umferđ úrslitaskáka og ţar varđ Jón Kristinn hlutskarpastur, vann báđar sínar skákir. Símon fékk einn sigur og náđi öđru sćti, en Andri Freyr varđ ađ sćtta sig viđ bronsiđ.
Í einstökum flokkum eru úrslit skráđ sem hér segir:
Barnaflokkur (fćdd 2002 og síđar): 1. Óliver Ísak; 2. Kári Ţór
Pilta- og stúlknaflokkur (fćdd 2000 og 2001): 1. Tinna Ósk; 2. Jana
Drengja- og telpnaflokkur (fćdd 1997-1999): 1. Jón Kristinn; 2. Símon; 3. Andri Freyr
Ţessi komast áfram á umdćmismót í skólaskák: Tinna og Óliver í yngri flokki; Jón Kristinn og Símon í eldri flokki.
Heimasíđa SA
14.4.2013 | 06:42
Dagur og Guđmundur unnu báđir í gćr
Dagur Arngrímsson (2392) og Guđmundur Kjartansson (2433) unnu báđir sínar skákir á First Saturday-mótinu í gćr. Dagur vann enska alţjóđlega meistarann Yang-Fan Zhou (2432) en Guđmundur lagđi austurríska alţjóđlega meistarann Walter Wittmann (2232).
Dagur hefur 3 vinninga í 7 skákum í SM-flokki og er í 7.-8. sćti. Guđmundur hefur 6 vinninga í 8 skákum og er efstur í AM-flokki.
Međalstigin í flokki Dags eru 2412 skákstig. Dagur er nr. 6 í stigaröđ 10 keppenda. Međalstigin í flokki flokki Guđmundar eru 2299 skákstig er hann nćststigahćstur 12 keppenda.13.4.2013 | 16:43
Rimaskóli og Álfhólsskóli efstir á Íslandsmóti barnaskólasveita

Skáksveitir Rimaskóla og Álfhólsskóla eru efstar á Íslandsmóti barnaskólasveita ţegar fimm umferđum af níu er lokiđ. Sveitirnar hafa 16 vinninga. Mótiđ er afar fjölmennt en 45 sveitir taka ţátt sem er nćstbesta ţátttaka í sögu mótsins.

Sveitir Hörđuvallaskóla og Ölduselsskóla eru nćstir međ 15 vinninga. Allt stefnir ţví í gríđarlega spennandi lokaumferđir á morgun. Sjötta umferđ hefst kl. 11 og gera má ráđ fyrir ađ mótinu ljúki um 13:30.
Stöđu mótsins má finna á Chess-Results.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:42 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
13.4.2013 | 09:59
Fjölmennt Íslandsmót barnaskólasveita hefst í dag
Íslandsmót barnaskólasveita fer fram um helgina og er búist viđ ćsispennandi keppni sveitar Álfhólsskóla, sem er ríkjandi meistari, og hinnar sigursćlu skáksveitar Rimaskóla.
Fleiri skólar geta blandađ sér í toppbaráttuna, og er búist viđ fjölmörgum skáksveitum á ţetta skemmtilega mót sem er fyrir nemendur í 1. til 7. bekk. Fjórir liđsmenn skipa hverja sveit og verđa tefldar 9 umferđir međ 15 mínútna umhugsunartíma. Íslandsmótiđ, sem haldiđ er í Rimaskóla, hefst klukkan 13, laugardaginn 13. apríl, og heldur áfram klukkan 11 á sunnudag.
Álfhólsskóli sigrađi á Íslandsmótinu 2012 eftir harđa keppni viđ Rimaskóla og náđi í kjölfariđ silfurverđlaunum á Norđurlandamótinu í haust. Vel er stađiđ ađ skáklífinu í Álfhólsskóla og fór skáksveit skólans t.d. í ćfingaferđ til Tékklands í fyrrasumar. Landsliđspilturinn Dawid Kolka teflir á 1. borđi, en af öđrum knáum liđsmönnum má nefna Felix Steinţórsson, Guđmund Agnar Bragason og Odd Unnsteinsson.
Vösk sveit Rimaskóla mun án nokkurs vafa gera harđa atlögu ađ titlinum. Landsliđsstúlkan Nansý Davíđsdóttir leiđir sveitina, og er gert ráđ fyrir Joshúa litli bróđir hennar tefli á 4. borđi. Ađrir í liđinu verđa vćntanlega Jóhann Arnar Finnsson, Svandís Rós Ríkharđsdóttir og Kristófer Halldór Kjartansson.
Fleiri skáksveitir munu örugglega láta ađ sér kveđa. Margra augu munu beinast ađ hinni kornungu sveit Ölduselsskóla en allir liđsmenn hennar eru í 2. til 4. bekk. Međal liđsmanna er Óskar Víkingur Davíđsson sem fór á kostum á Íslandsmóti skákfélaga á dögunum og lagđi alla andstćđinga sína ađ velli, og voru flestir mun eldri en hann. Ţá verđur gaman ađ fylgjast međ skáksveitum Salaskóla, ţar sem gríđarlega gott starf er unniđ, og hefur skólinn veriđ međal ţeirra bestu síđasta áratuginn.
Íslandsmót barnaskólasveita var fyrst haldiđ 1990 og ţá sigrađi sögufrćg skáksveit Ćfingadeildar KHÍ. Flestir liđsmenn ţeirrar sveitar skipuđu sér á nćstu árum í hóp bestu skákmanna Íslands. Má nefna brćđurna Braga og Björn Ţorfinnssyni og Arnar Gunnarsson sem allir eru alţjóđlegir meistarar.
Lista yfir ţegar skráđar sveitir má finna hér.
Fylgjast má međ gangi mála í dag á Chess-Results en ţar má fylgjast međ mótinu umferđ fyrir umferđ.
13.4.2013 | 09:55
Guđmundur međ 5 vinninga í 7 skákum í Búdapest
First Saturday-mótiđ er nú í fullum gangi í Búdapest. Guđmundur Kjartansson (2433), sem teflir í AM-flokki, hefur 5 vinninga ađ loknum 7 umferđum. Dagur Arngrímsson, sem teflir í SM-flokki, hefur 2 vinninga eftir 6 umferđir.
Dagur er í 8. sćti í sínum flokki en Guđmundur er í 1.-3. sćti.
Međalstigin í flokki Dags eru 2412 skákstig. Dagur er nr. 6 í stigaröđ 10 keppenda. Međalstigin í flokki flokki Guđmundar eru 2299 skákstig er hann nćststigahćstur 12 keppenda.
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 17
- Sl. sólarhring: 19
- Sl. viku: 113
- Frá upphafi: 8778353
Annađ
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 85
- Gestir í dag: 14
- IP-tölur í dag: 14
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar