Fćrsluflokkur: Spil og leikir
12.5.2013 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Ađ tefla međ mönnunum

Ţegar júgóslavneski stórmeistarinn Lubomir Ljubojevic var upp á sitt besta á árunum í kringum 1975, og menn göptu hreinlega yfir tilţrifum hans í skák sem hann tefldi viđ Svíann Ulf Andersson á stórmótinu í Wijk aan Zee, komst einn ágćtur mađur svo ađ orđi ađ Ljubo tefldi međ mönnunum". Lítiđ um allskyns pot, rađtćkni" eđa geirneglingar sem einkenndu hinn nýbakađa heimsmeistara, Anatolí Karpov. Ungir skákmenn á uppleiđ tefla oft međ mönnunum", sbr. eftirfarandi sigurskák Vignis Vatnars sem tefld var í 8. umferđ. Andstćđingurinn var nálega 300 stigum hćrri en okkar mađur:
HM áhugamanna 2013:
Mihail-Codmin Neahu (Rúmeníu) - Vignir Vatnar Stefánsson
Drottningarindversk vörn
1. c4 Rf6 2. g3 e6 3. Bg2 d5 4. Rf3 Bd6 5. b3 Rbd7 6. Bb2 O-O 7. O-O b6 8. cxd5 exd5 9. Rh4 c6 10. d3 He8 11. e4?
Ađ opna tafliđ án ţess ađ hafa lokiđ liđsskipan kann ekki góđri lukku ađ stýra, 11. Rd2 var betra.
11. ... Ba6!
Vignir rćđst strax ađ helsta veikleikanum í stöđu hvíts, d3-reitnum.
12. He1 Bb4 13. He3
Hvítur á úr vöndu ađ ráđa en hér var betra ađ leika 13. Bc3 t.d. 13. ... Bxc3 14. Rxc3 Rc5 15. exd5 og hvítur getur barist fyrir tafljöfnun.
13. ... dxe4 14. dxe4 Re5 15. Rc3 Rfg4!
Vignir gefur engin griđ. Skyndilega morar allt í veikleikum í stöđu hvíts.
16. He1 Dxd1
Gott var einnig 16. ... Bc5 og hvítur fćr ekki variđ f2-peđiđ međ góđu móti.
17. Hexd1 Rd3 18. Bf1 Rxb2 19. Bxa6 Rxd1
19. ... Bxc3 var nákvćmara en ţetta dugar líka.
20. Rxd1 Had8 21. f3 Re5 22. Be2 Hd2 23. Kf1 Hed8 24. Rf5 g6 25. Rfe3 Kg7
Hann ţarf ekkert ađ flýta sér. Úrvinnslan í ţessu endatafli er ágćt.
26. f4 Red7 27. Rc4 Hd4 28. Rf2 b5 29. Re3 Bc3 30. Hb1 b4 31. Red1 Rf6 32. Rxc3 bxc3 33. Hc1 Rxe4 34. Rxe4 Hxe4 35. Hxc3 Hd2 36. Bf3 He6 37. a4 Hb2 38. h4 h5 39. f5 Hf6 40. fxg6 fxg6 41. Ke1 c5 42. Kd1 Hf5 43. He3 Kf6 44. Be2 Hd5+ 45. Ke1 He5 46. Hf3+ Ke6 47. Hf2 Hxb3
- og hvítur gafst upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
----------------------------------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.
Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 5. maí 2013.
Spil og leikir | Breytt 5.5.2013 kl. 14:55 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2013 | 19:57
Henrik endađi í 5.-11. sćti
Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2500) endađi í 5.-11. sćti (5. sćti á stigum) á H.C. Andersen mótinu sem lauk í Óđinsvéum í dag. Henrik hlaut 6 vinninga og var taplaus á mótinu.
Í lokaumferđunum tveimur, sem fram fóru í dag, gerđi hann jafntefli viđ stórmeistarana Eduardas Rozentalis (2611), Litháen, Momchil Nikolov (2532), Búlgaríu. Litháinn sigrađi á mótinu, hlaut 7 vinninga.
Frammistađa Henriks samsvarađi 2507 skákstigum og hćkkar hann um 5 stig fyrir hana.
55 skákmenn tóku ţátt og ţar af fimm stórmeistarar. Henrik var nr. 5 í stigaröđ keppenda.Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 19:59 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2013 | 16:21
Opiđ meistaramót í Vin, mánudaginn 13. maí kl. 13!

Skákfélag Vinjar býđur til meistaramóts í hrađskák, mánudaginn 13. maí klukkan 13. Tefldar verđa 6 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma. Mótiđ er öllum opiđ en efsti liđsmađur Skákfélags Vinjar fćr sćmdartitilinn Hrađskákmeistari Vinjar 2013. Mótiđ er haldiđ í Vin, Hverfisgötu 47.
Mikill kraftur er í Skákfélagi Vinjar og njóta mánudagsćfinar félagsins mikilla vinsćlda. Síđastliđinn ţriđjudag hófst meistaramót félagsins í atskák, og hafa veriđ tefldar 3 umferđir af 9.
Meistaramótiđ í hrađskák 2013 markar jafnframt upphafiđ ađ sumarstarfi skákfélagsins, en í júní eru 10 ár liđin síđan skipulagt skákstarf hófst í athvarfinu. Skákfélag Vinjar tefldi í vetur fram tveimur sveitum á Íslandsmóti skákfélaga og vann A-sveitin sér keppnisrétt í 2. deild nćsta vetur.
Allir eru velkomnir á meistaramótiđ á mánudag, og ađ vanda verđur bođiđ upp á gómsćtar veitingar í leikhléi.
12.5.2013 | 10:37
Gunnar endurkjörinn forseti - Birgir nýr heiđursfélagi - landsliđseinvaldur samţykktur
Gunnar Björnsson var endurkjörinn forseti Skáksambands Íslands á ađalfundi sambandsins í gćr. Birgir Sigurđsson var kjörinn nýr heiđursfélagsins sambandsins. Fjöldi lagabreytingartillagna voru samţykktar og má ţar nefna tillögu um landsliđseinvald og ađ liđum í fyrstu deild verđur fjölgađ í 10 strax í haust.
Lítiđ breytt stjórn
Ný stjórn SÍ var kjörin í gćr. Gunnar Björnsson var endurkjörinn sem forseti. Inn í ađalstjórn komu nýir Pálmi Pétursson, úr varastjórn, og Ríkharđur Sveinsson, sem kemur aftur í stjórn eftir langt hlé. Úr ađalstjórn gengu Eiríkur Björnsson og Andrea Margrét Gunnarsdóttir. Andrea kom hins vegar inn í varastjórn fyrir Pálma.
Stjórn SÍ 2013-14 skipa ţví: Gunnar Björnsson, Helgi Árnason, Ingibjörg Edda Birgisdóttir, Pálmi Pétursson, Ríkharđur Sveinsson, Róbert Lagerman og Stefán Bergsson.Varastjórn skipa: Steinţór Baldursson, Óskar Long Einarsson, Ţorsteinn Stefánsson og Andrea Margrét Gunnarsdóttir.
Ađrar breytingar á embćttaskipan SÍ voru ţćr ađ ađ Friđjón Örn Friđjónsson og Jón Rögnvaldsson óskuđu ekki eftir endurkjöri í Dómstól SÍ. Sćti ţeirra taka Halldór Brynjar Halldórsson, sem verđur formađur, og Bragi Halldórsson. Voru Eiríki, Friđjóni og Jóni sérstaklega ţakkađ fyrir góđ störf.
Birgir nýr heiđursfélagi SÍ
Birgir Sigurđsson var í gćr samţykktur nýr heiđursfélagi međ dúndrandi lófaklappi. Í rćđu forseta kom fram mikiđ ţakklćti til Birgis en hann hóf útgáfu á Tímaritinu Skák út á eigin reikning og vann svo viđ blađiđ í tugi ára. Fram kom einnig í rćđu Gunnars ađ Birgir hafi veriđ brauđryđjandi í skákstarfi eldri borgara og eigi mikinn ţátt í ţví hversu sterkt ţađ sé í dag.
Breytingar á Íslandsmóti skákfélaga
Ţrettán lagabreytingatillögur lágu fyrir fundinum og ţar af voru fjórar frá stjórn SÍ. Allar tillögur stjórnarinnar voru samţykktar. Töluverđar breytingar verđa á Íslandsmóti skákfélaga og ţađ strax í haust.
Samţykkt var fjölga liđum í efstu deild í tíu og var breytingartillaga Björns Ţorfinnssonar um ađ hún tćki strax í gildi í haust samţykkt. Ţađ ţýđir ađ Skákfélag Akureyrar og Skákdeild Fjölnis fá sćti í efstu deild keppnistímabiliđ 2013-14.
Einnig var tillaga TR og TV samţykkt međ ţorra atkvćđa ađ fćkka erlendum skákmönnum í hverju liđi niđur í tvo úr fjórum og tekur ţađ einnig gildi strax í haust. Ţađ er ţví ljóst ađ mun fleiri íslenskir skákmenn tefla í efstu deild en áđur og ađ mótiđ verđur áfangahćft fyrir íslenska titilveiđara.
Tillaga TG um lengri kćrufrest var sömuleiđis samţykkt međ öllum greiddum atkvćđum. Tillaga TR um fćkkun í hverju liđi niđur í sex var hins vegar felld.
Landsliđseinvaldur
Umtalsverđar umrćđur urđu um tillögu stjórnar um landsliđseinvald sem og tillögur Halldórs Grétars Einarssonar og Héđins Steingrímssonar sem gengu í ađra átt, ţ.e. um aukiđ vćgi skákstiga viđ val á landsliđi.
Tillaga stjórnar um landsliđsvalds var samţykkt međ 24 atkvćđum gegn 2. Landsliđseinvaldur hefur ţar međ fullt umbođ til ađ velja landsliđ Íslands ađ öđru leyti en ţví ađ Íslandsmeistari bćđi karla og kvenna eigi alltaf beinan rétt í landsliđiđ.
Ágúst Sindri Karlsson og Áskell Örn Kárason voru fundarstjórar í gćr og hafđi Áskell á ţví orđ ađ fundurinn hefđi veriđ ákaflega málefnalegur.
Fundargerđ fundarsins verđur birt ţegar hún verđur tilbúin sem verđur vonandi fljólega.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:39 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2013 | 10:17
Hilmir Freyr Heimisson sigrađi á Vormóti Skákskóla Íslands og Skákakademíu Kópavogs
Hilmir Freyr Heimisson sigrađi á Vormóti Skákskóla Íslands og Skákakademíu Kópavogs sem fram fór í Stúkunni á föstudaginn en 28 piltar og stúlkur sem sótt hafa kennslu og ţjálfun í Stúkuna í vetur og haust sem leiđ tefldu sjö umferđir eftir svissneska kerfinu međ tímafyrirkomulaginu 5 3 Bronstein.
Hilmir Freyr, sem hefur veriđ međlimur i hinni öflugu sveit Salaskóla undanfarin misseri, hefur búiđ á Patreksfirđi síđan eftir áramót og sigrađi í yngra aldursflokknum á Íslandsmótinu í skólaskák sem fram fór á Patreksfirđi á dögunum. Hilmir Freyr vann einnig jólamót Skákskóla Íslands og Skákakademíu Kópavogs.
Fyrirfram var búist viđ harđri keppni milli Hilmis, Vignis Vatnars Stefánssonar og ţeirra sem skipa sveit međlima Íslandsmeistara Álfhólsskóla, Dawid Kolka, Felix Steinţórssonar og Guđmundar Agnars Bragasonar. Úrslitin virtust ćtla ađ ráđast um miđvik mótsins ţegar Hilmir vann skák sína viđ Vigni Vatnar eftir mikla baráttu og lagđi síđan Dawid Kolka ađ velli. En í sjöttu og nćst síđustu umferđ var hann hćtt kominn og var sennilega međ tapađ tafl ţegar Jón Otti Sigurjónsson gleymdi sér eitt augnablik, hugsađi sig of lengi um og féll á tíma. Vignir Vatnar varđ í 2. sćti međ 5˝ v. af sjö mögulegum og Dawid Kolka varđ í 3. sćti međ 5 vinninga ásamt fleirum en var hćstur á stigum. Ţessir ţrír hlutu verđlaun fyrir bestan árangur keppenda međ skákstig.
Sigurvegari í flokki keppenda án skákstiga varđ Elvar Ingi Guđmundsson sem hlaut 5 vinninga, Orri Fannar Björnsson varđ í 2. sćti međ 4 vinninga og í 3. sćti varđ Kjartan Gauti Gíslason einnig međ 4 vinninga.
Veitt voru sérstök verđlaun fyrir bestan árangur međ stúlkna og komu ţau í hlut Tinnu Ţrastardóttur sem hlaut 3 vinninga af 7 mögulegum, fékk jafn marga vinninga og Móey María Sigţórsdóttir en var hćrri á stigum. Međ ţessu móti lauk vorönn Skákskóla Íslands og Skákakademíu Kópavogs í Stúkunni á Kópavogsvelli.
Mótsstjórar voru Helgi Ólafsson og Björn Ívar Karlsson.
Lokastađan:
Vormót Skákskóla Íslands og Skákakademíu Kópavogs
1 2 Heimisson Hilmir Freyr 1677 ISL 6˝ 29˝
2 1 Stefánsson Vignir Vatnar 1678 ISL 5˝ 31˝
3 3 Kolka Dawid 1646 ISL 5 31
4 6 Vigfússon Róbert Örn 1098 ISL 5 30˝
5 11 Bragason Guđmundur Agnar 1400 ISL 5 29˝
6 4 Steinţórsson Felix 1463 ISL 5 28˝
7 13 Guđmundsson Elvar Ingi 0 ISL 5 28
8 5 Ragnarsson Heimir Páll 1233 ISL 4 32
9 7 Sigurjónsson Jón Otti 1000 ISL 4 27
10 10 Björnsson Orri Fannar 0 ISL 4 26˝
11 14 Gíslason Kjartan Gauti 0 ISL 4 26
12 9 Björnsson Benedikt Árni 0 ISL 4 25
13 27 Árnason Jóhannes Ţór 0 ISL 4 21
14 23 Sigurjónsson Axel Óli 0 ISL 3˝ 23˝
15 19 Kristinsson Ágúst Unnar 0 ISL 3˝ 21˝
16 8 Woodard Aron Ingi 1000 ISL 3 28˝
17 15 Helgason Hafţór 0 ISL 3 26
18 26 Tómasson Andri Már 0 ISL 3 23
19 20 Kristófersson Sindri Snćr 0 ISL 3 22˝
20 28 Ţrastardóttir Tinna 0 ISL 3 22˝
21 25 Sigţórsson Samúel Týr 0 ISL 3 20
22 24 Sigţórsdóttir Móey María 0 ISL 3 15
23 17 Ingvarsson Hrafn Gođi 0 ISL 2 23˝
24 22 Matthíasdóttir Guđrún Vala 0 ISL 2 20˝
25 21 Luu Róbert 0 ISL 2 18˝
26 18 Karlsson Ísak Orri 0 ISL 2 18˝
27 16 Hlynsson Ísak Aron 0 ISL 1 20˝
28 12 Erlingsson Ingibert Snćr 0 ISL 0 16
12.5.2013 | 09:37
EM: Guđmundur vann en Dagur tapađi
Guđmundur Kjartansson (2446) vann Pólverjann Piotr Sabuk (2206) í sjöundu umferđ EM einstaklinga sem fram fór í Legnica í Póllandi í gćr. Dagur Arngrímsson (2390) tapađi hins vegar fyrir rússneska stórmeistaranum Anton Shomoev (2561). Guđmundur hefur 3,5 vinning en Dagur hefur 2,5 vinning.
Í dag er frídagur. Á morgun teflir Guđmundur viđ ísraelska stórmeistarann Michael Roiz (2617) en Dagur viđ Tyrkjann Aydin Duman (2265).
286 skákmenn taka ţátt í mótinu og ţar af eru 143 stórmeistarar og ţar af eru 12 međ 2700 skákstig eđa meira. Guđmundur er nr. 170 í stigaröđ keppenda og Dagur er nr. 200.
- Heimasíđa mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 13)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 12:41 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
12.5.2013 | 09:31
Henrik međ tvö jafntefl í gćr
Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2500) gerđi jafntefli í báđum skákum gćrdagsins á H.C. Andersen mótinu í Óđinsvéum. Henrik hefur 5 vinninga eftir 7 umferđir og er í 4.-11. sćti.
Andstćđingar gćrdagsins voru alţjóđlegu meistararnir Torsten Bae (2442) og Thorsten Michael Haub (2462). Í áttundu og nćstsíđustu umferđ sem nú er í gangi mćtir hann litháíska stórmeistaranum Eduardas Rozentalis (2611).
Tefldar eru tvćr umferđir á dag og hefjast ţćr kl. 7 og 13. 55 skákmenn taka ţátt og ţar af fimm stórmeistarar. Henrik er nr. 5 í stigaröđ keppenda.
11.5.2013 | 08:29
Ađalfundur SÍ hefst kl. 10
Ađalfundur Skáksambands Íslands fer laugardaginn 11. maí og verđur haldinn í húsnćđi Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni 12.
Allir stjórnarmenn stjórnar SÍ ađ Eiríki Björnssyni undanskyldum, sem er ađ fara í námsfrí erlendis gefa kost á sér til endurkjörs.
Smávćgilegur hagnađur var á síđsata starfsári eđa um 300.000 kr. Ársreikninga sambandsins má nálgast hér (excel)
Mikiđ tillöguflóđ liggur fyrir fundum eđa alls 13 lagabreytingartillögur! Fjórar ţeirra eru frá stjórn SÍ. Tillögurnar snúa međal annars ađ vali á landsliđi og breyttu fyrirkomulagi á Íslandsmóti skákfélaga.
Allar tillögurnar má nálgast hér (zip).
Fundurinn er opinn öllum en ađeins ţingfulltrúar (fulltrúar félaganna) hafa atkvćđisrétt.
10.5.2013 | 22:29
Karjakin efstur í Noregi
Sergey Karjakin heldur áfram sigurgöngu sinni í Sandnes í Noregi. Í dag vann hann Jon Ludvig Hammer og er efstur međ fullt hús eftir 3 umferđir og hefur vinnings forskot á nćstu menn sem eru Aronian og Anand. Carlsen gerđi sitt ţriđja jafntefli í röđ nú gegn Nakamura.
Úrslit 3. umferđar:
ANAND Viswanathan | 1-0 | TOPALOV Veselin |
NAKAMURA Hikaru | ˝ -˝ | CARLSEN Magnus |
SVIDLER Peter | ˝ -˝ | ARONIAN Levon |
RADJABOV Teimour | 1-0 | HAMMER Jon Ludvig |
KARJAKIN Sergey | 1-0 | WANG Hao |
Röđ efstu manna:
- 1. Karjakin 3 v.
- 2.-3. Aronian og Anand 2 v.
- 4.-7. Carlsen, Nakamura, Svidler og Radjabov 1,5 v.
- 8.-9. Wang Hao og Topalov 1 v.
- 10. Hammer 0 v.
Frídagur er á morgun, 11. maí, vegna ađalfundar SÍ.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 13)
Spil og leikir | Breytt 11.5.2013 kl. 08:05 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2013 | 22:23
EM: Dagur međ jafntefli - Guđmundur tapađi
Dagur Arngrímsson (2390) gerđi jafntefli viđ Rúmenann Bogdal-Daniel Deac (2183) í sjöttu umferđ EM einstaklinga sem fram fór í Legnica í Póllandi í dag. Guđmundur Kjartansson (2446) tapađi hins vegar fyrir ítalska stórmeistarann Sabino Brunello (2580). Báđir hafa ţeir 2,5 vinning.
286 skákmenn taka ţátt í mótinu og ţar af eru 143 stórmeistarar og ţar af eru 12 međ 2700 skákstig eđa meira. Guđmundur er nr. 170 í stigaröđ keppenda og Dagur er nr. 200.
- Heimasíđa mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 13)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 95
- Frá upphafi: 0
Annađ
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 72
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar