Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Valdimar efstur í Ásgarđi í dag

Ţótt sumir hafi kannski veriđ örlítiđ ţreyttir eftir alla skákbardaga helgarinnar ţá mćttu tuttugu og átta skákmenn til leiks í dag. Valdimar taldist vera efstur međ átta vinninga.Guđfinnur R Kjartansson var einnig međ átta vinninga og virtist óţreyttur eftir góđa frammistöđu í Vatnsdal um helgina. Síđan komu ţrír međ sjö vinninga, ţeir Haraldur Axel, Össur Kristinsson og Friđgeir Hólm.

Nánari úrslit:

_sir_sgar_i_-_m_tstafla_14_ma_2013.jpg

Carlsen vann Radjabov - ađeins hálfum vinningi á eftir Karjakin

Magnus Carlsen (2868) vann sína ađra skák í röđ ţegar hann vann Radjabov (2745) í sjöttu umferđ ofurmótsins í Sandnesi í Noregi. Magnus hefur nú 4 vinninga og er ađeins hálfum vinningi á eftir Karjakin (2767) sem gerđi jafntefli viđ Anand (2783). Aronian (2813), sem  vann Hammer (2608),  er í 3.-4. sćti ásamt Nakamura (2775).

Úrslit 6. umferđar:

CARLSEN Magnus1-0RADJABOV Teimour
TOPALOV Veselin˝ -˝WANG Hao
ANAND Viswanathan˝ -˝KARJAKIN Sergey
ARONIAN Levon1-0HAMMER Jon Ludvig
NAKAMURA Hikaru˝ -˝SVIDLER Peter

 
Röđ efstu manna:

  • 1. Karjakin (2767) 4,5 v.
  • 2. Carlsen (2868) 4 v.
  • 3.-4. Nakamura (2775) og Aronian (2813) 3,5 v.
  • 5.-6. Anand (2783) og Svidler (2769) 3 v.
  • 7.-8. Topalov (2793) og Radjabov (2745) 2,5 v.
  • 9.Wang Hao (2743) 2 v.
  • 10. Hammer (2608) 1,5 v.

EM: Dagur vann - Guđmundur tapađi

Dagur ArngrímssonDagur Arngrímsson (2390) vann sína ađra skák í röđ er hann lagđi Rússann Alexandr Predke (2494) í níundu umferđ EM einstaklinga sem fram fór í dag. Guđmundur Kjartansson (2446) tapađi hins vegar fyrir rússneska FIDE-meistaranum Vladimir Minko (2268).

Dagur hefur 4,5 vinning og er í 126.-167. sćti en Guđmundur hefur 3,5 vinning og er í 204.-231. sćti.

Í tíundu og nćstsíđustu umferđ, sem fram fer á morgun, teflir Dagur viđ pólska alţjóđlega meistarann Kamil Dragun (2520) en Guđmundur mćtir Króatanum Drazen Curic (2258).

Úkraínski stórmeistarinn Alexander Moiseenko (2698) er efstur međ 7,5 vinning. Nćstir eru Evgeny Alekseev (2700), Rússlandi, og Constantin Lupulesco (2634), Rúmeníu, međ 7 vinninga. 

286 skákmenn taka ţátt í mótinu og ţar af eru 143 stórmeistarar og ţar af eru 12 međ 2700 skákstig eđa meira. Guđmundur er nr. 170 í stigaröđ keppenda og Dagur er nr. 200.

Kamsky og Krush bandarískir meistarar

KamskyBandaríska meistaramótinu í skák lauk í gćr. Gata Kamsky (2741) varđ meistari í opnum flokki eftir bráđabanaskák viđ Alejandro Rimirez (2551) en ţeir komu jafnir í mark međ 6˝ vinning í 9 skákum. Irina Krush (2470) varđ hins vegar Bandríkjameistari kvenna án bráđabana en hún kom hálfum vinningi á undan Önnu Zatonskih (2466) í mark.

Heimasíđa mótsins


Vignir Vatnar bestur á hrađkvöldi

Vignir VatnarVignir Vatnar Stefánsson sigrađi örugglega á hrađkvöldi Hellis sem fram fór í gćrkvöldi 13. maí. Vignir Vatnar fékk 6,5 vinning í 7 skákum og var búinn ađ tryggja sér sigur fyrir síđustu umferđ, ţannig ađ jafntefli í lokaumferđinni viđ Jón Úlfljótsson í skák međ skrautlegum endi réđ ekki úrslitum.

Annar varđ Arnaldur Loftsson međ 5,5 vinning og ţriđji Vigfús Ó. Vigfússon međ 5 vinning. Vignir Vatnar dró svo Jóhannes Ţór Árnason í happdrćttinu og báđir fengu ţeir úttektarmiđa á Saffran.

Ţađ verđur ekki hrađkvöld á annan í hvítasunnu ţannig ađ nćsta hrađkvöld verđur 27. maí nk. 

Lokastađan á hrađkvöldinu:

 Röđ  Nafn                        Vinningar  M-Buch. Buch. Progr.

  1   Vignir Vatnar Stefánsson,       6.5      20.0  27.5   27.5
  2   Arnaldur Loftsson,              5.5      20.5  30.0   21.5
  3   Vigfús Ó. Vigfússon,            5        18.0  25.0   21.0
 4-8  Elsa María Kristínardóttir,     4        22.0  30.5   18.0
      Sverrir Sigurđsson,             4        19.0  27.5   18.0
      Jón Úlfljótsson,                4        19.0  27.5   16.0
      Björgvin Kristbergsson,         4        17.0  22.5   16.0
      Jóhannes Guđmundsson,           4        15.0  21.0   12.0
  9   Gunnar Nikulásson,              3.5      18.0  25.0   11.5
10-12 Bjarki Arnaldarson,             2.5      17.5  23.0   10.0
      Jóhannes Ţór Árnason,           2.5      16.0  23.0    8.5
      Árni Júlísson,                  2.5      15.5  21.5    9.0
 13   Stefán Orri Davíđsson,          1        15.5  22.5    7.0

Carlsen vann Karjakin

Karjakin og CarlsenMagnus Carlsen (2868) vann Sergei Karjakin (2767) í fimmtu umferđ ofurmótsins í Sandnesi í Noregi sem fram fór í dag. Ţar međ galopnađist mótiđ en Karjakin hafđi unniđ allar sínar skákir fram ađ ţessu og leiddi međ 1,5 vinning. Nú hefur hann "ađeins" vinnings forskot á Carlsen og Nakamura (2775). Ţetta var dagur Norđmanna ţví Jon Ludvig Hammer (2608) lagđi Wang Hao (2743) en öđrum skákum lauk međ jafntefli.

Úrslit 5. umferđar:

NAKAMURA Hikaru˝ -˝TOPALOV Veselin
HAMMER Jon Ludvig1-0WANG Hao
SVIDLER Peter˝ -˝ANAND Viswanathan
RADJABOV Teimour˝ -˝ARONIAN Levon
KARJAKIN Sergey0-1CARLSEN Magnus

 

 Röđ efstu manna:

  • 1. Karjakin (2767) 4 v.
  • 2.-3. Carlsen (2868) og Nakamura (2775) 3 v.
  • 4.-7. Aronian (2813), Anand (2783), Svidler (2769) og Radjabov (2745) 2,5 v.
  • 8. Topalov (2793) 2 v.
  • 9.-10 Wang Hao (2743) og Hammer (2608) 1,5 v.

EM: Dagur vann - Guđmundur tapađi

Dagur ArngrímssonDagur Arngrímsson (2390) vann Tyrkjann Aydin Duman (2265) í 8. umferđ EM einstaklinga sem fram fór í dag. Guđmundur Kjartansson (2446) tapađi hins vegar fyrir ísraelska stórmeistaranum Michael Roiz (2617). Báđir hafa ţeir 3,5 vinning og eru í 169.-205. sćti.

Á morgun mćta ţeir báđir Rússum. Dagur mćtir Alexandr Predke (2494) en Guđmundur Vladimir Minko (2268).

Úkraínski stórmeistarinn Alexander Moiseenko (2698) er efstur međ 7 vinninga og rúmenski stórmeistarinn Constantin Lupulesco (2634) er annar međ 6,5 vinning. 

286 skákmenn taka ţátt í mótinu og ţar af eru 143 stórmeistarar og ţar af eru 12 međ 2700 skákstig eđa meira. Guđmundur er nr. 170 í stigaröđ keppenda og Dagur er nr. 200.

Mót í Vin kl. 13!

CIMG3922

Skákfélag Vinjar býđur til meistaramóts í hrađskák, mánudaginn 13. maí klukkan 13. Tefldar verđa 6 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma. Mótiđ er öllum opiđ en efsti liđsmađur Skákfélags Vinjar fćr sćmdartitilinn Hrađskákmeistari Vinjar 2013. Mótiđ er haldiđ í Vin, Hverfisgötu 47.

Mikill kraftur er í Skákfélagi Vinjar og njóta mánudagsćfinar félagsins mikilla vinsćlda. Síđastliđinn ţriđjudag hófst meistaramót félagsins í atskák, og hafa veriđ tefldar 3 umferđir af 9.

Meistaramótiđ í hrađskák 2013 markar jafnframt upphafiđ ađ sumarstarfi skákfélagsins, en í júní eru 10 ár liđin síđan skipulagt skákstarf hófst í athvarfinu. Skákfélag Vinjar tefldi í vetur fram tveimur sveitum á Íslandsmóti skákfélaga og vann A-sveitin sér keppnisrétt í 2. deild nćsta vetur.

Allir eru velkomnir á meistaramótiđ á mánudag, og ađ vanda verđur bođiđ upp á gómsćtar veitingar í leikhléi.


Hrađkvöld hjá Helli í kvöld

Taflfélagiđ Hellir heldur hrađkvöld mánudaginn 13. maí nk. og hefst tafliđ kl. 20:00. Tefldar verđa 7 umferđir međ sjö mínútna umhugsunartíma. Teflt er í félagsheimili Hellis í Álfabakka 14a í Mjóddinni.

Sigurvegarinn á hrađkvöldinu fćr í verđlaun máltíđ fyrir einn á Saffran. Einnig verđur dreginn út af handahófi annar keppandi sem einnig fćr máltíđ fyrir einn á Saffran. Ţar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu.

Ţátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir ađra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).


Sumarskák á Selfossi

Ţađ voru um 80 börn og unglingar auk einstaka fullorđins sem leiđ sína lögđu í Seliđ í dag.  Tilefniđ  bćjarhátíđin Vor í Árborg.  Á móti gestum tóku félagsmenn SSON og buđu uppá tafl.

 ađ tafli

Margir reyndu sig viđ ţá Björgvin Smára og Magnús Matt enda veglaun verđlaun í bođi fyrir ţann sem haft hefđi sigur. Ţótt mörg tilţrifin litu dagsins ljós hafđi engin ađ sigra meistarana enda ţađ ekki ađalatriđiđ, heldur ađ taka skák, sýna sig og sjá ađra á ţessum fallega vordegi á Selfossi.

 

Vor í Árborg 2013

 

Gaman ađ sjá áhugann hjá ungu kynslóđinni og ljóst ađ framtíđin er björt og gaman verđur ađ sjá ţessa framtíđarskákmenn mćta til leiks í Fischersetri í haust en fyrir liggur ađ bćjaryfirvöld hafa lýst yfir áhuga sínum ađ styđja viđ skákiđkun ţeirra á haustdögum og til framtíđar.

Heimasíđa SSON



« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 97
  • Frá upphafi: 8778303

Annađ

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 74
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband