Fćrsluflokkur: Spil og leikir
19.5.2013 | 14:18
Úrslitaeinvígi Íslandsmótsins í atskák fer fram eftir viku á RÚV
Arnar E. Gunnarsson (2441) og Davíđ Kjartansson (2348) tefla til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í atskák laugardaginn 25. maí. Teflt verđur í beinni útsendingu í RÚV og hefst útsendingin kl. 14.
Einvígiđ verđur nánar kynnt ţegar nćr dregur.
19.5.2013 | 13:40
Karjakin sigurvegari ofurmótsins í Sandnesi
Rússinn Sergei Karjakin (2767) kom sá og sigrađi á ofurmótinu í Sandnesi sem lauk í gćr. Karjakin samdi jafntefli viđ Topalov (2793) međ mjög vćnlega stöđu á borđinu til ađ gulltryggja sigurinn. Hetja heimamanna, Magnus Carlsen (2868), sem gerđi jafntefli viđ Aronian (2813) í lokaumferđinni, varđ í 2.-3. sćti ásamt Nakamura (2775) sem vann Hammer (2608). Wang Hao (2743) setti heldur betur svip sinn á lokaumferđunum tveimur ţegar hann kappanna sem mćtast í heimsmeistaraeinvígi í nóvember ţ.e. Carlsen í ţeirri nćstsíđustu og Anand (2783) í ţeirri síđustu.
Úrslit 9. umferđar:
ARONIAN Levon | ˝ -˝ | CARLSEN Magnus |
WANG Hao | 1-0 | ANAND Viswanathan |
HAMMER Jon Ludvig | 0-1 | NAKAMURA Hikaru |
RADJABOV Teimour | ˝ -˝ | SVIDLER Peter |
KARJAKIN Sergey | ˝ -˝ | TOPALOV Veselin |
Lokastađan:
- 1. Karjakin (2767) 6 v.
- 2.-3. Carlsen (2868) og Nakamura (2775) 5,5 v.
- 4.-6. Svidler (2769), Aronian (2813) og Anand (2783) 5 v.
- 7. Wang Hao (2743) 4,5 v.
- 8. Topalov (2793) 4 v.
- 9. Radjabov (2745) 3 v.
- 10. Hammer (2608) 1,5 v.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 13 - nema lokaumferđin hefst kl. 10)
17.5.2013 | 20:36
Ţjóđhátíđardagur Norđmanna brást - Carlsen og Hammer töpuđu
Ţjóđhátíđardagur Norđmanna fór ekki vel fyrir norsku skákmennina. Magnus Carlsen (2868) tapađi fyrir Wang Hao (2743) og Jon Ludvig Hammer (2608) lék niđur vćnlegri stöđu niđur í tap gegn heimsmeistaranum Anand (2783). Ţađ mildađi ţó tjón Norđmannanna ađ forystusauđurinn Karjakin (2767) tapađi fyrir Svidler (2769). Karjakin er enn efstur ţrátt fyrir tapiđ, hefur 5,5 vinning en Carlsen og Anand hafa hálfum vinningi minna.
Lokaumferđin fer fram á morgun og hefst fyrr en venjulega eđa kl. 10. Ţá mćtast Aronian-Carlsen, Topalov-Karjakin og Wang Hao-Anand.
Úrslit 8. umferđar:
CARLSEN Magnus | 0-1 | WANG Hao |
TOPALOV Veselin | ˝ -˝ | ARONIAN Levon |
ANAND Viswanathan | 1-0 | HAMMER Jon Ludvig |
NAKAMURA Hikaru | 1-0 | RADJABOV Teimour |
SVIDLER Peter | 1-0 | KARJAKIN Sergey |
Stađan:
- 1. Karjakin (2767) 5,5 v.
- 2.-3. Carlsen (2868) og Anand (2783) 5 v.
- 4.-6. Svidler (2769), Nakamura (2775) og Aronian (2813) 4,5 v.
- 7.-8. Wang Hao (2743) og Topalov (2793) 3,5 v.
- 9. og Radjabov (2745) 2,5 v.
- 10. Hammer (2608) 1,5 v.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 13 - nema lokaumferđin hefst kl. 10)
17.5.2013 | 12:50
Norđurlandamótiđ í skák fer fram í Křge Kyst í Danmörku 14.-20. október
Norđurlandamótiđ í skák fer fram í Křge Kyst í Danmörku 14.-20. október nk. Nánar má lesa um mótiđ í međfylgjandi viđhengi (PDF). Öllum er frjáls ţátttaka.
Sá íslenski skákmađur sem verđur nćstefstur á Opna Íslandsmótinu, sem fram fer 31. maí - 8. júní, fćr bođ á mótiđ fyrir Íslands hönd en sjálfur Íslandsmeistarinn fćr keppnisrétt á EM einstaklinga ađ ári.
Sjá nánar í PDF-viđhengi og hér.
17.5.2013 | 09:51
Meistaramót Skákskóla Íslands fer fram helgina 24.-26. maí
Meistaramót Skákskóla Íslands fyrir starfsáriđ 2012/2013 hefst föstudaginn 24. maí. Tefldar verđa sjö umferđir eftir svissneska kerfinu. Ţátttökurétt hafa nemendur skólans og allir ţeir sem tekiđ hafa ţátt í námskeiđum á vegum skólans eđa hlotiđ ţjálfun á vegum skólans.
Núverandi meistari Skákskóla íslands er Mikhael Jóhann Karlsson
Ţátttökuréttur:
Allir nemendur skólans og ţeir sem tekiđ hafa ţátt í námskeiđum á vegum skólans.
Ađ öđru leyti áskilur skólastjóri/mótsnefnd sér rétt til ađ bjóđa völdum einstaklingum til ţátttöku.
Dagskrá mótsins verđur međ eftirfarandi hćtti:
Umferđafjöldi: Sjö umferđir. Í ţrem fyrstu umferđunum verđa tefldar atskákir en fjórar lokaumferđirnar eru kappskákir.
Tímamörk: Atskákir 25 10 ţ.e 25 mínútur ađ viđbćttum sekúndum fyrir hvern leik.
Kappskákir: 90 30 ţ.e. 90 mínútur á alla skákina og 30 sekúndur bćtast viđ eftir hvern leik.
Fyrirkomulag: Svissneska kerfiđ - swiss perfect.
Skákstig: Mótiđ verđur reiknađ til skákstiga. Fjórar síđustu umferđirnar eru reiknađar til íslenskra- og alţjóđlegra stiga. At-skákirnar eru ekki reiknađar til stiga.
Verđlaun:
A:
1. verđlaun:
Meistaratitill Skákskóla Íslands 2012/2013 og farandbikar. Einnig flugfar m/Flugleiđum á Evrópuleiđ* og uppihalds kostnađi kr. 30 ţús.
2. verđlaun: Flugfarmiđi á leiđum Flugfélags Íslands innanlands.
3. - 5. verđlaun: Vandađar skákbćkur.
Sérstök stúlknaverđlaun:
Farmiđi á leiđum Flugfélags Íslands innanlands.
Aldursflokkaverđlaun.
1. Tvenn verđlaun fyrir ţá keppendur sem ná
bestum árangri í hópi 14 ára og yngri
2. Tvenn verđlaun fyrir ţćr
stúlkur sem bestum árangri ná í mótinu.
Verđlaun fyrir keppendur 12 ára og yngri.
1. - 3. verđlaun: Vandađar skákbćkur.
* Mótshaldarinn áskilur sér rétt til ađ finna hagstćđasta fargjald sem hćgt er ađ fá enda verđi tilkynnt um ferđir međ góđum fyrirvara.
* Verđlaunahafi verđur ađ nýta sér farmiđa innan 12 mánađa frá lokum mótsins.
B:
Dagskrá:
1. umferđ: Föstudagurinn 24. maí kl. 18
2. umferđ: Föstudagurinn 24. maí kl. 19
3. umferđ. Föstudagurinn 24. maí kl. 20.
4. umferđ: Laugardagurinn 25.maí kl. 10-14
5. umferđ: Laugardagurinn 25. maí kl. 15 - 19
6. umferđ: Sunnudagurinn 26.maí kl. 10.-14.
7. umferđ: Sunnudagurinn 26. maí kl. 15-19.
* Hljóti einhver stúlka 1. eđa 2. verđlaun mun 2. sćti međal stúlkna gilda til sérstakra stúlknaverđlauna.
Verđlaunaafhending fer fram strax ađ móti loknu.
Ţátttöku skal tilkynna í síma SÍ 568 9141, netfangiđ skaksamband@skaksamband.is eđa helol@simnet.is.
Mótsnefnd áskilur rétt til ađ gera breytingar á fyrirfram bođađri dagskrá.
16.5.2013 | 18:12
EM: Guđmundur vann í lokaumferđinni - Dagur tapađi
Guđmundur Kjartansson (2446) vann Króatann Marian Kantorik (2363) í 11. og síđustu umferđ EM einstaklinga sem fram fór í Legnacia í Póllandi í dag. Dagur Arngrímsson (2390) tapađi hins vegar fyrir pólska stórmeistaranum Bartlomiej Macieja (2600).
Guđmundur hlaut 5,5 vinning og endađi í 126.-166. sćti (147. sćti á stigum) en Dagur hlaut 4,5 vinning og endađi í 200.-224. sćti (201. á stigum).
Frammistađa Guđmundar samsvarađi 2495 skákstigum en Dags 2437 skákstigum. Guđmundur hćkkar um 7 stig en Dagur um 6 stig.
Tíu skákmenn urđu efstir og jafnir međ 8 vinninga. Evrópumeistari varđ úkraínski stórmeistarinn Alexander Moiseenko (2698) ţrátt fyrir tap í síđustu umferđ.
286 skákmenn tóku ţátt í mótinu og ţar af voru 143 stórmeistarar og ţar af voru 12 međ 2700 skákstig eđa meira. Guđmundur var nr. 170 í stigaröđ keppenda og Dagur var nr. 200.- Heimasíđa mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 13)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 18:28 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
16.5.2013 | 09:31
Fimmtíu keppendur skráđir til leiks á Opna Íslandsmótiđ í skák
Rúmum hálfum mánuđi fyrir Opna Íslandsmótiđ í skák, sem hefst 31. maí, eru nú ţegar 50 keppendur skráđir til leiks á mótiđ. Međal ţegar skráđra keppenda eru stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson (2507) og Stefán Kristjánsson (2494) og alţjóđlegu meistararnir Guđmundur Kjartansson (2446), Björn Ţorfinnsson, Sćvar Bjarnason (2130) og Nicolai Getz (2355) frá Noregi og Lenka Ptácníková (2255) stórmeistari kvenna.
Tefldar eru 10 umferđir eftir svissneska kerfinu. Ţátttökugjöld eru kr. 10.000 fyrir fullorđna en kr. 5.000 fyrir 16 ára og yngri.
Minnt er á ađ hver keppandi getur tekiđ eina yfirsetu í umferđum 1-6. Gert er ráđ fyrir ađ keppendur verđi hiđ minnsta um 70-80 talsins.
Ađstćđur í Turninum, Borgartúni, eru einstakar en teflt er á 20. hćđinni ţar sem finna má útsyni yfir alla Reykjavík.
Skráning fer fram hér á Skák.is
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:45 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2013 | 21:00
Karjakin međ hálfs vinnings forskot á Carlsen - báđir unnu í dag
Sergei Karjakin (2767) vann í dag góđan sigur á Nakamura (2775) í sjöundu umferđ ofurmótsins í Sandnesi í Noregi. Magnus Carlsen (2868) vann sína ţriđju skák í röđ í dag er hann vann landa sinn Jon Ludvig Hammer (2608). Karjakin hefur hálfs vinnings forskot á Carlsen ţegar ađeins tvćr umferđir eru eftir.
Frídagur er á morgun
Úrslit 7. umferđar:
WANG Hao | ˝ -˝ | ARONIAN Levon |
HAMMER Jon Ludvig | 0-1 | CARLSEN Magnus |
SVIDLER Peter | ˝ -˝ | TOPALOV Veselin |
RADJABOV Teimour | 0-1 | ANAND Viswanathan |
KARJAKIN Sergey | 1-0 | NAKAMURA Hikaru |
Stađan:
- 1. Karjakin (2767) 5,5 v.
- 2. Carlsen (2868) 5 v.
- 3.-4. Anand (2783) og Aronian (2813) 4 v.
- 5.-6. Nakamura (2775) og Svidler (2769) 3,5 v.
- 7. Topalov (2793) 3 v.
- 8.-9. Wang Hao (2743) og Radjabov (2745) 2,5 v.
- 10. Hammer (2608) 1,5 v.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 13)
Spil og leikir | Breytt 16.5.2013 kl. 06:10 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
15.5.2013 | 20:12
EM: Guđmundur vann - Dagur tapađi
Guđmundur Kjartansson (2446) vann Krótatann Drazen Curic (2258) í 10. og nćstsíđustu umferđ EM einstaklinga sem fram fór í dag. Dagur Arngrímsson (2390) tapađi hins vegar fyrir pólska alţjóđlega meistarann Kamil Dragun (2520). Báđir hafa ţeir 4,5 vinning og eru í 165.-202. sćti
Í lokaumferđinni sem fram fer á morgun teflir Dagur viđ pólska stórmeistarann Bartlomiej Macieja (2600) en Guđmundur viđ Króatann Marian Kantorik (2363).
Úkraínski stórmeistarinn Alexander Moiseenko (2698) er efstur međ 8 vinninga. Nćstir eru Evgeny Alekseev (2700), Rússlandi, og Constantin Lupulesco (2634), Rúmeníu, međ 7,5 vinning.
286 skákmenn taka ţátt í mótinu og ţar af eru 143 stórmeistarar og ţar af eru 12 međ 2700 skákstig eđa meira. Guđmundur er nr. 170 í stigaröđ keppenda og Dagur er nr. 200.- Heimasíđa mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 13)
14.5.2013 | 23:59
Vatnsdalshólaskákkeppni: Ćsir og SA 60+
Um helgina fór fram hin árlega keppni í skák á milli heldri skákmanna af höfuđborgarsvćđinu og heldri skákmanna frá SA á Akureyri.
Liđin mćttust í veiđihúsinu í Vatnsdal. Ţetta var í fjórđa sinn sem viđ hittumst í Vatnsdalnum ţađ eru allir mjög ánćgđir međ ađstöđuna ţar.
Karl Steingrímsson og hans ágćta frú sáu um ađ fóđra okkur á veislumat og kaffi og kruđeríi í sólarhring á mjög viđráđanlegu verđi, ţau hafa séđ um ţann ţátt í fjögur ár og kunnum viđ ţeim bestu ţakkir fyrir.
Ćsir sáu um framkvćmd og stjórn mótsins í ár og tóku litla rútu á leigu fyrir alla keppendur ađ sunnan og tóku tvo SA menn međ sér ţá Ţór Valtýsson og Jón Ţ. Ţór.
Viđ fengum ágćtan og ţrautreyndan strćtóbílstjóra til ţess ađ keyra okkur eins og á síđasta ári Hann heitir Halldór Gíslason og er gamalreyndur skákmađur ţótt hann hafi lítiđ teflt undanfarin ár.
Halldór leisti Finn af í keppninni mikiđ til, svo ađ hann gćti séđ um ađ skrá úrslit inn í töfluna.
Mótstjórnin var í höndum ţeirra Ţorsteins Guđlaugsonar Garđars Guđmundssonar og Finns Kr.
Ţađ var teflt á sex borđum í A-riđli og fimm í B-riđli, en í B-riđli voru tefldar tvćr skákir í fyrstu umferđ til ţess ađ keppnin fylgdist ađ í báđum riđlum.
Í A-riđli fengu SA-menn 18.5 vinninga en Ćsir 17.5 en í B-riđli skildu liđi jöfn 15 vinningar gegn 15.
Í A-riđli fékk Sćbjörn Larsen flesta vinninga af sunnan mönnum međ 4.5 vinning hann tapađi bara einni skák og gerđi eitt jafntefli.
Elsti ţátttakandinn í ţessu móti var Björn Víkingur Ţórđarson hann fór taplaus í gegnum A-riđilinn međ 4 vinninga,ţađ var vaxlega gert.
Jón Ţ Ţór var sigur sćlastur af norđan mönnum međ 4.5 vinninga, hann vann ţrjár skákir og gerđi ţrjú jafntefli. Var taplaus eins og Björn.
Í B-riđli fékk Ţorsteinn Guđlaugsson flesta vinninga eđa 4.5 hann vann ţrjár skákir og gerđi ţrjú jafntefli, var taplaus.
Hreinn Hrafnsson stóđ sig best af norđan mönnum í B-riđli fékk 5 vinninga og var taplaus.
Eftir veislukvöldverđ og örfá bjóra var svo startađ hrađskákmóti ţar sem ţátttaka var frjáls. Tuttugu og einn tóku ţátt í ţví, tefldar voru ellefu umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma.
Jón Ţ Ţór fékk flesta vinninga eđa 10 af 11. Ţór Valtýsson varđ í öđru sćti međ 9 vinninga.Jóhann Örn í ţriđja međ 8 vinninga.
Eftir morgunverđ á sunnudag settust liđin svo gengt hvert öđru, ellefu í hvoru liđi og tefldu hrađskák. Eftir allar ţćr rimmur voru liđin međ jafnmarga vinninga 60.5/60.5
Af sunnan mönnum var Jóhann Örn harđastur hann leyfđ ađeins eitt jafntefli viđ Jón Ţ Ţór, Jóhann fékk 10.5 vinning af 11 ţađ var vel ađ verki stađiđ. Guđfinnur R Kjartansson fékk 8.5 og Sćbjörn Larsen 8 vinninga,
Mjög góđ frammistađa hjá ţeim öllum.
Af norđan mönnum Var Sigurđur Eiríksson grimmastur hann fékk 9 vinninga tapađi bara fyrir Jóhanni og Kristjáni Guđmundssyni f.v skipstjóra. Karl Steingrímsson kom svo nćstur međ 8.5 vinning. Jón Ţ Ţór kom svo nćstur međ 8 vinninga.
Ţessi keppni var ákaflega skemmtileg og tókst vel í alla stađi.
Viđ skákfélagar í Ásum ţökkum Akureyringum kćrlega fyrir drengilega og skemmtilega keppni.
Finnur Kr Finnsson
Myndaalbúm (ESE)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:48 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 5
- Sl. sólarhring: 21
- Sl. viku: 97
- Frá upphafi: 8778303
Annađ
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 74
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar