Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Góđur skákfélagi fallinn frá - Eiđur Ágúst Gunnarsson

Eiđur Ágúst GunnarssonEiđur Ágúst Gunnarsson,söngvari og skákunnandi er látinn 77 ára ađ aldri.

Ţrítugur ađ aldri fór Eiđur til náms  viđ óperudeild Konservatorium der Stadt Köln í Ţýskalandi, eftir ađ hafa stundađ söngnám hér heima.

Eiđur var afreksmađur í frjálsum íţróttum á sínum yngri árum.

Hann var einnig orđinn öflugur skákmađur ţegar hann hélt á vit nýrra ćvintýra og afreka í óperuhúsum Evrópu.

Eiđur hafđi alla tíđ mikinn áhuga á skákíţróttinni og tefldi alltaf eitthvađ međan hann bjó úti í Evrópu.

Eiđur byrjađi ađ tefla međ eldri borgurum á höfuđborgarsvćđinu fyrir nokkrum árum, bćđi hjá Ásum í Stangarhyl og Riddurum í Hafnarfirđi.

Eiđur var eftirminnilegur mađur og hvers manns hugljúfi.

Skákfélagar hans í Ásum og Riddurum ţakka honum kćrlega fyrir allar góđar skákir.

Viđ skákfélagar hans vottum eiginkonu hans Lucindu Grímsdóttur og syni hennar Grími Inga innilega samúđ.

Finnur Kr Finnsson


Gelfönd efst á Tal Memorial

GelfandBoris Gelfand (2755) vann Hikaru Nakamura (2784) í sjöundu umferđ Tal Memorial sem fram fór í dag. Međ ţví náđi Gelfand forystunni á mótinu, hefur 5 vinninga. Dmitry Andreikin (2713) vann Kramnik (2803) en öđrum skákum lauk međ jafntefli. Fyrsta sigurskák Rússa á mótinu.

Nakamura er annar međ 4,5 vinning en Carlsen er í 3.-5. sćti ásamt Mamedyarov (2753) og Andreikin. Ţeir hafa 4 vinninga. Ţađ vekur óneitanlega mikla athygli ađ Kramnik rekur lestina á mótinu er međ 2 vinninga.

Í áttundu og nćstsíđustu umferđ, sem fram fer á morgun mćtast međal annars: Carlsen-Nakamura, Gelfand-Mamedyarov. Í botnbaráttunni mćtast Anand og Kramnik.

Henrik vann í fyrstu umferđ í Osló

Henrik Danielsen stórmeistari verđur međ á Afmćlismóti Jóhanns Hjartarsonar í Trékyllisvík.Minningarmótiđ um Svein Johannessen hófst í dag í Osló í Noregi. Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2508) vann í fyrstu umferđ Danann Lars-Henrik Bech Hansen (2045), forseta danska skáksambandsins.

Á morgun verđa tefldar 2. og 3. umferđ. Ţćr hefjast kl. 8 og 14 og verđa sýndar beint. Í 2. umferđ mćtir Henrik Norđmanninum Lars Oskar Hauge (2191).

60 keppendur frá 10 löndum taka ţátt í mótinu og ţar á međal sex stórmeistarar. Henrik er ţriđji í stigaröđ keppenda.


Lenka međ 4,5 vinning - mćtir Kasparov á morgun

Lenka PtácníkóváLenka Ptácníková (2255) er međ 4,5 vinning ađ loknum sjö umferđum á alţjóđlega mótinu í Teplice í Tékklandi. Á morgun verđur Lenka í ţráđbeinni en ţá mćtir hún hvít-rússneska stórmeistaranum Sergey Kasparov (2482). Umferđin hefst kl. 14.

Jakob Sćvar Sigurđsson (1768) og Sigurđur Eiríksson (1946) hafa 3 vinninga. 


Norđurlandamót kvenna fer fram í september í Norrćna húsinu

Norrćna húsiđNorđurlandamót kvenna fer fram í glćsilegum húsakynnum í Norrćna húsinu í Reykjavík dagana 17.-23. september. Tefldar verđa níu umferđir eftir svissneska kerfinu og gefur mótiđ ţví möguleika á alţjóđlegum áföngum. Mótiđ er opiđ öllum konum, ekki ađeins frá Norđurlöndunum. Von er á mörgum sterkum skákkonum frá hinum Norrćnu löndunum.

Heildarverđlaun nema 250.000 kr.

Nánari upplýsingar má finna á vefsíđu mótsins.

Skráning fer fram á Chess-Results og eru íslenskar skákkonur hvattar til ađ skrá sig sem fyrst til leiks. Ţátttökugjöld eru kr. 10.000 en 50% afsláttur er fyrir 16 ára og yngri.

Bođsbréf um mótiđ, reyndar á ensku, fylgir međ sem viđhengi.


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

Helgi velur 10 manna landsliđshóp fyrir EM landsliđa

IMG 0404Helgi Ólafsson, landsliđseinvaldur í opnum flokki, hefur valiđ 10 manna landsliđshóp. Fimm ţeirra munu svo eiga sćti í landsliđi Íslands á EM landsliđa sem fram fer í Varsjá í Póllandi í nóvember nk. Val Helga verđur tilkynnt 1. ágúst nk.

Íslandsmeistarinn 2013, Hannes Hlífar Stefánsson, hefur ţegar tryggt sér sćti í landsliđinu en fjórir af hinum níu skipa hin sćtin.

Landsliđshópinn skipa:

  • AM Björn Ţorfinnsson (2377)
  • AM Bragi Ţorfinnsson (2493)
  • AM Dagur Arngrímsson (2396)
  • AM Guđmundur Kjartansson (2453)
  • SM Hannes Hlífar Stefánsson (2507)
  • SM Henrik Danielsen (2508)
  • SM Héđinn Steingrímsson (2561)
  • AM Hjörvar Steinn Grétarsson (2509)
  • SM Stefán Kristjánsson (2494)
  • SM Ţröstur Ţórhallsson (2449)

Friđrik Ólafsson međal keppenda á Afmćlismóti Jóhanns Hjartarsonar í Trékyllisvík

Jóhann Hjartarson s sigrar 2010

Skákhátíđ hefst á Ströndum međ fjöltefli í Stjórnsýsluhúsinu á Hólmavík klukkan 16 á föstudag. Skákveislan heldur áfram á föstudagskvöld í Djúpavík og stendur alla helgina.

 

Ţetta er sjötta áriđ í röđ sem Hrókurinn stendur fyrir skákhátíđ í Árneshreppi, sem er nyrsti hreppur Strandasýslu og fámennasta sveitarfélag landsins. Ţar fara saman blómlegt mannlíf, stórbrotin náttúra og magnađir sögustađir.


Katrín Jakobsdóttir og Friđrik Ólafsson

Á föstudagskvöld verđur hátíđ sett á Hótel Djúpavík kl. 20.30, sem er međ sérstakt tilbođ á hlađborđi í tilefni dagsins. Síđan verđur blásiđ er til tvískákar-móts, en ţađ er mjög fjörugt afbrigđi skákarinnar, ţar sem tveir eru saman í liđi.


DSC_2838

Á laugardag berst leikurinn til Trékyllisvíkur, ţar sem Securitas-Afmćlismót Jóhanns Hjartarsonar verđur haldiđ. Jóhann Hjartarson er einn sigursćlasti meistari skáksögunnar, og komst í fjögurra manna úrslit í keppninni um heimsmeistaratitilinn.


Hann varđ fimmtugur fyrr á árinu, og honum er nú haldin allsherjar veisla í samkomuhúsinu af ţví tilefni. Jóhann og kona hans, Jónína Ingvadóttir, hafa veriđ fastagestir á skákhátíđ á Ströndum frá upphafi.


Margir meistarar mćta til ađ heiđra Jóhann og Jónínu. Til leiks eru skráđir Jón L. Árnason, Helgi Ólafsson og Hannes Hlífar Stefánsson. Sérstaka ánćgju vekur ađ Friđrik Ólafsson fyrsti stórmeistari Íslendinga og fyrrum forseti FIDE-Alţjóđa skáksambandsins skuli mćta til leiks. Friđrik, sem varđ 78 ára í janúar, er gođsögn í íslenskri skáksögu og var međal bestu skákmanna heims um árabil.


Securitas-Afmćlismót Jóhanns Hjartarsonar í Trékyllisvík hefst klukkan 14 á laugardag í samkomuhúsinu, og verđa tefldar 9 umferđir, međ 10 mínútna umhugsunartíma.


Til mikils er ađ vinna, ţví sigurvegarinn fćr ađ launum útskorinn ísbjörn eftir Guđjón Kristinsson frá Dröngum, sem er einn fremsti handverks- og listamađur okkar. Veitt eru peningaverđlaun, samtals 100 ţúsund, fyrir efstu sćtin. Fjöldi annarra vinninga er í bođi – međal annars handverk, bćkur,inneign í kaupfélaginu og gersemar frá Grćnlandi.


Sérstakur gestur hátíđarinnar er frú Kristjana Guđmundsdóttir Motzfeldt, ekkja Jonathans Motzfeldt sem var í 17 ár forsćtisráđherra Grćnlands.


Ađ loknu afmćlismótinu verđur slegiđ upp grillveislu og efnt til hins árlega ,,landsleiks“ í fótbolta milli liđsmanna Ungmennafélagsins Leifs heppna í Árneshreppi og gestaliđsins Strandaglópa.


Á sunnudaginn lýkur hátíđinni međ hrađskákmóti í Kaffi Norđurfirđi, sem hefst kl. 12. Tefldar verđa 8 umferđir međ 5 mínútna umhugsunartíma og er mótiđ haldiđ til heiđurs Böđvari Böđvarssyni, sem verđur 77 ára ţann dag.


Međal ţeirra sem gefa verđlaun og vinninga á Skákhátíđ á Ströndum 2013 eru Flugfélagiđ Ernir, Sparisjóđur Strandamanna, Securitas, Kaupfélag Steingrímsfjarđar, Sena, Edda, DV, Tónastöđin, Henson, Arion banki, auk ţess sem Skáksamband Íslands, Brim ehf. og Atvinnuvegaráđuneytiđ styđja mótshaldiđ. Nokkrir einstaklingar gefa handverk og listmuni, m.a. Helgi Ţórsson, Jóhanna Kristjónsdóttir og Ásdís Bragadóttir.


Gestir og keppendur á Skákhátíđ í Árneshreppi koma víđa ađ. Međal keppenda verđa heimamenn, sum efnilegustu skákbörn Íslands og áhugamenn úr öllum áttum.

 

Skákáhugamenn eru hvattir til ađ skella sér á Strandir norđur um helgina. Urđartindur í Norđurfirđi býđur upp á herbergi í nýlegu hóteli í botni fjarđarins, en ţađan er ćgifagurt útsýni. Sími ţar er 843 8110.

 

Auk ţess sem mótshaldarar hafa yfir ađ ráđa fyrsta flokks svefnpokagistingu í Norđurfirđi, međ góđri eldunarađstöđu. Ţá eru góđ tjaldstćđi í Árneshreppi svo allir ćttu ađ finna eitthvađ viđ sitt hćfi. 

 

Allir eru velkomnir á skákhátíđina og ţátttaka í öllum viđburđum er ókeypis. 

 

Nánari upplýsingar veitir Róbert Lagerman mótstjóri í síma 6969658, netfang chesslion@hotmail.com.


Nakamura einn efstur eftir sigur á Anand

NakamuraBandaríkjamađurinn Hikaru Nakamura (2784) fer mjög mikinn á Tal Memorial sem fram fer ţessa dagana í Moskvu. Í sjöttu umferđ, sem fram fór í dag, vann hann Anand (2786) mjög örugglega. Nakamura er nú efstur međ 4,5 vinning. Öđrum skákum lauk međ jafntefli ţar međ taliđ skák Gelfand (2755) og Carlsen (2868). Gelfand er annar međ 4 vinninga en Carlsen og Mamedyarov (2753) eru í 3.-4. sćti međ 3,5 vinning.

Frídagur er á morgun. Í sjöundu umferđ, sem fram fer á föstudag og hefst kl. 11 mćtast međal annars Carlsen og Morozevich sem og Nakamura og Gelfand.



Mika Karttunen skákmeistari Finnlands

Mika KarttunenAlţjóđlegi meistarinn Mika Karttunen (2441) varđ í dag skákmeistari Finnlands. Í öđru leyti varđ alţjóđlegi meistarinn Vilka Sipila (2411) og í ţriđja sćti varđ hinn ungi FIDE-meistari Daniel Ebeling (2368).


Fjölmenni í fjötefli

IMG 0522Fjölmenni mćtti í fjöltefli á sautjánda júní. Ţrátt fyrir leiđinlegt veđur var ágćtis skjól viđ útitafliđ ţar sem Hjörvar Steinn og Hannes Hlífar tefldu viđ tugi gesta. Hjörvar hóf tafliđ en Hannes kom inn í miđju fjöltefli og léku ţeir félagar sitthvorn leikinn dágóđa stund. Hannes klárađi svo fjöltefliđ sem Hjörvar hóf.IMG 0524

Tveir skákmenn lögđu Hjörvar ađ velli; gamall félagi hans úr skáksveit Rimaskóla Hörđur Aron Hauksson, og  Pétur Pétursson kennari.

Myndaalbúm (HJ)


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 89
  • Frá upphafi: 8778244

Annađ

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband