Fćrsluflokkur: Spil og leikir
3.3.2015 | 10:40
Skákţing Hugins á Húsavík - Fjórir enn efstir
Stađa efstu manna á skákţingi Hugins á Húsavík breyttist ekkert eftir skákir 4. umferđar sem fram fór í gćr. Fjórir efstu menn áttust viđ og enduđu báđar skákirnar međ jafntefli. Í hinum tveimur viđureignunum áttust Ármann Olgeirsson og Sigurbjörn Ásmundsson viđ og Hlynur Snćr Viđarsson tefldi viđ Sam Rees. Ármann og Hlynur höfđu betur.
Skák Jóns Ađalsteins Hermannssonar og Ásgeirs Inga Unnsteinnssonar var tefld á laugardag og lauk henni međ sigri Jóns. Skák Ćvars Ákasonar og Hermanns Ađalsteinssonar fer fram í kvöld. Úrslit í ţeirri skák hefur ekki áhrif á stöđu efstu manna. Ađ henni lokinni verđur pörun 5. umferđar birt.
Smári Sigurđsson, Rúnar Ísleifsson, Hjörleifur Halldórsson og Jakob Sćvar Sigurđsson eru efstir á mótinu međ 3 vinninga hver.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:04 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
3.3.2015 | 01:51
Síđari hluti Íslandsmóts skákfélaga fer fram 19.-21. mars
Seinni hluti Íslandsmóts skákfélaga 2014-2015 fer fram dagana 19.-21 mars. nk. Mótiđ fer fram í Rimaskóla, Reykjavík. Keppnin hefst (eingöngu í 1.deild) kl. 19.30 fimmtudaginn 19. mars. Ađrar deildir munu hefja taflmennsku föstudaginn 20. mars kl. 20.00 og síđan laugardaginn 21. mars. kl. 11.00 og kl. 17.00 sama dag.
Ţau félög sem enn skulda ţátttökugjöld ţurfa ađ gera upp áđur en seinni hlutinn hefst.
Vakin er athygli á nýrri grein í reglugerđ. Taflfélög í 1. deild eru beđin ađ tilkynna til SÍ nöfn skákstjóra sinna.
- gr.
Framkvćmdanefnd Íslandsmóts skákfélaga, sem skipuđ er af stjórn Skáksambands Íslands, ákveđur töfluröđ og skipar skákstjóra og umsjónarmenn Íslandsmóts skákfélaga. Öllum taflfélögum, sem eiga sveitir í 1. deild, ber ađ útvega einn skákstjóra.
Ţeir sem geta lánađ digital skákklukkur eru vinsamlega beđnir ađ svara og láta vita um fjölda.
2.3.2015 | 20:31
Hannes međ góđan sigur á EM - er í fimmta sćti!
Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2573) vann góđan og sannfćrandi sigur á spćnska stórmeistaranum Ivan Salgado Lopez (2628) í sjöttu umferđ EM einstaklinga í Jerúsalem í dag. Hannes hefur 4˝ og er í 5.-25. sćti (fimmti á stigum). Hann er ađeins hálfum vinningi á eftir efstu mönnum. Hannes er ađeins annar tveimur skákmönnum úr Vestur-Evrópu međal 35 efstu manna. Hinn er Englendingurinn David Howell sem er í 20. sćti.
Á morgun teflir Hannes viđ rússneska ofurstórmeistarann Nikita Vitiugov (2735) sem er nćststigahćstur keppenda.
Guđmundur Kjartansson (2484) tapađi fyrir rússneska stórmeistarann Evgeny Romanov (2625) og hefur 3 vinninga og er í 110.-163. sćti (140. sćti á stigum). Á morgun teflir hann viđ heimamanninn David Gorodetzky (2210).
Alls taka 250 skákmenn frá 33 löndum ţátt í mótinu. Ţar af eru 113 stórmeistarar. Hannes er nr. 84 í stigaröđ keppenda en Guđmundur er nr. 116. Alls er tefldar 11 umferđir.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast almennt kl. 13)
- Chess-Results
2.3.2015 | 16:42
Skákdeild Fjölnis stendur fyrir Sturlubúđum 7. og 8. mars
Áhugasömum skákkrökkum á grunnskólaaldri sem ćfa skák reglulega er bođiđ ađ taka ţátt í skákbúđum í Vatnaskógi helgina 7.8. mars nk.
Ţađ er skákdeild Fjölnis í samstarfi viđ Skákakademíu Reykjavíkur og Skákskóla Íslands sem stendur fyrir skákbúđunum í fjórđa sinn. Fyrri ţrjú námskeiđin heppnuđust mjög vel bćđi hvađ varđar árangur og ánćgju. Kennarar verđa ţau Helgi Ólafsson, Lenka Ptacnikova, Stefán Bergsson og Björn Ívar Karlsson. Í Vatnaskógi er frábćr ađstađa fyrir starfsemi skákbúđanna, vistlegur svefnskáli sem rúmar alla undir einu ţaki, íţróttahús, tómstundaađstađa og góđur matur í matar-og kaffihléum. Ađeins er reiknađ međ 40 ţátttakendum og ţví rétt ađ áhugasamir skákkrakkar skrái sig sem fyrst á skrifstofu Skáksambands Íslands s. 568 9141 eđa í tölvupósti á netfangiđ skaksamband@skáksamband.is. til ađ missa ekki af ţessum einstćđa viđburđi. Helgi Árnason formađur skákdeildar Fjölnis og fararstjóri svarar upplýsingum í síma 664 8320.
Verđ á hvern ţátttakanda er 7500 kr fyrir ţessa tvo daga. Innifaliđ í gjaldinu er allur matur, kennsla, skálaleiga, ţátttaka í Góu páskaeggjaskákmótinu og viđurkenningar. Rútuferđ fram og til baka kostar 2500 kr til viđbótar. Kostnađur ţví alls 10.000 kr. Í síđustu skákbúđum sem haldnar voru ađ Úlfljótsvatni í febrúar 2014 greiddu nokkur skákfélög hluta gjaldsins fyrir sína félaga.
Sturlubúđir eru kenndar viđ Sturlu Pétursson skákfrömuđ sem ţjálfađi unga og efnilega skákkrakka um og eftir miđja síđustu öld og er alnafni hans styrktarađili Fjölnis viđ framkvćmd skákbúđanna. Lagt er af stađ frá BSÍ / N1 kl. 10 á laugardagsmorgni og komiđ til baka kl. 15:45 á sunnudegi.
Sjá nánar PDF-viđhengi.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 18:08 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2015 | 11:03
Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák
Áskorendaflokkur Íslandsmótsins í skák fer fram um páskanna. Mótiđ fer fram á höfuđborgarsvćđinu og verđur nánari stađsetning mótsins tilkynnt síđar.
Dagskrá mótsins er sem hér segir:
- 1. umferđ, Föstudagurinn, 27. mars
- 2. umferđ, Laugardagurinn, 28. mars
- 3. umferđ, Laugardaginn, 28. mars
- 4. umferđ, ţriđjudaginn 31. mars
- 5. umferđ, miđvikudaginn, 1. apríl
- 6. umferđ, föstudagurinn (langi), 3. apríl
- 7. umferđ, föstudagurinn (langi), 3. apríl
- 8. umferđ, laugardagurinn, 4. apríl
- 9. umferđ, sunnudagurinn, 5. apríl.
Nánara fyrirkomlagi mótsins verđur tilkynnt á nćstu dögum.
Landsliđsflokkur fer fram í maí nk. og verđur nánara fyrirkomulag tilkynnt fljótlega.
2.3.2015 | 07:00
Atkvöld hjá Hugin í kvöld - viltu tefla viđ Mamedyarov?
Mánudaginn 2. mars 2015 verđur atkvöld hjá Skákfélaginu Huginn í Mjóddinni og hefst mótiđ kl. 20:00. Fyrst eru tefldar 3 hrađskákir ţar sem hvor keppandi hefur 5 mínútur til ađ ljúka skákinni og síđan ţrjár atskákir, međ fimmtán mínútna umhugsun. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni.
Sigurvegarinn á atkvöldinu fćr í verđlaun máltíđ fyrir einn á Saffran eđa pizzu frá Dominos. Einnig verđur dreginn út af handahófi annar keppandi sem fćr sama val. Ţar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu. Auk ţess gefur efsta sćtiđ á atkvöldinu ţátttökuréttt í fjöltefli Mamedyarovs sem fram fer um morguninn fimmtudaginn 12. mars í Gamma.
Ţátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir ađra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2015 | 22:58
Skáksprengja í Grafarvogi. 115 grunnskólanemendur mćttu á Skákhátíđ Rótarý og Fjölnis
Ţađ fór vel á ţví ađ efnilegustu skákmenn Íslands, ţau Vignir Vatnar Stefánsson og Nansý Davíđsdóttir, kćmu hnífjöfn í mark međ fullt hús á gífurlega fjölmennu barna-og unglingaskákmóti sem Rótarýklúbburinn Reykjavík Grafarvogur og Skákdeild Fjölnis héldu í Rimaskóla í gćr.
Já slíkur var fjöldinn ađ ţessi tvö efstu náđu ekki ađ tefla saman í ţeim sex umferđum sem tefldar voru. Skákhátíđin í Rimaskóla togađi til sín 115 grunnskólakrakka á öllum aldri, drengi og stúlkur. Ábyggilega hafa glćsilegir vinningar og ekki síđur pítsuveislan og ókeypis bíómiđi haft sitt ađ segja ţví allt var ţetta í bođi Rótarýklúbbsins.
Jón L. Árnason stórmeistari og heimsmeistari unglinga áriđ 1977 og rótarýfélagi var heiđursgestur mótsins og lék fyrsta leikinn fyrir Óskar Hákonarson í skák hans viđ Vigni Vatnar. Í framhaldinu hófst taflmennskan út um allan sal og inn um ganga Rimaskóla. Mótiđ gekk einstaklega vel fyrir sig ţrátt fyrir hálftíma seinkun viđ innritun ţegar löng röđ myndađist viđ skráningarborđiđ.
Eftir fjórar umferđir var öllum keppendum bođiđ upp á pítsur og safa sem runnu ljúft niđur í skákmeistarana. Strax ađ móti loknu fór fram glćsileg verđlaunahátíđ. Tíu efstu skákmenn mótsins og ţrjár efstu stúlkurnar fengu gjafabréf upp á 4000 - 5000 kr. Auk ţess voru dregnir út sjö happadrćttisvinningar frá nammibar Hagkaups. Allir 115 keppendurnir luku keppni međ glćsibrag og fengu ókeypis bíómiđa í Laugarásbíó ađ launum.
Rótarýklúbburinn Reykjavík Grafarvogur á heiđur skiliđ fyrir frábćran stuđning viđ unga og áhugasama skákkrakka. Ţeir voru fjölmennir á mótsstađ, röđuđu upp, bćttu endalaust viđ borđum, stóđu vel ađ pítsuafgreiđslunni og ađstođuđu yngstu skákmennina ţegar ţörf var á. Rótarýklúbburinn var međ ţessari skákhátíđ ađ halda upp á Rótarýdaginn og vöktu um leiđ athygli á fyrirmyndar félagsstarfi í hverfinu. Ţar völdu ţeir Skákdeild Fjölnis og undirbjuggu hátíđarhöldin í samstarfi viđ Helga Árnason formann skákdeildarinnar sem var skákstjóri ásamt Páli Sigurđssyni.
Í verđlaunasćtum auk ţeirra Vignis Vatnars og Nansýjar voru ţeir Dawid Kolka Álfhólsskóla, brćđurnir Óskar Víkingur og Stefán Orri Davíđssynir Ölduselsskóla, Jóhann Arnar Finnsson og Joshua Davíđsson úr Rimaskóla, Alexander Mai Laugarnesskóla, Benedikt Ţórisson og Arnar M. Heiđarsson Hörđuvallaskóla. Ţćr Andrea Rut Friđriksdóttir Rimaskóla og Elsa Kristín Arnaldardóttir Hofsstađaskóla hlutu 2. og 3. verđlaun stúlkna og er frammistađa ţeirrar fyrrnefndu athyglisverđ ţví ađ hún var ađ taka ţátt í sínu fyrsta skákmóti.
Sjá Chess-Results og myndaalbúm (HÁ)
1.3.2015 | 21:42
Gummi međ sigur - Hannes međ jafntefli
Guđmundur Kjartansson (2484) vann Ísraelsmanninn Sam Drori (2173) í sjöttu umferđ EM einstaklinga sem fram fór í Jerúsalem í dag. Hannes Hlífar Stefánsson (2573) gerđi hins vegar öruggt jafntefli viđ rússneska stórmeistarann Ivan Popov (2629). Hannes hefur 3,5 vinning og er í 17.-59. sćti (17. á stigum) en Gummi hefur 3 vinninga og er í 60.-117. sćti (110. á stigum).
Úkraínski stórmeistarinn Anton Korobov (2687) er einn efstur međ 4,5 vinning.
Í sjöundu umferđ, sem fram fer á morgun, teflir Hannes viđ spćnska stórmeistarann Ivan Salgado Lopez (2628) en Gummi viđ rússneska stórmeistarann Evgeny Romanov (2625).
Alls taka 250 skákmenn frá 33 löndum ţátt í mótinu. Ţar af eru 113 stórmeistarar. Hannes er nr. 84 í stigaröđ keppenda en Guđmundur er nr. 116. Alls er tefldar 11 umferđir.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast almennt kl. 13)
- Chess-Results
Spil og leikir | Breytt 2.3.2015 kl. 09:36 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
1.3.2015 | 11:16
Heimsmeistarinn heimsćkir Reykjavíkurskákmótiđ!
Heimsmeistarinn í skák, hinn norski Magnus Carlsen, verđur heiđursgestur Reykjavíkurskákmótsins í ár. Hann dvelur á landinu 13.-16. mars í bođi mótshaldara. Nákvćm dagskrá heimsmeistarans á međan dvölinni stendur hefur ekki veriđ gefin upp en ţó er líklegt ađ hann heimsćki leiđi Fischers og láti sjá sig á mótsstađ Reykjavíkurmótsins í Hörpu, áritađi bćkur og gćfi áhugasömum tćkifćri á myndatökum.
Magnus mun án efa fylgjast sérstaklega međ skákum föđur síns Henriks Carlsens, og helsta ađstođarmanns síns, Jons Ludgvis Hammers, en ţeir eru báđir međal keppenda á mótinu.
Magnus á góđar minningar frá Íslandi. Hann sló fyrst í gegn á heimsvísu ţegar hann tefldi á Reykjavik Rapid mótinu áriđ 2004, ţá ađeins 14 ára, og gerđi eftirminnilegt jafntefli viđ Garry Kasparov. Magnus tók tvívegis ţátt í Reykjavíkurskákmótinu, árin 2004 og 2006 en náđi í hvorugt skiptiđ ađ vinna mótiđ ţó litlu hafi munađ. Magnus bar hinsvegar sigur úr býtum á Glitni Blitz 2006 sem er eitt sterkasta hrađskákmót sem fariđ hefur fram á Íslandi.
Skáksamband Íslands býđur heimsmeistarann og stigahćsta skákmann allra tíma hjartanlega velkominn til landsins og fagnar ţví sérstaklega ađ sterkustu skákmenn heims skuli koma hingađ ár eftir ár til ađ heimsćkja Reykjavíkurskákmótiđ en skemmst er ađ minnast ţess ađ Garry Kasparov var heiđursgestur ţess í fyrra.
Nánar verđur greint frá komu heimsmeistarans á nćstu dögum.
Magnus sjálfur greinir frá komu sinni á Reykjavíkurskákmótiđ á bloggsíđu sinni en ţar segir hann međal annars:
Ill also visit Iceland during Reykjavik Open, without playing myself, to finally see some of the attractions I missed out on in 2004 and 2006, and to see how some of my friends and my father are doing first hand.
28.2.2015 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Dagur varđ Norđurlandameistari í Klakksvík
Dagur Ragnarsson sigrađi međ glćsibrag í elsta aldursflokki Norđurlandamóts einstaklinga ţar sem keppendur voru fćddir á árunum 1995-1997, og fram fór í Klakksvík í Fćreyjum um síđustu helgi. Dagur haut 5 vinninga af sex mögulegum, tefldi betur em nokkru sinni fyrr og sýndi mikla keppnishörku. Dagskráin var ţétt sex, kappskákir á ţrem dögum og ţar viđ bćttist ferđalagiđ til Klakksvíkur og raunar ein kappskák frá kvöldinu fyrir ferđina til Fćreyja. Međ ţessu móti, Skákţingi Reykjavíkur og Gestamóti Hugins og Skákdeildar Breiđabliks liggur fyrir ađ Dagur mun hćkka meira á milli stigalista en dćmi er um af íslenskum skákmanni frá ţví ađ FIDE tók ađ birta stigin mánađarlega. Hann verđur međ í kringum 2.315 elo-stig á listanum sem birtist í byrjun mars. Dagur var eini gullverđlaunahafi okkar í fimm aldurslokkum en til silfurverđlauna unnu Jón Kristinn Ţorgeirsson í aldursflokki ţeirra sem fćddir voru 1998 og 1999 og Óskar Víkingur Davíđsson vann til silfurverđlauna í aldursflokki E, yngsta aldursflokknum ţar sem kependur eru fćddir 2003 og 2004. Íslendingar hafa unniđ keppni Norđurlandaţjóđanna tvö síđustu árin ţar sem vinningar allra ţátttakenda hverrar ţjóđar eru lagđir saman. Ekki tókst okkur ađ verja titilinn ađ ţessu sinni, Danir hlutu 36˝ vinning en stefnt verđur ađ íslenskum sigri á nćsta ári ţegar keppnin fer fram í Svíţjóđ.
Eldri keppendurnir stóđu sig vel en misjafnt var gengi ţeirra yngri. Sumir ţeirra hafa veriđ ansi drjúgir á ţessum vettvangi tvö síđustu árin. Teflt var í fimm aldursflokkum, tveir keppendur frá hverju landi.
Dagur Ragnarsson vann ţrjár fyrstu skákir sínar og svo kom erfitt jafntefli viđ Svíann Joar Olund, annađ jafntefli í 5. umferđ og loks sigur í síđustu umferđ gegn Mikhael Jóhanni Karlssyni. Sigur hans yfir Norđmanninum Lobersli í 3. umferđ er gott dćmi um kraftmikinn stíl hans:
Henrik Oie Lobersli Dagur Ragnarsson
Hollensk vörn
1. d4 f5 2. c4 Rf6 3. Rf3 g6 4. g3 Bg7 5. Bg2 0-0 6. 0-0 d6 7. Rc3 De8
Dagur hafđi rekist á bók um hollenska vörn heima hjá afa sínum, Hermanni Ragnarssyni en valiđ ađ leika 7.... Rc6 á Skákţingi Reykjavíkur á dögunum. 7..... De8 er margslungnari leikur runninn undan rifjum Úkraínumannsins Malanjúk.
8. d5 Ra6 9. Rd4 Bd7 10. b3 c5! 11. dxc6 bxc6 12. Bb2 Rc5 13. Dc2 e5 14. Rf3 e4
Ţađ verđur ekki annađ sagt en ađ byrjunin hafi gengiđ vel upp. Frumkvćđi er greinilega í höndum svarts.
15. Re1 g5 16. Dd2 Dh5!?
Ţađ kom sterklega til greina ađ treysta varnir d6-peđsins en peđsfórnin býđur upp á ýmsa möguleika.
17. Dxd6 Rb7 18. Dd2 Hfe8
Framrás e-peđsins í loftinu og hvítur reynir ađ sporna viđ henni. Ţađ eru mistök.
19. e3?
Eftir 19. Had1! ţarf hvítur ekki ađ óttast 19.... e3. Eftir 20. fxe3 Rg4 kemur einfaldlega 21. h3! og hvíta stađan er mun betri.
19.... Had8 20. De2 Dg6!
Nú er allt tilbúiđ fyrir framrás f-peđsins.
21. Ra4 f4 22. exf4 gxf4 23. gxf4 Bg4 24. De3 Rd6!
Riddarinn sem vék sér til hliđar um stundarsakir er kominn aftur og er á leiđinni til f5.
25. Dc5 Rf5 26. f3 exf3 27. Rxf3 Re4 28. Da5
Drottningin rekst úr einum stađ í annan og svartur á nú einfalda vinningsleiđ.
og hvítur gafst upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 21. febrúar
Spil og leikir | Breytt 22.2.2015 kl. 22:17 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.7.): 9
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 135
- Frá upphafi: 8778768
Annađ
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 96
- Gestir í dag: 6
- IP-tölur í dag: 6
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar