Fćrsluflokkur: Spil og leikir
6. umferđ Reykjavíkurmótsins hefst kl. 15.. Ţetta er ekki umferđin til ađ missa af ţví nóg verđur um ađ vera.
Magnús Carlsen í myndveri
Heimsmeistarinn Magnús Carlsen mćtir í myndver og rćđir um skákirnar og vafalaust allt og ekkert međ Fionu-Steil Antoni og Ingvari Ţór Jóhannessyni. Ţví verđur ađ sjálfsögđu útvarpađ á netiđ, en ţeir sem eiga heimangengt í Hörpu geta fylgst međ á stađnum.
Skákskýringar
Stórmeistarinn Jóhann Hjartarsson mćtir um kl. 17 og fer yfir stöđu mála í heyranda hljóđi.
Reykjavík Open Blitz
Reykjavik Open Blitz fer fram í kvöld í Hörpu. Skráning og móttaka ţátttökugreiđslna er í Hörpu einungis frá 14:00 - 16:00. Ekki verđur skráđ rétt fyrir mót. Mótiđ hefst svo stundvíslega í Hörpu klukkan 22:00.
Tefldar verđa níu umferđir međ 4 02 - 4 mínútum á klukkunni og 2 viđbótarsekúndum á hvern leik.
Ţátttökugjald er kr. 1.500 (sem greiđist viđ skráningu) og fer meirihluti í verđlaun.
Fjölmargir hliđarviđburđir fara fram međfram skákmótinu og eru auglýstir sérstaklega á heimasíđu mótsins.
Pörun í 6. umferđ
Margar spennandi viđureignir verđa í 6. umferđ:
Pörun er hćgt ađ skođa nánar hér.
Útsendingar
Beinar útsendingar eru hér (skákirnar) og hér (sjónvarp).
Minnt er á myndasafn mótsins á Facebook síđunni en fjölmargar myndir eru komnar ţar inn, m.a. frá Pub Quizinu í gćrkveldi.
Ţá eru skákir til og međ 4. umferđ ađgengilegar á heimasíđu mótsins.
Stuttmyndir Vijay Kumar
Stuttmynd Vijay Kumar úr 5. umferđ er komin! Hćgt er ađ skođa eldri myndbönd á Youtube-síđu hans hér.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 13:59 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2015 | 11:05
Reykjavik Open Blitz fer fram í kvöld í Hörpu
Reykjavik Open Blitz fer fram í kvöld í Hörpu. Skráning og móttaka ţátttökugreiđslna er í Hörpu einungis frá 14:00 - 16:00. Ekki verđur skráđ rétt fyrir mót. Mótiđ hefst svo stundvíslega í Hörpu klukkan 22:00.
Tefldar verđa níu umferđir međ 4 02 - 4 mínútum á klukkunni og 2 viđbótarsekúndum á hvern leik.
Ţátttökugjald er kr. 1.500 (sem greiđist viđ skráningu) og fer meirihluti í verđlaun.
14.3.2015 | 10:13
Barna Blitzi frestađ
Úrslitum Barna Blitzins sem átti ađ hefjast í dag kl. 12 hefur veriđ frestađ vegna veđurs. Ţađ fer fram á morgun á sama tíma, ţ.e. hefst kl. 12.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:16 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2015 | 22:23
Reykjavíkurskákmótiđ: Shakhriyar Mamedyarov efstur međ fullt hús - Jón Viktor vann Grandelius
Nóg var um ađ vera á Reykjavíkurskákmótinu í dag. Sex skákmenn voru međ fullt hús fyrir umferđina en ađeins einn 100% mađur stóđ eftir ađ henni lokinni Stórmeistarinn Shakhriyar Hamid oglu Mammadyarov (2756) sem jafnframt er stigahćsti mađur mótsins.
Stöđuna má skođa nánar hér.
Ţađ kom í hlut stórmeistarans íslenska, Hjörvars Steins Grétarssonar ađ etja kappi viđ Shak ađ ţessu sinni og reynist ţađ hlutskipti okkar manni erfitt. Svo virđist sem Hjörvar hafi lent í stöđulegum fingurbrjót og fékk fljótlega tapađ tafl. Shak mćtti í myndver og skýrđi skákina fyrir Fionu Steil-Antoni.
Nice Mamedyarov win at #ReykjavikOpen showing the power of the initiative. With each move he was setting new problems http://t.co/GCAYseMIUL
Lars Bo Hansen (@GMLars) March 13, 2015
Norđmađurinn ungi IM Aryan Tari (2509) átti góđa skák í dag gegn FM Kazim Gulimali. Hann mćtti einnig í myndver og fór yfir skákina međ Ingvari.
15 year old Aryan Tari is now 4/5 in #ReykjavikOpen. Great work lad, carry the torch! #sjakk
Alf Hansen (@alfhansen) March 13, 2015
Líkt og fyrri daginn var talsvert af óvćntum úrslitum. Á 2. borđi mátti stórmeistarinn Pavel Eljanov (2727) sćtta sig viđ jafntefli viđ IM Jacek Stopa (2544) eftir ađ hafa veriđ međ betra. Ţá er norđmađur nr. 2, GM Jon Ludvig Hammer (2651) líklega ósáttur viđ jafntefli gegn IM Taniu Sachdev (2404). Okkar mađur, stórmeistarinn Héđinn Steingrímsson (2530) ţurfti einnig ađ sćtta sig viđ jafntefli, gegn kvennstórmeistaranum međ langa nafniđ, WGM Sarasadat Khademalsharieh (2357).
En ţađ var okkar mađur, IM Jón Viktor Gunnarsson sem stal senunni í dag eins og í gćr, en nú lagđi hann svíann GM Nils Grandelius (2603) eftir hárbeitta sókn.
GM Gawain Jones og IM Jón Viktor etja kappi í 4. umferđ
IM Jón Viktor Gunnarsson (2443) hefur fariđ mikinn í Reykjavíkurmótinu og reyndar mótum almenn á ţessu ári og teflir eins og sá sem valdiđ hefur. Varla ţarf ađ minna á jafntefli viđ GM David Navara í 3. umferđ og sigur gegn GM Gawain Jones í ţeirri 4.. Í dag tefldi Jón viđ sćnska stórmeistarann Nils Grandelius (2603). Upp kom Sikileyjarvörn, n.t.t. scheveningen afbrigđi sem kennt er viđ hverfiđ Scheveningen í Belgíu og einkennist af leikjaröđinni 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 e6. Leikjaröđin var reyndar ađeins öđruvísi í skák dagsins, en niđurstađan verđur sú sama.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e6 7. Be2 Dc7 8. Dd2 b5 9. a3 Bb7 10. f3 Rc6 11. g4 Be7 12. g5 Rd7 13. h4 Rce5 14. 0-0-0 Rb6
Skákstíll Jóns í Reykjavíkurskákmótinu einkennist af gríđarlegu sjálfstrausti og áhyggjuleysi hann einfaldlega teflir stöđuna og er til í ađ sanna ađ hann sé betri en andstćđingurinn. Ákvörđunin sem hann tekur í stöđunni er afar lýsandi 15. Rdxb5!. Leikurinn hefur aldrei sést áđur í stöđunni, en ţemađ er vel ţekkt. Sem dćmi má nefna ađ fórnin ţekkist vel í Sveshnikov afbrigđi Sikileyjarvarnar og vafalaust fleiri afbrigđum sem greinarhöfundur kann ekki skil á. Hugmyndin er ađ sjálfsögđu ađ gefa mann fyrir ţrjú samstćđ frípeđ og leika ţeim svo upp borđiđ ţar til eitt ţeirra kemst í mark.
15..axb5 16. Rxb5 Dc6 17. Bxb6 Dxb6 18. Rxd6+ Bxd6 19. Dxd6 Dxd6 20. Hxd6
Áćtlun hvíts gekk upp og ţrjú samstćđ frípeđ eru stađreynd.
20.. Ke7 21. Hhd1 Hhc8 22. c3 Bc6 23. h5 Rd7 24. H1d2 Ha5 25. g6
Svartur hefur gert ţađ sem hann getur til ađ stöđva framgöngu frípeđana á drottningarvćngnum og sćkir nú á veikleika hvítu stöđunnar á kóngsvćng. Hvítur verđur ađ gefa peđ en heldur sókn sinni áfram. Álitamál er hvort svartur hafi tíma til ađ sćkja veika peđiđ á h5 ţađ á eftir ađ koma í ljós.
25.. Hxh5 26. gxf7! Rf8 27. b4 Hh1+ 28. Kb2 h5 29. Ba6 Hc7 30. b5!
Nú kemur í ljós ađ svarti hrókurinn á h1 er eins og álfur út úr hól Svartur vann sannarlega peđ (kannski), en fórnarkostnađurinn reyndist hár. Drottningarvćngurinn er ađ falla saman. Eftir b5 á Biskupinn á c6 enga góđa reiti og Nils ákveđur ađ hann verđi ađ gefa hann fyrir peđ eitt peđ!
30.. Bxb5 31. Bxb5 h4 32. a4 h3 33. Hd1 Hh2+ 34. H6d2 Hxd2+ 35. Hxd2
Hvítur er tveim peđum yfir og stađan hlýtur ađ vera vonlaust fyrir svartan Hann reynir ţó ađ klóra í bakkann.
35.. Rg6 36. a5 Re5 37. a6 Rxf3??
Tempó eru dýrmćt. Svartur hafđi ekki tíma til ađ taka peđiđ á f7 ţví áćtlun hvíts er svo einföld leika peđunum upp borđiđ. Svartur reyndi ađ virkja riddarann sinn sem var á f8 og hefur nú drepiđ peđ á f3 hann ber ţá von í brjósti ađ honum takist ađ leika h2 og búa sér til mótspil. Ţađ er um seinan. Hvítur á einfalda vinningsleiđ sem Jón Viktor sá ađ sjálfsögđu, ţrátt fyrir talsvert tímahrak.
38. Hf2! Hc5 39. c4 gefiđ.
39.. Hh5 dugar ekki. Hvítur vekur einfaldlega upp peđ (40. F8=D) sem verđur ađ drepa og leikur t.d. a7 og peđiđ fer upp í borđ.
IM Jón Viktor Gunnarsson (2443) 1-0 GM Nils Grandelius (2603)
Óvćnt úrslit
Engin skortur er á óvćntum úrslitum. Okkar fólk átti ađ sjálfsgöđu vćna sneiđ af ţeirri köku:
IM Jón Viktor átti ađ sjálfsögđu stćrsta sigurinn í ţeirri kategoríu en viđ eigum fleiri.
Aron Thor Mai (1320), sem gerđi jafntefli viđ rúmlega 1700 stiga mann í gćr (4. umferđ) bćtti um betur og gerđi nú jafntefli viđ rúmlega 1800 stiga mann. Hann er ađ bćta viđ sig rúmlega 40 stigum og á greinilega nóg inni!
Hilmir Freyr Heimisson (1861) vann góđan sigur gegn rúmlega 2100 stiga manni, í annađ skiptiđ í mótinu sem hann gerir slíkt. Hann er ađ moka inn stigum og er í rúmlega 60 stiga gróđa eins og er.
Stelpurnar eru ađ standa sig afar vel. Ţannig náđu Veronika Steinun, Hrund Hauksdóttir, Ulker Gasanova og Nansý allar góđum úrslitum og eru ađ standa sig afar vel. Veronika Steinun er ađ bćta viđ sig 80 skákstigum!
Fjölmargir ađrir eru vitanlega ađ standa sig afar vel. Ţeirra árangur má skođa nánar hér.
Stórsigrar dagsins:
- Kristján Eđvarđsson (2176) vann IM Marin Daniel Pulvett (2434)
- Símon Ţórhallsson (2009) vann Magnus Wahlbom (2278)
- Loftur Baldvinsson (1945) vann Max Arnold (2189)
- Hilmir Freyr Heimisson (1861) vann Gonzales Alfonso Gonzalez (2122)
- Agnar T Möller (1806) vann WGM Sabinu-Fransescu Foisor (2279)
- Veronika Steinun Magnúsdóttir (1571) vann Ólaf Gísla Jónsson (1889)
- Hrund Hauksdóttir (1692) vann Sven Erik Lurdalen (1824)
Óvćnt jafntefli dagsins:
- Ţorvarđur Fannar Ólafsson (2230) gerđi jafntefli viđ GM Ralf Akesson (2456)
- Páll G Jónsson (1833) gerđi jafntefli viđ Gunnar Stray (2065)
- Dagur Kjartansson (1756) gerđi jafntefli viđ Tom Skovgaard (2042)
- Guđmundur Kristinn Lee (1676) gerđi jafntefli viđ Gauta Pál Jónsson (1968)
- Birkir Karl Sigurđsson (1767) gerđi jafntefli viđ Kris Klausen (1937)
- Ulker Gasanova (1645) gerđi jafntefli viđ Martin Sandberg (1889)
- Nansý Davíđsdóttir (1641) gerđi jafntefli viđ David Kenney (1885)
- Birgir Örn Steingrímsson (1669) gerđi jafntefli viđ Michael Marshall (1844)
- Aron Thor Mai (1320) gerđi jafntefli viđ John Nicholson (1808)
- Og Joshua Davíđsson (1261) gerđi jafntefli viđ Pal Nordquelle (1559)
Óvćnt úrslit 5. umferđar
- GM Pavel Eljanov (2727) ˝ ˝ IM Jacek Stopa (2544)
- IM Jón Viktor Gunnarsson (2443) 1-0 GM Nils Granelius (2603)
- WGM Sarasadat Khamdemalsharieh (2357) ˝ ˝ GM Héđinn Steingrímsson (2530)
- IM Tania Sachdev (2404) ˝ ˝ GM Jon Ludvig Hammer (2651)
- IM Justin Sarkar (2376) 1-0 GM Allan Rassmussen (2532)
- Grant W Bucher (2087) ˝ ˝ GM Ţröstur Ţórhallsson (2428)
- GM Ralf Akesson (2456) ˝ ˝ Ţorvarđur Fannar Ólafsson (2230)
- IM Marin Daniel Pulvett (2434) 0-1 Kristján Eđvarđsson (2176)
- IM Gerard Welling (2355) ˝ ˝ Jason Kenney (2104)
- Eivind X Djurhuus (2077) 1-0 GM Johannes Haug (2339)
- Magnus Wahlbom (2278) 0-1 Símon Ţórhallson (2009)
- Ragnar Edvardsen (2001) ˝ ˝ Jón Kristinsson (2251)
- Joerg Mehringer (1955) ˝ ˝ FM Ali Morshedi (2211)
- Pawel Babijczuck (1950) 1-0 Thomas Scho-Moldt (2211)
- Loftur Baldvinsson (1945) 1-0 Max Arnold (2189)
- WFM Qiyu Zhou (2182) 0-1 Michael T Masungwini (1972)
- Hrafn Loftsson (2171) ˝ ˝ Peter Korning (1944)
- Gerd Densing (1903) ˝ ˝ Adam Brzezinski (2150)
- Hilmir Freyr Heimisson (1861) 1-0 Gonzalez Gonzalez Alfonso (2122)
- Páll G Jónsson (1833) ˝ ˝ Gunnar Stray (2065)
- Eric De Winter (1776) ˝ ˝ Yuri Eijk (2062)
- Bartoz Miszkielo (1694) ˝ ˝ Lopez Jaime Martinez (2044)
- Tom Skovgaard (2042) ˝ ˝ Dagur Kjartansson (1756)
- Agnar T Möller (1806) 1-0 WGM Sabina-Francesca Foisor (2279)
- Ruddy T Sibiya (1784) 1-0 Gunnar Freyr Rúnarsson (2049)
- Guđmundur Kristinn Lee (1676) ˝ ˝ Gauti Páll Jónsson (1968)
- Kris Klausen (1937) ˝ ˝ Birkir Karl Sigurđsson (1767)
- Veronika Steinun Magnúsdóttir (1571) 1-0 Ólafur Gísli Jónsson (1899)
- Martin Sandberg (1889) ˝ ˝ Ulker Gasanova (1645)
- David Kenney (1885) ˝ ˝ Nansy Davíđsdóttir (1641)
- Otto Milvang (1872) ˝ ˝ Torge Ugland (1636)
- Michael Marshall (1844) ˝ ˝ Birgir Örn Steingrímsson (1669)
- Wojciech Babijczuk (1549) 1-0 Gerd Mier (1868)
- Sven Erik Lurdalen (1824) 0-1 Hrund Hauksdóttir (1692)
- Aron Thor Mai (1320) ˝ ˝ John Nicholson (1808)
- John Ontiveros (1774) 0-1 August Klofsrud (1571)
- Pal Nordquelle (1559) ˝ ˝ Joshua Davíđsson (1216)
Pörun í 6. umferđ
Pörun 6. umferđar liggur fyrir og er ţannig:
Hana má skođa nánar hér.
Skákir mótsins, til og međ 4. umferđ eru nú ađgengilegar á heimasíđu mótsins.
You can get games up to and including 4th round here: http://t.co/hhMKm9ZHb5 #ReykjavikOpen
ReykjavikOpenChess (@ReykjavikOpen) March 13, 2015
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:29 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
5. umferđ Reykjavíkurskákmóstins er í fullum gangi.
Margar spennandi viđureignir eru í gangi, í dćmaskyni mćtti nefna:
Shakhriyar Mamedyarov og Hjörvar Steinn Grétarsson
David Navara og Artur Jussupow
Jón Viktor Gunnarsson og Nils Grandelius
og margar fleiri!
Hér má skođa pörunina
Beinar útsendingar eru hér (skákirnar) og hér (sjónvarp)
Stuttmynd Vijay Kumar frá 4. umferđ er líka komin!
Skáksýringar
Bođiđ er upp á skáksýringar okkar helstu meistara á skákstađ og hefjast ţćr um kl. 17
Í dag verđur stórmeistarinn Helgi Ólafsson međ skýringar.
Á morgun, laugardag er ţađ stórmeistarinn Jóhann Hjartarsson og á sunnudag mćtir stórmeistarinn Jón L. Árnason.
Pub Quiz í kvöld kl. 22
Hiđ árlega og gríđarlega vinsćla Reykjavik Open Pup Quiz fer fram í kvöld. Keppnin byrjar 22:00 og ţarf ađ mćta tímanlega. Keppnin fer fram áHótel Plaza viđ Ingólfstorg, sal á fyrstu hćđinni.
Búast má viđ gríđarlegri góđri ţátttöku og mikilli stemmingu enda hápunktur sérviđburđa mótsins.
Tveir og tveir saman í liđi. Menn geta fundiđ sér á félaga á stađnum.
- Nánar (á ensku)
- Um keppnina í fyrra
Hliđarviđburđir eru tíundađir á heimasíđu mótsins hér
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 16:48 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2015 | 12:30
Pálmi Sighvats er skákmeistari Skagafjarđar
Lokaumferđ Skákţings Skagafjarđar 2015 Landsbankamótsins var háđ í gćr. Ljóst var ađ ţađ stefndi í harđa baráttu um sigursćtiđ á mótinu en ţrír efstu menn gátu gert sér vonir um ađ hreppa titilinn Skákmeistari Skagafjarđar 2015. Pálmi tefldi af miklu öryggi á mótinu og lagđi Birki Má Magnússon í lokaumferđinni. Hlaut hann ţar međ 4˝ vinning úr 5 umferđum og efsta sćtiđ. Frábćr árangur hjá Pálma.
Jón Arnljótsson hafđi betur gegn Ţór Hjaltalín og fór viđ ţađ upp í annađ sćtiđ međ 4 vinninga. Ţeir Birkir og Jakob Sćvar Sigurđsson urđu jafnir međ 3 vinninga en Birkir reyndist hćrri á stigum og hlaut ţví ţriđja sćtiđ. Mótiđ var vel sótt, en alls tóku 12 skákmenn ţátt.
Ánćgjulegt er ađ sjá hina góđu ţátttöku Siglfirđinga og Fljótamanna en ţeir ţurftu ađ fara um langan veg til ađ komast á mótsstađ. Mót sem ţetta er mikil lyftistöng fyrir skáklíf í hérađinu og góđ upphitun fyrir Íslandsmót skákfélaga sem nú er framundan, en bćđi Skákfélag Sauđárkróks og Skákfélag Siglufjarđar tefla ţar fram sveitum.
Mótsstjórn vill ađ lokum ţakka ţátttakendum fyrir skemmtilegt mót og drengilega keppni. Einnig viljum viđ ţakka Skáksambandi Íslands fyrir veitta ađstođ og Landsbanka Íslands fyrir góđan stuđning viđ mótiđ. Úrslit á mótinu má sjá á eftirfarandi vefslóđ: http://chess-results.com/Tnr161398.aspx?lan=1
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 11:53 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2015 | 12:00
Róbert sigrađi á Vin Open - Afmćlismóti Finns Kr. Finnssonar
Róbert Lagerman sigrađi á Vin Open, afmćlismóti Finns Kr. Finnssonar, sem Vinaskákfélagiđ og Hrókurinn efndu til á mánudag. Finnur varđ áttrćđur í febrúar en hann hefur um árabil auđgađ skáklífiđ á Íslandi, jafnt međ keppni og kennslu. Heiđursgestur á afmćlismótinu var frú Vigdís Finnbogadóttir, fv. forseti Íslands.
Mótiđ hófst međ rćđu Róberts, sem er forseti Vinaskákfélagsins og varaforseti Hróksins. Hann sagđi afar ánćgjulegt ađ fá tćkifćri til ađ heiđra heiđursmanninn hógvćra, Finn Kr. Finnsson sem sjaldan lćtur sig vanta á stórmótin í Vin og er auk ţess driffjöđur í skáklífi eldri borgara.
Frú Vigdís lék svo fyrsta leikinn fyrir afmćlisbarniđ. Sjálf kann Vigdís góđ skil á leyndardómum skáklistarinnar, enda lćrđi hún ung ađ tefla. Gestir Vinjar og ađrir keppendur á mótinu kunnu svo sannarlega vel ađ meta heimsókn hins ástsćla forseta, og gaf Vigdís sér góđan tíma til ađ fylgjast međ mótinu og kynna sér starfiđ í Vin.
Róbert sigrađi á mótinu eftir uppgjör viđ Sćbjörn Guđfinnsson, sem stóđ sig međ miklum glćsibrag og hreppti silfriđ, en ţriđji varđ hinn harđsnúni Ţorvarđur Ólafsson.
Sigurvegarar hlutu nýjar bćkur í verđlaun og afmćlisbarniđ fékk ađ sjálfsögđu bók líka.
Afmćlismót Finns var jafnframt einn af sérviđburđum hinnar miklu skákveislu í kringum Reykjavíkurskákmótiđ og á mótinu var m.a. teflt um keppnisrétt í fjöltefli viđ hinn mikla meistara Shakriyar Mammadyarov.
Róbert ákvađ ađ hiđ eftirsóknarverđa sćti í fjölteflinu viđ skáksnillinginn frá Azerbćjan kćmu í hlut Harđar Jónassonar, sem er einn ötulasti liđsmađur Vinaskákfélagsins. Hörđur sýndi hug sinn í verki til Vinaskákfélagsins á dögunum ţegar hann borgađi tífalt árgjald til félagsins!
Afmćlismót Finns Kr. var skemmtileg veisla í alla stađi og ađ vanda var bođiđ upp á ljúffengar veitingar.
Lokastađan og fleiri myndir á heimasíđu Hróksins.
13.3.2015 | 11:50
Skákmót öđlinga hefst 25. mars
1. umferđ miđvikudag 25. mars kl. 19.30
2. umferđ miđvikudag 8. apríl kl. 19.30
3. umferđ miđvikudag 15. apríl kl. 19.30
4. umferđ miđvikudag 22. apríl kl. 19.30
5. umferđ miđvikudag 29. apríl kl. 19.30
6. umferđ miđvikudag 6. maí kl. 19.30
7. umferđ miđvikudag 13. maí kl. 19.30
Skráning fer fram hér.
Hér er hćgt ađ fylgjast međ skráningu.
13.3.2015 | 07:00
Reykjavik Open Pup Quiz fer fram í kvöld.
Hiđ árlega og gríđarlega vinsćla Reykjavik Open Pup Quiz fer fram í kvöld. Keppnin byrjar 22:00 og ţarf ađ mćta tímanlega. Keppnin fer fram á Hótel Plaza viđ Ingólfstorg, sal á fyrstu hćđinni.
Búast má viđ gríđarlegri góđri ţátttöku og mikilli stemmingu enda hápunktur sérviđburđa mótsins.
Tveir og tveir saman í liđi. Menn geta fundiđ sér á félaga á stađnum.
- Nánar (á ensku)
- Um keppnina í fyrra
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:50 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.6.): 3
- Sl. sólarhring: 21
- Sl. viku: 95
- Frá upphafi: 8778301
Annađ
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 72
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar