Fćrsluflokkur: Spil og leikir
20.4.2015 | 15:29
Wesley So efstur á minningarmóti Gashimovs
Wesley So (2788) virđist vera sjóđheitur um ţessar mundir. Hann er efstur á minningarmótinu um Gashimov sem er í gangi í Shamkir í Aserbaídsjan. Í dag vann hann Rauf Mamedauf (2651) en öđrum skákum lauk međ jafntefli. So hefur 3˝ vinning og hefur hálf vinnings forskot á heimsmeistarann Magnus Carlsen (2863). Ţriđji er Vladimir Kramnik (2783) međ 2˝ vinning.
Fimmta umferđ hefst kl. 10 í fyrramáliđ. Ţá teflir So viđ Anand (2791), Carlsen viđ MVL (2762).
Vert er ađ benda skákáhugamönnum á hópinn "Íslenskir skákmenn" á Facebook en ţar eru skákirnar rćddar á međan ţćr fara fram. Fjörlegar og skemmtielgar umrćđur!
20.4.2015 | 14:26
Íslandsmót barnaskólasveita fer fram nćstu helgi
Íslandsmót barnaskólasveita 2015 fer fram í Rimaskóla dagana 25. og 26. apríl nk.
Tefldar verđa níu umferđir eftir svissneska kerfinu. Fimm á laugardegi,og fjórar á sunnudegi Umhugsunartími 15 mínútur á skák fyrir hvern keppenda. Tafliđ hefst kl. 13 á laugardeginum en kl. 11 á sunnudeginum.
Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit - en hver sveit er skipuđ fjórum nemendum 1.-7. bekkjar (auk 4 varamanna)
Ţátttökugjöld kr. 7.500.- á sveit. Ţó ekki hćrri en kr. 15.000.- fyrir hvern skóla.
Veitt verđa verđlaun fyrir efstu b-e sveitir ásamt verđlaunum fyrir efstu sveitina sem er einungis skipuđ nemendum í 1.-4. bekk.
Veitt verđa borđaverđlaun fyrir bestan árangur á 1.-4. borđi.
Sigurvegari mótsins hlýtur rétt til ţátttöku á Norđurlandamóti grunnskólasveita sem fram fer í Danmörku í september nćstkomandi.
Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn efst).
Skráningu skal lokiđ í í síđasta lagi 23. apríl
Hćgt er ađ fylgjast međ ţegar skráđum sveitum hér.
Ath. Áríđandi er ađ sveitirnar séu skráđar fyrirfram.
20.4.2015 | 11:19
Guđmundur endađi međ 50% vinningshlutfall
Alţjóđlegi meistarinn Guđmundur Kjartansson (2471) endađi međ 50% vinningshlutfall á alţjóđlegu móti sem lauk í gćr í Ströbeck í Ţýskalandi. Mótiđ var ađ miklu leyti ćtlađ ungum og efnilegum skákmönnum.
Frammistađa Guđmundar samsvarađi 2495 skákstigum og koma í hús fyrir Guđmund ţrjú mikilvćg skákstig á vegferđinni upp í 2500 skákstig.
Sigurvegari mótsins var pólski stórmeistarinn Kacper Piorun (2546) en stórmeistararnir fjórir röđuđu sér í efstu sćtin. Guđmundur var efstur alţjóđlegu meistaranna í 5.-6. sćti ásamt Ţjóđverjanum Rasmus Svane (2513).
Tíu keppendur tefldu á mótinu og tefldu allir viđ alla. Međalstig mótsins voru 2492 og var Guđmundur nr. 6 í stigaröđ keppenda.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 13:40 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2015 | 23:48
Sumarskákmót Fjölnis 2015 verđur haldiđ í Rimaskóla á sumardaginn fyrsta
Hiđ árlega sumarskákmót Fjölnis verđur haldiđ í Rimaskóla á sumardaginn fyrsta, n.k. frá kl. 14:00 - 16:00. Sumarskákmótiđ er ađ ţessu sinni hluti af dagskrá Barnamenningarhátíđar Reykjavíkur og einnig á dagskrá hverfishátíđar Grafravogs sem ađ vanda er haldin í Rimaskóla.
Mótiđ hefst eins og áđur segir í Rimaskóla kl. 14.00 og ţví lýkur rúmlega 16:00 međ verđlaunahátíđ ţar sem afhentir verđa ţrír verđlaunagripir sem Rótarýklúbbur Grafarvogs gefur til mótsins. Bikarana hljóta sigurvegari eldri flokks 1999-2003, sigurvegari yngri flokks og sigurvegari stúlkna.
Ađ vanda eru ótrúlega margir vinningar á skákmótum Fjölnis og nú eru ţađ 20 bíómiđar á SAMbíó - Egilshöll sem dreifast á 20 ţátttakendur. Í skákhléi verđa seldar veitingar á 300 kr.
Mótiđ er ćtlađ nemendum grunnskóla og er ţátttaka ókeypis. Tefldar verđa sex umferđir međ sex mínútna umhugsunartíma. Skákstjórar verđa ţeir Omar Salama alţjóđlegur skákdómari og Helgi Árnason formađur Skákdeildar Fjölnis. Fjölmennum á skákmót Fjölnis
Danski stórmeistarinn Bent Larsen á eina skákbyrjun sem ber nafn hans: Larsens-byrjun hefst međ hinum hógvćra peđsleik 1. b2-b3. Leikurinn einn sér er í sjálfu sér ekki merkilegur, hvítur vill koma biskupinum fyrir á hornalínunni og ţeir sem fylgdust međ taflmennsku Larsens á sjöunda áratug síđustu aldar vissu ađ hann sérhćfđi sig í vćngtöflum og spegilmynd ţessa leiks á kóngsvćngnum, 1. g2-g3, kom einnig fyrir í skákum hans. Áriđ 1970 tefldi Larsen eina sína frćgustu skák. Á 1. borđi heimsliđsins í keppni viđ úrvalsliđ Sovétríkjanna mćtti hann heimsmeistaranum Boris Spasskí. Larsen hóf tafliđ međ 1. b2-b3. Allt ćtlađi um koll ađ keyra í Sava-center í Belgrad ţar sem keppnin fór fram ţegar Spasskí vann skákina í 17 leikjum! Eftir ţađ fćkkađi skákum Larsen međ ţessari byrjun, a.m.k. í viđureignum hans viđ ţá bestu. Bobby Fischer, sem hafđi gefiđ eftir ađ tefla á fyrsta borđi fyrir heimsliđiđ, fylgdist grannt međ ţví sem Larsen tók sér fyrir hendur og í fjórum skákum ţetta ár valdi hann upphafsleik Larsens og vann allar skákirnar međ glćsibrag. Nálgun hans var samt önnur; í skákunum sem hann tefldi viđ Svíann Ulf Anderson og Úkraínumanninn Vladimir Tukmakov fékk hann upp ákveđna stöđutýpu sem líktist Sikileyjarvörn og ţar var hann öllum hnútum kunnugur.
Byrjun Larsens kom viđ sögu í einni skák áskorendaflokks Íslandsmótsins sem lauk um síđustu helgi međ öruggum sigri Hjörvars Steins Grétarssonar sem hlaut 7 ˝ vinning af 9 mögulegum. Keppt var um tvö sćti í landsliđsflokki áriđ 2016 og hitt sćtiđ kom í hlut Guđmundar Gíslasonar sem hlaut 7 vinninga. Í 3. sćti varđ Davíđ Kjartansson međ 6 ˝ vinning. Ţar á eftir komu svo Lenka Ptacnikova og nokkrir ungir skákmenn sem allir áttu möguleika á landsliđsćti fram á síđasta dag. Einn ţeirra, Dagur Ragnarsson, sem nýlega vann ţađ afrek ađ hćkka meira á stigum millli mánađa en dćmi eru um, tefldi viđ Hjörvar Stein í lokaumferđinni og tapađi. Hann hafđi byrjađ illa en vann svo fimm skákir í röđ. Í nćstsíđustu umferđ mćtti hann Lenku Ptacnikovu og ákvađ ađ fylgja í fótspor Larsens:
Skákţing Íslands 2015 áskorendaflokkur; 8. umferđ.
Dagur Ragnarsson Lenka Ptacnikova
Larsens-byrjun
1. b3 e5 2. Bb2 Rc6 3. e3 d6 4. d4 exd4 5. exd4 d5 6. Rf3 Bb4+ 7. Rbd2 Rf6 8. a3 Be7 9. Bd3 a6 10. Re5 Rb8 11. O-O c5
Byrjunarleikir svarts eru fremur ómarkvissir og ţessi hjálpar til viđ virkja biskupinn á b2.
12. He1 O-O 13. dxc5 Bxc5 14. Df3 Be6 15. Rf1 He8 16. Rg3 Bf8 17. Rh5!
Svartur á ţegar í miklum erfiđleikum, 17. ... Rbd7 strandar á 18. Rxd7 Rxd7 19. Bxg7! og vinnur, 19. ... Bxg7 er svarađ međ 20. Dg3.
17. ... Rxh5 18. Dxh5 h6
Hvađ annađ? 18. ... g6 er svarađ međ 19. Rxg6! fxg6 20. Bxg6! og vinnur.
20. ... g6 liggur beinast viđ en hvíta drottningin kemst á hornalínuna a1-h8 međ 21. Hxe8! t.d. 21. .... Bxe8 22. De5 eđa 21. ... Dxe8 22. Df6 og vinnur.
21. Hxe4 Dg5
Ţetta er vonlaust framhald en 21. ... dxe4 22. Bxe4 g6 23. De5 kemur í sama stađ niđur.
22. Dxg5 hxg5 23. Hg4 Be7 24. He1 Bf6
Eđa 24. ... Rc6 25. h4 Bh5 26. Hxe7! Rxe7 27. Hxg5 o.s.frv.
25. Bxf6 gxf6 26. h4 Bh5 27. Hg3 g4 28. f3 Rc6 29. fxg4 Bf7 30. g5
- og svartur gafst upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 11. apríl 2015.
Spil og leikir | Breytt 12.4.2015 kl. 13:58 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Jón Kristinn Ţorgeirsson og Gabríel Freyr Björnsson unnu sigur hvor í sínum aldursflokki, á umdćmismóti Norđurlands-eystra í skólaskák (kjördćmismótinu) sem fram fór á Laugum í Reykjadal dag. Jón Kristinn vann öruggan sigur í eldri flokki ţegar hann lagđi alla sína andstćđinga. Benedikt Stefánsson varđ í öđru sćti međ 3 vinninga af fjórum mögulegum og Jón Ađalsteinn Hermannsson varđ ţriđji međ 2 vinninga. Alls tóku fimm keppendur ţátt í eldri flokki.
Lokastađan í eldri flokki.
1. Jón Kristinn Ţorgeirsson 4 af 4
2. Benedikt Stefánsson 3
3. Jón Ađalsteinn Hermannsson 2
4. Ari Rúnar Gunnarsson 1
5. Eyţór Kári Ingólfsson 0
Gabríel Freyr Björnsson vann sigur í yngri flokki međ 5 vinningum af 6 mögulegum. Gunnar Breki Gíslason varđ í öđru sćti međ 4 vinninga og jafnir í 3-4. sćti urđu ţeir Björn Gunnar Jónsson og Tumi Snćr Sigurđsson međ 3 vinninga hvor.
Lokastađan í yngri flokki:
1. Gabríel Freyr Björnsson 5 af 6
2. Gunnar Breki Gíslason 4,5
3-4. Björn Gunnar Jónsson 3
3-4. Tumi Snćr Sigurđsson 3
5. Ari Ingólfsson 2,5
6. Magnús Máni Sigurgeirsson 2
7. Auđunn Elfar Ţórarinsson 1
Tímamörk í eldri flokki voru 15. mín á mann en í yngri flokki 10. mín á mann. Jón Kristinn, Benedikt og Jón Ađalsteinn hafa ţví unniđ sér keppnisrétt á Landsmótinu í skólaskák í eldri flokki og Gabríel Freyr í yngri flokki.
Landsmótiđ í skólaskák fer fram á Selfossi 30. april til 3. maí.
18.4.2015 | 16:15
Carlsen, Wesley So og Kramnik efstir í Shamkir
Magnus Carlsen (2863), Wesley So (2788) og Vladimir Kramnik (2783) eru efstir og jafnir međ 1,5 vinning ađ loknum tveimur umferđir á minningarmóti Gashimovs sem fram fer í Shamkir í Aserbaídsjan. Carlsen vann í dag öruggan sigur á Mamedyarov (2754). So sigrađi Anish Giri (2790) í gćr og Kramnik hafđi betur gegn Adams.
Ţriđja umferđ hefst kl. 10 í fyrramáliđ. Ţá mćtast međal annars og Caruana (2802) - Carlsen,
Vert er ađ benda skákáhugamönnum á hópinn "Íslenskir skákmenn" á Facebook en ţar eru skákirnar rćddar á međan ţćr fara fram.
17.4.2015 | 21:15
Reykjavíkurskákmótiđ valiđ fjórđa besta opna mótiđ 2014
Reykjavíkurskákmótiđ 2014 var valiđ fjórđa besta opna skákmót ársins 2014 af samtökum atvinnaskákmanna (ACP).
Ţađ verđur ađ teljast mikill heiđur fyrir Reykjavíkurskákmótiđ enda skipta opin mót í heiminum hundruđum ef ekki ţúsundum ár hvert. Röđ efstu móta varđ sem hér segir:
- Gibraltar Tradewise Chess
- Qatar Masters
- Millionaire Chess
- Reykjavik Open
- Baku Open
Ţađ sem gerir árangur Reykjavíkurskákmótsins enn betri er ađ mótiđ ađ mótiđ er rekiđ fyrir margfalt lćgri fjárhćđir en öll hin mótin í efstu sćtunum!
Nánari upplýsingar á heimasíđu ACP.
17.4.2015 | 12:00
Ari og Magnús sýslumeistarar í skólaskák
Ari Rúnar Gunnarsson Reykjahlíđarskóla og Magnús Máni Sigurgeirsson Borgarhólsskóla, urđu Ţingeyjarsýslumeistarar í skólaskák í dag hvor í sínum aldursflokki.
Fimm keppendur tóku ţátt í eldri flokki og var hart barist. Ţegar ein umferđ var eftir voru fjórir jafnir međ tvo vinninga. Ari vann sína skák en Jón Ađalsteinn og Jakub Piotr gerđu jafntefli og enduđu í 2-3 sćti. Jón og Jakub háđu hrađskákeinvígi um 2. sćtiđ og hafđi Jón betur.
Sjö keppendur tóku ţátt í yngri flokki og vann Magnús Máni alla sína andstćđinga og landađi öruggum sigri. Ari Ingólfsson og Kristján Davíđ úr Stórutjarnaskóla kom nćstir međ fjóra vinninga. Björn og Stefán háđu hrađskákeinvígi um 4. sćtiđ og hafđi Björn betur.
Tefldar voru skákir međ 10 mín umhugsunartíma í báđum aldursflokkum.
Lokastađan í eldri flokki:
1. Ari Rúnar Gunnarsson Reykjahlíđarskóla 3
2. Jón Ađalsteinn Hermannsson Litlaulaugaskóla 2,5 (+2)
3. Jakub Piotr Statkiewicz Litlaulaugaskóla 2,5
4. Eyţór Kári Ingólfsson Stórutjarnaskóla 2
5. Arnar Ólafsson Stótutjarnaskóla 0
Lokastađan í yngri flokki:
1. Magnús Máni Sigurgeirsson Borgarhólsskóla 6 af 6 !
2. Ari Ingólfsson Stórutjarnaskóla 4
3. Kristján Davíđ Björnsson Stórutjarnaskóla 4
4. Björn Gunnar Jónsson Borgarhólsskóla 3 (+2)
5. Stefán Bogi Ađalsteinsson Litlulaugaskóla 3
6. Viktor Hjartarson Litlulaugaskóla 1
7. Dóróthea G. Bin Örnólfsdóttir Reykjahlíđarskóla 0
Ari Rúnar, Jón, Jakub, Magnús, Ari Ingólfss. Kristján og Björn, hafa unniđ sér keppnisrétt á kjördćmismótinu í skólaskák sem fram fer á Laugum nk, laugardag kl 13:00.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 12:45 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
17.4.2015 | 07:00
Minningarmótiđ um Gashimov hefst í dag - Carlsen tekur ţátt
Miningarmótiđ um Vugar Gashimov hefst í dag í Shamkir í Aserbaídsjan. Međal keppenda eru margir af sterkustu skákmönnum heims. Má ţar nefna Magnus Carlsen (2863), Caruana (2802), Anand (2791) og Kramnik (2783).
Ađalskák fyrstu umferđar verđur ađ teljast skák Anand og Carlsen.
Umferđ dagins hefst kl. 10.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 07:33 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 15
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 110
- Frá upphafi: 8778319
Annađ
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 81
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar