Færsluflokkur: Spil og leikir
6.6.2015 | 20:12
Grænlandssyrpan í Vin á mánudag: Borgarstjórinn heiðursgestur
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri er heiðursgestur á Grænlandsmóti Hróksins og Vinaskákfélagsins, sem haldið verður í Vin mánudaginn 8. júní klukkan 13. Tefldar verða sex umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma.
Þetta er annað mótið í Flugfélagssyrpu FÍ, Hróksins og Vinaskákfélagsins, en sigurvegarinn fær ferð fyrir tvo til Grænlands.
Fyrsta mótið í Flugfélagssyrpunni fór fram 4. maí og þar sigraði Róbert Lagerman. Fjögur mót eru í syrpunni og er reiknaður árangur úr þremur bestu mótum hvers keppanda. Spennandi verður að fylgjast með framhaldinu, en Héðinn Steingrímsson, stórmeistari og nýbakaður Íslandsmeistari, sigraði í Flugfélagssyrpunni 2014.
Vinaskákfélagið var stofnað af liðsmönnum Hróksins 2014 og hefur síðan staðið fyrir reglulegum æfingum í Vin, bata- og fræðslusetri Rauða krossins við Hverfisgötu 47. Þangað eru allir hjartanlega velkomnir.
Að vanda eiga keppendur og gestir í Vin von á ljúffengum veitingum. Bakarameistarinn, sem hefur verið bakhjarl Vinaskákfélagsins frá upphafi, leggur til gómsæta tertu og heimamenn í Vin leggja til ljúffengar vöfflur.
6.6.2015 | 12:48
Margeir, Jóhann og Friðrik verða í beinni frá Sardiníu kl. 13
Fyrsta umferðin í Sardiníu hefst kl. 13 í dag. Stórmeistararnir Margeir, Jóhann og Friðrik verða allir í beinni.
6.6.2015 | 10:05
Sextán Íslendingar tefla í Sardiníu
Sextán íslenskir skákmenn taka þátt í alþjóðlega mótinu í Sardiníu sem hefst í dag kl. 13. Með fylgifiskum (mökum, börnum, foreldrum, öfum og ömmum) telur hópurinn alls 30 manns. Meðal keppenda eru stórmeistararnir Friðrik Ólafsson, Jóhann Hjartarson og Margeir Pétursson og FIDE-meistarinn Áskell Örn Kárason.
Keppendalistinn íslenski er annars sem hér segir:
3. GM Johann Hjartarson |
4. GM Margeir Petursson |
12. GM Friðrik Ólafsson |
15. FM Askell O Karason |
46. 1N Stefan Bergsson |
47. CM Gunnar Bjornsson |
56. 1N Loftur Baldvinsson |
101. 1N Veronika Magnusdottir |
111. 1N Oskar Long Einarsson |
113. 2N Jonasson Hordur |
115. NC Heimir Pall Ragnarsson |
117. NC Oskar Vikingur Davidsson |
119. NC Thorsteinn Magnusson |
121. NC Stefan Davidsson |
122. NC Baltasar Mani Wedholm |
124. NC Birgir Logi Steinthorsson |
Heildarkeppendalistinn er hér.
Umferðin í dag hefst kl. 13. Gera má ráð fyrir að einhverjir Íslendingar verði í beinni útsendingu (a.m.k. Jóhann og Margeir) en pörun er væntanleg um kl. 12.
Skák.is verður með puttann á púlsinum frá Sardiníu.
6.6.2015 | 08:10
Ný íslensk skákstig
Ný íslensk skákstig eru nýkomin út. Stigahæstur íslenskra skákmanna er nú enginn annar en Margeir Pétursson (2582). Elvar Örn Hjaltason er stigahæstur nýliða og Óskar Víkingur Davíðsson hækkaði mest frá mars-listanum.
Topp 20
Margeir Pétursson (2582) er stigahæstur íslenskra skákmanna. Í næstum sætum eru Hannes Hlífar Stefánsson (2580) og Héðinn Steingrímsson (2569).
Nr. | Nafn | Stig | Mism | Tit | Skákir | Félag |
1 | Margeir Pétursson | 2582 | -9 | GM | 677 | TR |
2 | Hannes H Stefánsson | 2580 | -5 | GM | 1163 | TR |
3 | Héðinn Steingrímsson | 2569 | 27 | GM | 393 | Fjölnir |
4 | Jóhann Hjartarson | 2557 | -50 | GM | 784 | TB |
5 | Hjörvar Grétarsson | 2553 | 14 | GM | 624 | Huginn |
6 | Helgi Ólafsson | 2549 | -2 | GM | 853 | TV |
7 | Jón Loftur Árnason | 2507 | -6 | GM | 645 | TB |
8 | Henrik Danielsen | 2497 | -13 | GM | 293 | TV |
9 | Helgi Áss Grétarsson | 2480 | -9 | GM | 604 | Huginn |
10 | Stefán Kristjánsson | 2473 | 2 | GM | 874 | Huginn |
11 | Friðrik Ólafsson | 2459 | 0 | GM | 173 | TR |
12 | Karl Þorsteins | 2453 | 2 | IM | 603 | TR |
13 | Jón Viktor Gunnarsson | 2451 | 12 | IM | 1128 | TR |
14 | Guðmundur Kjartansson | 2421 | -15 | IM | 794 | TR |
15 | Þröstur Þórhallsson | 2412 | -16 | GM | 1311 | Huginn |
16 | Bragi Þorfinnsson | 2403 | -18 | IM | 1033 | TB |
17 | Björn Þorfinnsson | 2398 | 17 | IM | 1133 | TR |
18 | Dagur Arngrímsson | 2397 | 1 | IM | 661 | TB |
19 | Arnar Gunnarsson | 2394 | 13 | IM | 838 | TR |
20 | Ingvar Jóhannesson | 2361 | 13 | FM | 849 | TV |
Nýliðar
Fimmtán nýliðar eru á listanum nú. Þeira langstigahæstur er Elvar Örn Hjaltason (1706). Í næstu sætum eru Þorvaldur Kári Ingveldarson (1372) og Stephan Briem (1274).
Nr. | Nafn | Stig | Mism | Skákir | Félag |
1 | Elvar Örn Hjaltason | 1706 | 1706 | 9 |
|
2 | Þorvaldur Kári Ingveldarson | 1372 | 1372 | 5 | Vinaskákfélagið |
3 | Stephan Briem | 1274 | 1274 | 5 |
|
4 | Stefán Gunnar Sveinsson | 1218 | 1218 | 6 | SFÍ |
5 | Rúnar Jónsson | 1193 | 1193 | 5 |
|
6 | Katla Torfadóttir | 1192 | 1192 | 11 |
|
7 | Sverrir Hakonarson | 1179 | 1179 | 19 |
|
8 | Birkir Ísak Johannsson | 1176 | 1176 | 26 |
|
9 | Almar Máni Þorsteinsson | 1163 | 1163 | 15 | SSON |
10 | Hjörtur Kristjánsson | 1144 | 1144 | 13 |
|
11 | Svava Þorsteinsdóttir | 1114 | 1114 | 6 | TR |
12 | Ísak Orri Karlsson | 1023 | 1023 | 16 | Huginn |
13 | Mateusz Jakubek | 1000 | 1000 | 6 | TR |
14 | Óttar Örn B.Sigfússon | 1000 | 1000 | 17 | Huginn |
15 | Stefán Dagur Jónsson | 1000 | 1000 | 11 |
|
Mestu hækkanir
Óskar Víkingur Davíðsson hækkaði mest allra frá síðasta stigalista eða um 299 skákstig. Í næstum sætum eru Veronika Steinunn Magnúsdóttir (209) og Róbert Luu (187).
Nr. | Nafn | Stig | Mism | Skákir | Félag |
1 | Óskar Víkingur Davíðsson | 1666 | 299 | 176 | Huginn |
2 | Veronika S Magnúsdóttir | 1598 | 205 | 213 | TR |
3 | Róbert Luu | 1523 | 187 | 111 | TR |
4 | Einar Bjarki Valdimarsson | 2012 | 147 | 224 | UMSB |
5 | Heimir Páll Ragnarsson | 1589 | 138 | 272 | Huginn |
6 | Stefán Orri Davíðsson | 1251 | 138 | 87 | Huginn |
7 | Baldur Teodor Petersson | 1746 | 123 | 76 | TG |
8 | Halldór Atli Kristjánsson | 1377 | 101 | 111 | Huginn |
9 | Björn Hólm Birkisson | 1937 | 97 | 178 | TR |
10 | Óskar Long Einarsson | 1614 | 96 | 190 | SA |
11 | Símon Þórhallsson | 2029 | 94 | 149 | SA |
12 | Hilmir Freyr Heimisson | 1959 | 81 | 213 | Huginn |
13 | Alexander Már Bjarnþórsson | 1080 | 80 | 42 | TR |
14 | Loftur Baldvinsson | 1953 | 77 | 138 | Skákgengið |
15 | Andri Freyr Björgvinsson | 1843 | 75 | 186 | SA |
16 | Agnar Tómas Möller | 1801 | 72 | 145 | SR |
17 | Hrund Hauksdóttir | 1707 | 72 | 305 | Fjölnir |
18 | Hjálmar Sigurvaldason | 1420 | 71 | 170 | Vinaskákfélagið |
19 | Aron Þór Mai | 1510 | 70 | 93 | TR |
20 | Héðinn Briem | 1443 | 66 | 34 | Víkingaklúbburinn |
Reiknuð mót
- Bikarsyrpa TR #4
- Íslandsmótið í skák (landsliðs-, áskorenda- og opinn flokkur)
- Íslandsmót skákfélaga (1. deild, 2. deild, 3. deild og 4. deild)
- Landsmótið í skólaskák (eldri og yngri flokkur)
- Meistaramót Skákskólan Íslands (Undir og yfir 1600 skákstigum)
- Reykjavíkurskákmótið
- Skákmót öðlinga
- Skákþing Hugins (norður)
- Skákþing Skagafjarðar
- Wow air Vormót TR (a- og b-flokkur)
3.6.2015 | 20:00
Skákþáttur Morgunblaðsins: Héðinn Íslandsmeistari í þriðja sinn
Héðinn Steingrímsson er skákmeistari Íslands 2015 eftir sigur á helsta keppinaut sínum um titilinn, Hjörvari Steini Grétarssyni, í lokaumferð mótsins sem fram fór á sunnudaginn. Skák þeirra var hreint úrslitauppgjör en fyrir hana hafði Héðinn ½ vinnings forskot á Hjörvar en á móti kom að Hjörvar hafði hvítt í skákinni. Hann tefldi byrjunina hinsvegar fremur ónákvæmt og í þröngri stöðu gaf hann Héðni kost á öflugum biskupsleik sem í raun gerði út um taflið. Lauk skákinni eftir aðeins 23 leiki. Þar með hafði Héðinn unnið sína sjöunda skák í röð, hafði hlotið 9 ½ vinning úr ellefu skákum en það er árangur sem reiknast upp á 2763 elo-stig. Hækkar hann um 29 elo-stig fyrir frammistöðuna. Þetta er í þriðja sinn sem Héðinn verður Íslandsmeistari, hann vann titilinn fyrst árið 1990, þá aðeins 15 ára gamall og sá yngsti í skáksögunni, og í annað sinn árið 2011. Héðinn er vel að sigrinum kominn, en hann mætti vel undirbúinn til leiks og á lokasprettinum vann hann bæði Jóhann Hjartarson og Jón L. Árnason. Árangur Hjörvars Steins er einnig frábær og reiknast árangur hans upp á 2626 elo-stig. Jón L. Árnason varð í 3.-4. sæti ásamt Hannesi Hlífari Stefánssyni. Einar Hjalti Jensson, sem varð í 5. sæti, náði áfanga að alþjóðlegum meistaratitli.
Fjölmargir lögðu leið sína í Hörpu til að fylgjast með viðureign Hjörvars og Héðins á sunnudaginn. Þá var hægt að fylgjast með skákinni í beinni útsendingu á a.m.k. tveim netmiðlum og mótshaldarinn var einnig með streymisútsendingu frá skákstað:
Skákþing Íslands 2015; 11. umferð:
Hjörvar Steinn Grétarsson Héðinn Steingrímsson
Tarrasch-vörn
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3 c5 5. e3
Sneiðir hjá skarpasta framhaldinu, 5. cxd5 Rxd5 6. e4.
5. ... Rc6 6. cxd5 exd5 7. Be2 cxd4 8. Rxd4 Bd6 9. O-O O-O 10. h3 He8 11. Rf3 a6 12. b3 Bf5 13. Bb2 Bc7 14. Dd2 Dd6 15. Hfd1 Hfd8 16. Hac1 h5!?
Þessum fremur óvænta leik virðist hafa verið beint gegn næsta leik Hjörvars og heppnast því fullkomlega. En leikurinn gaf Hjörvari engu að síður tækifæri til að þróa stöðu sína áfram með 17. De1!
17. Bd3??
Eftir svar Héðins er ljóst að stöðu hvíts verður ekki bjargað.
17. ... Bg4!
Hótar 18. ... Bxf3. Hvítur er varnarlaus.
18. hxg4 hxg4 19. g3 gxf3 20. Bf1 Bb6!
Beinir spjótum sínum að e3-peðinu og hótar eftir 21. ... Bxe3 eða eftir því sem verkast vill, 21. ... Hxe3.
21. He1 Rg4 22. Bh3
22 Rd1 dugar skammt vegna 22. ... Dh6!
22. ... Bxe3! 23. Hxe3 Rxe3
- og Hjörvar gafst upp.
Jón L. Árnason tefldi síðast á lokuðu móti fyrir 20 árum afmælismóti Friðriks Ólafssonar. Hann byrjaði rólega en eftir því sem leið á mótið tefldi hann af meira sjálfstrausti og 3.-4. sæti ásamt Hannesi Hlífari Stefánssyni telst ásættanleg frammistaða. Jóhann Hjartarson náði sér ekki á strik og átti afleitan kafla frá fimmtu umferð til þeirrar síðustu. Hann var eini keppandinn sem gerði ekki jafntefli. Jóhann þurfti yfirleitt ekki að kvarta undan stöðunum sem hann fékk upp úr byrjunum. Styrkur hans hefur oftast legið í góðri leiktækni í miðtöflunum en þar var hann mistækur að þessu sinni. En þátttaka hans og Jóns L. lyfti mótinu á hærra plan. Skákir Björns Þorfinnssonar vöktu athygli fyrir fjörleg tilþrif og marga skrýtna leiki. Framkvæmd mótsins tókst með miklum ágætum.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skákþættir Morgunblaðsins eru birtir á Skák.is viku síðar en í sjálfu Morgunblaðinu.
Grein þessi birtist í Morgunblaðinu 27. maí
Spil og leikir | Breytt 31.5.2015 kl. 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.6.2015 | 20:46
Guðmundur Kjartansson: Ameríkutúr 2014
Guðmundur Kjartansson hefur skrifað afar skemmtilegan myndskreyttan pistil um Ameríkutúr sinn í fyrra.
Hann fylgir með PDF-viðhengi sem allir skákáhugamenn eru hvattir til að lesa.
Skák hans á móti Iturrizaga fylgir með sem viðhengi og er líka hægt að nálgast á Chessbase.
2.6.2015 | 13:08
Pistill frá Degi Arngrímssyni - Skáksumarið 2014
Nú þegar skáksumarið 2015 er nálgast er tilvalið að birta pistil frá Degi Arngrímssyni frá skáksuamrinu 2014.
Albena (1.-9. Júní)
Mótið kallast Grand Europe Cup og er haldið á vinsælum ferðamannastað sem heitir Albena. Skákirnar fóru fram í stóru íþróttahúsi í hjarta bæjarins og var mótið sterkt og góð verðlaun í boði (30.000 ). Aðstæður voru mér kunnulegar enda hef ég farið seinustu tvö ár á þetta mót.
Í fyrstu og þriðju umferðunum sigraði ég stigalága andstæðinga (1892, 2114) með hvítt og tapaði í annari og fjórðu umferð gegn Sedlak (2570) og Akopian (2667) með svart. Í báðum skákunum með svart var þemað mjög svipað. Ég var komin með þægilegra tafl eftir byrjunina en missti þráðinn og endaði í óþægilegum stöðum þar sem voru mislitir biskupar.
Í fimmtu umferð gerði ég jafntefli við úkraínskan FM (2190) sem var undir 12 ára. Ég reyndi of mikið á stöðuna með hvítt gegn slavanum og var í raun heppinn að halda jafntefli.
Í sjöttu umferð sigraði ég stigalægri andstæðing (2077) örugglega með svart og í sjöundu umferð vann ég rúmenskan alþjóðlegan meistara (2493) með hvítt. Ég fékk góða stöðu út úr byrjuninni en missteig mig í miðtaflinu og þurfti að verjast fram í endatafl. Þegar ég hélt ég væri eingöngu búin að tryggja mér jafntefli, þá tók andstæðingur minn fáránlega ákvörðun í stresskasti og allt í einu var ég kominn með þekkta vinningsstöðu í hróksendatafli.
Í áttundu umferði tapaði ég illa gegn serbneskum IM (2442). Anstæðingurinn minn bauð mér jafntefli mjög snemma en ég ákvað að reyna að vinna hann. Ég hefði betur tekið jafnteflinu því ég lék mjög illa af mér og tapaði örugglega.
Í níundu og seinustu umferð mótsins vann ég stigalægri andstæðing (2192) og var það líklega besta skák mín á mótinu.
Ég var nokkuð svekktur í lok móts því fyrir síðustu umferðina átti ég von á pengingaverðlaunum ef ég myndi sigra. Ég vann en andstæðingar mínir á mótinu stóðu sig hreint út sagt illa í síðustu umferðinni og því missti ég af peningaverðlaunum á stigaútreikningi.
Golden Sands (10.-18. Júní)
Frá Albena lá leið mín yfir til Golden Sands. Mótið er eingöngu í hálftíma fjarlægð og því voru flestir þátttakendur í Albena með á Golden Sands. Fleiri bættust síðan við og var mótið enn sterkara en það fyrra enda betri verðlaun í boði (40.000 ). Mótið í Golden Sands er í raun framhald af mótinu í Albena og bar þess vegna líka nafnið Grand Europe Cup. Teflt var á tveimur stöðum. Annars vegar á fimm stjörnu hóteli þar sem aðstæður voru góðar. Fimmtíu efstu borðin voru þar. Hins vegar var teflt í opinberu skákhúsi staðarins þar sem skákmenn fengu að hlusta á allskonar partýtónlist á meðan á skákinni stóð sem var fín tilbreyting til að byrja með en breyttist fljótt í martröð þegar á leið. Var ég staðráðinn í að standa mig betur en á fyrra mótinu en sú varð alls ekki raunin!
Í fyrstu skák mótsins sigraði ég ungan Asera með herkjum í mislitu biskupaendatafli. Í annari umferð mætti ég Akopian aftur en í þetta skiptið með hvítt. Ég fékk þægilegt tafl út úr g3 Benoni og í miðtaflinu var ég komin með mjög vænlega stöðu. Akopian bauð mér jafntefli á krítísku augnabliki þar sem ég hefði þurft að halda haus í nokkra leiki og hefði ég þá verið með vinningsstöðu. Ekki fór betur en svo að ég lenti í einu gildrunni í stöðunni og tapaði. Eftir þetta klaufalega tap sá ég aldrei til sólar og hélt þar með uppteknum hætti að tapa 25 stigum þriðja árið í röð Í Búlgaríu.
Andorra
Dagana 19.-27. júlí sl. tók ég þátt í opnu skákmóti í Andorra. Mótið fór fram á Hótel Gothard við fínar aðstæður. Var ég ekki einn míns liðs því í för voru félagar mínir úr skákinni, Hjörvar og Jón Trausti.
Í fyrstu tveimur umferðunum vann ég tvo stigalægri andstæðinga (1891, 2094) en í þriðju umferð tapaði ég fyrir úkraínska stórmeistaranum Andrey Vovk (2616) með svart.
Ég fékk stigalægri andstæðing (2140) með hvítt í fjórðu umferð og var innblásinn af nýkrýndum Íslandsmeistara Guðmundi Kjartanssyni og tefldi enska leikinn. Byrjunin heppnaðist ekki sem skyldi og eftir 40 leiki kom upp endatafl þar sem ég hafði riddara gegn biskup. Staðan var strangt til tekið jafntefli en andstæðingur minn þurfti alltaf að passa sig á að lenda ekki í leikþröng. Næstu 40 leikina lék ég köllunum fram og til baka í von um að andstæðingur minn myndi leika af sér. Hefði ég sennilega tekið jafnteflinu ef andstæðingur minn hefði ekki verið búinn að bjóða mér fjórum sinnum jafntefli fyrr í skákinni. Kom upp drottningaendatafl þar sem ég hafði auka riddara og hvorugur hafði peð (D+R gegn D). Þegar hér var komið sögu var skákin búin að standa í rúmlega 6 klst. og var ég bjartsýnn á að ég myndi ná að vinna þetta og að lokum lék hann sig í mát.
Í fimmtu umferð vann ég WIM frá Kólumbíu (2190) nokkuð auðveldlega og í þeirri sjöttu sigraði ég spænskan stórmeistara eftir miklar sviptingar (sjá skýrðu skákina hér að neðan).
Í næstu umferð fékk ég svart á Hjörvar Stein Grétarsson (2535). Hann tefldi mjög vel og komst ég aldrei inn í skákina og tapaði.
Í áttundu umferðinni tapaði ég fyrir ísraelska stórmeistaranum Artur Kogan (2548) í flókinni skák. Á tímabili stóð ég til vinnings en tefldi ónákvæmt í tímahrakinu.
Í síðustu umferðinni vann ég auðveldan sigur með svörtu gegn Spánverja (2202).
Niðurstaðan var 10 stig í plús sem var ásættanlegur árangur og var ég hvað mest ánægður með að hafa teflt allar skákir í botn og að engin hafi endað jafntefli.
Í lokin vil ég þakka Skáksambandi Íslands fyrir stuðninginn.
Dagur Arngrímsson
|
|
|
|
2.6.2015 | 09:12
Jón Trausti er Skákmeistari Skákskóla Íslands 2015
Jón Trausti Harðarson vann félaga sinn Dag Ragnarsson 1 ½ : ½ í einvígi þeirra um sæmdarheitið Skákmeistari Skákskóla Íslands 2015 sem fram fór á mánudagskvöldið. Þeir urðu efstir og jafnir á meistaramótiskólans sem fram fór um helgina hlutu báðir 5 ½ vinning af sex mögulegum, gerðu jafntefli innbyrðis og unnu aðrar skákir sínar. Hefð er fyrir því að teflt sé um titilinn, farandbikar og 1. verðlaun sem að þessu sinni voru 50 þús. króna ferðavinningur á skákmót erlendis og 35 þús. uppihaldskostnaðurað auki.
Þeir tefldu skákir sínar á mánudagskvöldið með tímfyrirkomulaginu 30 30 og lauk fyrri viðureign þeirra með jafntefli en Dagur hafði hvítt. Seinni skákina vann Jón Trausti og þar með einvígið. Samstarfsaðili Skákskólans varðandi meistaramótið var GAMMA. Flokkaskipting með góðum verðlaunum í báðum flokkum þótti takast vel og verður væntanlega haldi áfram á sömu braut með það fyrirkomulag á meistaramóti skólans. Þetta er í fyrsta sinn sem Jón Trausti vinnur Meistaramót Skákskólans en Dagur sigraði örugglega á mótinu í fyrra.
1.6.2015 | 14:00
Gunnar endurkjörinn forseti SÍ á aðalfundi sambandsins
Aðalfundur Skáksambands Íslands fór fram laugardaginn 30. maí sl. í félagsheimili Breiðabliks í Kópavogi. Gunnar Björnsson var endurkjörinn forseti SÍ en hann var fyrst kosinn árið 2009.
Litlar breytingar urðu á stjórn. Pálmi R. Pétursson, fráfarandi varaforseti, hættir í stjórn að eigin frumkvæði. Sæti hans í aðalstjórn tekur Óskar Long Einarsson. Sæti Óskars í varastjórn tekur Donika Kolica.
Skákgengið var samþykkt sem nýtt aðalildarfélag Skáksambandsins.
Fundurinn var átakalítill og endurspeglaði ánægju með skákstarfið í dag.
Tekist var á um nokkrar lagatillögur. Flestar tillögur voru felldar eða vísað til stjórnar. Þar má nefna tillögur um breytingar á Íslandsmót skákfélaga sem var vísað til stjórnar með 10 atkvæðum gegn 8. Það þýðir að 10 liða keppni verður til staðar a.m.k. tvö næstu keppnistímabil í efstu deild.
Tvær tillögur voru samþykktar. Samþykkt var að setja í lög sambandsins að öll mót á vegum SÍ verði reiknuð til FIDE-stiga sem er aðeins staðfesting á framkvæmdinni eins og hún hefur verið verið.
Stærsta breytingin á aðalfundinum var gjörbreyting á framkvæmd unglingamóta SÍ. Framvegis verður teflt í flokkum 8 ára og yngri, 9-10 ára, 11-12 ára, 13-14 og 15-16 ára. Munu mótin fara fram á sama tíma og einnig teflt um Íslandsmeistaratitil stúlkna í sömu aldursflokkum. Þess í stað munu falla niður nokkur mót sem haldin hafa verið.
Unglingameistaramót Íslands mun taka umtalsverðum breytingum. Það verður opið fyrir 17-22 ára keppendur (í stað 20 ára og yngri) auk þess sem sigurvegarar úr yngri flokkum fá þar keppnisrétt. Stærsta breytingin sem fór í gegn 10-9 eftir endurtalningu er að unglingameistari Íslands ár hvert fái keppnisrétt í landsliðsliðsflokki.
Fundargerð aðalfundarins er í vinnslu.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.6.2015 | 12:00
Ný alþjóðleg skákstig
Ný alþjóðleg skákstig eru komin út. Töluverðar breytingar eru á listanum eftir Íslandsmótið í skák. Hannes Hlífar Stefánsson (2580) er sem fyrr stigahæstur. Sigurður Freyr Jónatansson er stighæastur nýliða og Einar Valdirsson hækkar mest frá maí-listanum.
Topp 20
Hannes Hlífar Stefánsson (2580) er stigahæsti skákmaður landsins. Stutt er þó í næstu menn sem eru Hjörvar Steinn Grétarsson (2571).
Heildarlistinn fylgir með sem PDF-viðhengi.
Nr. | Skákmaður | Tit | Stig | Sk | Mism | At | Hrað |
1 | Stefansson, Hannes | GM | 2580 | 18 | -10 | 2510 | 2585 |
2 | Gretarsson, Hjorvar Steinn | GM | 2571 | 11 | 10 | 2557 | 2550 |
3 | Steingrimsson, Hedinn | GM | 2561 | 11 | 29 | 2554 | 2588 |
4 | Olafsson, Helgi | GM | 2546 | 0 | 0 | 2542 | 2614 |
5 | Hjartarson, Johann | GM | 2535 | 11 | -31 | 2550 | |
6 | Petursson, Margeir | GM | 2529 | 0 | 0 | 2546 | |
7 | Danielsen, Henrik | GM | 2510 | 20 | -10 | 2549 | |
8 | Arnason, Jon L | GM | 2499 | 10 | 0 | 2409 | |
9 | Kristjansson, Stefan | GM | 2485 | 0 | 0 | 2535 | 2435 |
10 | Kjartansson, Gudmundur | IM | 2462 | 11 | -12 | 2437 | 2346 |
11 | Gunnarsson, Jon Viktor | IM | 2458 | 0 | 0 | 2394 | 2492 |
12 | Thorsteins, Karl | IM | 2453 | 0 | 0 | 2381 | |
13 | Gretarsson, Helgi Ass | GM | 2450 | 0 | 0 | 2481 | 2457 |
14 | Gunnarsson, Arnar | IM | 2425 | 0 | 0 | 2433 | 2444 |
15 | Thorhallsson, Throstur | GM | 2415 | 0 | 0 | 2487 | 2481 |
16 | Thorfinnsson, Bragi | IM | 2414 | 15 | -2 | 2455 | 2416 |
17 | Thorfinnsson, Bjorn | IM | 2411 | 11 | 4 | 2412 | 2463 |
18 | Jensson, Einar Hjalti | FM | 2394 | 18 | 35 | 2374 | 2287 |
19 | Ulfarsson, Magnus Orn | FM | 2377 | 0 | 0 | 2304 | 2309 |
20 | Johannesson, Ingvar Thor | FM | 2372 | 8 | -6 | 2367 | 2385 |
21 | Arngrimsson, Dagur | IM | 2372 | 0 | 0 | 2377 |
Nýliðar
Fimm nýliðar eru á listanum. Þeirra stigahæstur er Sigurður Freyr Jónantansson (1694) en í næstu sætum eru Arnþór Hreinsson (1542) og Freyja Birkisdóttir (1295).
Nr. | Skákmaður | Tit | Stig | Sk | Mism | At | Hrað |
1 | Jonatansson, Sigurdur Freyr | 1694 | 10 | 1694 | 1568 | ||
2 | Hreinsson, Arnthor | 1542 | 8 | 1542 | |||
3 | Birkisdottir, Freyja | 1295 | 5 | 1295 | |||
4 | Adalsteinsson, Birgir | 1257 | 11 | 1257 | |||
5 | Baldursson, Atli Mar | 1229 | 6 | 1229 |
Mestu hækkanir
Einar Valdimarsson (77) hækkar mest frá maí-listanum. Í næstum sætum eru Vignir Vatnar Stefánsson (72) og Hrund Hauksdóttir (45).
Nr. | Skákmaður | Tit | Stig | Sk | Mism | At | Hrað |
1 | Valdimarsson, Einar | 2022 | 7 | 77 | 1891 | 1895 | |
2 | Stefansson, Vignir Vatnar | 1953 | 7 | 72 | 1791 | 2016 | |
3 | Hauksdottir, Hrund | 1775 | 5 | 45 | 1648 | ||
4 | Davidsdottir, Nansy | 1718 | 5 | 42 | 1560 | 1510 | |
5 | Jensson, Einar Hjalti | FM | 2394 | 18 | 35 | 2374 | 2287 |
6 | Magnusdottir, Veronika Steinunn | 1682 | 5 | 34 | 1492 | 1557 | |
7 | Steingrimsson, Hedinn | GM | 2561 | 11 | 29 | 2554 | 2588 |
8 | Kristinsson, Magnus | 1793 | 6 | 28 | 1747 | ||
9 | Sigurdsson, Birkir Karl | 1815 | 6 | 27 | 1777 | 1823 | |
10 | Jonsson, Olafur Gisli | 1926 | 7 | 26 | 1861 |
Stigashæstu skákkonur landsins
Lenka Ptácníková (2307) er sem fyrr langstigahæsta skákkona landsins. Í næstum sætum eru Hallgerður Helga (2014) og Guðlaug (1934) Þorsteinsdætur.
Nr. | Skákmaður | Tit | Stig | Sk | Mism | At | Hrað |
1 | Ptacnikova, Lenka | WGM | 2307 | 11 | 23 | 2267 | 2089 |
2 | Thorsteinsdottir, Hallgerdur | 2014 | 6 | -3 | 1927 | 1943 | |
3 | Thorsteinsdottir, Gudlaug | WFM | 1934 | 6 | -9 | 2007 | 2004 |
4 | Finnbogadottir, Tinna Kristin | 1926 | 0 | 0 | 1893 | 1884 | |
5 | Kristinardottir, Elsa Maria | 1890 | 0 | 0 | 1842 | 2020 | |
6 | Johannsdottir, Johanna Bjorg | 1862 | 0 | 0 | 1948 | 1966 | |
7 | Fridthjofsdottir, Sigurl. Regina | 1790 | 6 | 1 | |||
8 | Hauksdottir, Hrund | 1775 | 5 | 45 | 1648 | ||
9 | Helgadottir, Sigridur Bjorg | 1771 | 0 | 0 | 1737 | ||
10 | Davidsdottir, Nansy | 1718 | 5 | 42 | 1560 | 1510 |
Stigahæstu ungmenni landsins (20 ára og yngri)
Oliver Aron Jóhannesson (2300) er stigahæsta ungmenni landsins. Í næstum sætum eru Dagur Ragnarsson (2266) og Jón Kristinn Þorgeirsson (2227).
Nr. | Skákmaður | Tit | Stig | Sk | Mism | At | Hrað |
1 | Johannesson, Oliver | FM | 2300 | 6 | -2 | 2061 | 2161 |
2 | Ragnarsson, Dagur | FM | 2266 | 6 | -17 | 2071 | 2023 |
3 | Thorgeirsson, Jon Kristinn | 2227 | 0 | 0 | 1940 | ||
4 | Karlsson, Mikael Johann | 2161 | 0 | 0 | 2027 | 2069 | |
5 | Hardarson, Jon Trausti | 2107 | 5 | -36 | 1922 | 1971 | |
6 | Thorhallsson, Simon | 2106 | 0 | 0 | 1851 | 1672 | |
7 | Heimisson, Hilmir Freyr | 1982 | 0 | 0 | 1716 | 1802 | |
8 | Sigurdarson, Emil | 1955 | 0 | 0 | |||
9 | Stefansson, Vignir Vatnar | 1953 | 7 | 72 | 1791 | 2016 | |
10 | Birkisson, Bjorn Holm | 1892 | 7 | -21 | 1689 | 1616 |
Stigahæstu skákmenn heims
Magnus Carlsen (2876) er sem fyrr langstigahæsti skákmaður heims. Í næstum sætum eru Fabiano Caruana (2805) og Vishy Anand (2804).
Listann má nálgast hér.
Reiknuð mót
- Wow air vormót TR (a- og b-flokkur)
- Skákmót öðlinga
- Skákþing Íslands - landliðsflokkur
- Bikarsyrpa TR # 4
- Skákmót Vals (hraðskákstig)
- Landsmótið í skólaskák - eldri og yngri flokkur -(atskákstig)
Meistaramót Skákskólans kemur til útreiknings í júlí nk.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 11:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.7.): 18
- Sl. sólarhring: 21
- Sl. viku: 138
- Frá upphafi: 8778956
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 109
- Gestir í dag: 11
- IP-tölur í dag: 10
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar