Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Aronian međ vinningsforskot fyrir lokaumferđina

Armeninn Levon Aronian (2765) hefur vinningsforskot fyrir lokaumferđ Sinquefield-mótins sem hefst nú kl. 18. Í gćr gerđi hann jafntefli viđ Vishy Anand (2816). Öđrum skákum umferđarinnar lauk einnig međ jafntefli og aldrei ţessu vant tókst Carlsen (2853) ekki ađ leggja Nakamura (2814) ađ velli. Carlsen er í 2.-4. sćti ásamt Grischuk (2771) og MVL (2731).

Í lokaumferđinn teflir Aronian viđ Topalov (2816), Carlen viđ Anand, Grischuk viđ Nakamura og MVL viđ Giri. 

Gćti orđiđ mjög spennandi umferđ sérstaklega ţar sem Topalov hefur hvítt gegn Aronian.

Góđa umfjöllun um umferđ gćrdagsins má finna á Chess24.

 

 


Skákćfingar Breiđabliks hefjast 7. september

BreiđablikViltu ćfa skák af alvöru og ná afreksmörkum Skáksambands Íslands ?

Skákdeild Breiđabliks í samstarfi viđ Skákakademíu Kópavogs og Skákskóla Íslands býđur í vetur upp á öfluga skákţjálfun međ ţađ ađ markmiđi.

Bođiđ er upp á ćfingatíma í Glersalnum í stúkunni viđ Kópavogsvöll mánudaga til föstudaga frá 16:00 – 17:30.

Ţjálfari er Birkir Karl Sigurđsson FIDE National Instructor

Ćfingarnar henta skákkrökkum á grunnskólaaldri sem hafa náđ grunnfćrni í skák, hafa mikinn áhuga og vilja ćfa af alvöru til ađ stefna ađ ţví ađ verđa í fremstu röđ á Íslandi og  ađ standa sig međ sóma á alţjóđlegum barna- og unglingaskákmótum.

Hver iđkandi velur sér ţrjár ćfingar í viku, en frjálst verđur ađ hafa ţćr fleiri eđa fćrri. Einnig verđur hćgt ađ velja um ađ mćta seinna og fara fyrr ef tíminn t.d. rekst á ađrar tómstundir. Viđ búumst viđ ađ geta myndađ tvo kjarna, eldri og reyndari krakkar og svo hóp af ungum og efnilegum.

Iđkendur utan Kópavogs og í hvađa taflfélagi sem er eru velkomnir. Allir geta mćtt í nokkur skipti til ađ prófa án ćfingagjalds.

Fyrsta ćfing: Mánudaginn 7.september

Ćfingagjöld veturinn 2015-16: (eru styrkhćf sem tómstundastyrkur hjá Kópavogsbć og Reykjavíkurborg):

Ţrisvar sinnum eđa oftar í viku: 30.000 kr.
Tvisvar sinnum í viku: 20.000 kr.
Einu sinni í viku: 10.000 kr. 

Skráning á  https://breidablik.felog.is/ eđa bara ađ mćta á ćfingu til ađ prófa!   


Skák eflir skóla - kennari verđur skákkennari: heimasíđa komin í loftiđ

Verkefniđ Skák eflir skóla - kennari verđur skákkennari er nú hafiđ. Megin inntak verkefnisins er ađ fjölga skákkennurum innan grunnskólanna. Skáksambandiđ sinnir verkefninu fyrir hönd mennta- og menningarmálaráđuneytisins. Verkefnisstjóri er Stefán Bergsson.

Lesa má um verkefniđ á heimasíđu ţess:

www.skakkennari.is


Einar Hjalti, Davíđ og Loftur efstir á Meistaramóti Hugins

Loftur Baldvinsson gerđi jafntefli í dagEinar Hjalti Jensson (2394), Davíđ Kjartansson (2366) og Loftur Baldvinsson (1988) eru efstir međ 3,5v eftir fjórar umferđir á Meistarmóti Hugins. Í fjórđu umferđ bar ţađ helst til tíđinda á efstu borđum ađ Daviđ og Einar Hjalti sömdu stutt jafntefli og tók Einar Hjalti stefnuna á Faxafeniđ strax ađ henni lokinn. Loftur vann svo Jón Trausta á öđru borđi og tók sér stöđu međal efstu manna. Nćstir koma svo Snorri Ţór Sigurđsson (1956), Bárđur Örn Birkisson (1854) og núverandi skákmeistari Hugins (suđursvćđi) Dawid Kolka (1819) en ţeir eru allir međ 3v.

Í fimmtu umferđ ţá mćtast međal annars: Loftur – Einar Hjalti, Davíđ – Dawid, Veronika – Bárđur og Elvar Örn -Jón Trausti.


Ćsir hefja taflmennsku í dag eftir sumarfrí

Ćsir eru ađ vakna eftir sumarsvefninn. Ţeir byrja ađ tefla ţriđjudaginn 1 september í Ásgarđi, félagsheimili eldri borgara í Reykjavík sem er í Stangarhyl 4.

Allir eldri borgarar sem hafa gaman af skák hjartanlega velkomnir til leiks, karlar 60+ og konur 50+.

Viđ teflum alla ţriđjudaga frá kl 13.00 til 16.30

Ţátttökugjald er kr. 500 innifaliđ kaffi og međlćti.

Hittumst hress á hvítum reitum og svörtum.

Stjórn Ása.


Aronian međ vinningsforskot - Carlsen tapađi fyrir Grischuk

Armeninn Levon Aronian (2765) náđi vinningsforskoti á Sinquefield-mótinu međ ţví ađ leggja Nakamura (2814) ađ velli í sjöundu umferđ sem fram fór í gćr. Carlsen (2853) tapađi hins vegar fyrir Grischuk (2771) og eru ţeir í 2.-5. sćti ásamt MVL (2731) og Giri (2793).

Góđa umfjöllun um umferđ gćrdagsins má finna á Chess24.

Áttunda og nćstsíđasta umferđ hefst nú kl. 18. Ţá teflir Carlsen viđ Nakamura og Aronian viđ Anand (2816) sem hefur engan veginn náđ sér á strik.

 


Áskell sigurvegari Startsmóts SA

Hiđ árlega startmót Skákfélags Akureyrar var haldiđ nćstsíđasta dag ágústmánađar og markar mótiđ ađ venju upphaf skákvertíđarinnar nyđra. Flautađ var til leiks kl. 13 en ţá voru níu keppendur mćttir til leiks - ţannig ađ greinilegt er ađ ekki eru allir skákskörungar enn vaknađir af sumardvala. Tefld var tvöföld umferđ, en vegna anna ţurfti Smári Ólafsson ađ draga sig í hlé eftir fyrri hlutann, ţá komin međ ţrjá og hálfan vinning.

Úrslit urđu annars sem hér segir:

Áskell Örn Kárason13
Jón Kristinn Ţorgeirsson10˝
Símon Ţórhallsson10
Haraldur Haraldsson9
Sigurđur Arnarson
Sveinbjörn Sigurđsson
(Smári Ólafsson3˝)
Sigurđur Eiríksson3
Karl Steingrímsson2

Dramatískur sigur Bolvíkinga á unglingasveit TR

Truxvi-TBUnglingasveit TR og Bolvíkingar áttust viđ í 8 liđa úrslitum hrađskákkeppni taflfélaga í kvöld. TR-ingar sýndu strax ađ ţeir eru í mun betri ćfingu og sneggri á klukkunni. Auk ţess sem Bolvíkingar voru ekki alveg međ nýjustu hrađskákreglur og hreinu og köstuđu frá sér vinningum međ ţví ađ drepa kóng og vekja upp drottningu á rangan hátt. TR vann 4 af fyrstu 6 viđureignunum og höfđu öruggt forskot í hálfleik 21-15.

Bolvíkingar gerđu ţá skiptingu ţegar Halldór Grétar kom inn fyrir Gísla Gunnlaugs. Halldór lenti í vinnu útkalli snemma dags og kom beint úr ţví í seinni umferđina. Ţessi skipting reyndist afdrifarík ţví strax í fyrstu umferđ seinni hálfleiks unnu Bolvíkingar 5-1 sigur. Keppnin var ţví orđin spennandi en í nćstu 4 umferđum urđu 3 jafntefli og 1 sigur međ minnsta mun. Fyrir síđustu umferđ var TR međ eins vinnings forskot. Eftir mikla baráttu náđu Bolvíkingar ađ vinna loka umferđina međ minnsta mun og keppnin endađi ţví 36-36.

Bolvíkingar unnu eftir bráđabana

Reglur keppninnar kveđa á um ađ ţá sé tefldur bráđabani og höfđu Bolvíkingar sigur 3,5-2,5. Ţetta gat ţví ekki orđiđ mjórra á munum.

Jóhann Hjartarson dró bolvíska vagninn og Guđni Stefán var mjög öflugur. Halldór Grétar kom svo sterkur inn í seinni hlutann. Viđ hinir kroppuđum nokkra vinninga en ekkert meira en ţađ. Höfum oft teflt mun betur en í kvöld en tökum ekkert af öflugum andstćđingum.

Hjá unglingunum dreifđust vinningarnir betur og ljóst er ađ TR á marga sterka og efnilega unglinga. Ţađ sýndu ţeir svo sannarlega í kvöld og eiga mikiđ hrós skiliđ fyrir frammistöđuna. Framtíđin er björt hjá hinu öfluga og virka Taflfélagi Reykjavíkur.

Guđmundur M. Dađason


Hrađskákkeppni taflfélaga: Risaleikur í Feninu í kvöld

Í kvöld, mánudag, fer fram risaleikur í hrađskákkeppni taflfélaga ţegar A sveit Hugins mćtir A sveit Taflfélags Reykjavíkur.

Líkleg liđ liđanna eru:

Huginn: Hjörvar Steinn Grétarsson, Helgi Ólafsson, Stefán Kristjánsson, Helgi Áss Grétarsson, Ţröstur Ţórhallsson, Einar Hjalti Jensson, Ingvar Ţór Jóhannesson og Magnús Örn Úlfaarsson.

TR: Hannes Hlífar STefánsson, Henrik Danielsen, Jón Viktor Gunnarsson, Karl Ţorsteins, Guđmundur Kjartansson, Arnar Gunnarsson, Bragi og Björn Ţorfinnssynir.

Eins og sjá er liđin ákaflega áţekk af styrkleika.

Viđureignin fer fram á heimavelli TR í Feninu (Faxafen 12) og keppnin hefst 20:00. Áhorfendur velkomnir!

Hrađskákeppni taflfélaga

Úrslit/pörun annarrar umferđar:

  • Skákfélag Akureyrar – Víkingaklúbburinn 45-27
  • Taflfélag Bolungarvíkur – TRuxvi 39,5-38,5 eftir bráđabana
  • Taflfélag Reykjavíkur – Skákfélagiđ Huginn a-sveit (Mánudaginn, 31. ágúst í TR, kl. 20:00)
  • Skákfélagiđ Huginn b-sveit – Taflfélag Garđabćjar 60-12

Litla bikarkeppnin

Úrslit/pörun fyrstu umferđar

  • Skákfélag Íslands – Skákgengiđ (Skákgengiđ gaf án taflmennsku)
  • Ungmennasamband Borgarfjarđar – Skákfélag Selfoss og nágrennis34-38
  • Vinaskákfélagiđ – Skákddeild Fjölnis (dags. ekki vituđ)
  • Skákdeild Hauka – Skákfélag Reykjanesbćjar (Haukar gáfu án taflmennsku).

Átta liđa úrslitum á ađ vera lokiđ í sl. 31. ágúst.


Bikarsyrpa TR hefst á föstudaginn

4_Bikarsyrpan1

Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur fer nú af stađ annađ áriđ í röđ eftir góđar móttökur í fyrra. Mótum syrpunnar hefur veriđ fjölgađ og telur hún alls sex kappskákmót sem eru ćtluđ börnum á grunnskólaaldri (fćdd 2000 og síđar) sem ekki hafa náđ 1600 skákstigum. Ţar međ gefst ţeim tćkifćri til ađ nćla sér í alţjóđleg skákstig á skákmótum sem sérhönnuđ eru fyrir ţau.

Fyrsta mótiđ í syrpunni hefst föstudaginn 4. september og stendur til sunnudagsins 6. september. Tefldar eru 5 umferđir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar ţví varađ í allt ađ tvćr klukkustundir. Ţó svo viđ leggjum ćtíđ áherslu á ađ krakkarnir vandi sig og noti tímann vel, ţá má gera ráđ fyrir ađ margar skákir taki mun styttri tíma.

Mótiđ er sérstaklega hugsađ fyrir krakka sem hafa sótt skákćfingar TR (og/eđa annarra taflfélaga) reglulega síđastliđinn vetur eđa lengur. Ţađ er gott ađ byrja sem fyrst ađ keppa á kappskákmótum, en hingađ til hefur ţeim krökkum sem vilja tefla á “alvöru mótum” mestmegnis stađiđ til bođa ađ taka ţátt í opnum mótum. Ţar er styrkleikamunurinn oft mikill, mótin taka langan tíma, auk ţess sem marga krakka óar viđ tilhugsuninni um ađ tefla viđ fullorđna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan er svariđ viđ ţví.

Einungis börn og unglingar á grunnskólaaldri sem ekki hafa náđ 1600 alţjóđlegum skákstigum geta tekiđ ţátt í mótum Bikarsyrpunnar. Ţannig er styrkleikamunurinn minni en ella og krakkarnir njóta ţess betur ađ tefla kappskákir. Tímamörkin eru líka styttri, og henta krökkunum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíđkast á venjulegum kappskákmótum. Mótiđ uppfyllir öll skilyrđi Alţjóđa skáksambandsins FIDE og er reiknađ til alţjóđlegra skákstiga sem gott er ađ byrja ađ safna snemma. Eins og á ađra viđburđi félagsins ţá er frítt í mótin fyrir krakka í Taflfélagi Reykjavíkur. Fyrir krakka í öđrum taflfélögum er ţátttökugjaldiđ 1000 krónur fyrir hvert mót Bikarsyrpunnar.

Dagskrá:
1. umferđ 17.30 á föstudegi (4. september)
2. umferđ 10.30 á laugardegi (5. september)
3. umferđ 14.00 á laugardegi (5. september)
4. umferđ 10.30 á sunnudegi (6. september)
5. umferđ 14.00 á sunnudegi  (6. september). (Lokaumferđ + verđlaunaafhending).

Vinsamlegast skráiđ ţátttakendur sem fyrst, ţađ hjálpar viđ undirbúning mótsins!

Bikarsyrpan samanstendur af sex mótum í vetur. Bikarar og medalíur eru í verđlaun fyrir efstu sćtin í hverju
 móti, en auk ţess verđa veitt sérstök verđlaun fyrir samanlagđan árangur á mótunum.

Hlökkum til ađ sjá ykkur!

Sigurvegarar Bikarsyrpunnar 2014-2015:

  • Mót 1: Mykhaylo Kravchuk
  • Mót 2: Aron Ţór Mai
  • Mót 3: Jóhann Arnar Finnsson
  • Mót 4: Mykhaylo Kravchuk
  • Bestur samanlagđur árangur: Mykhaylo Kravchuk

Pistill um lokamót Bikarsyrpunnar 2014-2015.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.8.): 4
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 132
  • Frá upphafi: 8779210

Annađ

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 91
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband