Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Borgarskákmótiđ fer fram á miđvikudaginn

Borgarskákmótiđ fer fram miđvikudaginn 17. ágúst, og hefst ţađ kl. 16:00. Mótiđ fer fram venju samkvćmt í Ráđhúsi Reykjavíkur og standa  Taflfélag Reykjavíkur og Skákfélagiđ Huginn, ađ mótinu, eins og ţau hafa gert síđustu ár. Gera má ráđ fyrir ađ margir af sterkustu skákmönnum ţjóđarinnar taka ţátt í ţví. Skákmenn eru hvattir til ađ skrá sig sem fyrst eftir ađ opnađ verđur fyrir skráningu. Mótiđ verđur reiknađ til hrađskákstiga og er öllum opiđ og er ţátttaka ókeypis en skráning fer fram á Skák.is

Einnig er hćgt ađ skrá sig í í síma 866 0116 (Vigfús) og 862 0099 (Kjartan). Tefldar verđa 7 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma. Ţetta er í 29. sinn sem mótiđ fer fram og er ţetta iđulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Í fyrra sigrađi Jón Viktor Gunnarsson, sem ţá tefldi fyrir Malbikunarstöđina Höfđa.

Verđlaun:

  1. 30.000 kr.
  2. 20.000 kr.
  3. 10.000 kr.

Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má nálgast hér.


Lenka Íslandsmeistari kvenna í áttunda sinn!

Íslandsmót kvenna

Lenka Ptácníková (2136) varđ í gćr Íslandsmeistari kvenna í áttunda skipti og í fimmta skipti í röđ! Lenka vann Veroniku Steinunni Magnúsdóttur (1786) í fimmtu og síđustu umferđ sem fram fór í gćr. Lenka vann mótiđ međ fullu húsi. Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir (2014) vann Guđlaugu Ţorsteinsdóttur (2051) í lokaumferđinni og komst upp ađ hliđ hennar vinningalega séđ og tók annađ sćtiđ eftir stigaútreikning.

Kjartan Maack, varaforseti SÍ, afhenti verđlaun mótsins í gćr. 

Ađ lokum gerđu Tinna Kristín Finnbogadóttir (1931) og Hrund Hauksdóttir (1789) í lokaumferđinni. Ţađ varđ eina jafnteflisskák mótsins en taflmennskan á mótinu var í senn fjörleg og skemmtileg. 

Lenka hćttar um 24 stig fyrir frammistöđuna sína á mótinu. Veronika hćkkađi ţó mest allra á mótinu eđa um 28 skákstig. 

Lokastađan

Íslandsmót kvenna - lokastađa


Skákstjórar mótsins voru Gunnar Björnsson og Björn Ívar Karlsson.


Ólympíufarinn: Róbert Lagerman

Robbi dómari

Ólympíuskákmótiđ fer fram 2.-14. september nk. í Bakú í Aserbaísjan. Nítján manns verđa í sendinefnd Íslands. Fram ađ móti verđa Ólympíufararnir kynntir - einn á dag. Yfirreiđin hefst međ sjálfum Róberti Don Lagerman sem verđur einn fimm íslenskra skákdómara á mótinu.

Nafn?

Róbert DON Lagerman

Aldur?

54

Hlutverk?

Match arbiter

Uppáhalds íţróttafélag?

Hrókurinn og Vinaskákfélagiđ

Hvernig er undirbúningi ţínum fyrir mótiđ háttađ?

Lúxus-hressingar međferđ á Hćlinu í Hveragerđi í 4 vikur, og lesa ákaflega ţurr skáklög. 

Hvenćr tókstu fyrst ţátt á Ólympíuskákmóti og hversu oft hefur ţú tekiđ ţátt?

Bled 2002, ţetta er í ţriđja skiptiđ sem ég fer.

Getur ţú nefnt frćgan skákmann fćddan í Bakú?

Garik Kimovich Weinstein 

Minnisstćđasta atvik á Ólympíuskákmóti?

Ólympíugull 2002 í Bled (Ég vann ţar mjög óvćntan sigur á Ólympíuleikunum í hrađskák, líkt og Bragi Halldórsson gerđi í Luzern 20 árum fyrr eđa 1982)

Er Kaspíahafiđ haf eđa stöđuvatn?

Saltađ stöđuvatn

Minnisstćđa skák á Ólympíuskákmóti og af hverju?

Allar skákir á Ólympíuleikum eru minnisstćđar, enda eru Ólympíuleikar einstakir.

Hverjar eru ţínar vćntingar/vonir um gengi íslensku liđanna?

Stefnan hlýtur ađ vera verđlaunapallur

Í ljósi ţess ađ Björn Ţorfinnsson er ekki í Bakú-hópnum – hver verđur ađaltrúđur ferđarinnar?

Forzetinn 

Eitthvađ ađ lokum?

Gens una sumus og ást.kiss


Skákţáttur Morgunblađsins: Jóhann teflir á Ólympíumótinu í Bakú

Jóhann undirbýr sig fyrir lokaumferđina međ pönnukökuáti
 
Ólympíumótiđ í skák hefst 1. september í Bakú í Aserbaídsjan. Ţetta er stćrsta skákhátíđ ársins 2016 og skipuleggjendur telja líklegt ađ met verđi slegiđ og ţátttökuţjóđirnar verđa 180 en á Ólympíumótinu í Tromsö fyrir tveim árum voru ţćr 172 talsins.

Íslenska liđiđ sem teflir í opna flokknum er skipađ Jóhanni Hjartarsyni, Hannesi Hlífari Stefánssyni, Hjörvari Steini Grétarssyni, Guđmundi Kjartanssyni og Braga Ţorfinnssyni. Jóhann tefldi síđast á Ólympíumótinu í Tórinó á Ítalíu fyrir 10 árum.

Athygli vekur ađ einvaldurinn og liđsstjórinn, Ingvar Jóhannesson, valdi ekki Héđin Steingrímsson. Héđinn fékk 17˝ vinning samanlagt úr 22 skákum á tveim síđustu Íslandsmótum og m.a. vegna ţeirrar frammistöđu telja margir óverjandi ađ ganga fram hjá honum. Pálmi Pétursson sagđi sig frá landsliđsnefnd ţegar niđurstađan lá fyrir. 

50 ár frá merku Ólympíumóti

Viđ vorum nokkrir sem tókum ţátt í heimsmeistaramótunum í atskák og hrađskák í Berlín sl. haust. Viđ opnunarhöfnina var keppendum bođiđ ađ sjá rćmuna Pawn sacrifice sem fjallar um einvígi Fischers og Spasskís í Reykjavík 1972. Ţar sem viđ höfđum flestir séđ myndina áđur yfirgáfum viđ kvikmyndasalinn en á hćđ neđar hittum viđ heiđursgest ţessarar samkomu, Borís Spasskí. Hann tók okkur fagnandi og lék á als oddi ţrátt fyrir fötlun sína. Og ţessi dćgrin rifjast upp barátta Spasskís viđ Bobby Fischer á tveim mótum áriđ 1966, fyrst á Piatigorski-mótinu í Kaliforníu sem hófst í ágúst og síđar á Ólympíumótinu í Havana á Kúbu í nóvember. Ýmis atvik ţar má líta sem einhverskonar forleik ađ dramatíkinni hér á landi sex árum síđar. Viđureign Sovétmanna og Bandaríkjanna bar upp á helgan hvíldardag ţeirrar evangelísku kirkjudeildar sem Fischer tilheyrđi á ţeim tíma. Sovétmenn höfnuđu tillögu ađ viđureigninni yrđi frestađ og Bandaríkjamenn mćttu ekki og úrslitin 4:0. En svo barst bođ ađ ofan – frá Moskvu – ţess efnis og ţjóđirnar skyldu tefla á nćsta frídegi mótsins. Heimsmeistarinn Tigran Petrosjan eftirlét Spasskí ađ tefla viđ Bobby Fischer á 1. borđi. Skákinni lauk međ jafntefli, Tal vann Robert Byrne og úrslitin urđu 2˝ :1˝. 

Petrosjan fékk svo gulliđ á 1. borđi, hlaut 11˝ vinning úr 13 skákum eđa 88,46% á móti árangri Fischers sem tefldi nćr allar skákir mögulegar og hlaut 15 v. af 17 eđa 88,23%.

fdc25a8b6b98730d71dabc212dfe047d

Viktor Kortnoj sem tefldi í Havana taldi ađ Spasskí hefđi ekki dregiđ nćgilegan lćrdóm af skákinni viđ Fischer ţó ađ hann hefđi veriđ í mikilli taphćttu í ţessari stöđu:

Ólympíumótiđ í Havana 1966:

Fischer – Spasskí

GQA101PHPTaliđ hefur veriđ ađ Fischer hafi getađ unniđ ţessa stöđu međ hinum einfalda leik 38. He3 en teygđi sig eftir a-peđinu og lék 38. Dxa6. Spasskí svarađi fyrir sig međ 38.... Hc8! og eftir 39. Hd6 Hxc3 40. Hxf6 kom 40.... Be6! Fischer varđ ađ láta skiptamun og hélt jafntefli í 57 leikjum eftir ađ skákin hafđi fariđ í biđ. „Sílikonvinurinn“ Houdini lćtur sér fátt um finnast og mćlir međ 38. Bxe5! Vinninginn má sćkja í endatafli sem kemur upp eftir 38.... Hxe5 39. Dxb8 Hxb8 40. Hxd7 He7 41. Hxe7 Bxe7 42. Hc1 Hb7 43. Bd5 Ha7 44. Kf1! Einn vandi svarts er sá ađ hinum eđlilega leik 44.... a5 má svara međ 45. a4! bxa4 46. b5! međ góđum vinningsmöguleikum.

Helgi Ólafsson helol@simnet.is

Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 6. ágúst 2016

Skákţćttir Morgunblađsins


Ađalfundur TR á ţriđjudaginn

đalfundur Taflfélags Reykjavíkur verđur haldinn ţriđjudaginn 16.ágúst 2016 kl.20:30 í húsnćđi félagsins ađ Faxafeni 12. Dagskrá fundarins er venjuleg ađalfundarstörf.


Borgarskákmótiđ fer fram á miđvikudaginn

Borgarskákmótiđ fer fram miđvikudaginn 17. ágúst, og hefst ţađ kl. 16:00. Mótiđ fer fram venju samkvćmt í Ráđhúsi Reykjavíkur og standa  Taflfélag Reykjavíkur og Skákfélagiđ Huginn, ađ mótinu, eins og ţau hafa gert síđustu ár. Gera má ráđ fyrir ađ margir af sterkustu skákmönnum ţjóđarinnar taka ţátt í ţví. Skákmenn eru hvattir til ađ skrá sig sem fyrst eftir ađ opnađ verđur fyrir skráningu. Mótiđ verđur reiknađ til hrađskákstiga og er öllum opiđ og er ţátttaka ókeypis en skráning fer fram á Skák.is

Einnig er hćgt ađ skrá sig í í síma 866 0116 (Vigfús) og 862 0099 (Kjartan). Tefldar verđa 7 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma. Ţetta er í 29. sinn sem mótiđ fer fram og er ţetta iđulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Í fyrra sigrađi Jón Viktor Gunnarsson, sem ţá tefldi fyrir Malbikunarstöđina Höfđa.

Verđlaun:

  1. 30.000 kr.
  2. 20.000 kr.
  3. 10.000 kr.

Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má nálgast hér.


Lenka vann Guđlaugu - međ vinningsforskot fyrir lokaumferđina

2016-08-11 19.31.07

Lenka Ptácníková (2136) hélt áfram sigurgöngu sinni á Íslandsmóti kvenna í gćr. Ţá vann hún, í fjórđu og nćstsíđustu umferđ, helsta keppinaut sinn Guđlaugu Ţorsteinsdóttur (2051). Guđlaug er önnur, ţrátt fyrir tapiđ, međ 3 vinninga. Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir (2014) og Veronika Steinunn Magnúsdóttir (1786) eru í 3.-4. sćti međ 2 vinninga. Hallgerđur vann Tinnu Kristínu Finnbogadóttur (1931) í gćr en Veró vann Hrund Hauksdóttur (1789).

Ţađ gekk ýmislegt á í skák Lenku og Gullu. Lenka hafđi hvítt og beitti 1. f4. Guđlaug fékk góđa stóđu útúr byrjun skákarinnar. Eftir 14. leik hvíts kom ţessi stađa upp.

Svartur á leik

Lenka-Gulla

Hér á Gulla hiđ magnađa framhalda 14...hxg3 15. hxg3 g5! sem tryggir henni yfirburđartafl. Til dćmis er 16. fxg5 svarađ međ 16...Hh7! Ekki auđvelt ađ sjá. Gulla lék 14...d4 sem reyndar er eining prýđisleikur en eftir 15. Db5 Bb6 16. Rc4 var Lenka búin ađ laga helstu veikleika hvítu stöđunnar. Gulla lék svo illa af sér skömmu síđar og Lenka innbyrti vinninginn í 30 leikjum.

Hallgerđur vann snemma peđ gegn Tinnu. Halla bćtti stöđu sína jafnt og ţétt og eftir 20 leiki var ţessi stađa komin upp.

Hvítur á leik

Halla-Tinna

Halla leik 21. Rb5! Eftir 21...Rxb5 22. Bxb5 fann Tinna ekkert betra en ađ gefa annađ peđ og langhrókađi. Halla innbyrti vinninginn í 50 leikjum.

Veronika vann Hrund í afar vel tefldri skák. Hrund lék síđast 25. g3 til ađ koma í veg fyrir framrás svarta f-peđsins.

Svartur á leik

Hrund-Veró

25...f4! 26. Dxf4? (26. De2!)

Hrund-Veró2

26...Rf3+!! 27. Kf1 Dxf4 28. gxf4 Bc4+ 29. Bd3 Bxd3+ 30. Hxd3 Hg1+ 31. Ke2 Rxd4+. Hrund gafst upp. Glćsileg flétta hjá Veró.

Lokaumferđin fer fram á laugardag og hefjast kl. 14. Ţá mćtast:

Veronika - Lenka

Guđlaug - Hallgerđur

Tinna - Hrund

Lenku dugar jafntefli til ađ tryggja sér titilinn. Eini möguleiki Guđlaugar á titlinum er ađ vinna Hallgerđi og treysta á ađ Veronika vinni Lenku. Guđlaug er örugg međ skipt annađ sćtiđ en Hallgerđur og Veronika geta náđ henni međ sigri.

Verđlaunaafhending fer fram ađ lokinni umferđ. 


Borgarskákmótiđ fer fram á miđvikudaginn

Borgarskákmótiđ fer fram miđvikudaginn 17. ágúst, og hefst ţađ kl. 16:00. Mótiđ fer fram venju samkvćmt í Ráđhúsi Reykjavíkur og standa  Taflfélag Reykjavíkur og Skákfélagiđ Huginn, ađ mótinu, eins og ţau hafa gert síđustu ár. Gera má ráđ fyrir ađ margir af sterkustu skákmönnum ţjóđarinnar taka ţátt í ţví. Skákmenn eru hvattir til ađ skrá sig sem fyrst eftir ađ opnađ verđur fyrir skráningu. Mótiđ verđur reiknađ til hrađskákstiga og er öllum opiđ og er ţátttaka ókeypis en skráning fer fram á Skák.is

Einnig er hćgt ađ skrá sig í í síma 866 0116 (Vigfús) og 862 0099 (Kjartan). Tefldar verđa 7 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma. Ţetta er í 29. sinn sem mótiđ fer fram og er ţetta iđulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Í fyrra sigrađi Jón Viktor Gunnarsson, sem ţá tefldi fyrir Malbikunarstöđina Höfđa.

Verđlaun:

  1. 30.000 kr.
  2. 20.000 kr.
  3. 10.000 kr.

Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má nálgast hér.


Minningarmót Birnu Norđdahl á Reykhólum 20. ágúst: Keppendur hvattir til ađ skrá sig sem fyrst

Birna nýtur lífsinsÁhugasamir keppendur á Minningarmóti Birnu Norđdahl skákmeistara ćttu ađ skrá sig sem fyrst. Mótiđ fer fram í íţróttahúsinu í hinu fallega og vinalega ţorpi á Reykhólum viđ Breiđafjörđ og verđur vel tekiđ á móti öllum, enda Reykhólamenn ţekktir fyrir gestrisni. 

reykhólar hlynurMótiđ hefst laugardaginn 20. ágúst kl. 14 og verđa tefldar 8 umferđir međ 10 mínútna umhugsunartíma. Kvenfélagskonur munu bjóđa upp á ljúffengar veitingar ađ íslenskum siđ í kaffihléi og um kvöldiđ verđur hátíđarkvöldverđur í íţróttahúsinu.  

Kvennalandsliđ Íslands mun nota tćkifćriđ og fara í 2ja daga ćfingabúđir á Reykhólum til ađ undirbúa sig fyrir Ólympíumótiđ í Bakú sem hefst í byrjun nćsta mánađar, enda var Birna einmitt frumkvöđull ţess ađ fyrst var send út kvennasveit til Buenos Aires 1978. 

Ţá hafa margir fleiri sterkir skákmenn bođađ komu sína, međ gođsögnina Friđrik Ólafsson í broddi fylkingar, ásamt nýbökuđum Íslandsmeistara Jóhanni Hjartarsyni og fyrsta heimsmeistara Íslands í skák, Jóni L. Árnasyni.

1979 ath Friđrik - KarpovVonast er til ađ fleiri félagar Jóhanns úr Ólympíuliđinu í Bakú mćti. Líka má nefna kempurnar Björn Ţorfinnsson, Rúnar Sigurpálsson og Björn Ívar Karlsson. Mótiđ er öllum opiđ og ţátttaka ókeypis. Hrafn Jökulsson svarar fyrirspurnum í hrafnjokuls@hotmail.com og síma 695 0205. 

Hótel Bjarkalundur í Reykhólasveit er međ sérstök tilbođ fyrir ţá sem vilja gista nóttina eftir mótiđ, og eru gestir eindregiđ hvattir til ađ taka sér tíma til ađ njóta einstćđrar náttúrufegurđar og gestrisni heimamanna. Hćgt er ađ panta á bjarkalundur@bjarkalundur.is og í bođi er eftirfarandi fyrir skákmenn: 

  • Eins manns herbergi međ sameiginlegu bađi, međ morgunmat, kr. 9.000. 

  • Tveggja manna herbergi međ sameiginlegu bađi, međ morgunmat, kr. 13.000  / 15.000. 

  • Eins manns herbergi međ sér bađi, međ morgunmat, kr. 15.000. 

  • Tveggja manna herbergi međ sér bađi, međ morgunmat, kr. 20.000. 

Ţá er einnig hćgt ađ fá gistingu á hinu vistlega og nýstandsetta gistiheimili á Reykhólum, ţar sem 2ja manna herbergi kostar kr. 11.000. Nánari upplýsingar í reykholar@hostel.is. 

Ennfremur eru í bođi mjög skemmtileg og vel búin tjaldstćđi á landnámsjörđinni Miđjanesi, nánari upplýsingar: gustafjo@mmedia.is.

Fjölmargir ađilar í hérađi ađstođa viđ undirbúning mótsins og prímus mótor í hérađi er hinn kunni sagnfrćđingur og skákvinur Hlynur Ţór Magnússon á Reykhólum.

Nánari upplýsingar hjá Hrafni Jökulssyni í hrafnjokuls@hotmail.com


Oliver Aron: Pistill frá Pardubice

Ég fór ásamt Jóni Trausta, Degi Ragnarssyni og Veroniku á Pardubice open ţann 20. júlí. Viđ millilentum í Amsterdam og tókum svo lest frá Prag til Pardubice, bara frekar ţćgilegt ferđalag. Viđ gistum í háskólaíbúđ sem ađ var ódýrasti kosturinn og ţađ fór bara vel um okkur eftir ađ viđ höfđum keypt nokkrar viftur.

Viđ mćttum á stađinn tveimur dögum fyrir mót. Ég og Dagur tefldum í A-flokk en Veronika og Jón í B-flokki. Mótiđ gekk ágćtlega hjá mér og hćkkađi ég um 23 stig. Ţađ sem stóđ uppúr mótinu hjá mér var sigur á Tékkneska stórmeistaranum Vlastimil Jansa sem ásamt Vlastimil Hort skrifađi bókina Besti Leikurinn. Ég ćtla ađ skýra ţá skák hérna ađ neđan.

Svartur á leik

Jansa-Oliver

22...g6!

Sjá nánar skákina skýrđa ađ neđan.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.7.): 26
  • Sl. sólarhring: 28
  • Sl. viku: 192
  • Frá upphafi: 8779176

Annađ

  • Innlit í dag: 20
  • Innlit sl. viku: 122
  • Gestir í dag: 18
  • IP-tölur í dag: 17

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband