Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Útitafliđ: Heljarinnar skákstuđ á Menningarnótt

Skákakademía Reykjavíkur stendur fyrir skákdagskrá á Menningarnótt. Klukkan 12:30 fer fram hiđ kunna Alheimsmót í Leifturskák ţar sem ţátttakendur eru ađeins međ eina mínútu á klukkunni. Í hverri umferđ ţarf ađ vinna tvćr skákir. Mótiđ er bođsmót međ tólf keppendum sem tefla allir viđ alla. Sex sterkir keppendur eru ţegar skráđir og geta ađrir áhugasamir sent ţátttökubeiđni á stebbibergs@gmail.com. Eftir Alheimsmótiđ eđa klukkan 14:00 fer fram Menningarnćturmótiđ í Heilinn og höndin. Heilinn og höndin er ţannig skák ađ tveir og tveir eru saman í liđi. Annar segir mann en hinn leikur. Skemmtilegt fyrirkomulag á skák sem hefur notiđ aukinna vinsćlda síđustu árin. Í hverju liđi mega heildarstig hvers pars ekki vera hćrri en 4500 FIDE- skákstig.  Tefldar verđa fimm umferđir. Skráning á stebbibergs@gmail.com

Hátíđin fer fram viđ útitafliđ í Lćkjargötu.Á myndinni ađ neđan má sjá einn sterkasta Leifturskákmann landsins Jón Gunnar Jónsson ađ tafli. Jón er sigurstranglegur fyrir laugardaginn en ţađ er hinn eldsnöggi Halldór Brynjar Halldórsson frá Akureyri einnigJGJ.


Ljósanćturmót HS Orku

HSO LOGO_RGB_COLOR_STSkákfélag Reykjanesbćjar í samstarfi viđ HS Orku halda Ljósanćturmót laugardaginn 3.sept kl.13:00. Tefldar verđa 13 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma og í einum opnum flokki. Stađsetning í Njarđvíkurskóla og skráning hér ađ ofan í gula kassanum. Lokađ verđur fyrir skráningu ef fjöldi fer yfir 80 keppendur. 

Verđlaunarfé frá HS Orku er 100.000 kr. og mun deilast. 

  • 1.verđlaun 40.000 kr.
  • 2.verđlaun 25.000 kr.
  • 3.verđlaun 15.000 k.r

Sérstök unglingarveđlaun fyrir 14 ára og yngri 10.000 kr. og fyrir óvćntustu úrstlitin 10.000 kr.

Mćting 12:45 og stađfesta skráningu hjá Palla

Mótstjóri verđur Páll Sigurđsson


Borgarskákmótiđ fer fram í dag

Borgarskákmótiđ fer fram miđvikudaginn 17. ágúst, og hefst ţađ kl. 16:00. Mótiđ fer fram venju samkvćmt í Ráđhúsi Reykjavíkur og standa  Taflfélag Reykjavíkur og Skákfélagiđ Huginn, ađ mótinu, eins og ţau hafa gert síđustu ár. Gera má ráđ fyrir ađ margir af sterkustu skákmönnum ţjóđarinnar taka ţátt í ţví. Skákmenn eru hvattir til ađ skrá sig sem fyrst eftir ađ opnađ verđur fyrir skráningu. Mótiđ verđur reiknađ til hrađskákstiga og er öllum opiđ og er ţátttaka ókeypis en skráning fer fram á Skák.is

Einnig er hćgt ađ skrá sig í í síma 866 0116 (Vigfús) og 862 0099 (Kjartan). Tefldar verđa 7 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma. Ţetta er í 29. sinn sem mótiđ fer fram og er ţetta iđulega eitt best sótta skákmót hvers árs. Í fyrra sigrađi Jón Viktor Gunnarsson, sem ţá tefldi fyrir Malbikunarstöđina Höfđa.

Verđlaun:

  1. 30.000 kr.
  2. 20.000 kr.
  3. 10.000 kr.

Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má nálgast hér.


Skákţing Norđlendinga fer fram á Siglufirđi 26.-28. ágúst

Skákţing Norđlendinga 2016 verđur haldiđ í safnađarheimili Siglufjarđarkirkju helgina 26. til 28. ágúst nćstkomandi. Skákfélag Siglufjarđar sér um mótshaldiđ. Mótiđ er opiđ öllu skákáhugafólki. Tefldar verđa sjö umferđir eftir Monrad-kerfi, ţ.e.a.s. fjórar atskákir og ţrjár kappskákir.

Mótiđ verđur reiknađ til íslenskra skákstiga og til FIDE-skákstiga. Skákstjóri verđur Ingibjörg Edda Birgisdóttir. Núverandi Skákmeistari Norđ-lendinga er Jón Kristinn Ţorgeirsson frá Akureyri.

Dagskrá

  • Föstudagur 26. ágúst kl. 20.00: 1.-4. umferđ. Atskákir, 25 mínútur á mann.
  • Laugardagur 27. ágúst kl. 10.30: 5. umferđ. 90 mínútur + 30 sekúndur viđ hvern leik.
  • Laugardagur 27. ágúst kl. 16.30: 6. umferđ. 90 mínútur + 30 sekúndur viđ hvern leik.
  • Sunnudagur 28. ágúst kl. 10.30: 7. umferđ. 90 mínútur + 30 sekúndur viđ hvern leik.

Ađalverđlaun

  1. sćti: 50.000 krónur. 

(Ef sigurvegari mótsins er ekki međ lögheimili á Norđurlandi eru verđlaun Skákmeistara Norđlendinga einnig 50.000 krónur.)

  1. sćti:  25.000 krónur.
  2. sćti:  10.000 krónur.

Aukaverđlaun

  1. Efstur skákmanna undir 1800 íslenskum skákstigum (međ lögheimili á Norđurlandi).
  2. Efstur heimamanna (í Skákfélagi Siglufjarđar).
  3. Efstur stigalausra (međ lögheimili á Norđurlandi).

Eingöngu verđur hćgt ađ vinna til einna aukaverđlauna.

Peningaverđlaunum verđur skipt á milli manna, verđi ţeir jafnir ađ vinningum. Ţetta á viđ um bćđi ađal- og aukaverđlaun.

Skráning og ţátttökugjald

Skráning er hafin og fer hún fram á vefslóđinni: siglfirdingur.is/skakthing. Upplýsingar um skráđa keppendur er jafnframt ađ finna ţar. Skráningu verđur lokađ á hádegi 26. ágúst. Ţátttökugjaldiđ er krónur 3.000 fyrir 17 ára og eldri, en 1.500 krónur fyrir 16 ára og yngri.

Hrađskákmót Norđlendinga 2016

Hrađskákmót Norđlendinga 2016 verđur svo haldiđ sunnudaginn 28. ágúst á sama stađ en ţađ hefst ekki fyrr en kl. 15.00. Ekkert ţátttökugjald er í ţađ. Núverandi Hrađ-skákmeistari Norđlendinga er áđurnefndur Jón Kristinn Ţorgeirsson frá Akureyri.

Bakhjarlar

Bakhjarlar ţessara skákmóta tveggja eru Arion banki, Hótel Siglunes, Rammi, Samkaup-Úrval, Siglufjarđarkirkja, Skáksamband Íslands, SR-vélaverkstćđi og Verkfrćđistofan Grundun.

Nánari upplýsingar

Sigurđur Ćgisson, formađur Skákfélags Siglufjarđar, veitir allar frekari upplýsingar um mótin. Símanúmer hans eru 467-1263 og 899-0278 og netfang sae@sae.is.


Minningarmót Birnu á laugardaginn: Fjöldi skákmeistara á Reykhólum

Birna var ein af glöđustu manneskjum sem ég hef kynnst um ćvina. Hún hló dátt og innilega. Ţađ geislađi af henni orka og áhugi.

Fjórir stórmeistarar og kvennalandsliđiđ í skák eru međal ţeirra sem skráđ eru til leiks á Minningarmóti Birnu Norđdahl á Reykhólum laugardaginn 20. ágúst kl. 14. Mótiđ er öllum opiđ og eru skákáhugamenn hvattir til ađ skrá sig sem fyrst. Mótiđ verđur hiđ sterkasta sem haldiđ er utan höfuđborgarsvćđisins á árinu. Skákfélagiđ Hrókurinn skipuleggur mótiđ međ stuđningi Reykhólahrepps, Ţörungaverksmiđjunnar, Skáksambands Íslands og fjölda fyrirtćkja og einstaklinga. 

3b Birna 21 árs. Um ţetta leyti tók hún ţátt í Skákţingi Reykavíkur. Ţá hafđi hún teflt síđan hún mundi eftir sér, en hafđi aldrei séđ skákklukku eđa skrifađ niđur skákir.

Birna Norđdahl (1919-2004) skipar merkan sess í íslenskri skáksögu. Hún var frumkvöđull ađ ţví ađ Íslendingar sendu í fyrsta skipti kvennasveit til keppni á Ólympíuskákmótiđ í Argentínu 1978 og efndi til söfnunar svo af ţeirri sögulegu ferđ gćti orđiđ. Birna var svo í liđinu sem fór til Buenos Aires og stóđ sig međ miklum sóma. Hún tefldi jafnframt á Ólympíuskákmótinu tveimur árum síđar og Íslandsmeistari varđ hún 1976 og 1980. 

Íslandsmót kvenna

Kvennalandsliđiđ í skák, sem senn heldur til keppni á Ólympíuskákmótinu í Bakú, tekur ţátt í mótinu, en ţađ skipa Lenka Ptacnikova stórmeistari, Guđlaug Ţorsteinsdóttir, Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir, Hrund Hauksdóttir og Veronika Steinunn Magnúsdóttir. Ţá mćtir til leiks Sigurlaug Regína Friđţjófsdóttir, sem tefldi í liđi Íslands međ Birnu á Möltu 1980. 

1 Jóhann Hjartarson

Stigahćsti stórmeistari Íslendinga, Hannes Hlífar Stefánsson, verđur međ á mótinu, sem og Jóhann Hjartarson nýbakađur Íslandsmeistari og Jón L. Árnason fv. heimsmeistari sveina. Af öđrum öflugum meisturum má nefna Björn Ţorfinnsson, Guđmund Stefán Gíslason, Björn Ívar Karlsson og Rúnar Sigurpálsson. Almennir áhugamenn fá ţví einstakt tćkifćri til ađ komast í tćri viđ sterkustu skákmenn landsins. Tekiđ er viđ skráningum í hrafnjokuls@hotmail.com og eru skákmenn hvattir til ađ skrá sig sem allra fyrst.

4 Jón L Árnason

Viđ setningu mótsins á laugardaginn flytur Hlynur Ţór Magnússon sagnfrćđingur á Reykhólum ávarp, en hann átti ţá hugmynd ađ heiđra minningu Birnu međ veglegu skákmóti, en síđan mun Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri setja mótiđ formlega. Tefldar verđa 8 umferđir međ 10 mínútna umhugsunartíma. Kvenfélagiđ Katla á Reykhólum, sem veitir margvíslega ađstođ viđ framkvćmd mótsins, mun annast veitingar međan á móti stendur. Ţá verđa ýmsir munir og myndir sem tengjast Birnu til sýnis.

Verđlaun á mótinu nema alls rúmlega 400 ţúsund krónum og í fyrsta skipti í íslenskri skáksögu, svo vitađ sé, renna hćrri verđlaun til kvenna.

Fjölmargir leggja Hróknum liđ viđ skipulagningu og framkvćmd Minningarmóts Birnu Norđdahl: Reykhólahreppur, Ţörungaverksmiđjan, Skáksamband Íslands, Hólabúđ, Kvenfélagiđ Katla, Reykhólaskóli, Gistiheimiliđ á Reykhólum, Gistiheimiliđ á Miđjanesi, Hótel Bjarkalundur, Kjarnafćđi, Bónus, Innnes, Bílaleiga Akureyrar, MS, Samskipti, Ísspor, Skrudda og Ugla.

Frekari upplýsingar um mótiđ og gistingu í Reykhólahreppi: http://hrokurinn.is/minningarmot-birnu-norddahl-a-reykholum-20-agust-keppendur-hvattir-til-ad-skra-sig-sem-fyrst/

Nánari upplýsingar veitir Hrafn Jökulsson í síma 6950205

 


Ólympíufarinn: Hjörvar Steinn Grétarsson

Hjörvar Steinn

Ólympíuskákmótiđ fer fram 2.-14. september nk. í Bakú í Aserbaísjan. Nítján manns verđa í sendinefnd Íslands. Fram ađ móti verđa Ólympíufararnir kynntir - einn á dag.

Í dag kynnum viđ sögunnar Hjörvar Stein Grétarsson sem teflir á öđru borđi fyrir liđ Íslandsmót í opnum flokki.

Nafn?

Hjörvar Steinn Grétarsson

Aldur?

23 ára

Hlutverk?

Liđsmađur í landsliđi karla í skák.

Uppáhalds íţróttafélag?

Manchester United og Huginn.

Hvernig er undirbúningi ţínum fyrir mótiđ háttađ?

Undirbúningur minn fyrir mótiđ verđur svipađur og hann er alltaf. Reyna ađ vera andlega og líkamlega tilbúinn fyrir mót.

Hvenćr tókstu fyrst ţátt á Ólympíuskákmóti og hversu oft hefur ţú tekiđ ţátt?

Ég tók fyrst ţátt áriđ 2010 í Síberíu. Ţetta verđur mitt fjórđa Ólympíumót.

Getur ţú nefnt frćgan skákmann fćddan í Bakú?

Garry Kasparov.

Minnisstćđasta atvik á Ólympíuskákmóti?

Ólympíumótiđ er ađ mínu mati stćrsta mót sem skákmađur getur teflt á. Ţar koma saman allir heimsins bestu skákmenn viđ algjörar topp ađstćđur. Ţessi samsetning verđur til ţess ađ minnistćđu atvikin verđa ófá og ţví ómögulegt ađ velja eitt atvik sem sker sig úr fjöldanum.

Er Kaspíahafiđ haf eđa stöđuvatn?

Google segir mér ađ um sé ađ rćđa saltađ stöđuvatn. Google og ég erum góđir vinir.

Minnisstćđa skák á Ólympíuskákmóti og af hverju?

Minnisstćđar skákir tilheyra fortíđinni, ég er meira fyrir ađ horfa til framtíđar. Minnisstćđasta skák Ólympíumótsins verđur ţar af leiđandi tefld á nćstkomandi Ólympíumóti.

Hverjar eru ţínar vćntingar/vonir um gengi íslensku liđanna?

Liđin líta vel út og get ég vottađ fyrir ţađ ađ liđsandi er og verđur góđur. Báđum ţessum liđum eru allir vegir fćrir. Engin markmiđ og engar vćntingar, heldur verđur hver viđureign tekin fyrir sig og síđan skulum viđ sjá hvar viđ endum.

Í ljósi ţess ađ Björn Ţorfinnsson er ekki í Bakú-hópnum – hver verđur ađaltrúđur ferđarinnar?

Viđ erum öll trúđar á okkar eigin hátt.

Eitthvađ ađ lokum?

Ég vona ađ íslenskir skákmenn og skák áhugamenn styđji viđ bakiđ á liđunum tveimur. Viđ munum gera okkar besta og sjá til ţess ađ viđ verđum land og ţjóđ til sóma.
Áfram Ísland. 


Ađalfundur TR í kvöld

Ađalfundur Taflfélags Reykjavíkur verđur haldinn ţriđjudaginn 16.ágúst 2016 kl.20:30 í húsnćđi félagsins ađ Faxafeni 12. Dagskrá fundarins er venjuleg ađalfundarstörf.


Wesley So sigrađi á Sinquefield Cup

So fćr hamingjuóskir frá RexBandaríski stórmeistarainn Wesley So (2771) sigrađi á Sinquefield Cup sem lauk í gćr í St. Louis í Bandaríkjunum. So fékk 5˝ vinning í 9 skákum og varđ ˝ vinningi fyrir ofan Aronian (2792), Topalov (2761), Caruana (2807) og Anand (2770).

Ítarlega frásögn má finna á Chess.com.

 


Ólympíufarinn: Lenka Ptácníková

Íslandsmót kvenna

Ólympíuskákmótiđ fer fram 2.-14. september nk. í Bakú í Aserbaísjan. Nítján manns verđa í sendinefnd Íslands. Fram ađ móti verđa Ólympíufararnir kynntir - einn á dag.

Í dag kynnum viđ sögunnar nýjasta Íslandsmeistarann í skák - Lenku Ptácníková sem í fyrrdag varđ Íslandsmeistari kvenna í áttunda sinn - og í fimmta skiptiđ í röđ!

Nafn?

Lenka Ptácníková

Aldur?

40 ára

Hlutverk?

Ađ keppa fyrir kvennalandsliđiđ

Uppáhalds íţróttafélag?

Huginn

Hvernig er undirbúningi ţínum fyrir mótiđ háttađ?

Fer í súkkulađimegrun

Hvenćr tókstu fyrst ţátt á Ólympíuskákmóti og hversu oft hefur ţú tekiđ ţátt?

Tók fyrst .ţátt áriđ 1994 og hef síđan ţá fariđ 11 sinnum á Ólýmpíuskákmót.

Getur ţú nefnt frćgan skákmann fćddan í Bakú?

823_lMr. Bean! (hver er ţetta, Mr. Bean? Andađi barniđ og skođađi ađalsíđu New in Chess.)

Minnisstćđasta atvik á Ólympíuskákmóti?

Óvart ţátttaka í mótmćlum gegn stjórnvöldum í Armeníu 1996

Er Kaspíahafiđ haf eđa stöđuvatn?

Saltađ stöđuvatn

Minnisstćđa skák á Ólympíuskákmóti og af hverju?

Eva Moser- Lenka, 2010. Aldrei tefldi styttra skák á Ólympíumótinu.

Hverjar eru ţínar vćntingar/vonir um gengi íslensku liđanna?

Vonum ţađ besta!

Í ljósi ţess ađ Björn Ţorfinnsson er ekki í Bakú-hópnum – hver verđur ađaltrúđur ferđarinnar?

Hlutverk keppenda er ađ tefla, hlutverk fylgdamanna ađ skemmta okkur. Liđstjórar hugsa ađallega um liđ sitt, dómarar yfirleitt einhverstađar í sérhóteli, ţá hlutverk ađaltrúđsins verđur á ţeim sem eru eftir wink

Eitthvađ ađ lokum?

Allt stefnir í mjög skemmtilegt mót, gangi okkur vel! 


Hrađkvöld í kvöld

Fyrsta hrađkvöld Hugins eftir sumarhlé verđur haldiđ mánudaginn 15. ágúst nk.  og hefst tafliđ kl. 20:00. Tefldar verđa 7 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a í Mjóddinni. Sigurvegarinn á hrađkvöldinu fćr í verđlaun máltíđ fyrir einn á Saffran eđa pizzu frá Dominos. Einnig verđur dreginn út af handahófi annar keppandi sem einnig fćr sama val. Ţar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu. Ţátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir ađra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.7.): 4
  • Sl. sólarhring: 30
  • Sl. viku: 170
  • Frá upphafi: 8779154

Annađ

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 106
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband