Færsluflokkur: Spil og leikir
4.9.2016 | 20:48
Ólympíuskákmótið: 3. umferð í kvennaflokki
Brexit #3 Ísland 2,5 England 1,5
Andstæðingar okkar í 3. umferð voru Englendingar, með meðalstig 2236. Meistari Speelman, liðsstjóri enska liðsins, tók glaðlega í höndina á mér fyrir viðureignina og bað mig að skrifa undir mótmælaplaggið sitt sem ég nefndi í síðasta pistli. Hann er ekki mannglöggur blessaður því við höfðum rætt lengi saman í fyrradag og ég var löngu búinn að skrifa undir hjá honum.
Enska liðið hafði á að skipa sterkum og reynslumiklum skákkonum á 1. og 2. borði. Lenka hafði hvítt gegn IM Jovanka Houska (2386).
Upp kom Caro-kann vörn sem Lenka var vel undirbúin fyrir. Við höfðum lagt upp með að tefla af ákveðni og ekki gefa alþjóðlega meistaranum neinn frið í byrjuninni. Ég held að Lenku hafi tekist að slá Houska aðeins út af laginu með taflmennsku sinni. Þrátt fyrir þetta eyddi Lenka talsverðum tíma á byrjunina en fékk samt mun betra tafl. Þegar Houska lék 11...c5 notaði Lenka tækifærið og sprengdi upp stöðuna með 12. c4. Í framhaldinu opnuðust allar flóðgáttir og krítístki punkturinn var þegar Lenka lék 17. d5!
Hér lék Lenka 17. d5 og Houska lenti í miklum vandræðum.
Lenka hélt pressunni og Houska komst aldrei inn í skákina. Á einum tímapunkti gat Lenka unnið strax með fallegri hróksfórn, sem hún sá, en krafðist smá úteiknings af hennar hálfu. Á því augnabliki varð henni hugsað til gullkorns Jóhanns Hjartarsonar frá því eftir 1. umferð; ,,Maður á aldrei að fórna með unnið! og valdi því öruggu leiðina. Rannsóknir okkar eftir skákina leiddu hins vegar í ljós að fórnin hefði leitt beint til vinnings svo þetta er sennilega undantekningin sem sannar reglu Jóhanns!
Hér lék Lenka 27. Hd6 með hugmyndinni 28. He6! Houska lék 27...Hc6 og barðist áfram. Lenka gat þó leikið 27. Hd8!! með hugmyndinni 27...Dxd8 28. Dxh5 með máti og eftir 27...Dg6 28. Hd6 De8 29. He6! vinnur hvítur h5-peðið með óstöðvandi mátsókn.
Eftir að skiptist upp á drottningum hirti Lenka svörtu peðin og innbyrti sigurinn af öryggi. Frábær skák hjá Lenku og liðsstjórinn var mjög stoltur.
Gulla hafði svart gegn IM Dagne Ciuksyte (2323). Upp kom Petroffs-vörn sem var vel undirbúin fyrir skákina. Ciuksyte kom okkur nokkuð á óvart með því að velja afbrigði sem hún hafði ekki teflt áður. Í framhaldinu fékk Gulla verra tafl en tókst með mikilli seiglu að halda sér inni í skákinni og tókst svo að snúa taflinu sér í vil í kringum tímamörkin. Hún vann peð en Ciuksyte hafði biskupaparið sem vóg aðeins upp á móti. Gulla leitaði eftir uppskiptum á riddara fyrir biskup og hafði þá hrók, biskup og þrjú peð gegn hrók, biskup og tveimur peðum. Staða hvíts var samt nokkuð virk og svörtu peðin auk þess skorðuð. Á þessum tímapunkti var staðan orðin 2-1 okkur í vil og Ciuksyte, peði undir, lék 60. d4 sem Gulla mátti ekki taka og var auk þess tæp á tíma og með óvirka menn. Allt í einu leit út fyrir að hvítur gæti pressað aðeins og kvikindið hann Speelman glotti til mín!
Hér lék Ciuksyte 60. d4 og Speelman glotti!
Gulla leysti vandamálin auðvitað án nokkurra vandræða í framhaldinu, virkjaði mennina sína og eftir þráleik krafðist hún jafnteflis, sem tryggði sigurinn í viðureigninni.
Hér lék Gulla 68...Bf2 og sama staðan var kominn upp í þriðja sinn. Jafntefli niðurstaðan og sigurinn í höfn! Ég leyfði mér að endurgjalda Speelman glottið.
Hallgerður Helga hafði hvítt gegn WFM Sarah Longson (2103). Þegar við flettum henni upp fyrir skákina komu bara fáar, en mjög nýlegar skákir upp. Halla kannaðist þó við myndina af Söruh og komst að því eftir smá rannsóknarvinnu að stúlkan sú væri nýgift og því búin að taka upp nýtt nafn! Var brúðkaupið bara til þess að fela gömlu skákirnar hennar? Einhver ágætur maður sagði mér eitt sinn að brúðkaup væru ekki góð fyrir skákmenn því þá gætu þeir verið vissir um að tapa 50-100 skákstigum alveg um leið.
En aftur að skákinni! Upp kom ítalskur leikur og Longson náði að jafna taflið eftir byrjunarleikina. Í miðtaflinu tók Halla góða ákvörðun og drap með riddara á d4, 17. Rxd4, sem gaf henni ákveðin færi í skrýtinni stöðu. Henni varð þó fótaskortur í framhaldinu og neyddist þá til að gefa skiptamun. Það sama gerðist í 1. umferð; Halla lenti í vandræðum, gaf skiptamun en fékk virka menn og vann glæsilega. Það sama gerðist einnig í dag. Allt í einu lifnaði yfir stöðunni, Longson þurfti að fara að vanda sig skiptamun yfir og í tímahrakinu urðu henni á mistök. Halla vann skiptamuninn til baka og í lokin var ekkert sem gat stoppað hvíta e-peðið og mikilvægur sigur var í höfn!
Hér kom 47. Rg6! Hee8 47. e7 Hb8 48. Bd7 og taflið snérist Höllu í vil.
Hrund hafði svart gegn WFM Kanwal Bhatia (2133). Upp kom ítalskur leikur, sama afbrigði og hjá Hallgerði Helgu. Hrund lék snemma h6 og gaf Bhatia kost á að leika g4 og fara beint í kóngssókn. Þetta er leið sem Jón Viktor Gunnarsson hefur mælt með fyrir hvítan (sbr. módelskákina JVG - Fiona Steil-Antoni frá Reykjavik Open 2008). Bhatia fékk hörku færi í framhaldinu og Hrund þurfti að finna nákvæma leiki til þess að halda velli. Hún missti af bestu varnarleiðunum og stórsókn hvíts var of hættuleg til þess að stoppa. Sanngjarn sigur þeirrar ensku.
Hér lék Hrund 24...De7 og lenti vandræðum eftir 25. Ba3! Það var einhver von í því að leika í staðinn 24...Hh2 25. Dxf6+ Kg8 og svartur hefur smá pressu á f2-peðið.
Lokatölur 2½ - 1½ okkur í vil, sem eru frábær úrslit. Við Speelman tókumst í hendur í lok viðureignarinnar og hann var ekki sáttur með sínar stúlkur: ,,I was glad I brought a newspaper today so I could hide behind something!
Andinn í liðinu er góður eftir þessa flottu frammistöðu hjá okkur. Ég var ánægður með baráttuþrekið í stelpunum í dag. Á erfiðum augnablikum í skákunum kom ekki til greina að gefa neitt eftir. Tímanotkunin var skynsamari hjá okkur en í gær og við vorum ekki að lenda undir neinni sérstakri tímapressu; þetta höfðum við rætt sérstaklega fyrir umferðina.
Á morgun fáum við lið Moldavíu (meðalstig: 2167) og við erum klárar í slaginn. (athugasemd: Gunnar Björnsson segir að það sé einkennandi fyrir liðsstjóra kvennaliðsins af fara ósjálfrátt að tala um sjálfan sig í kvenkyni!)
Þangað til næst, bestu kveðjur frá Bakú.
- Björn Ívar
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2016 | 16:42
Glæsilegur íslenskur sigur gegn Englandi í kvennaflokki
Íslenski landsliðshópurinn brást við mótlæti gærdagsins af mikilli fagmennsku þegar 3.umferð var tefld í Kristalhöllinni í Baku, Aserbaísjan. Undirbúningur var markviss og einbeiting skein úr hverju andliti þegar skákklukkurnar voru settar í gang klukkan þrjú að staðartíma. Uppskeran varð 6 vinningar í 8 skákum. Kvennaliðið gerði sér lítið fyrir og lagði sterkt lið Englands 2,5-1,5, á meðan karlaliðið gjörsigraði Sýrland 3,5-0,5.
Björn Ívar Karlsson, landsliðseinvaldur kvennaliðs Íslands, var hvergi banginn er liðið settist að tafli gegn Englandi í dag, þrátt fyrir stóran skell gegn Ítalíu í gær. Þó lið Englands væri mun stigahærra á öllum borðum þá var ekki að sjá að Björn Ívar óttaðist annan skell. Viðureignin byrjaði ekki vel því Hrund Hauksdóttir varð að játa sig sigraða á 4.borði og England því komið yfir 1-0. Lenka Ptacnikova (2159) stýrði hvítu mönnunum eins og herforingi á 1.borði gegn hinni stigaháu Jovanka Houska (2396) og gerði sér lítið fyrir og vann skákina. Staðan var því 1-1 þegar Hallgerður H. Þorsteinsdóttir (2015) snéri laglega á andstæðing sinn og vann. Það kom því í hlut reynsluboltans, Guðlaugar Þorsteinsdóttur (2046), að tryggja stigin tvö með því að gera jafntefli með svörtu á 2.borði gegn alþjóðlega meistaranum Dagne Ciuksyte (2323). Sannarlega glæsilegur sigur hjá íslenska liðinu.
Landslið Íslands í opnum flokki beit í skjaldarrendur í dag og gjörsigraði lið Sýrlands. Hannes Hlífar Stefánsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Bragi Þorfinnsson unnu sínar skákir, og Jóhann Hjartarson gerði jafntefli.
4.umferð hefst á morgun klukkan 11 að íslenskum tíma. Ísland mætir Færeyjum í opnum flokki en Moldavíu í kvennaflokki.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 11 að íslenskum tíma)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2016 | 14:11
Stórt start: Stefán Bergsson startmeistari
Efnt var til skákveislu í Höllinni í gær, rétt fyrir leik KA og Selfoss. Margir SA-menn styðja KA, en þó eru dæmi um annað og m.a. eru stuðningsmenn Hugins (Seyðisfirði) mjögsvo velkomnir á mót félagsins!
Í þetta sinn mættu 30 keppendur til leiks í upphafi móts, en nokkrir kusu að ljúka keppni eftir þrjár skákir, eins og heimilt var. Hinir héldu áfram og voru sérlega grimmir. Þrír voru jafnir fyrir síðustu umferð en efti magnaða úrslitaskák náði S Steingrímur Bé að hrifsa til sín efsta sætið og hefur hann nú á einni viku unnið tvö helstu hraðskákmót norðan heiða. Það er því ljóst sð þessi drengur hefur ekkert að gera til Reykjavíkur.
Lokastaðan var þessi:
1. Stefán Bergsson 6
2-6. Gylfi Þórhallsson, Jón Kristinn Þorgeirsson, Smári Ólafsson, Andri Freyr Björgvinsson og Elsa María Kristínardóttir 5
7. Sigurður Eiríkisson 4,5
8. Haraldur Haraldsson 4
9-11. Hjörleifur Halldórsson, Ulker Gasanova og Hjörtur Steinbergsson 3,5
Aðrir fengu aðeins minna
4.9.2016 | 10:04
Björn Ívar: Ánægður með byrjanataflmennskuna
Björn Ívar Karlsson, landsliðseinvaldur Íslands í kvennaflokki, var að vonum svekktur eftir 0-4 ósigur gegn sterkri sveit Ítalíu í 2.umferð. Björn Ívar var ánægður með upphaf skákanna og stöðurnar sem fengust eftir byrjanirnar. "Stöðurnar snérust flestar við á einum tímapunkti í miðtaflinu og þá fór að saxast á tímann hjá okkur. Við getum aðeins bætt tímanotkunina fyrir næstu viðureign."
Ísland mætir Englandi í kvennaflokki í dag og má búast við hörkuviðureign en enska liðið er mun stigahærra á öllum borðum.
4.9.2016 | 08:53
Viðtal við Ingvar Þór eftir 4-0 sigur gegn Eþíópíu
Ingvar Þór Jóhannesson, landsliðseinvaldur Íslands í opnum flokki, gaf kost á viðtali eftir þægilegan 4-0 sigur gegn Eþíópíu í 1.umferð.
4.9.2016 | 07:10
Bakú-pistill forseta nr. 3: Forsetanum vísað út!
Það gekk ekki vel í annarri umferð Ólympíuskákmótsins. Einn vinnur af átta kom í hús. Það var reyndar mjög góður vinningur. Hjörvar Steinn Grétarsson vann glæsilegan sigur á Tékkanum sterka, Viktor Laznika. Aðrar skákir töpuðust. Kvennaliðið tapaði 0-4. Liðsstjórarnir hafa farið betur yfir gang mál
Í dag mæta karlarnir liði Sýrlands sem hefur meðalstigin 2241 á móti 2527 hjá okkur mönnum. Gummi hvílir. Sýrlandi höfum við aldrei mætt áður á Ólympíuskákmóti.
Bein útsending frá viðureign dagsins
Kvennaliðið mætir liði Englands. Veronika hvílir aftur. Þar hallar verulega á okkur stigalega séð. Meðalstigin íslenska liðsins eru 2003 á meðan enska kvennaliðið hefur að meðaltali 2236 skákstig. Við höfum mætt Englendingum tvisvar áður. 1982 og 2010. Í Khanty Mansiesk 2010 vanst frækinn og mjög óvæntur 3-1 sigur á þeim ensku þar sem Lenka, Hallgerður og Sigurlaug unnu sínar skákir. Íslendingar voru mun stigalægri á öllum borðum. Ég sé að ég hef þá talað þá um liðið hafi jafnvel náð besta árangri íslensks kvennaliðs á Ólympíuskákmóti.
Bein útsending frá viðureign dagsins
Skipulagning Aseranna er almennt góð á mótinu. Einstaka hnökrar eru þó til staðar og snúa þeir helst að aðgangsmálum. Mér og reyndar fleirum finnst mótshaldarar og FIDE taka anti-cheating full langt. Þótt koma verði fyrir svindl með öllum tiltækum ráðum má það ekki vera til þess að skákin og fjölmiðlaumfjöllun líði of mikið fyrir það.
Margir liðsstjórar mótmæltu því í gær að tilkynna þurfi í hvert skipti sem farið er á klósettið eins og lesa má um á Chess24. Sömuleiðis hafa menn verið að vandræðum að taka myndir eins og lesa má um á Chess.com. Eins og Peter Doggers bendir á í þeirri grein:
No other major sporting event in the world seems so restrictive with the press, making it difficult to highlight the major stories, people, and subplots of the competition. Organizers of the Olympiad, so far, are preferring to suspend access to what should be one of the most interesting and feature-rich worldwide chess events.
Í fyrstu umferð komst ég sjálfur ekki inní nema áhorfendasvæðið. Þar var ég myndavélalaus. Ég gafst upp og dreif mig uppá hótel.
Í gær tókst mér að herja út blaðamannapassa eftir mikið japl, jamm og fuður. Þegar ég komst loks inn í skáksalinn var korterið liðið og ég náði aðeins að taka 3 myndir af karlaliðinu áður en skákstjóri stöðvaði mig. Það að komast inn reyndist mjög skammgóður vermir.
Eftir 45 mínútur kom nefnilega mjög ábúðarfullur öryggisvörður og vísaði mér út! Ég mátti víst ekki vera lengur inní skáksalnum. Við sem eru FIDE-fulltrúar eru vanir því að fá góðan og mikinn aðgang. Því er ekki fyrir að fara hér. Heldur betur ekki!
Aserarnir eru mjög strangir og hlýða greinilega fyrirmælum mjög nákvæmlega. Það lýsir þeim eiginlega mjög vel að ég gær þá ætlaði Joanna Golas, sem er ein æðsta manneskja mótshaldaranna, að hleypa mér inn bakdyra meginn en öruggsvörðurinn sem hún talaði við hlustaði ekkert á hana. Sagði henni að ég hefði ekki viðeigandi aðgang og fengi ekki fara inn! Og þar við sat.
Mér skilst hins vegar að þessu verði kippt í liðinn í dag og að við munum fá fullan aðgang að skákstaðnum. Sjáum til!
Umferð dagsins hefst kl. 11.
Áfram Ísland!
Kveðja frá Bakú,
Gunnar Björnsson
4.9.2016 | 07:00
Íslandsmót öldunga 65+ fer fram á laugardaginn
Íslandsmót öldunga 65 ára og eldri verður haldið laugardaginn 10. september nk. í Ásgarði, félagsheimili FEB að Stangarhyl. Að þessu sinni standa báðir skákklúbbar eldri borgara á Höfuðborgarsvæðinu, RIDDARINN og ÆSIR, sameiginlega að mótinu, sem áður hefur farið fram á vegum hins fyrrnefnda í Hafnarfirði.
Þetta er í þriðja sinn sem slíkt Íslandsmót með atskákarsniði fer fram í þessum aldursflokki.
Tefldar verða 9 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma auk 3 sekúndna viðbótartíma á leik. Fjórar umferðir verða tefldar fyrir hádegi en lokaumferðirnar fimm eftir hádegisverðarhlé.
Mótið hefst kl. 10 árdegis og lýkur um kl. 16.30 með verðlaunaafhendingu.
Þátttökugjald er kr. 1000 og innifelur kaffi, svaladrykki og snarl meðan á móti stendur. Björgvin Víglundsson er núverandi Íslandsmeistari og hefur unnið mótið í bæði skiptin sem það hefur verið haldið.
Aðalverðlaun mótsins er kr. 50.000 ferðastyrkur á Norðurlandamótið í skák í Sastamala, Finnlandi, 22. -30. október nk. Auk verðlaunagripa sem gefnir eru af Sportvöruverzluninni JÓA ÚTHERJA, verða veitt vegleg bókaverðlaun og aldursflokkaviðurkenningar (65-70; 71-75; 76-80; 81 og eldri). Vænst er góðrar þátttöku sem víðast hvar að af landinu.
Mótsnefndina skipa fulltrúar "Öðlinganefndar SÍ" þeir: Einar S. Einarsson, formaður; Finnur Kr. Finnsson; Guðfinnur R. Kjartansson; Sigurður E. Kristjánsson og Össur Kristinsson.
Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn efst). Upplýsingar um þegar skráða keppendur má finna hér.
Spil og leikir | Breytt 29.8.2016 kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2016 | 23:25
Ólympíuskákmótið: 2. umferð í opnum flokki
2. umferð í opnum flokki fór ekki vel fyrir íslensku liðin og raunin varð sú að Hjörvar Steinn Grétarsson var sá eini í öllum flokkum sem náði í vinning.
Tékkarnir eru vissulega sterkir á pappírnum. Á fyrsta borði beið okkar hinn ígulsterki David Navara sem er að bjóða upp á skákstig yfir 2740 þessa dagana. Á öðru borði er grjótharður Laznicka með rúm 2650 skákstig. Því var ljóst að við ramman reip var að draga.
Ákveðið var að stilla upp liðinu á eftirfarandi hátt:
1. Hannes - 2. Hjörvar - 3. Jóhann - 4. Guðmundur.
Semsagt, aðalliðið var á boðstólnum þar sem þetta var fyrsta alvöru viðureignin okkar á þessu móti með fullri virðingu fyrir Eþíópíu.
Fyrir umferðina voru menn bjartsýnir og jafnvel að vonast eftir frammistöðu á þessum nótunum frá Tékkunum:
1. borð: Navara - Hannes
Hér var ljóst að Hannes ætti erfiðara skák fyrir höndum. Navara hefur verið að vinna sig upp skákstigalistann enn og aftur og nálægt sínu besta formi. Þar að auki var Hannes með svörtu mennina. Á boðstólnum var e3 afbriðgið í Nimzanum.
Þótt að svartreita-biskupinn sé verri á d2 en í hefðbundnu drottningabragði er hvítur töluvert á undan í liðsskipan.
Hannes vildi meina eftir skákina að lykilmistökin hefðu verið ...Be5 leikurinn og taflið hefði verið erfitt eftir það. Hannes þurfti að taka á sig stakt peð og hvítur hafði mjög þægilegt tafl.
Því miður reyndist það auðvelt fyrir Navara-reiknivélina að vinna úr stöðunni. Loks var komið að the "deathblow" í stöðunni að ofan.
Hér var náðarhöggið 32.Hxd5!
Góð skák hjá Íslandsvininum Navara þó við hefðum kosið að hún kæmi á öðrum tíma.
2. borð Hjörvar - Laznicka
Í undirbúningi kom í ljós að Laznicka var mest í hollenskri vörn. Hjörvar var hinsvegar spakur og benti á að líklegast væri að hann yrði meira "solid" í liðakeppni og myndi tefla eitthvað á borð við móttekið drottningarbragð með ...dxc4. Lundin hjá liðsstjóra var því nokkuð góð þegar 2...dxc4 kom á borðið.
Lundin var ekki jafn létt þegar svartur lék 18...g5 og var með VIÐBÓTARTÍMA á klukkunni!
Laznicka var semsagt með meiri tíma á klukkunni en þegar hann hóf skákina þegar hann "úðaði" út 18..g5. Þar sem mjög erfitt er að átta sig á hvur fjandinn er eiginlega í gangi í þessari stöðu var undirritaður skiljanlega skíthræddur um að Hjörvar væri hér að lenda í einhverjum tölvustúderingum og væri því í vondum málum.
Hjövar hinsvegar brást vel við og aðeins tveim leikjum síðar var komið að Laznicka að hugsa sig um í yfir 40 mínútur.
Eftir 25.Re3 var mér ljóst að svartur hafði ekki neinar bætur og Hjörvar stæði líklegast til vinnings hér. 25..Ha1+ lítur út fyrir að vera hættulega en hinn einfaldi 26.Rcd1 stoppar allt og svarutr ræður ekki við Rxc4 og Hb8+. Á þessum tímapunkti fannst mér Gummi vera að snúa stöðunni sér í hag og því þónokkur bjarstýni hjá mér á þessum tímapunkti.
Þrátt fyrir aö töluverð úrvinnsla væri eftir þá var niðurstaðan sú að Hjörvar var peði yfir og þetta peð var hættulegt frípeð á b-línunni sem réði úrslitum í skákinni.
3.borð: Babula - Jóhann
Babula kom Jóhanni á óvart með Bf4 afbrigðinu í drottningaindverja. Anthony heitinn Miles var þekktur fyrir að beita þessu afbrigði.
Jóhann vissi að ...c5 væri krítíkasti varíanturinn þar sem Helgi Áss Grétarsson átti m.a. góða sigurskák gegn Jóhanni á Íslandsmóti í atskák fyrir einhverjum árum. Jóhann hafði hinsvegar ekki litið á þennan varíant í einhvern tíma og ákvað frekar að tefla traust.
Hér var Jóhann ekki ánægður með ...a4 leikinn. Vildi meina að það hefðu verið fyrstu mistökin og svo hefði hann ekki átt að leyfa d5 og því að drepa á d4. Þess í stað taldi Jóhann taflið hartnær strategískt tapað og reyndist vörnin mjög erfið og á endanum þurfti að leggja niður vopn.
Skákin minnti Jóhann á skák með skiptum litum þar sem Jóhann hafi hvítt gegn Miso Cebalo sem einmitt lék ...a4 í nánast eins stöðu og þurfti að þjást mjög lengi.
4. borð: Guðmundur - Plat
Guðmundur beitti afbrigði sem Milorad Knezevic beitti á sínum tíma með e3 og svo Db3. Guðmundur hafði m.a. búist við Grunfeld og treyst á þetta afbrigði en því miður virtist hann ekki koma að tómum kofanum hja Plat.
Plat jafnaði taflið og fékk líklega aðeins betra. Gummi var hinsvegar ekkert að gefa eftir, varðist vel og var við það að hrifsa frumkvæðið þegar hann missti tökin.
Hér hefði Gummi í stað 20.Hc6? getað fengið betri stöðu með 20.Rd3 sem stoppar ...e5 framrásina (og valdar f2) og síðan hefði verið hægt að vinda sér í aðgerðir á c-línunni.
Þess í stað opnaði svartur stöðuna með ...e5 og hvítur lenti í vandræðum sem kostuðu skiptamun og skákina alltof fljótt.
Úrslitin því vonbrigði 1-3 en eins og oft er stutt milli hláturs og gráturs. Með smá heppni hefðu úrslitin getað orðið allt önnur.
Pörun 3. umferðar kom okkur nokkuð á óvart en þar mætum við sveit Sýrlendinga sem skartar mönnum með yfir 2200 stig. Á pappírunum ætti þetta að vera auðveldur vinningur en eins og menn vita hafa pappírar aldrei unnið neitt. Við munum því stíga fast til jarðar og stilla upp sterkri sveit og ekkert nema vinningur sem kemur til greina.
- Ingvar Þór Jóhannesson: Liðsstjóri í opnum flokki.
Spil og leikir | Breytt 4.9.2016 kl. 08:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2016 | 22:00
Ólympíuskákmótið: 2. umferð í kvennaflokki
Við mættum sterku liði Ítalíu í dag, sem er með meðalstig 2304. Ég var bjartsýnn fyrir viðureignina, þrátt fyrir að ítalska liðið hafi ekki verið árennilegt á pappírunum. Aðalliðið tefldi í dag, svo Veronika hvíldi. Lenka hafði því svart á fyrsta borði gegn hinni þrautreyndu IM Olgu Zimina (2389). Olga tefldi frekar bitlaust vængtafl og Lenka jafnaði taflið auðveldlega. Eftir mikinn þæfing í miðtaflinu lenti hún óþarflega í tímahraki sem kostaði hana yfirsjón. Lenka tapaði skiptamun í framhaldinu, eftir lúmskt trikk frá Olgu, og féll á tíma stuttu seinna, með tapað tafl. Þetta var skák sem hefði með réttu átt að enda með jafntefli. Tímanotkunin var að stríða okkur svolítið í dag og það er eitthvað sem við ætlum að bæta í umferðinni á morgun.
Hér lek IM Olga Zimina 35. Re4! sem vinnur lið eftir 35...Dxe5 36. Rg5+ eða 35...dxe4 36. Hxc5
Gulla hafði hvítt gegn FM Marinu Brunello (2376). Marina hefur teflt á Reykjavik Open, ásamt bróður sínum Sabino, svo við könnumst ágætlega við hana. Upp kom drottningarbragð og fljótlega skiptist upp á mönnum, sem létti talsvert á svörtu stöðunni, svo Gulla hafði ekki mikið upp á að tefla. Hugsanlega hefði hún átt að reyna að tefla upp á minnihlutaárás á drottningarvæng með Hb1 og svo b4 á einhverjum tímapunkti. Hún valdi aðra áætlun, að reyna að leika e4 en það gekk því miður ekki nógu vel. Í framhaldinu þurfti hún að taka á sig veikleika á kóngsvængnum og lenti í vandræðum í tímahrakinu. Hún tapaði liði í framhaldinu og neyddist til að gefast upp eftir að tímamörkunum var náð.
Í þessari stöðu lék Brunello 37...Re3 og Gulla neyddist til að gefa skiptamun með 38. Hxe3
Halla hafði svart gegn WFM Danielu Movileanu (2268). Upp kom Caro-kann vörn og eftir 4...Bf5 lék Daniela 5. Rc5!? (Spurning: Hver er upphafsmaður þessa leiks?) Halla tefldi framhaldið vel og jafnaði að öllum líkindum taflið þrátt fyrir að hafa tekið á sig veikt peð á c6. Í framhaldinu telfdi hún sennilega ekki nógu virkt og lenti í erfiðu endatafli, peði undir. Hún barðist hetjulega en sú ítalska sýndi afbragðs tækni (því miður!) og innbyrti sigurinn af öryggi.
Hér lék Halla 30...Hd2 og lenti peði undir eftir 31. Rb7. Hún hefði hugsanlega frekar átt að leika 30...Hb8 og tefla virka vörn eftir 31. b3 Hb4 og þar sem riddarinn á c5 fer ekki langt lendir svartur varla í miklum vandræðum með c6-peðið.
Hrund hafði hvítt gegn WFM Desiree Di Benedetto (2183). Hrund tefldi gamla og gleymda leið í uppskiptaafbrigði franskrar varnar sem við höfðum undirbúið mjög vel fyrir skákina (liðsstjórinn gleymir engu!). Di Benedetto virtist ekki þekkja afbrigðið vel og kom með mjög vafasama nýjung eftir langa umhugsun, 10...Df6?! í stað 10...Re7 sem er algengastur. Hrund hefði getað notfært sér þessa ónákvæmni með því að halda frumkvæðinu og setja pressu á svarta kónginn á miðborðinu með leikjum eins og 11. He1, 11. Rbd2 eða 11. Bg5. Hún eyddi smá tíma í að hirða peð á drottningarvængnum og missti aðeins þráðinn í framhaldinu, þrátt fyrir að vera enn með mun betra tafl. Í framhaldinu fékk Di Benedetto að hróka í friði og hafði auk þess biskupaparið gegn aðgerðalitlu riddarapari Hrundar. Sú ítalska nýtti sér stöðuyfirburðina í framhaldinu og vann af öryggi.
Di Benedetto lék síðast 10...Df6?! Hér gat Hrund tekið frumkvæðið með 11. He1+, 11. Rbd2 eða jafnvel 11. Bg5, með góðum færum. Hún lék í staðinn eðlilegum leik, 11. Dxa4, en tapaði við það mikilvægu tempói og svartur fékk smá svigrúm til að laga stöðuna.
4-0 tap var svekkjandi því stöðurnar bentu til annars eftir byrjunina. Það snérist eiginlega allt okkur í óhag þegar við lentum í tímahraki á öllum borðum. Við þurfum að passa betur upp á tímanotkunina á morgun; ekki eyða tíma að óþörfu, treysta á innsæið og okkar útreikninga - ekki andstæðinginn.
Andstæðingar okkar á morgun, í 3. umferð, er sterkt lið Englands (meðalstig: 2236) Liðsstjóri Englendinga er hinn sérkennilegi, en bráðskemmtilegi stórmeistari, Jonathan Speelman. Ég var mikill aðdáandi Speelmans þegar ég var ungur drengur, aðallega vegna frumlegrar taflmennsku hans. Eftir að IM Jón Viktor Gunnarsson tók Speelman í bakaríið á Ólympíumótinu í Istanbúl árið 2000 fór ég að halda minna upp á Speelman og meira upp á Jón Viktor! Speelman kom reyndar að máli við mig við upphaf 1. umferðar í gær og bað mig að skrifa undir mótmælabréf sem hann hafði sett saman, fyrir hönd liðsstjóranna á mótinu. Mótmælabréfið tengdist þeirri reglu á mótinu að keppendur og liðsstjórar þurfi að tilkynna skákdómurum sérstaklega ef þeir ætli að nota salernið. Eðlilega fannst Speelman þessi regla sérkennileg, enda er salernisaðstaðan inni á keppnissvæðinu, sem auk þess er rækilega girt af með málmleitartækjum og öryggisvörðum. Ég skrifaði að sjálfsögðu undir, enda ekki bara aðdáandi Speelmans heldur líka þess að geta farið á salernið án þess að biðja um leyfi.
Þangað til næst, bestu kveðjur frá Bakú.
- Björn Ívar
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2016 | 21:46
Jón Viktor vann Ljósanæturmót HS Orku
Alþjóðlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson vann ljósanæturmót HS Orku með fullu húsi í dag og tryggði sér með því vegleg peningaverðlaun. Í öðru sæti frekar óvænt var hinn ungi Fjölnismaður Jón Trausti Harðarson með 8,5 vinning af 11. Þriðji varð svo alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson með 8 vinninga.
Röð | Nafn | Elo | Félag | Fl. | Vinn | Stig | |
1 | IM | Jón Viktor Gunnarsson | 2484 | TR | 11 | 72 | |
2 | Jón Trausti Harðarson | 1976 | Fjölnir | 8½ | 71 | ||
3 | IM | Björn Þorfinnsson | 2533 | TR | 8 | 77 | |
4 | FM | Davíð Kjartansson | 2341 | Fjölnir | 7½ | 76½ | |
5 | Örn Leó Jóhannsson | 2158 | SR | 7 | 73½ | ||
6 | FM | Guðmundur Stefán Gíslason | 2278 | TB | 7 | 72½ | |
7 | IM | Sævar Jóhann Bjarnason | 2057 | TR | 6½ | 70 | |
8 | Ólafur Gunnar Ingason | 1898 | SR | 6½ | 60½ | ||
9 | Þorvarður F Ólafsson | 2202 | TR | 6 | 73½ | ||
10 | Vigfús Óðinn Vigfússon | 1865 | Huginn | 6 | 67 | ||
11 | Páll Þórhallsson | 1996 | SR | 6 | 66½ | ||
12 | Bragi Halldórsson | 2194 | Huginn | 6 | 64½ | ||
13 | Smári Arnarson | 0 | TR | 6 | 56 | ||
14 | Gauti Páll Jónsson | 1923 | TR | 5½ | 74 | ||
15 | Hörður Aron Hauksson | 1794 | Fjölnir | 5½ | 64 | ||
16 | Páll Andrason | 1957 | TG | 5 | 63½ | ||
17 | Árni Ólafsson | 1183 | TR | U15 | 5 | 59 | |
18 | Snorri Sigurður Karlsson | 1633 | Haukar | 5 | 59 | ||
19 | Sólon Siguringason | 1303 | TG | U15 | 5 | 53½ | |
20 | Björn Kristinn Jóhannsson | 0 | SR | 5 | 50½ | ||
21 | Ingólfur Kristinsson | 0 | Njarðvík | U15 | 5 | 49 |
Veitt voru 2 aukaverðlaun. í flokki 14 ára og yngri varð efstur Árni Ólafsson úr TR sem var með 5 vinninga en ofar á stigum en Sólon Siguringason TG og Ingólfur Kristinsson Reykjanesbæ sem voru með jafn marga vinninga.
Nokkur óvænt úrslit voru í mótinu engin þó óvæntari en hjá Smára Arnarsyni sem er stigalaus gegn Braga Halldórssyni í fyrstu umferð en reiknað var með að stigalausir væru með 1000 stig. Alls munaði því 1194 stigum á þeim og því stjarnfræðilega lítill möguleiki á að Smári skyldi sigra skákina.
Alls tóku 28 manns þátt í mótinu og var gaman að sjá unga krakka úr Reykjanesbæ og stúlknahóp úr Grindavík sem settu mikinn svip á mótið.
Myndaalbúm mótsins má finna með því að smella hér.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 2
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 92
- Frá upphafi: 8778323
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 66
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar