Fćrsluflokkur: Spil og leikir
9.11.2016 | 07:00
Meistaramót Víkingaklúbbsins í yngri flokkum fer fram í dag
Meistaramót Víkingaklúbbsins fyrir yngri flokka (Haustmótiđ) fer fram miđvikudaginn 9. nóvember í Víkingsheimilinu og hefst ţađ kl 17.15. Telfdar verđa 6. umferđir međ 7. mínútna umhugsunartíma Veitt verđa verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin, auk ţess sem efsti Víkingurinn í stráka og stelpuflokki fá viđurkenningapening.
Telft verđur í einum flokki, en efsti einstaklingur hvers árgangs fćr verđlaunapening. Mótiđ er opiđ öllum ungmennum fćdd 2001 og síđar og ţátttaka er ókeypis. Skákstjóri á mótinu verđur Stefán Bergsson. Núverandi meistari Víkingaklúbbsins er Jón Hreiđar Rúnarsson.
Skráning fer fram á hér á Skák.is (guli kassinn efst). Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.
Spil og leikir | Breytt 8.11.2016 kl. 14:16 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
8.11.2016 | 16:10
Framsýnarmótiđ hefst á föstudaginn
Framsýnarmótiđ verđur haldiđ í Framsýnarsalnum ađ Garđarsbraut 26 á Húsavík helgina 11-13 nóvember nk. Tefldar verđa 7 umferđir alls, fyrstu fjórar međ atksákartímamörkum (25 mín) en ţrjár síđari skákirnar međ 90 mín + 30 sek/leik.
Ţátttökugjald 2000 kr en 1000 kr fyrir 16 ára og yngri.
Dagskrá: ATH BREYTING FRÁ ÁĐUR AUGLÝSTRI DAGSKRÁ!
- Föstudagur 11. nóvember kl 20:00 1. umferđ
- Föstudagur 11. nóvember kl 21:00 2. umferđ
- Föstudagur 11. nóvember kl 22:00 3. umferđ
- Föstudagur 11. nóvember kl 23:00 4. umferđ
- Laugardagur 12. nóvember kl 8:30 5. umferđ
- Laugardagur 12. nóvember kl 13:00 6. umferđ
- Sunnudagur 13. nóvember kl 10:30 7. umferđ
Mótiđ verđur reiknađ til Fide-skákstiga, Fide-atskákstiga og Íslenskra skákstiga.
Skráning.
Vćntanlegir keppendur geta skráđ sig til leiks á ţar til gerđu skráningarformi sem er hér til vinstri á vefnum Skákhuginn.is og einnig á skák.is Hćgt verđur ađ skrá sig til keppni fram til kl 19:30 á föstudag, eđa 30 mín áđur en mótiđ hefst.
Verđlaun.
Veittir verđa eignarbikarar í verđlaun handa ţremur efstu af félagsmönnum Hugins og einnig fyrir ţrjá efstu utanfélagsmenn. Einnig verđa sérstök verđlaun veitt fyrir ţrjá efstu í flokki 16 ára og yngri.
Fyrirtćkiđ Eflir almannatengsl, hefur ákveđiđ ađ veita sérstök verđlaun á Framsýnarmótinu 2016 fyrir mestu stigabćtinguna.
Gisting.
Á Húsavík eru nćstum endalausir möguleikar á gistingu. Mótshaldarar vilja ţó vekja sérstaka athygli á ţví ađ hćgt er ađ fá gistingu á Fosshótel Húsavík á mjög hagstćđu verđi. Hóteliđ er ný standsett og glćsilegt. Ţar eru 110 herbergi, glćsilegur lobbý-bar og ţar verđur hćgt ađ horfa á leik Íslands og Króatíu á laugardeginum kl 17:00.
Skákstjóri verđur Ingibjörg Edda Birgisdóttir
8.11.2016 | 14:19
Barna- og unglingameistaramót TR fer fram á sunnudaginn
Barna- og unglingameistaramót sem og Stúlknameistaramót Taflfélags Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 13. nóvember í félagsheimili T.R. Faxafeni 12. Tafliđ hefst kl.14.
Tefldar verđa 7 umferđir eftir Monrad-kerfi međ umhugsunartímanum 15 mín. á skák.
Teflt verđur í tveimur flokkum: opnum flokki og stúlknaflokki. Verđlaun verđa veitt fyrir ţrjú efstu sćtin í opna flokknum og ţar fyrir utan hlýtur efsti T.R.-ingurinn titilinn Unglingameistari T.R. 2016.
Ţá verđa veitt verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin í stúlknaflokknum og ţar fyrir utan hlýtur efsta stúlkan úr T.R. titilinn Stúlknameistari T.R. 2016.
Til viđbótar verđa veitt verđlaun fyrir efsta sćtiđ í aldursflokknum 13-15 ára (f. 2001-2003), 11-12 ára (f. 2004-2005), 9-10 ára (f. 2006-2007) sem og 8 ára og yngri (f. 2008 og síđar) í báđum flokkum (opna flokknum og stúlknaflokknum).
Mótiđ er opiđ öllum krökkum 15 ára og yngri (fćdd 2001 og síđar).
Ađgangur á mótiđ er ókeypis.
8.11.2016 | 10:45
Skáklíf á Hvammstanga
Grunnskóli vestur Húnavatnssýslu á Hvammstanga tekur ţátt í verkefni Skáksambandsins Skák eflir skóla - Kennari verđur skákkennari. Í síđustu viku fór Stefán Bergsson verkefnisstjóri í sína ađra heimsókn í skólann í vetur. Kennsla er í ţriđja og fjórđa bekk. Kennslan hefur gengiđ vel ađ mati Ţorbjörns Gíslasonar skákkennara viđ skólann sem er fulltrúi skólans í verkefninu. Kvöldiđ fyrir kennsluna tefldu bćđi Stefán og Ţorbjörn á Hausthrađskákmóti ungmennafélagsins Kormáks. Á ţví móti tefldu ellefu keppendur og ţar á međal sveitarstjórinn hún Guđný Hrund Karlsdóttir sem tefldi eitt sinn einvígi um Íslandsmeistaratitil kvenna. Stefán hafđi sigur á mótinu en í öđru sćti varđ Daníel Sigurđsson sem er sonur hins mikla sóknarskákmanns Sigurđar Daníelssonar. Skákstjóri á mótinu var Magnús Vignir Eđvaldsson sem er íţróttakennari skólans. Teflt var viđ afar góđar ađstćđur á hinum glćsilega veitingarstađ Sjávarborg.
Nokkuđ skáklíf er í sveitarfélaginu og hittast menn annađ veifiđ og tefla en Skákfélag Hvammstanga var eitt af stofnfélögum Skáksambandsins áriđ 1925.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:49 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2016 | 23:18
Bárđur Örn unglingameistari Íslands - fékk Sveinsbikarinn ađ launum
Unglingameistaramót Íslands fór fram um um helgina 4.-6. nóvember. Bárđur Örn Birkisson vann öruggan sigur á mótinu. Bárđur hafđi vinningsforskot fyrir lokaumferđina. Ţrátt fyrir ţađ tefldi hann til vinnings gegn Nansý Davíđsdóttir (1901) og uppskar sigur og fleiri skákstig í sarpinn. Međ ţessum árangri tryggđi hann sér keppnisrétt í landsliđsflokki Íslandsmótsins í skák 2017. Vel ađ verki stađiđ hjá ţessum unga og efnilega skákmanni sem fćddur áriđ 2000.
Dagur Ragnarsson (2244) vann Gauta Pál Jónsson (2036) í lokaumferđinni og krćkti sér ţar međ í annađ sćti. Dagur byrjađi hrćđilega á mótinu - hafđi ađeins einn vinning eftir 3 umferđir en vann svo ţrjár síđustu skákirnar og krćkti sér í silfur. Gauti og Nansý urđu í 3.-4. sćti međ 3,5 vinninga. Bronsiđ varđ Gauta eftir stigaútreikning.
Mótiđ nú var til minningar um Svein Gunnar Gylfason unglingameistara Íslands áriđ 1980. Sveinn Gunnar, sem var frá Keflavík, vann mótiđ mjög óvćnt - enda ađeins 14 ára og sló ţar viđ reyndum meisturum eins og Guđmundi Gíslasyni, Lárus Jóhannessyn og fleirum. Sveinn lést nokkrum dögum fyrir 17 ára afmćli sitt og var ţá međal keppenda í áskorendaflokki Skákţings Íslands í Garđabć ţegar hann veiktist skyndilega og var allur nokkrum dögum síđar.
Ţađ var fjölskylda Sveins sem gaf nýjan farandbikar - Sveinsbikarinn - sem nú var var veittur í fyrsta skipti. Ţađ var systir Sveins, Bára Kolbrún Gylfadóttir, sem afhenti Íslandsmeistaranum bikarinn nýja.
Međal viđstaddra var einnig Sveinn Rúnar Hauksson, unglingameistari Íslands 1962 en hann var náfrćndi Sveins Gunnars.
Myndirnar tók Guđmundur Ólafsson.
Spil og leikir | Breytt 8.11.2016 kl. 23:30 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2016 | 22:22
Meistaramót Víkingaklúbbsins (yngri flokkar)
Meistaramót Víkingaklúbbsins fyrir yngri flokka (Haustmótiđ) fer fram miđvikudaginn 9. nóvember í Víkingsheimilinu og hefst ţađ kl 17.15. Telfdar verđa 6. umferđir međ 7. mínútna umhugsunartíma Veitt verđa verđlaun fyrir ţrjú efstu sćtin, auk ţess sem efsti Víkingurinn í stráka og stelpuflokki fá viđurkenningapening.
Telft verđur í einum flokki, en efsti einstaklingur hvers árgangs fćr verđlaunapening. Mótiđ er opiđ öllum ungmennum fćdd 2001 og síđar og ţátttaka er ókeypis. Skákstjóri á mótinu verđur Stefán Bergsson. Núverandi meistari Víkingaklúbbsins er Jón Hreiđar Rúnarsson.
Skráning fer fram á hér á Skák.is (guli kassinn efst). Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:30 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2016 | 17:34
Spennandi önnur umferđ í U-2000 mótinu
Harđfiskur og símagambítur var međal ţess sem kom viđ sögu í rafmagnađri annari umferđ U-2000 mótsins sem fór fram á miđvikudagskvöld. Dýrđarinnar ilmur frá veigum ţeim er á bođstólum voru í Birnu-kaffi steig innum skynfćri ţeirra ríflega fjörutíu skáksála sem stigu inn í Skákhöllina úr hinu dimma myrkri hins íslenska veturs.
Á fyrsta borđi stýrđi Haraldur Baldursson (1957) svörtu mönnunum gegn Ađalsteini Thorarensen (1714) og líkt og í fyrstu umferđ virtist Haraldur sigla sigrinum nokkuđ örugglega og án mikilla láta í höfn. Af fyrstu tveimur umferđunum ađ dćma virđist ljóst ađ sigurvegari mótsins í fyrra verđur mjög erfiđur viđ ađ eiga og klárt ađ keppendur ţurfa ađ beita kćnskubrögđum og jafnvel fantabrögđum til ađ leggja Harald.
Ţó svo ađ fátt vćri um óvćnt úrslit er ţađ engan vegin til marks um spennustigiđ sem var í loftinu og til marks um ţađ hve jafnar og spennandi viđureignirnar voru má nefna ţađ ađ klukkan ellefu um kvöldiđ var meira en ţriđjungi skákanna enn ólokiđ. Síđasti bardaganum lauk ekki fyrr en ađfaranótt fimmtudagsins og virtist öđrum keppandanum umhugađ um hag skákstjórans ţví hann kallađi til hans hátt og snjallt hvort hann vćri ekki orđinn ţreyttur. Tók mótherjinn ţessu međ jafnađargeđi en benti ţó kurteisislega á ađ hann ćtti einungis 30 sekúndur eftir á klukkunni!
Í einni viđureign varđ keppandi fyrir ţví óláni ađ sími hans hringdi og ţví lítiđ annađ ađ gera en ađ dćma tap vegna hins svokallađa símagambíts. Er ţví rétt ađ ítreka ţau tilmćli til keppenda ađ skilja einfaldlega allan slíkan rafeindabúnađ eftir ţegar taflmennska í mótum er annarsvegar.
Ţegar skammt var liđiđ á umferđ kvöldsins gaus upp hin sérkennilegasta lykt sem virtist engan veginn geta komiđ frá hinu rómađa Birnu-kaffi. Fóru fljótlega ađ berast ábendingar um ţetta og viđ nánari eftirgrennslan kom í ljós ađ einn keppenda var einfaldlega ađ gćđa sér á dýrindis harđfiski sem er auđvitađ allra meina bót. Brást hlutađeigandi hinn besti viđ beiđni um ađ fara rólega í fiskinn og hafa pokann eins mikiđ lokađan og mögulegt vćri.
Ţađ liggur fyrir ađ í afar athyglisvert og spennandi mót stefnir en ţriđja umferđ verđur tefld nćstkomandi miđvikudagskvöld og ađ venju verđa tímavélarnar rćstar klukkan 19.30. Mćtast ţá m.a. Haraldur og Hilmar Ţorsteinsson (1800), Dawid og Veronika Steinunn Magnúsdóttir (1778), sem og Héđinn Briem (1588) og Kjartan Ingvarsson.
Skákir mótsins eru ađgengilegar hér ađ neđan en ţađ er sem fyrr Dađi Ómarsson sem slćr ţćr inn hratt og örugglega. Ţá má einnig kíkja á myndir frá mótinu og vert er ađ minna á ađ Birnu-kafffi verđur opiđ ţar sem í bođi er kaffi og ađrar ljúffengar veitingar fyrir keppendur og áhorfendur.
- Chess-Results
- Skákirnar: 1 2
7.11.2016 | 13:13
Benedikt Briem sigrađi á gríđar spennandi Bikarsyrpumóti
Vel skipađ og fjölmennt annađ mót Bikarsyrpu TR fór fram um helgina og má međ sanni segja ađ spennan hafi náđ hámarki í lokaumferđinni ţví úrslit réđust ekki fyrr en ađ síđustu skákum lauk. Fyrir sjöundu og síđustu umferđ var Benedikt Briem efstur međ 5,5 vinning en nćst međ 4,5 vinning komu Stefán Orri Davíđsson, Örn Alexandersson, Magnús Hjaltason og Batel Goitom.
Bikarmót stúlkna fór nú fram í fyrsta sinn samhliđa Bikarsyrpunni. Fyrirkomulagiđ var međ sama sniđi og í Bikarsyrpunni undanfarin tvö ár, ţ.e. 5 umferđir tefldar međ 30 mín. umhugsunartíma og 30 sek. viđbótartíma fyrir hvern leik.
Allt var til stađar sem tilheyrir skemmtilegu og lćrdómsríku skákmóti: gildrur, gafflar og leppanir sem höfđu sviftingar í för međ sér svo og mát í miđtafli og endatafli. Allt fer ţetta í reynslubankann!
Úrslitin urđu sem hér segir:
1. Elsa Kristín Arnaldardóttir, TR, 3,5 vinninga af 4.
2. Katrín María Jónsdóttir, TR, 2,5 v.
3. Iđunn Helgadóttir, TR, 2 v.
4. Karen Ólöf Gísladóttir, TR, 1 v.
5. Bergţóra Helga Gunnarsdóttir, Víkingaklúbbnum, 1 v.
Elsa Kristín hlaut bikar í verđlaun, Katrín María fékk silfurmedalíu og Iđunn bronsmedalíu. Allar stúlkurnar fengu bókaverđlaun.
Öll úrslit ásamt lokastöđu má sjá finna á heimasíđu TR.
Viđ í TR óskum verđlaunahöfum til hamingju og ţökkum öllum fyrir ţátttökuna. Vonumst til ađ sjá ykkur sem flest í ţriđja móti syrpunnar sem fer fram helgina 2.-4. desember og ţá munum viđ einnig halda áfram međ Bikarmót stúlkna. Mótin verđa auglýst ţegar nćr dregur.
7.11.2016 | 12:02
Ólafur Hlynur atskákmeistari SSON
Atskákmót Skákfélags Selfoss og nágrennis var haldiđ í Fischerseti 5. nóvember. Tímamörk voru 15. mín og tefldu allir viđ alla.
Úrslit:
1. Ólafur Hlynur Guđmarsson 6 v.
2.-3. Björgivn Smári og
John Ontiveros 5,5 v.
4. Sverrir Unnarsson 4,5 v.
5. Ţórđur Guđmundsson 3 v.
6, Ţorvaldur Siggason 2.v
7. Magnús Garđarsson 1,5 v.
7.11.2016 | 07:00
Hrađskákmót Hugins fer fram í kvöld
Hrađskákmót Hugins í Mjóddinni verđur haldiđ mánudaginn 7. nóvember nk. Teflt er í félagsheimili Hugins í Álfabakka 14a og hefst tafliđ kl. 20. Tefldar verđa 7 umferđir, tvöföld umferđ, međ umhugsunartímanum 4 mínútur + 2 sekúndur á hvern leik.
Mótiđ verđur reiknađ til hrađskákstiga. Heildarverđlaun á mótinu eru kr. 20.000.
Núverandi hrađskákmeistari Hugins er Hjörvar Steinn Grétarsson. Ţetta er í tuttugasta of fyrsta sinn sem mótiđ fer fram. Björn Ţorfinnsson og Davíđ Ólafsson hafa hampađ titlinum oftast eđa fjórum sinnum.
Verđlaun skiptast svo:
- 10.000 kr.
- 6.000 kr.
- 4.000 kr.
Ţátttökugjöld eru kr. 400 fyrir félagsmenn en kr. 600 fyrir ađra. Fyrir unglinga í Huginn eru ţau kr. 300 en kr. 400 fyrir ađra.
Spil og leikir | Breytt 3.11.2016 kl. 10:14 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 0
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 115
- Frá upphafi: 0
Annađ
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 91
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar