Fćrsluflokkur: Spil og leikir
17.12.2016 | 10:19
Jólamót KR og Gallery Skákar
Ađ venju verđa síđustu skákmótin fyrir Jól í Vesturbćnum haldin međ sérstöku jólaívafi, međ góđum vinningum fyrir efstu menn og óvćntum jólaglađningi fyrir heppna útvalda.
Árdegismótin á laugardagsmorgnum kl. 10.30 -13.00 allan ársins hring á vegum KR og Gallerý Skákar hafa veriđ vel sótt og vaxiđ ađ vinsćldum. Teldar eru 9 umferđir. Á Litla-Jólamótinu nú í morgunsáriđ verđur Jólabjór og konfekt í verđlaun auk ţess sem vinningar verđa dregnir út.
Mánudagsmót KR eru fyrir löngu orđin föst og vinsćl hefđ í skáklífinu. Ţau eru einnig haldin allan ársins hring nema stórhátíđir eđa ađrir viđburđir hamli, ţá daginn eftir. Stóra-Jólamót KR verđur haldiđ á mánudagskvöldiđ kemur, ţann 19 desember. Telfdar verđa 13 umferđir međ 7 mín. umhugsunartíma. Mótin eru öllum opin og jafnt ungir sem aldnir hvattir til ađ mćta.
16.12.2016 | 13:23
Jólapakkamót Hugins fer fram á sunnudaginn
Jólapakkaskákmót Hugins verđur haldiđ sunnudaginn 18. desember nk. í Álfhólsskóla (Hjallaskóli Álfhólsvegi 120). Mótiđ hefst kl. 13 og er ókeypis á mótiđ. Mótiđ er fyrir börn og unglinga og fer nú fram í 19. skipti en ţađ var fyrst haldiđ fyrir jólin 1996. Síđan hefur ţađ veriđ haldiđ nánast á hverju ári og hefur alltaf veriđ eitt fjölmennasta skákmót ársins.
Keppt verđur í allt ađ 6 flokkum:
- Flokki fćddra 2001-2003
- Flokki fćddra 2004-2005
- Flokki fćddra 2006-2007
- Flokki fćddra 2008-2009
- Flokki fćddra 2010 síđar
- Peđaskák fyrir ţau yngstu
Tefldar verđa 5 umferđir međ 10 mínútna umhugsunartíma á mann. Jólapakkar eru í verđlaun fyrir 3 efstu sćtin í hverjum aldursflokki fyrir sig fyrir bćđi drengi og stúlkur. Auk ţess verđur happdrćtti um 3 jólapakka í hverjum aldursflokki fyrir sig.
15.12.2016 | 17:54
Forsetinn heiđursgestur á fjölbreyttri jólahátíđ Hróksins á laugardaginn
Guđni Th. Jóhannesson forseti Íslands verđur heiđursgestur á Jólahátíđ Hróksins, sem haldin verđur laugardaginn 17. desember milli klukkan 14 og 17 í Pakkhúsi Hróksins, Geirsgötu 11, viđ Reykjavíkurhöfn. Fjölbreytt dagskrá verđur í höfuđstöđvum Hróksins, sem alla jafnan eru einkum notađar sem miđstöđ fatasöfnunar í ţágu grćnlenskra barna og ungmenna.
Bjartmar Guđlaugsson rithöfundur og tónlistarmađur, Jóhannes Kristjánsson eftirherma og Linda Guđmundsdóttir harmónikkuleikari frá Finnbogastöđum munu skemmta gestum, Gáttaţefur rekur inn nefiđ og Stekkjarstaur teflir viđ gesti og gangandi. Ţá verđur myndasýning frá starfi Hróksins á Íslandi og Grćnlandi, og margt áhugavert á bođstólum á bóka- og flóamarkađi í ţágu starfs Hróksins. Gómsćtar vöfflur og kökur og rjúkandi kakó verđa líka í bođi. Ţar munu konur úr prjónahópi Gerđubergs standa vaktina, en ţćr eru mjög virkar í starfi Hróksins.
Starfiđ á heimavelli hefur ekki veriđ síđur fjölbreytt. Hróksmenn hafa heimsótt Barnaspítala Hringsins flesta fimmtudaga, en ţćr heimsóknir hófust áriđ 2003 og hafa skapađ óteljandi gleđistundir. Ţá vinna Hróksmenn náiđ međ Vinaskákfélaginu ađ ţví ađ efla skákiđkun međal fólks međ geđraskanir og má segja ađ ţessi tvö verkefni standi hjörtum liđsmanna Hróksins nćst. Ađ auki hefur félagiđ efnt til fjölda viđburđa fyrir unga sem aldna og í vor söfnuđu Hróksmenn 3 milljónum króna í ţágu sýrlenskra flóttabarna.
Liđsmenn Hróksins starfa í anda einkunnarorđanna "Viđ erum ein fjölskylda" og vonast til ađ sem allra flestir leggi leiđ sína á jólahátíđina á laugardaginn.
15.12.2016 | 12:00
Hátt í 40 krakkar mćttu á Jólaskákćfingu Fjölnis
Hátt í 40 krakka mćttu á Jólaskákćfingu Fjölnis í gćr. Taflmennskan í fyrirrúmi og teflt var í ţremur flokkum.
Foreldrar Sigga, ţau Vala og Steini, sáu til ţess ađ allir ţátttakendur fengu sig fullsadda af veitingum og útdeildu gjafapokum međ jólakonfekti og ýmsu öđru glingri til allra.
Sigríđur Björg Helgadóttir og Jóhann Arnar Finnsson sáu um stúlknaflokkinn og yngri flokkinn.
Fyrsta ćfing á nýju ári 11. janúar kl. 16:30. Enn einu frábćru haustćfingamisseri hjá Fjölni lokiđ
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:54 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
15.12.2016 | 10:50
Hrađskákmót Hugins á Húsavík fer fram 19. desember
Mánudagskvöldiđ 19. desember kl 20:00 fer fram okkar árlega hrađskákmót. Mótiđ fer fram í Framsýnarsalnum á Húsavík. Tefldar verđa skákir međ 5 mín umhugsunartíma á mann og allir viđ alla. Mótiđ verđur reiknađ til hrađskákstiga hjá FIDE.
Tómas Veigar Sigurđarson vann mótiđ í fyrra međ mikilum yfirburđum, en Smári Sigurđsson hefur unniđ ţetta mót oftast í gegnum tíđina.
Verđlaun veitt í fullorđinsflokki og U-16 ára til ţriggja efstu í hvorum flokki. Nánari útfćrsla og umferđafjöldi fer ţó mjög eftir fjölda keppenda.
Ţátttökugjald er krónur 500 á alla keppendur.
Vonast er eftir góđri ţátttöku í mótinu og eru áhugasamir beđnir um ađ skrá sig til leiks međ ţví ađ senda póst á lyngbrekku@simnet.is eđa hringja í Hermann í síma 4643187 eđa 8213187.
14.12.2016 | 15:07
Friđriksmót Landsbankans fer fram á laugardag - enn örfá sćti laus í mótiđ!
Friđriksmót Landsbankans - Íslandsmótiđ í hrađskák - fer fram í útibúi Landsbankans viđ Austurstrćti 11 laugardaginn 17. desember nk. Mótiđ hefst kl. 13 og stendur til kl. 16.30.
Efsti keppandi mótsins fćr titilinn Íslandsmeistari í hrađskák. Tímamörkin eru 4+2 og tefldar eru ellefu umferđir.
Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn efst) og er ţátttaka takmörkuđ viđ 100 manns. Nú ţegar eru 97 keppendur skráđir til leiks svo ekki eru mörg sćti eftir til ráđstöfunar.
Međal skráđra keppenda eru stórmeistararnir Jóhann Hjartarson, Helgi Áss Grétarsson, Jón L. Árnason og Ţröstur Ţórhallsson en sá síđastnefndi hefur titil ađ verja. Sex alţjóđlegir meistarar eru skráđir til leiks.
Ungir og efnilegir skákmenn sitja svip sinn á mótiđ. Okkar nýjasti FIDE-meistari, Vignir Vatnar Stefánsson lćtur sig ekki vatna. Nýlega varđ hann yngsti íslenski skákmađurinn til ađ ná 2400 skákstigum en hann er ađeins 13 ára.
Ţetta er ţrettánda áriđ í röđ sem Landsbankinn og Skáksamband Íslands standa fyrir Friđriksmótinu í skák, en mótiđ er haldiđ til heiđurs Friđriki Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga. Margir af sterkustu stórmeisturum landsins hafa undanfarin ár teflt til heiđurs Friđriki.
Verđlaun fyrir efstu sćti eru eftirfarandi:
- 100.000 kr.
- 60.000 kr.
- 50.000 kr.
- 30.000 kr.
- 20.000 kr.
Séu tveir eđa fleiri jafnir í efsta sćtinu verđur stigaútreikningur látinn ráđa Íslandsmeistaratitlinum. Verđlaunafé skiptist eftir Hort-kerfinu.
Aukaverđlaun
- Efsti mađur međ 2001-2200 skákstig 10.000 kr.
- Efsti mađur međ 2000 stig og minna: 10.000 kr.
- Efsta konan: 10.000 kr.
- Efsti strákur 16 ára og yngri (2000 eđa síđar): 10.000 kr.
- Efsta stúlka 16 ára og yngri (2000 eđa síđar): 10.000 kr.
- Efsti eldri skákmađur (1956 eđa fyrr): 10.000 kr.
- Útdreginn heppinn keppandi: 10.000 kr.
Aukaverđlaun eru miđađ viđ alţjóđleg hrađskákstig 1. desember sl.(alţjóđleg og íslensk skákstig til vara hafi menn ekki alţjóđleg hrađskákstig). Stigaútreikningur rćđur séu menn jafnir og efstir.
Hver keppandi getur ađeins unnin ein aukaverđlaun og eru aukaverđlaunin valin í ţeirri röđ sem fram kemur ađ ofan.
Mótiđ er reiknađ til alţjóđlegra hrađskákstiga.
Fyrri sigurvegarar
- 2015 - Ţröstur Ţórhallsson
- 2014 - Héđinn Steingrímsson
- 2013 - Helgi Ólafsson
- 2012 - Bragi Ţorfinnsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Jón Viktor Gunnarsson
- 2011 - Henrik Danielsen
- 2010 - Jón Viktor Gunnarsson og Ţröstur Ţórhallsson
- 2009 - Héđinn Steingrímsson
- 2008 - Helgi Ólafsson
- 2007 - Héđinn Steingrímsson
- 2006 - Helgi Áss Grétarsson
- 2005 - Jón Viktor Gunnarsson og Arnar E. Gunnarsson
- 2004 - Jóhann Hjartarson og Stefán Kristjánsson
14.12.2016 | 10:10
Wesley So efstur í London
Bandaríski stórmeistarinn Wesley So (2794) er efstur međ 3˝ vinning ađ loknum fimm umferđum á London Chess Classic. Filippseyingurinn fyrrverandi virđist vera í afar góđu formi ţessa dagana og er nú kominn yfir 2800 skákstigum samkvćmt lifandi skákstigum. Nakamura (2779), Aronian (2785) Kramnik (2809) og Caruana (2823) koma nćstir međ 3 vinninga.
Slök frammistađa Topalov (2760) hefur athygli en hann hefur ađeins ˝ vinning og virđist mega muna sinn vífil fegurri.
Fjörlega hefur teflt en flestir sterkustu skákmenn heims ađ heimsmeistaranum og áskorandanum undanskyldum taka ţátt í mótinu.
Frídagur er í dag en veislan í London heldur áfram á morgun.
Ítarlega umfjöllun um ganga mála má finna á Chess24.
14.12.2016 | 09:45
Jólaskákmótiđ á Kleppi
Hiđ árlega jólaskákmót á Kleppi verđur haldiđ ţriđjudaginn 20.desember kl. 13.00. Mótiđ fer fram í hinum eina sanna samkomusal á Kleppi. Viđ lofum flottri jólastemmningu , heitu jólakaffi, girnilegu međlćti, og glćsilegum vinningum (verđlaunapeningar og bókavinningar).
Mótiđ er liđakeppni ( ţrír einstaklingar í liđi ) Allar deildir bćđi á Kleppi og á Landspítalanum, athvörf og búsetukjarnar geta tekiđ ţátt. Ef vandrćđi er ađ smala saman í liđ, ţá er ţađ engin fyrirstađa, hćgt er búa til liđ úr samsettum deildum, búsetukjörnum eđa athvörfum, (oft eru liđin púsluđ saman á mótstađ) Fyrst og fremst er ađ mćta, og taka jólaskapiđ međ. Ađ mótinu standa Vinaskákfélagiđ og Skákfélagiđ Hrókurinn. Ef spurningar vakna er hćgt ađ hafa samband viđ Hörđ Jónasson sími 777 4477 eđa Róbert Lagerman sími 696 9658. Allir hjartanlega velkomnir, áhorfendur sem keppendur.
14.12.2016 | 07:00
Jólamót Víkingaklúbbsins haldiđ í dag
Jólamót Víkingaklúbbsins fyrir börn og unglinga verđur haldiđ í Víkinni Víkingsheimilinu miđvikudaginn 14. desember. Telfdar verđa 5. umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma á mann. Mótiđ hefst mótiđ kl. 17.15. Allir krakkar/unglingar á grunnskólaaldri eru velkomnir og ţátttaka er ókeypis. Veitt verđa verđlaun fyrir 3. efstu sćtin, auk ţess sem ţrjár eftstu stúlkur fá verđlaun. Einnig eru verđlaun fyrir ţrjá efstu félagsmenn í stúlku og drengjaflokki, auk ţess sem efsti einstaklingur í hverjum árgangi fćr medalíu.
Barna og unglingaćfingar voru vikulega í vetur, en nćsta ćfing eftir jólafríđ verđur miđvikudaginn 11. janúar og verđa ćfingar vikulega fram á vor.
Skráning á mótiđ fer m.a fram á netfangiđ: vikingaklubburinn(hjá)gmail.com og á skak.is (guli kassinn), ţs ţegar sá kassi verđur tilbúinn!
Nánari upplýsingar veitir Gunnar (gsm: 8629744).
Úrslit mótsins 2015 hér:
Úrslit 2014 hér:
Úrslit 2013 hér:
Úrslit 2012 hér:
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 09:05 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
13.12.2016 | 09:35
Jólapakkamót Hugins fer fram á sunndaginn í Álfhólsskóla
Jólapakkaskákmót Hugins verđur haldiđ sunnudaginn 18. desember nk. í Álfhólsskóla (Hjallaskóli Álfhólsvegi 120). Mótiđ hefst kl. 13 og er ókeypis á mótiđ. Mótiđ er fyrir börn og unglinga og fer nú fram í 19. skipti en ţađ var fyrst haldiđ fyrir jólin 1996. Síđan hefur ţađ veriđ haldiđ nánast á hverju ári og hefur alltaf veriđ eitt fjölmennasta skákmót ársins.
Keppt verđur í allt ađ 6 flokkum:
- Flokki fćddra 2001-2003
- Flokki fćddra 2004-2005
- Flokki fćddra 2006-2007
- Flokki fćddra 2008-2009
- Flokki fćddra 2010 síđar
- Peđaskák fyrir ţau yngstu
Tefldar verđa 5 umferđir međ 10 mínútna umhugsunartíma á mann. Jólapakkar eru í verđlaun fyrir 3 efstu sćtin í hverjum aldursflokki fyrir sig fyrir bćđi drengi og stúlkur. Auk ţess verđur happdrćtti um 3 jólapakka í hverjum aldursflokki fyrir sig.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:57 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 16
- Sl. sólarhring: 18
- Sl. viku: 117
- Frá upphafi: 8778389
Annađ
- Innlit í dag: 14
- Innlit sl. viku: 91
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 12
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar