Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Smári hrađskákmeistari Hugins á Húsavík

IMG_6665Smári Sigurđsson vann öruggan sigur á hinu árlega hrađskákmóti Hugins sem fram fór á Húsavík í kvöld. Smári fékk níu vinning og komst taplaus í gegnum mótiđ, en hann vann átta skákir og gerđi tvö jafntefli.

Hjörleifur Halldórsson varđ í öđru sćti á mótinu međ 7,5 vinninga og Sigurđur Daníelsson varđ ţriđji međ 7 vinninga. Smári Ólafsson varđ í 4. sćti međ 7 vinninga og Tómas Veigar Sigurđarson varđ í 5. sćti međ 6 vinninga. Ţar sem Hjörleifur og Smári Ólafsson kepptu sem gestir á mótinu fékk Sigurđur Daníelsson sifurverđlaun og Tómas Veigar bronsiđ.

11 keppendur tóku ţátt í mótinu og tefld var einföld umferđ, allir viđ alla.

Lokastađan á Chess-Results.


Atskákmót Skákklúbbs Icelandair - Íslandsmótiđ í atskák fer fram 26. desember

1.-Whales-of-Iceland

Atskákmót Skákklúbbs Icelandair – Íslandsmótiđ í atskák fer fram mánudaginn 26. desember í húsakynnum http://whalesoficeland.is/ á Granda og hefst kl. 13:00 keppendur eru hvattir til ađ mćta tímanlega. 

Whales of Iceland opnar kl 10:00 fyrir ţá sem vilja skođa sýninguna fyrir mót.
Stađsetningin: https://goo.gl/maps/JzsfBuhpqTk

Tefldar verđa 9 umferđir eftir svissneska kerfinu međ 10 mín. + 5 sek. umhugsunartíma. Teflt verđur í einum flokki.

Ţátttökugjald: 3.000 Kr. og 2.000 Kr. fyrir 12 og yngri. Stórmeistarar og alţjóđlegir meistarar fá frítt í mótiđ en FM-meistararar greiđa 1.500 kr.

2012 Icelandair 038

Ţátttakendur fá međ sér tvo á gestalista á hvalasýninguna sem er alveg mögnuđ.  Ađrir mótsgestir borga 1.000 kr sem er einnig ađgangseyrir á hvalasýninguna.

Greitt verđur viđ innganginn. 

Teflt verđur í baksal viđ góđ skilyrđi. 

Verđlaunin fyrir efstu ţrjú sćtin í mótinu eru:

  1. 100.000 kr.
  2. 50.000 kr.
  3. 25.000 kr.

Verđlaun skiptast eftir Hort-kerfi. 

Einnig verđa veitt verđlaun fyrir efsta keppandann í fjórum undirflokkum.

Efsti keppandinn í hverjum flokki fćr farmiđa fyrir tvo til Evrópu međ Icelandair (skattar ekki innifaldir) 

  • 2300-yfir
  • 2000-2299
  • 1700-1999
  • 0-1699

Einnig verđa veitt verđlaun fyrir: 

  • Óvćntasta sigurinn: 40.000 inneign hjá Flugfélaginu fyrir óvćntasta sigurinn samkvćmt stigamun.
  • Efsta unglinginn fćddan 2001 eđa síđar sem fćr 40.000 kr inneign hjá Flugfélagi Íslands.
  • Bestan árangur miđađ viđ stig sem fćr gjafabréf fyrir tvo hjá Eldingu í hvalaskođun. 

Útdráttarverđlaun:

  • 10.000 vildarpunktar hjá Saga Club 

Miđađ verđur viđ atskákstig FIDE stig 1. des -> annars FIDE stig -> annars íslensk stig 1. des -> svo frammistöđu á síđasta atskákmóti ef fyrir hendi annars 1.500 stig.

Verđa tveir eđa fleiri jafnir í verđlaunaflokkum gildir stigaútreikningur. Sama gildir um Íslandsmeistaratitilinn.

Skráning fer fram í gula kassanum efst Skák.is og stendur til kl. 23:59 ţann 25. desember og hér er hćgt ađ sjá ţegar skráđa keppendur. 

Nánari upplýsingar veitir Óskar Long Einarsson  ole@icelandair.is.

Núverandi Íslandsmeistari í atskák er Helgi Ólafsson stórmeistari í skák. 


Skákţing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 8. janúar

SkakthingReykjavikurLogo17

Skákţing Reykjavíkur hefst sunnudaginn 8. janúar kl. 13. Tefldar verđa níu umferđir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 90 mínútur og bćtast viđ 15 mínútur eftir 40 leiki. 30 sekúndur bćtast viđ eftir hvern leik alla skákina. Teflt er í húsnćđi Taflfélags Reykjavíkur ađ Faxafeni 12.

Keppendur geta tekiđ tvćr yfirsetur (bye) í umferđum 1-6. Leggja skal inn ósk um yfirsetu til skákstjóra áđur en parađ er í viđkomandi umferđ. Hálfur vinningur fćst fyrir yfirsetu.

Athygli er vakin á ţví ađ umferđir á sunnudögum hefjast kl. 13:00.

Dagskrá

1. umferđ sunnudag 8. janúar kl. 13.00
2. umferđ miđvikudag 11. janúar kl. 19.30
3. umferđ sunnudag 15. janúar kl. 13.00
4. umferđ miđvikudag 18. janúar kl. 19.30
5. umferđ sunnudag 22. janúar kl. 13.00
6. umferđ miđvikudag 25. janúar kl. 19.30
7. umferđ sunnudag 29. janúar kl. 13
8. umferđ miđvikudag 01. febrúar kl. 19.30
9. umferđ föstudag 03. febrúar kl. 19.30

Hrađskákmót Reykjavíkur fer fram sunnudaginn 5. febrúar kl. 13 og verđur ţá jafnframt verđlaunaafhending fyrir Skákţingiđ.

Tímamörk

90 mín á 40 leiki, síđan 15 mín, auk 30 sek eftir hvern leik alla skákina.

Skákstjórn

Yfirdómari mótsins verđur Ríkharđur Sveinsson (rz@itn.is / s.772 2990).

Ađalverđlaun

  • 1. sćti kr. 120.000
  • 2. sćti kr. 60.000
  • 3. sćti kr. 30.000

Stigaverđlaun

  • Besta frammistađa miđađ viđ eigin stig (rating performance – eigin stig) – kr. 10.000.
  • U2000 og U1800 – kr. 10.000.
  • U1600, U1400, U1200, stigalausir – bókaverđlaun.

Ćskulýđsverđlaun

  • Bókaverđlaun fyrir efstu stúlkuna og efsta piltinn í árgangaflokkum 2001-2003, 2004-2007, 2008 og yngri.

Fide stig gilda viđ úthlutun stigaverđlauna (íslensk stig til vara). Hver keppandi getur ađeins hlotiđ ein aukaverđlaun (ofangreind röđ verđlauna gildir).

Ţátttökugjöld (greiđist međ reiđufé viđ upphaf móts).

kr. 5.000 fyrir 18 ára og eldri.
kr. 2.500 fyrir 17 ára og yngri.

Skráningarform

Skráđir keppendur

Keppt er um titilinn “Skákmeistari Reykjavíkur 2017” og hlýtur sá keppandi sem verđur efstur ţeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eđa eru félagsmenn í reykvísku skákfélagi, titilinn og farandbikar til varđveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er alţjóđlegi meistarinn Jón Viktor Gunnarsson.

Verđi keppendur jafnir ađ vinningum í ţremur efstu sćtunum, verđur verđlaunum skipt (Hort útreikningur), en stigaútreikningur (tiebreaks) látinn skera úr um verđlaunasćti. Í öđrum verđlaunaflokkum ganga verđlaun óskipt til ţess sem hefur flest stig eftir stigaútreikning. Stigaútreikningur verđur eftirfarandi: 1. Sonneborn-Berger 2. Innbyrđis úrslit 3. Fjöldi sigra 4. Median Buchholz.

Skákţing Reykjavíkur er reiknađ til alţjóđlegra skákstiga. Skákir mótsins verđa slegnar inn og birtar á pgn formi.

Vinsamlegast mćtiđ tímanlega á skákstađ til ađ stađfesta skráningu og greiđa ţátttökugjald. Skráningu lýkur 15 mínútum fyrir auglýst upphaf móts, ţ.e. kl. 12.45.


Jólaskákmótiđ á Kleppi fer fram í dag

Hiđ árlega jólaskákmót á Kleppi verđur haldiđ ţriđjudaginn 20.desember kl. 13.00. Mótiđ fer fram í hinum eina sanna samkomusal á Kleppi. Viđ lofum flottri jólastemmningu , heitu jólakaffi, girnilegu međlćti, og glćsilegum vinningum (verđlaunapeningar og bókavinningar).

Mótiđ er liđakeppni ( ţrír einstaklingar í liđi ) Allar deildir bćđi á Kleppi og á Landspítalanum, athvörf og búsetukjarnar geta tekiđ ţátt. Ef vandrćđi er ađ smala saman í liđ, ţá er ţađ engin fyrirstađa, hćgt er búa til liđ úr samsettum deildum, búsetukjörnum eđa athvörfum, (oft eru liđin púsluđ saman á mótstađ) Fyrst og fremst er ađ mćta, og taka jólaskapiđ međ. Ađ mótinu standa Vinaskákfélagiđ og Skákfélagiđ Hrókurinn. Ef spurningar vakna er hćgt ađ hafa samband viđ  Hörđ Jónasson sími 777 4477 eđa Róbert Lagerman sími 696 9658. Allir hjartanlega velkomnir, áhorfendur sem keppendur.


Glćsilegt unglingamót í Garđi

hópurinn

Glćsilegt Jólaskákmót haldiđ í fimmta sinni á vegum Samsuđ og Krakkskákar síđastliđinn17.desember. Mótiđ var haldiđ í Gerđaskóla og 48 keppendur mćttu til leiks. Ţeir voru úr flestum bćjarfélögum á Suđurnesjum. Grindvíkingar, Njarđvíkingar og Garđbúar voru fjölmennastir ţátttakanda.

ađstađa 

Nettó gaf glćsilega happadrćttisvinninga í lok mótsins eins og vanalega á ţessu skákmóti. Keppnin var spennandi allt fram á síđustu stundu. 

stelpurnar

Sigurvegarar í yngri flokki stúlkna: 

  1. Svanhildur Róbertsdóttir Grindavík
  2. Birta Eiríksdóttir Grindavík
  3. Ólöf Bergvinsdóttir Grindavík

Ţćr eru einnig núverandi Íslandsmeistarar í liđakeppni grunnskóla yngri stúlkur.

ađstađa2

Sigurvegarar í yngri flokki pilta: 

  1. Sigurđur Bergvin Ingibergsson    Grindavík
  2. Andrés Kristinn Haraldsson    Reykjanesbć
  3. Hjörtur Líndal Jónsson       Garđi

 

sandgerđi

Sigurvegarar í eldri stúlkur: 

  1. Nadía Arthúrsdóttir       Grindavík
  2. Lovísa Ólafsdóttir           Sandgerđi
  3. Aţena Rún Helgadóttir     Sandgerđi

 

njarđvik

Sigurvegarar í eldri pilta: 

  1. Sólon Siguringason Reykjanesbćr
  2. Hjörtur Jónas Klemensson Grindavík
  3. Róbert Birmingham  Reykjanesbćr

Stóra-Jólamót KR verđur í kvöld

 

JÓLASKÁKMÓT KR 2013  - ESE

Mánudagsmót KR eru fyrir löngu orđin föst og vinsćl hefđ í skáklífinu. Ţau eru  einnig haldin allan ársins hring nema stórhátíđir eđa ađrir viđburđir hamli, ţá daginn eftir.  Stóra-Jólamót KR verđur haldiđ á mánudagskvöldiđ kemur, ţann 19 desember. Telfdar verđa 13 umferđir međ 7 mín. umhugsunartíma. Mótin eru öllum opin og jafnt ungir sem aldnir hvattir til ađ mćta.   


Hrađskákmót Hugins á Húsavík fer fram í kvöld

Tómas-Veigar-15-mín-250x167Mánudagskvöldiđ 19. desember kl 20:00 fer fram okkar árlega hrađskákmót. Mótiđ fer fram í Framsýnarsalnum á Húsavík. Tefldar verđa skákir međ 5 mín umhugsunartíma á mann og allir viđ alla. Mótiđ verđur reiknađ til hrađskákstiga hjá FIDE.

Tómas Veigar Sigurđarson vann mótiđ í fyrra međ mikilum yfirburđum, en Smári Sigurđsson hefur unniđ ţetta mót oftast í gegnum tíđina.

Verđlaun veitt í fullorđinsflokki og U-16 ára til ţriggja efstu í hvorum flokki. Nánari útfćrsla og umferđafjöldi fer ţó mjög eftir fjölda keppenda.

Ţátttökugjald er krónur 500 á alla keppendur.

Vonast er eftir góđri ţátttöku í mótinu og eru áhugasamir beđnir um ađ skrá sig til leiks međ ţví ađ senda póst á lyngbrekku@simnet.is eđa hringja í Hermann í síma 4643187 eđa 8213187.


Jóhann Hjartarson Íslandsmeistari í hrađskák eftir sigur á Friđriksmóti Landsbankans

_MG_0044

Friđriksmót Landsbankans - Íslandsmótiđ í hrađskák fór fram viđ glćsilegar ađstćđur í útibúi bankans í Austurstrćti 11 í gćr. Alls tóku 98 skákmenn ţátt í mótinu og hafa aldrei veriđ fleiri. Mótiđ hófst međ ţví ađ Ţorsteinn Ţorsteinsson, útibússtjóri, lék fyrsta leikinn fyrir Jóhann Hjartarson gegn Björvini Ívarssyni Schram, d2-d4. 

_MG_9552

Upphafsleikur Ţorsteins dugđi Jóhanni vel ţví hann vann fimm fyrstu skákirnar. Ţá vann Jón Viktor Gunnarsson stórmeistarann og náđi forystunni. Eftir átta umferđir voru Jóhann og Jón efstir međ 7 vinninga. Ţá gerđi Björn Ţorfinnsson sér lítiđ fyrir og lagđi Jón Viktor ađ velli. Jóhanni fatađist hins vegar aldrei flugiđ og endađi mótiđ eins og hann byrjađi ţađ - međ fimm vinningsskákum í röđ! Hlaut 10 vinninga í 11 skákum. 

_MG_0027

Jón varđ í 2.-3. sćti ásamt Arnar E. Gunnarssyni en ţeir hlut 9 vinninga. Ţađ vinningshlutfall hefur oftsinnis dugađ til sigurs á mótinu en Jóhann kom í veg fyrir allt slíkt nú. 

_MG_0025

Í 4.-8. sćti međ 8 vinninga urđu Einar Hjalti Jensson, brćđurnir Björn og Bragi Ţorfynnssynir, Ţröstur Ţórhallsson, sem ekki tókst ađ verja titilinn frá í fyrra og Dagur Ragnarsson. 

_MG_9583

Aukaverđlaunahfar urđu sem hér segir:

  • Efstur međ 2001-2200 hrađskákstig - Dagur Ragnarsson
  • Efstur undir 2000 hrađskákstigum - Bárđur Örn Birkisson
  • Efstur stráka 16 ára og yngri - Björn Hólm Birkisson
  • Efsta stúlka 16 ára og yngri - Nansý Davíđsdóttir
  • Efstur skákmanna 60 ára og eldri - Jón Ţorvaldsson
  • Efsta konan - Lenka Ptácníková
  • Útdreginn heppinn keppandi - Björgvin Ívarsson Schram

_MG_0066

Friđriksmóti er einfaldlega ţađ eitt ţađ allra skemmtilegasta ár hvert og mátti sjá tilhlökkun í mörgu andlitinu viđ mótsbyrjun.

_MG_9869

Fjöldi áhorfenda mćtti á skákstađ og mátti sjá spennuna skína úr hverju andliti en einni skák úr hverri umferđ var varpađ uppá skjá. 

_MG_9916

Í mótslok var Sćmundur Pálsson, Sćmi rokk, sem varđ áttrćđur fyrr á árinu heiđrađur af Skáksambandinu. Fékk Sćmi afhent gullmerki Skáksambandsins. Í rćđu Gunnars Björnssonar, forseta SÍ, var honum sérstaklega ţakkađ fyrir ađstođ hans viđ Bobby Fischer, á međan einvíginu aldarinnar stóđ en Sćmi var ţá kallađur af Fischer; "My friend Sćmi". Sćmundur átti líka sinn ţátt í björgun Fischers úr fangelsi í Japan ásamt RJF-nefndinni svonefndu. 

_MG_9544

Skáksamband Íslands vill nota tćkifćriđ til ađ ţakka Landsbankanum fyrir frábćrt samstarf í kringum mótiđ. 

Lokastöđu mótsins má finna á Chess-Results.

Myndir frá mótinu má finna hér


Skákţáttur Morgunblađsins: Mark Taimanov var frćgastur fyrir einvígiđ viđ Fischer

GT610JJH1 (1)Hann var gćfumađur í lífinu en er samt frćgastur fyrir ađ tapa međ núlli í einvígi viđ Bobby Fischer í Vancouver í Kanada voriđ 1971. Rússneski stórmeistarinn Mark Taimanov sem lést ţann 28. nóvember sl., 90 ára ađ aldri, var eitt af óskabörnum Sovétríkjanna; hann lék kornungur stórt hlutverk í frćgri kvikmynd um Beethoven, fékk tónlistaruppeldi sem aflađi honum heimsfrćgđar sem m.a. kom fram í ţví ađ verk sem hann flutti tvíhent međ fyrstu eiginkonu sinni Kjuob Bruk var nýlega gefiđ út af stóru forlagi, Philips & Steinway, undir titlinum Great pianists of the 20th century. Löngu fyrir einvígiđ viđ Fischer var Taimanov landsfrćgur hér – fyrst ţegar hann tapađi fyrir Friđriki Ólafssyni á skákmótinu í Hastings um áramótin 1955–´56 og nokkrum vikum síđar tefldi hann hér á landi en jafnteflisskák viđ Benóný Benediktsson á Guđjóns-mótinu verđur lengi í minnum höfđ. Ţetta sama ár varđ Taimanov Sovétmeistari eftir aukakeppni viđ Spasskí og Averbakh.

Taimanov mátti ţola margháttađar kárínur af hendi yfirvalda ţegar hann sneri til baka eftir einvígiđ viđ Fischer. Tollverđir veiddu upp úr farangri hans bannfćrđa bók eftir Alexandr Solzhenitsyn og erlendan gjaldeyri. Fyrir ţessar syndir en fyrst og fremst 0:6 tapiđ var hann settur í keppnisbann og farbann, sviptur launum, titlum og tćkifćrum og var um skeiđ ţađ sem kalla mátti óćskileg persóna í Sovét. Ţegar eiginkonan svo yfirgaf hann leystist hinn frćgi píanó-dúett sjálfkrafa upp. Um ţetta tímabil skrifađi Taimanov síđar bókina: Hvernig ég varđ fórnarlamb Fischers.

Um mitt sumar 1971 mildađist ţó afstađan til hans; Bent Larsen tapađi nefnilega líka 0:6 fyrir Fischer og svo féll síđasta vígiđ; Tigran Petrosjan steinlá um haustiđ í Buenos Aires, 2 ˝ : 6 ˝, og Bobby Fischer vann réttinn til ađ skora á heimsmeistarann, Boris Spasskí.

Hlutlćg endurskođun á einvígi Fischers og Taimanovs leiđir í ljós ađ barátta ţeirra var afar innihaldsrík. Viđ undirbúning naut Taimanov ađstođar gamla heimsmeistarans Botvinniks sem sat heima en fékk leikina gefna upp í langlínusamtali. Honum var ekki skemmt ţegar Taimanov klúđrađi jafntefli í ţessari stöđu:

Vancover 1971; 2. einvígisskák:

Fischer – Taimanov

G4Q10JJ2MFischer var snillingur međ hvítreita biskupinn en Botvinnik sá á augabragđi ađ svartur gćti náđ jafntefli, 81. ... Rd3 82. h4 Rf4 83. Kf5 Kd6 84. Kxf4 Ke7 og kóngurinn kemst til h8 og stađan er frćđilegt jafntefli. Taimanov lék hinsvegar 81. ... Ke4?? og Fischer svarađi ađ bragđi, 82. Bc8! og nú var ekki nokkur leiđ ađ hindra för h-peđsins upp í borđ.

En öll él styttir upp um síđir. Hann varđ heimsmeistari öldunga áriđ 1994, kvćntist aftur og eignađist tvíbura 78 ára gamall. Taimanov hvíldi sig á skákinni međ ţví ađ spila á tónleikum og hvíldi sig á píanóleik međ ţví ađ tefla. Áriđ 1977 skein stjarna Karpovs heimsmeistara skćrt og ţeir mćttust á heimavelli:

Leningrad 1977:

Karpov – Taimanov

G4Q10JJ2QKarpov sem skynjađi hćttu betur en flestir uggđi ekki ađ sér í ţessari stöđu sem er í dínamísku jafnvćgi og lék 37. b6 en eftir 37. ... Ha1! 38. Hb1 kom alveg óvćnt 38. ... Rg3 +! og hvítur gafst upp ţví ađ 39. hxg3 er svarađ međ 39. .. Ha8! međ óverjandi máthótun á h8.

Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 10. desember 2016

Skákţćttir Morgunblađsins


Friđriksmót Landsbankans - íslandsmótiđ í hrađskák hefst kl. 13

Friđriksmótiđ 2015 LB   12 des 2015   0019

 

Friđriksmót Landsbankans - Íslandsmótiđ í hrađskák - fer fram í útibúi Landsbankans viđ Austurstrćti 11 laugardaginn 17. desember nk. Mótiđ hefst kl. 13 og stendur til kl. 16.30. 

Ríflega 100 keppendur eru skráđir til leiks. Međal skráđra keppenda eru stórmeistararnir Jóhann Hjartarson, Helgi Áss Grétarsson, Helgi Ólafsson, Jón L. Árnason og Ţröstur Ţórhallsson en sá síđastnefndi hefur titil ađ verja. Sex alţjóđlegir meistarar eru skráđir til leiks.  Okkar flestu sterkustu skákkonur er jafnframt skráđar til leiks og má ţar nefna landsliđskonurnar Lenku Ptácníková, Guđlaug Ţorsteinsdóttur, Veroniku Steinunni Magnúsdóttur og Nansý Davíđsdóttur

Ungir og efnilegir skákmenn sitja svip sinn á mótiđ. Okkar nýjasti FIDE-meistari, Vignir Vatnar Stefánsson lćtur sig ekki vatna. Nýlega varđ hann yngsti íslenski skákmađurinn til ađ ná 2400 skákstigum en hann er ađeins 13 ára.   

Ţetta er ţrettánda áriđ í röđ sem Landsbankinn og Skáksamband Íslands standa fyrir Friđriksmótinu í skák, en mótiđ er haldiđ til heiđurs Friđriki Ólafssyni, fyrsta stórmeistara Íslendinga.

Verđlaun fyrir efstu sćti eru eftirfarandi: 

  1. 100.000 kr.
  2. 60.000 kr.
  3. 50.000 kr.
  4. 30.000 kr.
  5. 20.000 kr. 

Séu tveir eđa fleiri jafnir í efsta sćtinu verđur stigaútreikningur látinn ráđa Íslandsmeistaratitlinum. Verđlaunafé skiptist eftir Hort-kerfinu. 

Aukaverđlaun 

  • Efsti mađur međ 2001-2200 skákstig 10.000 kr.
  • Efsti mađur međ 2000 stig og minna: 10.000 kr.
  • Efsta konan: 10.000 kr.
  • Efsti strákur 16 ára og yngri (2000 eđa síđar): 10.000 kr.
  • Efsta stúlka 16 ára og yngri (2000 eđa síđar): 10.000 kr.
  • Efsti eldri skákmađur (1956 eđa fyrr): 10.000 kr.
  • Útdreginn heppinn keppandi: 10.000 kr.

Aukaverđlaun eru miđađ viđ alţjóđleg hrađskákstig 1. desember sl.(alţjóđleg og íslensk skákstig til vara hafi menn ekki alţjóđleg hrađskákstig). Stigaútreikningur rćđur séu menn jafnir og efstir.

Hver keppandi getur ađeins unnin ein aukaverđlaun og eru aukaverđlaunin valin í ţeirri röđ sem fram kemur ađ ofan.

Mótiđ er reiknađ til alţjóđlegra hrađskákstiga.

Fyrri sigurvegarar 

  • 2015 - Ţröstur Ţórhallsson
  • 2014 - Héđinn Steingrímsson
  • 2013 - Helgi Ólafsson
  • 2012 - Bragi Ţorfinnsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Jón Viktor Gunnarsson
  • 2011 - Henrik Danielsen
  • 2010 - Jón Viktor Gunnarsson og Ţröstur Ţórhallsson
  • 2009 - Héđinn Steingrímsson
  • 2008 - Helgi Ólafsson
  • 2007 - Héđinn Steingrímsson
  • 2006 - Helgi Áss Grétarsson
  • 2005 - Jón Viktor Gunnarsson og Arnar E. Gunnarsson
  • 2004 - Jóhann Hjartarson og Stefán Kristjánsson

 


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 11
  • Sl. sólarhring: 17
  • Sl. viku: 112
  • Frá upphafi: 8778384

Annađ

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 86
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband