Færsluflokkur: Spil og leikir
16.1.2017 | 22:23
Allt "bók" nema Sveinbjörn!
Önnur umferð Skákþings Akureyrar var tefld í gær, sunnudag. Úrslit urðu þessi:
- Jón Kristinn-Tómas Veigar 1-0
- Andri-Hreinn 1-0
- Fannar-Karl 0-1
- Sveinbjörn-Haraldur 1-0
- Heiðar-Alex 0-1
- Gabríel-Ulker 0-1
Hér voru flest úrslit eins og við mátti búast skv. stigum, að undanskilinn skák Sveinbjörns og Haraldar. Þar spennti sá síðarnefndi bogann fullmikið í vinningstilraunum og var refsað grimmilega, enda Sveinbjörn miskunnarlaus við slíkar aðstæður. Skák Jóns Kristins og Tómasar virtist tvísýn í upphafi miðtafls, en eftir mistök hins síðarnefnda náði Akureyrarmeistarinn slíku taki á stöðunni að ekki varð rönd við reist. Andri vann og öruggan sigur; þjarmaði hægt og bítandi að Hreini sem missti endanlega tökin í tímahraki í lokin. Fannar Breki byggði upp mjög vænlega stöðu gegn Karli, en sást yfir taktískar brellur andstæðingsins og fékk þá á sig óstöðvandi sókn. Hér hafði reynslan sitt að segja, en Karl hefur sextíu ára forskot í því efni. Í skák Heiðars og Alex var staðan lengi tvísýn með jöfnum möguleikum; Alex fórnaði svo manni fyrir óljós færi og nokkur peð. Eftir því sem peðum Heiðars fór fækkandi jukust sigurvonir andstæðingsins, og þegar umframpeðin voru orðin fimm og eitt þeirra stefndi ljóslega upp í borð, lagði Heiðar niður vopnin. Loka var það skák Gabríels og Ulker; þar sem svartur (svört?) jafnaði taflið auðveldlega og fékk betri stöðu, en nafni erkiengilsins hóf þá stórhættulegar sóknaraðgerðir. Svört brást við með gagnsókn sem ekki fékkst við ráðið og endaði sú glíma með máti.
Að loknum tveimur umferðum eru fjórir keppendur nú með fullt hús, Jón Kristinn, Andri, Sveinbjörn og Karl. Þriðja umferð verður tefld nk. sunnudag og þá eigast við:
- Sveinbjörn og Jón Kristinn
- Karl og Andri
- Haraldur og Ulker
- Tómas og Alex
- Gabríel og Fannar
- Hreinn og Ágúst Ívar
- Heiðar situr hjá
16.1.2017 | 08:52
Eljanov með fullt hús í Sjávarvík - Carlsen vann Wojtaszek
Pavel Eljanov (2755) er efstur með fullt hús á Tata Steel-mótinu að lokinni annarri umferð mótsins sem fram fór í gær. Úkraínubúinn viðkunnanlegi vann heimamanninn Loek Van Wely (2695). Heimsmeistarinn Magnus Carlsen (2840) vann Pólverjann Radoslaw Wojtaszek (2750) og er annar með 1,5 vinninga ásamt Indverjanum Harikrishna (2766) sem vann landa sinni Adhibian (2653). Öðrum skákum lauk með jafntefli.
Þriðja umferð fer fram í dag. Þá teflir við nýjasta keppenda Reykjavíkurskákmótsins og Eljanov teflir við Herikrishna. Umferðin hefst kl. 12:30.
Austurríkismaðurinn Markus Ragger (2697) er efstur í b-flokki með fullt hús. Í 2.-4. sæti eru Ilia Smirin (2667), Gawain Jones (2665) og Benjamin Bok (2608).
Ítarlega umfjöllun um gang mála í gær má finna á Chess.com og á Chess24.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (heimasíða mótsins)
- Beinar útsendingar (Chess24)
16.1.2017 | 08:31
Ólafur Guðmarsson sigraði á atkvöldi
Ólafur Guðmarsson sigraði á atkvöldi Hugins sem sem haldið var 9. janúar sl. Ólafur tefli vel á atkvöldinu og þjarmaði jafnt og að andstæðingum sínum, þannig að þegar upp var staðið lágu þeir allir í valnum og 7 vinningar komu í hús hjá honum í jafn mörgum skákum. Annar var Kristján Halldórsson með 6 vinninga og þriðji Vigfús Ó. Vigfússon með 5 vinninga. Ólafur dró Björgvin Kristbergsson í happdrættinu sem líkaði það vel. Báðir völdu þeir úttektarmiða frá American Style sem ekki hafa áður verið í boði á þessum skákkvöldum. Næsta skákkvöld verður mánudaginn 30. janúar og þá verður hraðkvöld.
Lokastaðan á atkvöldinu:
- Ólafur Guðmarsson, 7v/7
- Kristján Halldórsson, 6v
- Vigfús Ó. Vigfússon, 5v
- Hjálmar Sigurvaldason, 2v
- Finnur Kr. Finnsson, 2v
- Björgvin Kristbergsson, 1v
- Hörður Jónasson, 1v
Úrslitin í chess-results
15.1.2017 | 10:51
Eljanov byrjar best í Sjávarvík
Pavel Eljanov (2755) byrjar best allra á Tata Steel-mótinu í Sjávarvík (Wijk aan Zee) sem hófst í gær. Eljanov vann Richard Rapport (2702). Öllum öðrum skákum umferðinnar leuk með jafntefli. Þar með talið skák Wesley So (2808) og Magnúsar Carlsen (2840).
Önnur umferð hefst núna kl. 12:30 og þá teflir heimsmeistarinn við Radoslaw Wojtaszek (2750).Í b-flokknum byrjuðu Benjamin Bok (2608), Markus Ragger (2697) og Jorden Van Foreest (2612) best allra.
Ítarlega umfjöllun um gang mála í gær má finna á Chess.com og á Chess24.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (heimasíða mótsins)
- Beinar útsendingar (Chess24)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.1.2017 | 10:40
Íslandsmótið í netskák fer fram í kvöld
XXI. Íslandsmótið í netskák fer fram sunnudaginn 15. janúar Mótið fer fram á vefsíðunni Chess.com og hefst kl. 20:00. Mótið er öllum opið og er teflt er einum flokki.
Mótið var áður á dagskrá þann 30. desember s.l., en því miður þurfti að aflýsa mótinu vegna óviðráðanlegra aðstæðna.
Í fyrstu var talið að tæknibilun hefði orðið til þess að fjöldi þátttakenda gat ekki opnað mótið. Nú liggur fyrir að svo var ekki. Orsökin reyndist vera allt önnur og mannlegri, en í ljós kom að fjöldi keppenda misskildi kerfið og tókst ekki að opna mótið með réttum hætti.
Það er því afar mikilvægt að allir, sérstaklega þeir sem gátu ekki tekið þátt síðast, kynni sér vel leiðbeiningar sem bæði má finna hér og verða sendar í tölvupósti á skráð netfang þátttakenda.
Athugið að þeir sem eru með ókeypis aðgang að Chess.com geta aðeins teflt í þremur mótum í hverri viku. Gæta verður að því að sá kvóti hafi ekki klárast fyrir mótið.
Davíð Kjartansson er núverandi Íslandsmeistari í netskák, en hann hefur unnið mótið oftast allra eða sex sinnum!
Það er Skákfélagið Huginn sem stendur fyrir mótinu.
Spurningar eða athugasemdir er hægt að senda á netfangið eggid77@gmail.com
ATHUGIÐ
- ATH. Nauðsynlegt er að keppendur séu fyrirfram skráðir og búnir að opna mótið áður en það hefst. Beinn tengill á mótið verður auglýstur (hér) sólarhring fyrir mót.
- Mótið er tímastillt og fer sjálfkrafa af stað kl. 20, sunnudaginn 15. janúar. Ekki verður hægt að bæta keppendum í mótið eftir að það hefst, ekki einu sinni skráðum keppendum.
- Lokað verður fyrir skráningu kl. 18:00, sunnudaginn 15. desember Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma.
- Athugið að þeir sem eru með ókeypis aðgang að Chess.com geta aðeins teflt í þremur mótum í hverri viku. Gæta verður að því að sá kvóti hafi ekki klárast fyrir mótið.
1. Skráning. Athugið að ljúka verður báðum skrefum til að vera skráður í mótið.

Allir verða að fara á síðu mótsins á Chess.com og smella á Join þar. Athugið að síða mótsins er EKKI mótið sjálft.
Vinsamlegast athugið að ljúka þarf báðum skrefum hér að neðan til að vera fullskráður í mótið.
1.1. Annars vegar er nauðsynlegt að fylla út skráningarformið, en öðruvísi er ekki hægt að bera kennsl á keppendur vegna verðlauna.
1.2. Hins vegar þurfa keppendur að skrá sig í hóp mótsins á Chess.com, en öðruvísi sjá þeir ekki mótið á vefnum. Athugið að hópur mótsins á Chess.com er ekki mótið sjálft.
Þeir sem skráðu sig til leiks fyrir mótið þann 30. desember, þurfa ekki að skrá sig aftur. Hægt er að skoða keppendalistann hér og athuga hvort notandanafn sé ekki örugglega litað grænt, þá er skráningin í gildi og í lagi.
Þeir sem ekki ljúka báðum skrefunum, eru ekki skráðir í mótið og geta ekki tekið þátt. Hægt er að skoða keppendalistann hér og athuga hvort notandanafn sé ekki örugglega litað grænt, þá er skráningin í lagi.
2. Tímamörk og leiðbeiningar til að opna mótið

Svona lítur mótsglugginn út Nauðsynlegt er að smella á Join þarna og það verður að gerast FYRIR upphaf móts.
Tímamörk eru 3 + 2 (3 mínútur + 2 viðbótarsekúndur á hvern leik). Tefldar eru 11 umferðir.
2.1. Einfaldast er að nota beinan tengil á mótið (verður auglýstur sólarhring fyrir mót) og smella á Join takkann (eins og á myndinni hér til hliðar). Join takkinn birtist kl. 19, sunnudaginn 15. janúar.
2.2. Mikilvægt er að það sé gert áður en mótið hefst, en ekki verður hægt að bæta við keppendum eftir að mótið er hafið, ekki einu sinni skráðum keppendum.
Öruggast er að opna mótið með beina tenglinum (auglýstur sólarhring fyrir mót) strax kl. 19, sunnudaginn 15. janúar og smella á join.
Athugið að þeir sem eru með ókeypis aðgang að Chess.com geta aðeins teflt í þremur mótum í hverri viku. Gæta verður að því að sá kvóti hafi ekki klárast fyrir mótið.
Lendi keppendur í vandræðum með að opna mótið, er nauðsynlegt að láta vita af því strax (kl. 19) svo mögulegt sé að leysa úr því. Senda skal póst á netfangið eggid77@gmail.com.
Vefstjóri Chess.com verður á svæðinu til að fylgjast með, og leðibeina, ef eitthvað er að.
Ókeypis að skrá notanda
Þeir sem ekki eru skráðir á Chess.com geta skráð sig á vef þeirra en það er ókeypis.
Bent er á að einfalt er að endurnýja lykilorð, hafi það tapast, með því að fara á þessa slóð https://www.chess.com/forgot og skrá þar inn netfang.
Athugið að þeir sem eru með ókeypis aðgang að Chess.com geta aðeins teflt í þremur mótum í hverri viku. Gæta verður að því að sá kvóti hafi ekki klárast fyrir mótið.
14.1.2017 | 20:00
Skákþáttur Morgunblaðsins: Leikurinn sem birtist ekki á tölvuskjánum
Greinarhöfundur var að fylgjast með Guðmundi Kjartanssyni í beinni útsendingu frá lokaumferð Hastings-mótsins sl. fimmtudag. Hann var í baráttunni um efsta sætið, aðeins ½ vinningi á eftir efstu mönnum. Og taflmennska hans var skínandi góð. Indverskur andstæðingur hans reyndi að flækja taflið, fyrst með peðasókn á kóngsvæng og síðan einhverju sprikli á drottningarvæng. Guðmundur svaraði með því að gefa skiptamun og opna síðan á kóngsstöðu Indverjans. Gamalkunnir taktar Friðriks Ólafssonar frá Hastings á sjötta áratug síðustu aldar komu upp í hugann. Til þess að bæta um betur fórnaði Guðmundur manni. Hann var hrók undir en menn biðu eftir því að hann léki peði til f7. Fleira þurfti ekki til. En leikurinn sá birtist aldrei á tölvuskjánum; í staðinn lék hann biskup upp í borð og varð mát. Sorgleg endalok:
Hastings 2017; 9. umferð:
Guðmundur Kjartansson Das Arghyadip
Enskur leikur
1. c4 Rf6 2. Rc3 e5 3. Rf3 Rc6 4. g3 d5 5. cxd5 Rxd5 6. Bg2 Rb6 7.
O-O Be7 8. Hb1 g5
Viktor Kortsnoj lék þessu fyrstur manna en Guðmundur lætur ekki slá sig út af laginu.
9. d3 g4 10. Rd2 Be6 11. b4 h5 12. b5 Ra5 13. Dc2 a6 14. Bb2 f6 15. a4 h4 16. Rce4 hxg3 17. hxg3 Rd5 18. Hfc1 axb5 19. axb5 b6 20. Rc3 Rb4 21. Dd1 Ra2 22. Rxa2 Bxa2
Hann gat líka leikið 23. Bxa8 og siðan lokað með e2-e4.
23. ... Bxb1 24. Hxb1 Hg8 25. De4! Ha7 26. d4! Kf8 27. dxe5! Dxd2 28. exf6 Bc5
Og nú blasir vinningsleiðin við, 29. f7! t.d. 29. ... Kxf7 30. Df5+ Ke7 31. Bf6+ Ke8 32. De6+ Kf8 33. Bd5! og svartur er varnarlaus.
29. Bc1??
Það er ekki hægt að skýra þennan afleik, sem eyðileggur frábæra skák, með því að Guðmundur hafi leikið of hratt. Það gerði hann ekki og hann átti nægan tíma á klukkunni. Eina skýringin hlýtur að vera sú að hann hafið talið hrókinn valda e1-reitinn.
29. .. De1+ 30. Kh2 Hh8+
og hvítur gafst upp.
Skákþing Reykjavíkur og Nóa Síríus-mótið
Af skráningu keppenda að dæma má ætla að Skákþing Reykjavíkur sem hefst á morgun í húsakynnum TR við Faxafen verði vel skipað en meðal þátttakenda eru Guðmundur Kjartansson, bræðurnir Bragi og Björn Þorfinnssynir og Dagur Ragnarsson. Fleiri kunnir meistarar eiga eftir að bætast í hópinn en tefldar verða níu umferðir eftir svissneska kerfinu og fara þær fram á sunnudögum og miðvikudögum. Skákstjóri verður Ríkharður Sveinsson.
Á þriðjudaginn kl. 19 hefst svo í Stúkunni á Kópavogsvelli Nóa Sírusmótið Gestamót Hugins og Breiðabliks. Það er Jón Þorvaldsson skákmótafrömuður sem hefur haft veg og vanda af skipulagningunni undanfarin ár og hefur af mikilli fortölulist tekist að fá til keppni marga nafntogaða skákmeistara. Teflt er einu sinni í viku í tveim riðlum, alls sex umferðir. Dagsetningar mótsins rekast ekki á við Skákþing Reykjavíkur svo að sumir verða með í báðum mótunum. Mesta athygli vekur þátttaka Jóhanns Hjartarsonar og Jóns L. Árnasonar en aðrir kunnir kappar eru Helgi Áss Grétarsson, Þröstur Þórhallsson, Guðmundur Kjartansson, Jón Viktor Gunnarsson, Björn Þorfinnsson, Björgvin Jónsson og svo margir af sterkustu ungu skákmönnum okkar. Þá hefur Jóni tekist að laða til keppni á ný meistara sem ekki hafa teflt lengi, Jón Hálfdánarson og Björn Halldórsson.
------------------
Skákþættir Morgunblaðsins eftir Helga Ólafsson birtast u.þ.b. viku síðar á Skák.is.
Grein þessi birtist í Morgunblaðinu 7. janúar 2017
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 20:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.1.2017 | 13:28
Tata Steel mótið hafið í Sjávarvík - Magnus Carlsen tekur þátt.
Tata Steel-mótið hófst fyrr í dag í Sjávarvík (Wijk aan Zee) í Hollandi. Meðal keppenda er Magnus Carlsen (2840), Wesley So (2808) og Sergey Karjakin (2785). Í fyrstu umferð mætir Magnus Wesley So.
Keppendalista a-flokksins má finna hér. Heimildir ritstjóra að tveir keppenda a-flokksins kunni tveir að taka þátt í GAMMA Reykjavíkurskákmótsins í apríl nk. Meðalstigin eru 2751 skákstig.
B-flokkurinn er einnig óárennilegur. Þeir herma heimildir rtistjóra að a.m.k. fjórir keppendanna verði með á GAMMA Reykjavíkurskákmótinu. Keppendalistann má finna hér. Meðalstigin eru 2593 skákstig.
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (heimasíða mótsins)
- Beinar útsendingar (Chess24)
13.1.2017 | 13:41
Hart barist á Skákþingi Reykjavíkur
Önnur umferð Skákþings Reykjavíkur fór fram í fyrradag og hart barist á öllum borðum. Flestar viðureignir fóru eins og vænta mátti en þó skellti Sigurjón Haraldsson (1784) í lága drifið, tefldi traust og uppskar jafntefli gegn skákmeistara TR 2014, Þorvarði Fannari Ólafssyni (2188). Svipað varð upp á teningnum hjá Halldóri Garðarssyni (1837) og Júlíusi Friðjónssyni (2145). Þá urðu næstum stórtíðindi þegar Alexander Oliver Mai (1837) var kominn með gerunnið tafl gegn Benedikt Jónassyni (2208). Benni er hins vegar ekki fæddur í gær og gefst ekki upp fyrr en í fulla hnefana. Augnabliks aðgæsluleysi Alexanders kostaði hann skákina þegar hann lenti í mátneti.
Næsta umferð verður tefld n.k. sunnudag, 15. janúar, kl. 13:00 og þá fara viðureignir að jafnast aðeins og mætast m.a. á efstu borðum Guðmundur Kjartansson og Lenka Ptacnikova, Benedikt Jónasson og Björn Þorfinnsson og Guðmundur Gíslason og Daði Ómarsson.
Nánar á heimasíðu TR
13.1.2017 | 10:20
Íslenskt lið í PRO Chess League
Miðvikudaginn síðastliðinn hófst í fyrsta skipti svokölluð PRO Chess League á Chess.com. Deild þessi er ný af nálinni og kemur í stað US Chess League sem hafði verið starfrækt í um 10 ár. Í deildinni eru 48 lið frá öllum heimshornum. Eina kvöðin er að lið verða að vera frá sama svæði/borg en öll lið mega nota einn aðkeyptan skákmann í hverri viðureign.
PRO stendur fyrir Professional Online Rapid og því er hér um að ræða atskák fyrirkomulag en skákir hafa tímamörkin 15 mínútur á skák og 2 sekúndur í viðbótartíma á hvern leik.
Þeir félagar Ingvar Þór Jóhannesson og Björn Þorfinnsson tóku að sér að stofna slíkt lið fyrir Reykjavíkur svæðið og ber það heitið Reykjavík Puffins.
Fyrirkomulag deildarinnar er þannig að 48 liðum er skipt í 4 riðla eftir svæði og mætast liðin í vikulegum viðureignum (yfirleitt á miðvikudögum). Í hverri viðureign eru 16 skákir, teflt er á fjórum borðum og mætast öll borð innbyrðis. Þó er leyfilegt að skipta milli umferða en liðsskipan er ákveðin tveim dögum fyrir viðureignina í öllum fjórum umferðum hverrar viðureignar.
Skráðir til leiks í Puffins liðið eru auk Ingvar og Björns fjölmargir sterkir íslenskir skákmenn og þeirra á meðal nokkrir stórmeistarar. Tíu skákmenn mega vera skráðir á liðslista (roster) hvers liðs en frjálst er að bæta við mönnum sem þarf þá að tilkynna tveimur dögum fyrir viðureign. Í hverri viðureign mega meðalstig liðs ekki fara yfir 2500 skákstig sem gerir deildina mjög spennandi þar sem ekki er hægt að kæfa andstæðinga með því að hlaða inn ofurliðum.
Mikið af sterkum skákmönnum eru skráðir til leiks í liðin og nægir að nefna að Magnus Carlsen er skráður til leiks með Norway Gnomes og Maxime Vachier-Lagrave og Shak Mamedyarov sýndu snilli sína á miðvikudaginn. Skákirnar fara allar fram á Chess.com og bein útsending með skýrendum er alltaf á Chess.com/TV
Í fyrstu viðureigninni á miðvikudaginn síðastliðinn mættu Reykjavík Puffins liði frá Hamburg sem kallar sig Swashbucklers. Í liði þeirra var einn stórmeistari og restin alþjóðlegir meistarar. Flestir voru þeir mjög ungir, um og undir tvítugt og nokkuð stigaháir. Í sveit Puffins að þessu sinni tefldu:
1. IM Jón Viktor Gunnarsson
2. IM Bragi Þorfinnsson
3. IM Björn Þorfinnsson
4. FM Ingvar Þór Jóhannesson
V. FM Björn Ívar Karlsson
Jón Viktor, Bragi og Björn tefldu allar en Ingvar og Björn skiptu með sér neðsta borðinu.
Fengnir voru ýmsir skákspekingar til að spá í spilin og skiljanlega var Hamburg spáð 10-6 sigri af flestum þar sem þeir voru stigahærri á öllum borðum. Puffins voru hinsvegar klárir í bátana og hófu viðureignina af krafi og unnu fyrstu umferð 3-1. Hamburg komu strax til baka og unnu næstu tvær, 1-3 og 1,5-2,5. Í síðustu umferð voru góð ráð dýr og sigur varð að vinnast. Niðurstaðan varð sú að í stöðunni 7-8 fyrir Hamburg náði Björn Þorfinnsson að kreysta fram sigur gegn næst stigahæsti skákmanni Hamburgar liðsins og niðurstaðan varð dramatískt 8-8 jafntefli. Nánar er hægt að lesa um gang mála á engilsaxnesku á Chess.com aðdáendasíðu liðsins: https://www.chess.com/news/view/first-round-mega-recap-reykjavik-puffins-vs-hamburg-swashbucklers-the-puffins-the-puffins-8771
Nánar um deildina má lesa hér: https://www.chess.com/article/view/pro-chess-league-guide
Herlegheitin halda áfram næsta miðvikudag en þá mæta Puffins liði frá Svíþjóð, Stockholm Snowballs. Í liði þeirra er skráður til leiks stórmeistarinn Georg Meier auk þeirra Evgenij Agrest, Eriq Blomqvist og Innu Agrest.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.1.2017 | 08:43
Íslandsmótið í netskák fer fram á sunnudaginn
XXI. Íslandsmótið í netskák fer fram sunnudaginn 15. janúar Mótið fer fram á vefsíðunni Chess.com og hefst kl. 20:00. Mótið er öllum opið og er teflt er einum flokki.
Mótið var áður á dagskrá þann 30. desember s.l., en því miður þurfti að aflýsa mótinu vegna óviðráðanlegra aðstæðna.
Í fyrstu var talið að tæknibilun hefði orðið til þess að fjöldi þátttakenda gat ekki opnað mótið. Nú liggur fyrir að svo var ekki. Orsökin reyndist vera allt önnur og mannlegri, en í ljós kom að fjöldi keppenda misskildi kerfið og tókst ekki að opna mótið með réttum hætti.
Það er því afar mikilvægt að allir, sérstaklega þeir sem gátu ekki tekið þátt síðast, kynni sér vel leiðbeiningar sem bæði má finna hér og verða sendar í tölvupósti á skráð netfang þátttakenda.
Athugið að þeir sem eru með ókeypis aðgang að Chess.com geta aðeins teflt í þremur mótum í hverri viku. Gæta verður að því að sá kvóti hafi ekki klárast fyrir mótið.
Davíð Kjartansson er núverandi Íslandsmeistari í netskák, en hann hefur unnið mótið oftast allra eða sex sinnum!
Það er Skákfélagið Huginn sem stendur fyrir mótinu.
Spurningar eða athugasemdir er hægt að senda á netfangið eggid77@gmail.com
ATHUGIÐ
- ATH. Nauðsynlegt er að keppendur séu fyrirfram skráðir og búnir að opna mótið áður en það hefst. Beinn tengill á mótið verður auglýstur (hér) sólarhring fyrir mót.
- Mótið er tímastillt og fer sjálfkrafa af stað kl. 20, sunnudaginn 15. janúar. Ekki verður hægt að bæta keppendum í mótið eftir að það hefst, ekki einu sinni skráðum keppendum.
- Lokað verður fyrir skráningu kl. 18:00, sunnudaginn 15. desember Ekki verður tekið við skráningum eftir þann tíma.
- Athugið að þeir sem eru með ókeypis aðgang að Chess.com geta aðeins teflt í þremur mótum í hverri viku. Gæta verður að því að sá kvóti hafi ekki klárast fyrir mótið.
1. Skráning. Athugið að ljúka verður báðum skrefum til að vera skráður í mótið.

Allir verða að fara á síðu mótsins á Chess.com og smella á Join þar. Athugið að síða mótsins er EKKI mótið sjálft.
Vinsamlegast athugið að ljúka þarf báðum skrefum hér að neðan til að vera fullskráður í mótið.
1.1. Annars vegar er nauðsynlegt að fylla út skráningarformið, en öðruvísi er ekki hægt að bera kennsl á keppendur vegna verðlauna.
1.2. Hins vegar þurfa keppendur að skrá sig í hóp mótsins á Chess.com, en öðruvísi sjá þeir ekki mótið á vefnum. Athugið að hópur mótsins á Chess.com er ekki mótið sjálft.
Þeir sem skráðu sig til leiks fyrir mótið þann 30. desember, þurfa ekki að skrá sig aftur. Hægt er að skoða keppendalistann hér og athuga hvort notandanafn sé ekki örugglega litað grænt, þá er skráningin í gildi og í lagi.
Þeir sem ekki ljúka báðum skrefunum, eru ekki skráðir í mótið og geta ekki tekið þátt. Hægt er að skoða keppendalistann hér og athuga hvort notandanafn sé ekki örugglega litað grænt, þá er skráningin í lagi.
2. Tímamörk og leiðbeiningar til að opna mótið

Svona lítur mótsglugginn út Nauðsynlegt er að smella á Join þarna og það verður að gerast FYRIR upphaf móts.
Tímamörk eru 3 + 2 (3 mínútur + 2 viðbótarsekúndur á hvern leik). Tefldar eru 11 umferðir.
2.1. Einfaldast er að nota beinan tengil á mótið (verður auglýstur sólarhring fyrir mót) og smella á Join takkann (eins og á myndinni hér til hliðar). Join takkinn birtist kl. 19, sunnudaginn 15. janúar.
2.2. Mikilvægt er að það sé gert áður en mótið hefst, en ekki verður hægt að bæta við keppendum eftir að mótið er hafið, ekki einu sinni skráðum keppendum.
Öruggast er að opna mótið með beina tenglinum (auglýstur sólarhring fyrir mót) strax kl. 19, sunnudaginn 15. janúar og smella á join.
Athugið að þeir sem eru með ókeypis aðgang að Chess.com geta aðeins teflt í þremur mótum í hverri viku. Gæta verður að því að sá kvóti hafi ekki klárast fyrir mótið.
Lendi keppendur í vandræðum með að opna mótið, er nauðsynlegt að láta vita af því strax (kl. 19) svo mögulegt sé að leysa úr því. Senda skal póst á netfangið eggid77@gmail.com.
Vefstjóri Chess.com verður á svæðinu til að fylgjast með, og leðibeina, ef eitthvað er að.
Ókeypis að skrá notanda
Þeir sem ekki eru skráðir á Chess.com geta skráð sig á vef þeirra en það er ókeypis.
Bent er á að einfalt er að endurnýja lykilorð, hafi það tapast, með því að fara á þessa slóð https://www.chess.com/forgot og skrá þar inn netfang.
Athugið að þeir sem eru með ókeypis aðgang að Chess.com geta aðeins teflt í þremur mótum í hverri viku. Gæta verður að því að sá kvóti hafi ekki klárast fyrir mótið.
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 20
- Sl. sólarhring: 20
- Sl. viku: 116
- Frá upphafi: 8778356
Annað
- Innlit í dag: 18
- Innlit sl. viku: 88
- Gestir í dag: 16
- IP-tölur í dag: 16
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar