Fćrsluflokkur: Spil og leikir
20.1.2017 | 09:09
Wesley So á toppinn - Carlsen og Eljanov koma nćstir
Bandaríski stórmeistarinn Wesley So (2808) heldur áfram ađ gera ţađ gott í Sjávarvík í Hollandi. Í fimmtu umferđ í gćr, sem reyndar var tefld í Rotterdam, vann hann indverska stórmeistarann Harikrishna (2766) og er efstur međ 4 vinninga. Heimsmeistarinn Magnus Carlsen (2840) og Pavel Eljanov (2755) koma nćstir međ 3,5 vinninga. Carlsen gerđi jafntefli viđ fyrrum ađstođarmann sinn Nepomniachtchi (2767) en Eljanov laut í grasi fyrir Aronian (2780) sem er fjórđi međ 3 vinninga.
Sjötta umferđ hefst kl. 12:30. Ţá teflir Carlsen viđ Aronian, So viđ Adhiban (2653) og Eljanov (2755) viđ Karjakin (2785).
Í fyrradag var frídagur á mótinu og var ţá spilađur fótbolti. Carlsen og Loek van Wely voru ţar liđsstjórar yfir sitthvoru liđinu. Carlsen leiddi liđ sitt til sigurs 6-2.
Austurríkismađurinn Markus Ragger (2697) er efstur í b-flokki međ 4,5 vinninga. Ilia Smirin (2667) er annar međ 4 vinninga
Ítarlega umfjöllun um gang mála í gćr má finna á Chess.com og á Chess24.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (heimasíđa mótsins)
- Beinar útsendingar (Chess24)
Spil og leikir | Breytt 23.1.2017 kl. 08:53 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
20.1.2017 | 08:49
Guđmundur Gunnarsson atskákmeistari Skákfélags Sauđárkróks
Atskákmót Skákfélags Sauđárkróks var haldiđ í fyrrakvöld. Fjórir tóku ţátt og bar Guđmundur Gunnarsson sigur úr býtum međ 2 vinninga og 3 stig, en Pálmi Sighvatsson var međ jafnmarga vinninga og 2 stig og hlaut ţví annađ sćtiđ. Ţriđji var Hörđur Ingimarsson međ 1 vinning og 2 stig, en Jón Arnljótsson hlaut 1 vinning og 1 stig. Umhugsunartíminn var 25 mínútur á skákina.
Fyrstu helgina í mars mun félagiđ senda sveit til keppni í seinni hluta Íslandsmóts Skákfélaga, en ţar er Skákfélag Sauđárkróks í öđru sćti í fjórđu deild og á ţokkalega möguleika á ađ komast upp í ţá ţriđju, en 3 efstu liđin ná ţeim áfanga.
Helgina 24.-26. mars verđur svo Skákţing Norđlendinga haldiđ á Króknum, í umsjá skákfélagsins.
Nú hafa 2 barna og unglingaćfingar veriđ haldnar, í Húsi frítímans, en ţátttaka veriđ drćm. Ţessum ćfingum verđur fram haldiđ og vonast eftir meiri ţátttöku, en ţćr eru opnar og engin ćfingagjöld eđa mćtingarskylda.
Ćfingarnar eru kl. 17 til 18.30 á mánudögum og er Jón Arnljótsson umsjónarmađur ţeirra.
Heimasíđa Skákfélags Sauđárkróks
18.1.2017 | 22:59
Ţrír efstir á Nóa Síríus mótinu
Önnur umferđ Nóa-Síríus mótsins var tefld í Stúkunni í gćrkvöldi. Teflt var fjörlega í báđum flokkum og ljóst ađ leikgleđin réđ ríkjum. Vel úthugsađar leikfléttur voru galdrađar fram og lćvísar gildrur lagđar fyrir óvarkára.
Af A-flokki.
Á fyrsta borđi, náđi hinn ungi meistari, Örn Leó Jóhannsson, jafntefli gegn Jóhanni Hjartarsyni, stigahćsta skákmanni mótsins í spennandi skák. Stórmeistarinn var međ svart og náđi fljótlega ađ jafna tafliđ og ríflega ţađ. Örn Leó lét af hendi skiptamun í tilraun til ţess ađ blíđka gođin og fékk í kjölfariđ vel teflandi stöđu međ sterkan biskup á d4.
Hér lék Örn Leó 35. Hh4 og svo virtist sem hvítur vćri ađ ná ađ máta svartan en Jóhann var vandanum vaxinn og lék eina varnarleiknum í stöđunni ţrátt fyrir ađ eiga ekki nema nokkrar sekúndur eftir á klukkunni....f6
36. Dxf6 Df5+
37. Dxf5 gxf5
38. Hf4 Hér hefđi veriđ nákvćmara ađ leika (38. Hh5) og hvítur vinnur f peđiđ og er međ einhverja vinningsmöguleika, ţó svo svartur ćtti ađ halda jöfnu međ bestu taflmennsku.
38... Hf7
39. g4 Nú leysist skákin upp í jafntefli.
39... fxg4
40. Hxg4+ Kh7
41. Hh4+ Kg6
42. Hg4+ Kh7 Ef 42. ...Kf5 ţá 43. Hf4+ og svo skiptir hvítur upp á hrókum og drepur peđiđ á a7, líklega međ unnu tafli.
43. Hh4+ Kg6 Og hér sćttust keppendur á skiptan hlut.
Skák Friđriks Ólafssonar og Olivers Arons Jóhannessonar var frestađ vegna veikinda. Halldór Grétar Einarsson lá fyrir Guđmundi Kjartanssyni sem fer vel af stađ í mótinu. Lenka Ptácníková náđi baráttujafntefli á móti Ţresti Ţórhallssyni en hún hafđi stađiđ lakar langan hluta skákarinnar. Vel gert hjá Lenku. TR-ingarnir, Benedikt Jónasson og Björn Ţorfinnsson, háđu mikla rimmu sem endađi međ jafntefli eftir ađ ţeir félagar höfđu skipst á ađ hafa betra lungann úr skákinni. Dađi Ómarsson vann ungstirniđ Vigni Vatnar og Jón Hálfdánarson sigrađi Jóhann Ingvason í vel tefldri skák. "Nú dugđi ţrekiđ alla skákina" sagđi Jón ađ viđureigninni lokinni međ tilvísan í fyrstu umferđina, ţegar hann tapađi gegn Guđmundi Kjartanssyni eftir ađ hafa átt í fullu tré viđ alţjóđlega meistarann lengi tafls.
Ögmundur Kristinsson landađi jafntefli međ hvítu gegn Jóni L. Árnasyni í langri baráttuskák.
Fide meistararnir Ţorsteinn Ţorsteinsson og Ingvar Ţór Jóhannesson slíđruđu sverđin snemma, međan Magnús Örn náđi ađ svíđa Björn Halldórsson. Magnús hafđi reyndar bođiđ Birni jafntefli fyrir tímamörkin en ţá var stađan í dýnamísku jafnvćgi og skammur tími aflögu en Björn heyrđi ţađ ekki og lék nćsta leik eins og ekkert hefđi í skorist.
Hinn ungi Björn Hólm Birkisson vann góđan sigur á hinum ţrautreynda Björgvini Víglundssyni. Björn Hólm var međ svart og jafnađi tafliđ eftir byrjunina. Björn tefldi svo framhaldiđ af festu og stađa Björgvins versnađi ţar til eitthvađ varđ undan ađ láta í endataflinu.
Gauti Páll tefldi mjög vel gegn Sigurbirni Björnssyni og hélt jöfnu tafli alveg fram í endatafl, ţegar hvor átti 4 peđ auk biskups. Biskuparnir voru samlitir og Sigurbjörn náđi ađ koma sínum peđum fyrir á gagnstćđum reitalit biskupunum međan Gauti neyddist til ađ verja 3 peđ međ einum biskupi. Ţađ var of mikiđ og Sigurbjörn hafđi ađ lokum sigur. Kristján Eđvarđsson sigrađi Guđlaugu Ţorsteinsdóttur međ snoturri fléttu, drottningarfórn sem Guđlaugu yfirsást.
Upplýsingar um önnur úrslit umferđarinnar má finna á Chess-Results.
Stađan í A-flokki: Efstir, međ tvo vinninga af tveimur mögulegum, eru Guđmundur Kjartansson, Dađi Ómarsson og Dagur Ragnarsson. Fast á hćla ţeim, koma svo tíu sterkir skákmenn, Jóhann Hjartarsson, Ţórhallsson Ţröstur, Björn Ţorfinnsson, Örn Leó Jóhannsson, Lenka Ptácníková, Helgi Áss Grétarsson, Andri Áss Grétarsson, Sigfússon Sigurđur Dađi, Benedikt Jónasson og Magnús Örn Úlfarsson.
B-flokkur:
Í B-flokki bar ţađ helst til tíđinda, ađ Ólafur Evert Úlfsson náđi jafntefli á efsta borđi gegn Agnari Tómasi Möller. Ţá hafđi Birkir Karl Sigurđsson betur gegn Jóni Eggerti Hallssyni í baráttuskák. Hinir ungu meistarar, Róbert Luu og Óskar Víkingur Davíđsson sćttust á jafnan hlut. Ţá vann Hörđur Aron Hauksson sigur á Stefáni Orra Davíđssyni og stigahćsti mađur flokksins, Jón Trausti Harđarson, hafđi sigur á Ísaki Orra Karlssyni. Hrund Hauksdóttir vann Freyju Birkisdóttur en annars urđu úrslit í B-flokki međ eftirfarandi hćtti.
Stađan í B-flokki:
Birkir Karl Sigurđsson, Hörđur Aron Hauksson, Stephan Briem og Hrund Hauksdóttir hafa öll tvo vinninga eftir tvćr umferđir. Ţar á eftir koma 7 međ einn og hálfan; Óskar Víkingur Davíđsson, Róbert Luu, Jón Trausti Harđarson, Birkir Ísak Jóhannsson, Agnar Tómas Möller, Ólafur Evert Úlfsson og Svava Ţorsteinsdóttir.
Ljóst er ađ fjör fer ađ fćrast í leikinn í báđum flokkum. Ţegar hefur veriđ parađ fyrir nćstu umferđ og ljóst ađ margar áhugaverđar og spennandi viđureignir verđa tefldar nćsta ţriđjudagskvöld í Stúkunni viđ Kópavogsvöll. Áhugasamir hvattir til ţess ađ gera sér ferđ í Kópavog. Heitt á könnunni sem endranćr og bruđerí til ţess ađ slá á spennuna.
Spil og leikir | Breytt 19.1.2017 kl. 10:39 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
18.1.2017 | 17:45
Skákţing Reykjavíkur Lenka sigrađi Guđmund
Í ţriđju umferđ Skákţings Reykjavíkur mćttust nokkrir af ţeim sem má telja líklegt ađ verđi á međal ţeirra efstu í mótinu ţegar upp er stađiđ. Yfirleitt unnu ţeir sterkari, ţ.e. alţjóđlegir meistarar og Fide-meistarar unnu ţá titillausu. Á efsta borđi mćttust hins vegar tveir titilhafar; alţjóđlegi meistarinn Guđmundur Kjartansson mćtti stórmeistaranum Lenku Ptacnikovu. Lenka hafđi sigur í ţeirri viđureign og mćtir Júlíusi Friđjónssyni í 4. umferđ í kvöld skvöld. Ţá mćtast einnig Dagur Ragnarsson og Örn Leó Jóhannsson sem hafa báđir fullt hús, eins og Lenka.
Umferđin hefst kl. 19:30 í Skákhöllinni í Faxafeni.
18.1.2017 | 11:46
Lundarnir á ferđ í kvöld í PRO Chess League
Íslensku Lundarnir í Reykjavik Puffins liđinu munu tefla í 2. umferđ í hinni nýstofnuđu PRO Chess League í kvöld klukkan 19:40. (nánar hćgt ađ lesa hér úr fyrri frétt). Í fyrstu umferđ skildi sveitin jöfn viđ sterka ţýska sveit frá Hamburg 8-8 en í kvöld er komiđ ađ sveit frá Stokkhólmi, Stockholm Snowballs.
Lundarnir vöktu mikla athygli í fyrstu umferđ fyrir bćđi vaska framgöngu á skákborđinu og eins fyrir ađ vekja mikla athygli á liđinu í gegnum samfélagsmiđla. Auk verđlauna fyrir framgöngu í mótinu sjálfu eru veitt ýmis aukaverđlaun eins og fyrir besta bloggiđ, bestu vídeó og almennt bestu framgöngu á samfélagsmiđlum (vídeó+Facebook+twitter o.fl). Puffins fengu verđlaun í fyrstu vikunni fyrir besta framgöngu á samfélagsmiđlum en ţau verđlaun eru veitt vikulega. Hér er lykil myndbandiđ í ţeim sigri:
Fyrirkomulagiđ er sem fyrr atskákir 15 mínútur á mann og 2 sekúndur í viđbótartíma. Sveit Reykjavik Puffins í kvöld munu skipa:
GM Jóhann Hjartarson
IM Bragi Ţorfinnsson
IM Björn Ţorfinnsson
IM Einar Hjalti Jensson
FM Ingvar Ţór Jóhannesson
Einar og Ingvar munu skipta međ sér tveim skákum en hinir tefla allar fjórar en sá háttur er á ađ teflt er viđ öll borđ andstćđingana og ţví alls 16 skákir. Liđ Stokkhólmarbúa er ţannig skipađ:
GM Georg Meier
GM Evgenij Agrest
GM Erik Blomqvist
WIM Inna Agrest
Hvernig er hćgt ađ fylgjast međ?
Bein útsending međ lýsendum verđur hćgt ađ nálgast á chess.com/tv. Ţar eru tveir lýsendur og flakka ţeir ađeins á milli ţar sem nokkrar ađrar viđureignir eru einnig í gangi. Reykjavik Puffins eru í svokölluđum Central riđli en ţar eru ađ mestu liđ frá Evrópu.
Einnig er hćgt ađ skođa skákirnar beint inni á Chess.com ţá er fariđ í LIVE chess og ţegar ţangađ er komiđ er hćgt ađ finna skákirnar í flipanum međ kíkji á (gulur hringur á mynd) eđa međ ţví ađ rita /follow og svo notendanafn Íslendingana. (einnig gulur hringur ţar sem sú skipun hefur veriđ rituđ á mynd)
Best er ađ rita skipunina strax fyrir öll notendanöfnin, ţá "poppa" allar skákirnar upp ţegar ţćr byrja og verđa í flipa hćgra megin á skjánum ţar sem hćgt er ađ flakka á milli. Einnig er hćgt ađ finna allar skákirnar sem eru í gangi undir sjónaukaflipanum.
Notendanöfn Reykjavik Puffins:
Jóhann - eldur16
Bragi - b-man
Björn - Hunninn
Einar - EinarHjalti
Ingvar - Zibbit
Einnig er um ađ gera ađ kíkja á íslenskir skákmenn og mynda ţar umrćđuţráđ og einnig er um ađ gera ađ kíkja á Facebook síđu Puffins: https://www.facebook.com/rvkpuffins/ Ţar er reynt eftir fremsta megni ađ segja frá gangi mála og eins er liđiđ á Twitter. Um ađ gera ađ like Facebook síđuna og followa á Twitter. Nota svo hashtaggiđ #thePuffins til ađ sýna stuđning :-)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 12:15 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
18.1.2017 | 10:09
Eljanov međ hálfs vinnings forskot á Carlsen og So
Úkraínumađurinn Pavel Eljanov (2755) hélt áfram sigurgöngu sinni á Tata Steel-mótinu í Sjávarvík í gćr. Fórnarlambiđ ađ ţessu sinni var Indverjinn B. Adhiban (2653). Pavel hefur hlotiđ 3,5 vinninga í 4 skákum. Magnus Carlsen (2755) og Wesley So (2808) fylgja honum eins og skugginn og hafa 3 vinninga. Carlsen yfirspilađi Wei Yi (2706) í gćr og So vann Van Wely (2695) fremur áreynslulaust.
So, sem hefur ekki tapađ skák í 47 skákum í röđ, er ţriđji á heimslistanum međ 2815 skákstig. Eljanov hefur hćkkađ um ţrjú sćti á sama lista og er kominn í tólfta sćti međ 2767 skákstig. Carlsen hefur aukiđ forystuna á Caruna uppí 18 skákstig en fyrir mótiđ hafđi hann ađeins 13 stiga forystu á Fabiano.
Austurríkismađurinn Markus Ragger (2697) er í banastuđi í b-flokki og er efstur međ fullt hús. Ilia Smirin (2667) er annar međ 3˝ vinning.
Frídagur er í dag.
Ítarlega umfjöllun um gang mála í gćr má finna á Chess.com og á Chess24.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (heimasíđa mótsins)
- Beinar útsendingar (Chess24)
17.1.2017 | 14:39
Spennandi umferđ á N-S mótinu í kvöld!
Önnur umferđ hins firnasterka Nóa-Siríus móts (Gestamóts Hugins og Skákdeildar Breiđabliks) hefst kl. 19.00 í kvöld.
Helst ber til tíđinda ađ sjálfur Friđrik Ólafsson mćtir til leiks og stýrir hvítu mönnunum gegn ungstirninu Oliver Aroni Jóhannessyni. Af öđrum viđureignum má nefna skák yngsta ţátttakandans í landsliđsflokki 2016, Arnar Leós Jóhannssonar, gegn stigahćsta skákmanni mótsins, Jóhanni Hjartarsyni. Guđmundur Kjartansson lćtur sverfa til stáls gegn Halldóri Grétari Einarssyni sem er stórhćttulegur andstćđingur og sló í gegn á N-S mótinu í fyrra. Stórmeistararnir Ţröstur Ţórhallsson og Lenka Ptácníková leiđa saman hesta sína af alkunnri keppnishörku og Benedikt Jónasson, lćrisveinn Bobby Fischers, gerir ađra atrennu í sömu viku ađ húninum harđdrćga pg lundanum ljúfa, Birni Ţorfinnssyni. Líklegt verđur ađ telja ađ Íslensk getspá sýni viđureigninni áhuga.
Einnig er vert ađ vekja sérstaka athygli á skák brellumeistaranna geđţekku, Ögmundar Kristinssonar og Jóns L. Árnasonar, en samanlagt má áćtla ađ ţessir tveir kappar hafi plata fleiri andstćđinga upp úr skónum í hrađskák og jarđsett fyrir opnum tjöldum en nokkrir tveir ađrir núlifandi Íslendingar. Ljóst er ađ ţeir Jón og Ögmundur munu ekki ţćfast um í steindauđu endatafli heldur efna til almenns ófriđar snemma tafls. Gestir eru velkomnir í Stúkuna á Kópavogsvelli.
Sjá pörun á Chess-Results.
17.1.2017 | 13:36
Eljanov efstur í Sjávarvík
Pavel Eljanov (2755) hélt forystunni á Tata Steel-mótinu í Sjávarvík eftir jafntefli viđ Harikrishna (2766) í 3. umferđ gćr. Úkraínumađurinn viđkunnanlegi er efstur međ 2˝ vinning. Fimm skákmenn hafa 2 vinninga og ţeirra á međal er heimsmeistarinn Magnús Carlsen (2840) eftir jafntefli viđ Dmitry Andreikin (2736) sem verđur međal keppenda á GAMMA Reykjavíkurskákmótinu.
Wesley So (2808) var ljónheppinn í gćr ţegar Richard Rapport (2702) klúđrađi unninni stöđu niđur í tap. So hefur nú teflt 46 skákir í röđ án taps og er kominn í ţriđja sćti heimslistans međ 2811,5. Ţađ var einmitt á Reykjavíkurskákmótinu 2013 sem So náđi ţeim áfanga ađ fara yfir 2700 skákstig međ stuttu jafntefli viđ Eljanov í lokaumferđinni. Árangur So síđan er međ ólíkindum.
Austurríkismađurinn Markus Ragger (2697) er efstur í b-flokki međ fullt hús. Ilia Smirin (2667) er annar međ 2˝ vinning.
Ítarlega umfjöllun um gang mála í gćr má finna á Chess.com og á Chess24.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (heimasíđa mótsins)
- Beinar útsendingar (Chess24)
17.1.2017 | 08:47
Jón Kristinn Ţorgeirsson er Íslandsmeistari í netskák
Akureyringurinn knái, Jón Kristinn Ţorgeirsson (Jokksi99) sigrađi af fádćma öryggi á Íslandsmótinu í netskák sem fram fór í fyrradag, sunnudag. Fullyrđa má ađ Jón, sem um árabil hefur boriđ höfuđ og herđar yfir ađra norđlenska skákmenn, hafi veriđ í algjörum sérflokki á mótinu. Jón fékk alls 10,5 vinninga í 11 skákum, 1,5 vinningum meira en nćsti mađur, og leyfđi ađeins eitt jafntefli, gegn fráfarandi sexföldum Íslandsmeistara, Davíđ Kjartanssyni (Yuwono).
FIDE-meistarinn Magnús Örn Úlafsson (AC130-Ghostrider) endađi í 2. sćti međ 9 vinninga og FM Davíđ Kjartansson (Yuwono) var í ţriđja sćti međ 8 vinninga.
Mótiđ í ár var nokkuđ óhefđbundiđ, skipt var um vettvang fyrir mótiđ sem hefur átt lögheimili og varnarţing á skákţjóninum ICC um langt árabil, og teflt á Chess.com. Vistaskiptin reyndust vandasöm, en allt gekk upp á endanum og verđur vart annađ séđ en ađ keppendur hafi tekiđ breytingunni vel.
57 keppendur tóku ţátt í ár, flestir Íslendingar en einnig var nokkur fjöldi Grćnlendinga sem ákveđiđ var ađ bjóđa til ţátttöku í ár. Tefldu ţeir um óformlegan titil Grćnlandsmeistara í netskák, en sćmdarheitiđ í ţetta sinn hlaut meistarinn Ral Fleischer (SuperRal) frá Nuuk, en hann hlaut 5,5 vinninga úr skákunum 11. Brian Sřrensen (privatbss) varđ í 2. sćti, en hann hlaut alls 5 vinninga. Grćnlendingar eru ţegar farnir ađ undirbúa nćsta mót og ćtla sér enn stćrri hluti áriđ 2017.
Keppendum eru fćrđar ţakkir fyrir ţátttökuna og vonumst viđ til ađ sjá sem flesta ađ ári.
Aukaverđlaun
Aukaverđlaun eru í formi Demants áskriftarađgangs á Chess.com
Demantsađgangur veitir fullan ađgang ađ allri ţjónustu vefsins. Sem dćmi má nefna byrjanagagnagrunn, skákţrautir, ýmiskonar skákkennsla, myndbönd og fleira.
Fimm mánuđir eru veittir fyrir 1. sćti og ţrír fyrir 2. sćti í öllum flokkum.
U/2100
Tvíburarnir efnilegu, Björn Hólm (Bjorn_Holm) og Bárđur Örn Birkissynir (Bardur_Orn), fengu einnig 8 vinninga líkt og Davíđ, en voru međ heldur lakari niđurstöđu eftir stigaútreikning. Ţeir brćđur vinna hins vegar U/2100 stiga flokkinn nokkuđ örugglega, 1,5 vinningi á undan nćsta manni. Björn reyndist vera međ örlítiđ betri stöđu eftir stigaútreikning, eđa 51 stig gegn 50,5 stigum Bárđar, og vinnur ţví 1. verđlaun í ţeim flokki. Ţess má til gamans geta ađ ţeir brćđur fengu einnig jafn marga vinninga á mótinu í fyrra og stigaútreikning ţurfti til ađ skera úr um hvor vćri ofar.
U/1800
Ingvar Örn Birgisson (Harry_Kane) sigrađi í flokki skákmanna međ minna en 1800 skákstig, en hann endađi međ 6,5 vinninga (36.25 stig). Ađalsteinn Thorarensen (adlthor23) var í 2. sćti í U/1800 stiga flokki, einnig međ 6,5 vinninga (31.25) en örlítiđ lakari stig.
Stigalausir
Knútur A Óskarsson (krummmi) sigrađi nokkuđ örugglega í flokki stigalausra, hlaut alls 6 vinninga, og Sveinbjörn Jón Ásgrímsson (SveinbjornJon) er í 2. sćti međ 5 vinninga.
Kvennaflokkur
Elsa María Kristínardóttir (EMK89) sigrađi af miklu öryggi í kvennaflokki, hlaut alls sjö vinninga og endar í 8. sćti af 57 og Freyja Birkisdóttir (freyjab) var í 2. sćti.
60 ára og eldri
FIDE-meistarinn Áskell Örn Kárason (Flatus) stóđ sig best í flokki eldri og heldri skákmanna, en hann fékk alls sjö vinninga og endar í sjöunda sćti. Ögmundur Kristinsson (oddigulli) er í 2. sćti, hálfum vinningi á eftir Áskatli.
15 ára og yngri
Ungstirniđ Óskar Víkingur Davíđsson (Davidsson) sigrađi af miklu öryggi í flokki yngri skákmanna, en hann fékk alls 6,5 vinninga. Halldór Atli Kristjánsson (CAustin9) er í 2. sćti međ 4,5 vinninga.
Sjá nánar á heimasíđu Hugins.
Sérstakar skákćfingar og kennsla fyrir börn á grunnskólaaldri í Ţingeyjarsýslu hefjast miđvikudaginn 18. janúar. Skákćfingarnar verđa ókeypis og fara ţćr fram í Seiglu miđstöđ sköpunar (áđur Litlaulaugaskóli) í Reykjadal.

Frá síđasta skákmóti
Ćfingarnar fara fram annan hvern miđvikudag til ađ byrja međ og einn sunnudag í hverjum mánuđi. Reiknađ er međ ađ hver ćfing standi yfir í um einn og hálfan klukkutíma. Hluti af ćfingatímanum verđur nýttur til kennslu.
Ćfingaáćtlun í janúar og febrúar. (áćtlun fyrir mars, apríl og maí birt síđar)
Miđvikudagur 18. jan kl: 16:00
Sunnudagur 22. jan kl: 13:30
Miđvikudagur 1. feb kl: 16:00
Miđvikudagur 15. feb kl: 16:00
Sunnudagur 26. feb kl 13:30
Hermann Ađalsteinsson, Rúnar Ísleifsson, Smári Sigurđsson og Sigurbjörn Ásmundsson munu skiptast á um ađ sjá um skákćfingarnar í vetur. Einnig er stefnt ađ ţví ađ fá vanan skákkennara ađ sunnan í heimsókn eina helgi í vetur, en dagsetning liggur ekki fyrir.
Ţar sem ćfingarnar verđa ókeypis er ekki nauđsynlegt ađ forskrá ţátttakendur. Allur skákbúnađur verđur til stađar.
Miklar líkur eru á ţví ađ hefđbundin skákmót fyrir börn og unglinga sem fara venjulega fram í mars og apríl í sýslunni verđi haldin ţegar einn af skákćfingartínumum er á áćtlun í mars eđa apríl. Eins er líklegt ađ samstarf verđi viđ Skákfélag Akureyrar um barna og unglingamót međ vorinu.
Allar nánari upplýsingar um fyrirkomulag skákćfinganna verđa birtar á facebooksíđu skákfélagsins Hugins í Ţingeyjarsýslu og eru foreldrar barna á svćđinu sem ekki eru nú ţegar skráđ ţar hvött til ađ óska eftir ađgangi ţar.
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 11
- Sl. sólarhring: 21
- Sl. viku: 107
- Frá upphafi: 8778347
Annađ
- Innlit í dag: 11
- Innlit sl. viku: 81
- Gestir í dag: 11
- IP-tölur í dag: 11
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar