Færsluflokkur: Spil og leikir
3.2.2017 | 14:52
Ný alþjóðleg skákstig
Ný alþjóðleg skákstig komu út fyrir skemmstu. Litlar breytingar voru meðal íslenskra skákmanna enda ekkert innlent kappskákmót reiknað til stiga. Öllu meira fjör verður á mars-listanum þegar mót eins og Skákþing Reykjavíkur og Nóa Síríus-mótið skila sér inn.
Topp 20
No. | Name | Tit | feb.17 | Diff |
1 | Stefansson, Hannes | GM | 2570 | 0 |
2 | Steingrimsson, Hedinn | GM | 2564 | 0 |
3 | Gretarsson, Hjorvar Steinn | GM | 2563 | 0 |
4 | Hjartarson, Johann | GM | 2540 | 0 |
5 | Olafsson, Helgi | GM | 2540 | 0 |
6 | Petursson, Margeir | GM | 2513 | 0 |
7 | Danielsen, Henrik | GM | 2490 | 5 |
8 | Arnason, Jon L | GM | 2471 | 0 |
9 | Kjartansson, Gudmundur | IM | 2464 | -4 |
10 | Kristjansson, Stefan | GM | 2459 | 0 |
11 | Thorfinnsson, Bragi | IM | 2453 | 0 |
12 | Gunnarsson, Jon Viktor | IM | 2450 | 0 |
13 | Gretarsson, Helgi Ass | GM | 2448 | 0 |
14 | Thorsteins, Karl | IM | 2432 | 0 |
15 | Gunnarsson, Arnar | IM | 2431 | 0 |
16 | Thorhallsson, Throstur | GM | 2414 | 0 |
17 | Thorfinnsson, Bjorn | IM | 2404 | 0 |
18 | Jensson, Einar Hjalti | IM | 2386 | 0 |
19 | Stefansson, Vignir Vatnar | FM | 2384 | -20 |
20 | Johannesson, Ingvar Thor | FM | 2377 | 0 |
Mestu hækkanir
Hilmir Freyr Heimsson (33) hækkar mest frá janúar-listanum. Rúnar Berg (14) er annar og Hafsteinn Ágústsson (13).
No. | Name | Tit | feb.17 | Diff |
1 | Heimisson, Hilmir Freyr | 2192 | 33 | |
2 | Berg, Runar | 2129 | 14 | |
3 | Agustsson, Hafsteinn | 1921 | 13 | |
4 | Bjarnason, Oskar | 2250 | 9 | |
5 | Danielsen, Henrik | GM | 2490 | 5 |
Ungmennalisti (20 ára og yngri)
Vignir Vatnar Stefánsson (2384) er sem fyrr stigahæsta ungmenni landsins. Í næstu sætum eru Dagur Ragnarsson (2276) og Oliver Aron Jóhannesson (2224). Hilmir Freyr Heimsson (2192) er kominn alla leið uppí fjórða sæti með góðri frammistöðu síðustu mánuði.
No. | Name | Tit | feb.17 | B-day | Diff |
1 | Stefansson, Vignir Vatnar | FM | 2384 | 2003 | -20 |
2 | Ragnarsson, Dagur | FM | 2276 | 1997 | 0 |
3 | Johannesson, Oliver | FM | 2224 | 1998 | 0 |
4 | Heimisson, Hilmir Freyr | 2192 | 2001 | 33 | |
5 | Thorgeirsson, Jon Kristinn | 2176 | 1999 | 0 | |
6 | Birkisson, Bardur Orn | 2175 | 2000 | 0 | |
7 | Hardarson, Jon Trausti | 2157 | 1997 | 0 | |
8 | Thorhallsson, Simon | 2085 | 1999 | 0 | |
9 | Jonsson, Gauti Pall | 2036 | 1999 | 0 | |
10 | Birkisson, Bjorn Holm | 1979 | 2000 | 0 |
Heimslistinn
Magnus Carlsen (2838) er sem fyrr stigahæsti skákmaður heims. Munurinn á næstu menn hefur þó minnkað verulega. Í 2. og 3. sæti eru Bandaríkjamennirnir Fabiano Caruana (2827) og Wesley So (2822).
3.2.2017 | 12:52
Rúnar og Sigurður unnu riðlakeppni Janúarmótsins
Rúnar Ísleifsson og Sigurður Daníelsson unnu riðlakeppni Janúarmóts Hugins sem lauk í gær. Rúnar stóð uppi sem sigurvegari í Vestur-riðli með 3 vinninga af 4 mögulegum og fór taplaus í gegnum riðilinn. Tómas Veigar varð í öðru sæti með 2.5 vinninga og Hjörleifur Halldórsson varð þriðji með 2 vinninga. Vestur-riðillinn á chess-results.
Sigurður Daníelsson vann sigur í Húsavíkur-riðlinum með 4,5 vinninga að 5 mögulegum og fór taplaus í gegnum riðlinn. það sama gerði Hermann Aðalsteinsson sem varð í öðru sæti með 4 vinninga. Smári Sigurðsson varð þriðji með 3,5 vinninga. Húsavíkur-riðlinn á chess-results.
Úrslitakeppni Janúarmótsins er fyrirhuguð 11. febrúar á Húasvík, en þar er keppt um endaleg sæti í mótinu. Ekki er þó búið að staðfesta þá dagsetningu endanlega. Fyrirkomulagið verður eins og undanfarin ár. Þeir sem enduðu í 1. sæti í hvorum riðli fyrir sig, tefla tvær kappskákir um 1. sætið og sigurinn í mótinu. Þeir sem lentu í 2. sæti í hvorum riðli tefla um þriðja sætið og svo koll af kolli. Verði staðan jöfn að loknum tveimur kappskákum verða tefldar tvær hraðskákir og náist ekki fram úrslit verður tefld armageddon skák til að skera úr um sigurvegarann.
Í úrsltiakeppninni mætast:
- Rúnar Ísleifsson Sigurður Daníelsson
- Tómas Veigar Sigurðarson Hermann Aðalsteinsson
- Hjörleifur Halldórsson Smári Sigurðsson
- Hjörtur Steinbersson Sigurbjörn Ásmundsson
- Ármann Olgeirrsson Sighvatur Karlsson
- Ævar Ákason ?
Þar sem 5 kepptu í Vestur-riðli en 6 í Húsavíkurriðli vantar einn keppanda inn í úrslitakeppnina, en góðar líkur eru á því að hann finnist.
Nánar á Skákhuganum.
3.2.2017 | 10:27
Reykjavíkurmót grunnskólasveita fer fram á mánudaginn
Reykjavíkurmót grunnskólasveita verður haldið í húsnæði Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 mánudaginn 6.febrúar og hefst mótið kl.17. Þetta fjölmenna skákmót, sem er árviss viðburður í reykvískri skólaskák, er samvinnuverkefni Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og Taflfélags Reykjavíkur.
Tefldar verða sjö umferðir eftir svissnesku kerfi. Umhugsunartími er 8 mínútur fyrir hverja skák og bætast 2 sekúndur við umhugsunartímann eftir hvern leik (8+2). Þátttökurétt hafa allir nemendur í grunnskólum Reykjavíkur í 1.-10.bekk. Allar sveitirnar keppa í einum opnum flokki og verða veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin auk þess sem þrjár efstu stúlknasveitirnar hljóta verðlaun. Hver sveit skal skipuð fjórum nemendum auk 0-4 varamanna. Áætlað er að mótinu ljúki um kl.20. Verðlaunaafhending fer fram strax að móti loknu.
Sigursveitin hlýtur nafnbótina Reykjavíkurmeistari grunnskólasveita 2017 og hlýtur farandbikar til vörslu í eitt ár. Núverandi Reykjavíkurmeistari er Laugalækjarskóli og Rimaskóli varð hlutskarpastur í stúlknaflokki.
Mikilvægt er að skólar sendi fylgdarmann með sínu liði, keppendum til halds og trausts, en ekki síður til að mótshaldið gangi hratt og örugglega fyrir sig. Æskilegt er að hver liðsstjóri stýri að hámarki tveimur sveitum.
Skráning í mótið fer fram í gegnum skráningarform á vef Taflfélags Reykjavíkur (einnig aðgengilegt á www.skak.is) og lýkur skráningu sunnudaginn 5.febrúar. Ekki verður hægt að skrá lið á mótsstað. Frekari upplýsingar um mótið má nálgast með því að senda fyrirspurn á netfangið taflfelag@taflfelag.is.
3.2.2017 | 07:00
Toyota-skákmótið fer fram í dag
Föstudaginn, 3. febrúar, verður 10. TOYOTASKÁKMÓTIÐ haldið í höfuðstöðvum Toyota í Kauptúni. Mótið hefst stundvíslega kl. 13.00. Tefldar verða 9 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma.
Æsir sjá um framkvæmdina en Toyota gefur öll verðlaun og veitingar.
Engin þátttökugjöld.
Það eru 22 búnir að skrá sig til leiks.
Þeir sem ætla að vera með en eru ekki búnir að skrá sig eru vinsamlega beðnir að gera það í netfang finnur.kr@internet.is eða síma 8931238 og í netfang rokk@internet.is eða síma 8984805.
Stjórnin
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2017 | 22:55
SÞR 8.umferð: Guðmundur Kjartansson vann Björn Þorfinnsson og er efstur fyrir síðustu umferð
Guðmundur Kjartansson hafði sigur í viðureign alþjóðameistaranna í gærkvöldi. Björn Þorfinnsson lék snemma biskup til f4 en sú byrjun er kennd við sjálfa Lundúnaborg. Hún þótti óvenjuleg og sakleysisleg fyrir nokkrum árum en það er nú allt breytt. Bæði er hún orðin reglulegur hluti af vopnabúri sterkustu skákmanna og svo var ekkert sakleysislegt við byrjanataflmennsku Björns; hann blés strax til sóknar á kóngsvæng og mátti hvorki vera að því að hróka né nýta sér þjónustu hróks og riddara á drottningarvæng. Það var einmitt þar sem Guðmundur braust í gegn fyrst en svo beindi hann fljótt sjónum að heimakærum kóngi Björns og hafði sigur. Það táknar að Guðmundur er einn efstur með 7 vinninga fyrir síðustu umferð. Á eftir honum koma Lenka Ptacnikova sem hafði betur gegn Björgvini Víglundssyni og Dagur Ragnarsson sem lagði Þorvarð Fannar eftir að sá síðarnefndi hafði misstigið sig aðeins, snemma tafls. Þau tvö eru ½ vinningi á eftir Guðmundi.
Þó nokkrir eru að standa sig vel á mótinu og bæta töluverðu í, miðað við áætlaðan styrkleika skv. stigum. Þar má t.d. nefna Norðmanninn knáa Jon Olav Fivelstad, Hilmar Þorsteinsson og Óskar Long Einarsson.
Fyrir lokaumferðina er Guðmundur Kjartansson sá eini sem hefur málin að öllu leyti í eigin höndum, ef litið er til möguleika á fyrsta sætinu; aðrir þurfa að treysta á hagstæð úrslit í öðrum viðureignum. Guðmundur mætir Benedikti Jónassyni sem vann sína þriðju skák í röð gegn Jon Olav Fivelstad. Björn Þorfinnsson hefur hvítt gegn Degi Ragnarssyni og Lenka hvítt gegn Daða Ómarssyni. Guðmundur, Lenka, Dagur, Björn og Benedikt eiga öll möguleika á fyrsta sætinu.
Hingað til hefur verið teflt á sunnudögum og miðvikudögum en lokaumferðin fer fram á morgun, föstudaginn 3. febrúar og hefst kl. 19:30.
Önnur úrslit 8. umferðar og nánar um pörun má sjá á Chess-results.
Nánar á heimasíðu TR.
Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur fest sig í sessi undanfarin misseri og fer nú af stað þriðja árið í röð. Mót syrpunnar í vetur verða fimm talsins og hefur umferðum hvers móts verið fjölgað í sjö.
Fjórða mót Bikarsyrpunnar hefst föstudaginn 10. febrúar og stendur til sunnudagsins 12. febrúar. Tefldar eru 7 umferðir eftir svissnesku kerfi. Tímamörk eru 30 mínútur + 30 sekúndur á hvern leik og geta skákirnar því varað í allt að tvær klukkustundir. Þó svo mikilvægt sé að börnin vandi sig og noti tímann vel, þá má gera ráð fyrir að margar skákir taki mun styttri tíma.
Við endurtökum leikinn og höldum að auki meðfram Bikarsyrpunni Bikarmót stúlkna sem mæltist vel fyrir á síðastliðnum mótum. Með því gefst stelpum sem vilja prófa form Bikarsyrpunnar aukið tækifæri á að spreyta sig áður en þær taka þátt í sjálfri Bikarsyrpunni. Tefldar verða fimm umferðir í stúlknamótinu, ein á föstudag og tvær hvorn daginn laugardag og sunnudag, en að öðru leyti verður fyrirkomulag hið sama og í Bikarsyrpunni. Nánari dagskrá má sjá hér að neðan.
Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að tefla í kappskákmótum, en hingað til hefur þeim börnum sem vilja tefla á alvöru mótum einkum staðið til boða að taka þátt í opnum mótum. Þar er styrkleikamunur oft mikill og mótin taka langan tíma, auk þess sem mörgum börnum óar við tilhugsuninni um að tefla við fullorðna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan er svarið við því. Þessi mótaröð TR er ekki síður sniðin að þörfum þeirra barna sem dreymir um að næla sér í sín fyrstu skákstig.
Einungis börn á grunnskólaaldri (fædd árið 2001 eða síðar) sem ekki hafa náð 1600 alþjóðlegum skákstigum geta tekið þátt í mótum Bikarsyrpunnar. Þannig er styrkleikamunurinn minni en ella og börnin njóta þess betur að tefla. Tímamörkin eru jafnframt styttri, og henta börnum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíðkast á hefðbundnum kappskákmótum fullorðinna. Mótin uppfylla öll skilyrði Alþjóða skáksambandsins FIDE og eru reiknuð til alþjóðlegra skákstiga.
Dagskrá Bikarsyrpu IV:
1. umferð: 10. febrúar kl. 17.30 (fös)
2. umferð: 11. febrúar kl. 10.00 (lau)
3. umferð: 11. febrúar kl. 13.00 (lau)
4. umferð: 11. febrúar kl. 16.00 (lau)
5. umferð: 12. febrúar kl. 10.00 (sun)
6. umferð: 12. febrúar kl. 13.00 (sun)
7. umferð: 12. febrúar kl. 16.00 (sun)
Dagskrá Bikarmóts stúlkna:
1. umferð: 10. febrúar kl. 17.30 (fös)
2. umferð: 11. febrúar kl. 10.00 (lau)
3. umferð: 11. febrúar kl. 13.00 (lau)
4. umferð: 12. febrúar kl. 10.00 (sun)
5. umferð: 12. febrúar kl. 13.00 (sun)
Verðlaunaafhending fer fram strax að lokinni síðustu umferð hvors móts fyrir sig.
Tvær yfirsetur (bye) eru leyfðar í umferðum 1-5 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu (í stúlknamótinu er ein yfirseta leyfð í umferðum 1-3). Tilkynna þarf skákstjóra um yfirsetu fyrir lok umferðarinnar á undan.
Þátttökugjald í mótið er 1.500kr. Börn sem eru félagar í TR greiða ekki þátttökugjald.
Sigurvegari hvors móts hlýtur að launum bikar. Verðlaunapeningur eru veittur fyrir 2. sæti og 3. sæti. Sérstök verðlaun verða veitt næsta vor fyrir samanlagðan árangur í mótunum fimm, þar á meðal er veglegur farandbikar. Þá verða veitt sérstök verðlaun fyrir samanlagðan árangur fyrir börn sem eru félagar í TR, en það eru einkatímar hjá einhverjum af sterkustu skákmönnum félagsins; 1. sæti gefur 5 einkatíma, 2. sæti gefur 3 einkatíma og 3. sæti gefur 2 einkatíma.
Vinsamlegast skráið þátttakendur sem fyrst, það hjálpar til við undirbúning mótsins. Hlökkum til að sjá ykkur!
Skákstjórn: Þórir Benediktsson (867 3109) og Sigurlaug R. Friðþjófsdóttir (862 6290)
Skráningarform
1.2.2017 | 23:04
Skákþing Akureyrar: Óvænt úrslit og röðun fimmtu umferðar
Nú er öllum skákum fjórðu umferðar Skákþings Akureyrar lokið með viðureign Alex C. Orrasonar og Haraldar Haraldssonar. Þar virtist sá síðarnefndi vera á sigurbraut en gleymdi sér eitt augnablik og féll á tíma, sem þýðir aðeins eitt; skákin tapast.
Eftir fjórar umferðir af sjö er því staða efstu manna sem hér segir:
- Andri Freyr Björgvinsson 4
- Jón Kristinn Þorgeirsson og
- Tómas Veigar Sigurðarson 3
- Hreinn Hrafnsson,
- Sveinbjörn Sigurðsson og
- Ulker Gasanova 2,5
- Alex Cambay Orrason
- Ágúst Ívar Árnason og
- Karl Egill Steingrímsson 2
Fimmta umferð verður skv. áætlun tefld nk. sunnudag.
Þá eigast þessi við:
- Andri Freyr og Tómas
- Jón Kristinn og Hreinn
- Sveinbjörn og Ulker
- Alex og Karl
- Haraldur og Ágúst
- Fannar og Heiðar
- Gabríel situr hjá
1.2.2017 | 23:00
Toyota-skákmótið fer fram á föstudaginn
Föstudaginn, 3. febrúar, verður 10. TOYOTASKÁKMÓTIÐ haldið í höfuðstöðvum Toyota í Kauptúni. Mótið hefst stundvíslega kl. 13.00. Tefldar verða 9 umferðir með 10 mínútna umhugsunartíma.
Æsir sjá um framkvæmdina en Toyota gefur öll verðlaun og veitingar.
Engin þátttökugjöld.
Það eru 22 búnir að skrá sig til leiks.
Þeir sem ætla að vera með en eru ekki búnir að skrá sig eru vinsamlega beðnir að gera það í netfang finnur.kr@internet.is eða síma 8931238 og í netfang rokk@internet.is eða síma 8984805.
Stjórnin
1.2.2017 | 16:27
Hraðskákmót Reykjavíkur fer fram á sunnudaginn
Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 sunnudaginn 5.febrúar og hefst taflið kl. 13.
Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 4+2 (4 mínútur auk 2 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.
Þátttökugjald er 1.000 kr. Frítt er í mótið fyrir félagsmenn TR sem eru 17 ára eða yngri. Skráning fer fram á skákstað og lýkur henni klukkan 12:50.
Eftir Hraðskákmótið fer fram verðlaunaafhending fyrir Skákþing Reykjavíkur.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin auk þess sem krýndur verður Hraðskákmeistari Reykjavíkur. Ríkjandi meistari er Róbert Lagerman. Undanfarin 10 ár hafa sex skákmeistarar borið titilinn Hraðskákmeistari Reykjavíkur, þar af einn stórmeistari og fjórir Fídemeistarar:
2016: Róbert Lagerman 2015: Dagur Ragnarsson 2014: Róbert Lagerman 2013: Oliver Aron Jóhannesson 2012: Davíð Kjartansson 2011: Hjörvar Steinn Grétarsson 2010: Torfi Leósson 2009: Hjörvar Steinn Grétarsson 2008: Davíð Kjartansson 2007: Davíð Kjartansson.
1.2.2017 | 16:26
Hraðskákmót Reykjavíkur fer fram á sunnudaginn
Hraðskákmót Reykjavíkur verður haldið í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni 12 sunnudaginn 5.febrúar og hefst taflið kl. 13.
Tefldar verða 11 umferðir með tímamörkunum 4+2 (4 mínútur auk 2 sekúndna viðbótartíma eftir hvern leik). Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.
Þátttökugjald er 1.000 kr. Frítt er í mótið fyrir félagsmenn TR sem eru 17 ára eða yngri. Skráning fer fram á skákstað og lýkur henni klukkan 12:50.
Eftir Hraðskákmótið fer fram verðlaunaafhending fyrir Skákþing Reykjavíkur.
Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin auk þess sem krýndur verður Hraðskákmeistari Reykjavíkur. Ríkjandi meistari er Róbert Lagerman. Undanfarin 10 ár hafa sex skákmeistarar borið titilinn Hraðskákmeistari Reykjavíkur, þar af einn stórmeistari og fjórir Fídemeistarar:
2016: Róbert Lagerman 2015: Dagur Ragnarsson 2014: Róbert Lagerman 2013: Oliver Aron Jóhannesson 2012: Davíð Kjartansson 2011: Hjörvar Steinn Grétarsson 2010: Torfi Leósson 2009: Hjörvar Steinn Grétarsson 2008: Davíð Kjartansson 2007: Davíð Kjartansson.
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 15
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 105
- Frá upphafi: 8778336
Annað
- Innlit í dag: 12
- Innlit sl. viku: 77
- Gestir í dag: 12
- IP-tölur í dag: 11
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar