Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Íţróttir

Björn tapađi í Rúmeníu

Alţjóđlegi meistarinn Björn Ţorfinnsson (2390) tapađi fyrir búlgarska stórmeistarann Boris Chatalbashev (2593) í sjöundu umferđ alţjóđlega mótsins í Eforie í Rúmeníu.  Björn hefur 5 vinninga og er í 11.-26. sćti.   Í áttundu og nćstsíđustu umferđ, sem fram fer á morgun teflir Björn viđ rúmenska stórmeistarann Bela Badea (2495).  Skákin verđur sýnd beint á vefsíđu mótsins og hefst kl. 13:30.

Örn Leó Jóhannsson (1820) vann Birki Karl Sigurđsson (1442) en Mikael Jóhann Karlsson (1726) tapađi.    Mikael og Örn hafa 3 vinninga en Birkir hefur 2 vinninga.

Ítalski stórmeistarinn Daniele Vocaturo (2493) er efstur međ 6,5 vinning. 

181 skákmađur tekur ţátt í ţessu skákmóti.  Ţar 17 stórmeistarar og 21 alţjóđlegur meistari.  Björn er númer 34 í stigaröđ keppenda.  

 

 

 


Annađ Sumarskákmót Vinnuskólans fer fram í dag

yfirlit 2Í sumar efnir Vinnuskóli Reykjavíkur í samstarfi viđ Skákakademíu Reykjavíkur til útiskákmóta á útitaflinu viđ Lćkjartorg. Mótin verđa haldin miđvikudaganna 16, 23. júní, 30. júní og 7. júlí og hefjast klukkan 12:30 og má búast viđ ađ mótin taki um 2 klst. Mótin verđa međ sama sniđi og í fyrra en tefldar verđa 5-6 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma.  Mótaröđin er opin öllum og er ađ sjálfsögđu ókeypis ađ taka ţátt.  Ţátttaka takmarkast viđ 40 keppendur og er ţví mikilvćgt ađ keppendur mćti tímanlega.Utitafliđ

Sú skemmtilega hefđ var sett á í fyrra ađ úrslitaskák mótsins vćri tefld á stóra útitaflinu, enda léttleikinn í fyrirrúmi. Verđlaunin verđa afar fjölbreytt allt frá skákbókum, kaffivinningum og gjafakörfum frá Kaffitár auk dýrindis máltíđa á Hamborgarabúllunni og The Deli. 

Ţađ er óskandi ađ veđurguđirnir leiki viđ skákmenn nćstu fjóra miđvikudaga en engu ađ síđur eru ţátttakendur hvattir til ađ klćđa sig eftir veđri!

Skákstjórar í sumar verđa : Davíđ Kjartansson, Björn Ţorfinnsson, Bragi Ţorfinnsson.

Myndaalbúm Sumarskákmótana


Skákir Stigamóts Hellis

Vigfús Ó. Vigfússon hefur slegiđ inn skákir Stigamóts Hellis (umferđir 5-7).  Ţćr fylgja međ fréttinni.

 


Lenka Íslandsmeistari kvenna í skák

 

Íslandsmeistarinn í skák 2010

 

Í kvöld fór fram verđlaunaafhending Íslandsmóts kvenna í skák.  Lenka Ptácníková varđ Íslandsmeistari kvenna í skák í ţriđja sinn eftir 2-0 sigur á Jóhönnu Björg Jóhannsdóttir í úrslitaeinvígi en ţćr urđu efstar og jafnar međ 4 vinninga í 5 skákum.  Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir varđ í ţriđja sćti međ 3,5 vinning.

 

Jóhanna og Hallgerđur

 

Ţćr ţrjár skipa kvennalandsliđ Íslands á Ólympíuskákmótinu í Síberíu í haust ásamt Sigurlaugu R. Friđţjófsdóttur og Tinna Kristínu Finnbogadóttur.

 

Picture 003

 

 

 


Björn sigrađi stórmeistara - er í 2.-8. sćti

Alţjóđlegi meistarinn Björn Ţorfinnsson (2390) sigrađi rússneska stórmeistarann Alexei Gavrilov (2494) í sjöttu umferđ alţjóđlega mótsins í Eforie í Rúmeníu.  Björn er nú 2.-8. sćti međ 5 vinninga.  Í sjöundu umferđ, sem fram fer á morgun, teflir Björn viđ búlgarska stórmeistarann Boris Chatalbashev (2593).  

Mikael Jóhann Karlsson (1726), sigrađi í sinni skák, Birkir Karl Sigurđsson (1442) gerđi jafntefli en Örn Leó Jóhannsson (2820) tapađi.  Mikael hefur 3 vinninga en Örn Leó og Birkir Karl hafa 2 vinninga.

Ítalski stórmeistarinn Daniele Vocaturo (2493) er efstur međ 5,5 vinning.  181 skákmađur tekur ţátt í ţessu skákmóti.  Ţar 17 stórmeistarar og 21 alţjóđlegur meistari.  Björn er númer 34 í stigaröđ keppenda.  

 

 

 


Carlsen sigrađi ekki

Magnus Carlsen (2813) ţurfti ađ sćtta sig viđ jafntefli viđ Gelfand (2741) í áttundu umferđ alţjóđlega mótsins í Medzina í Rúmeníu sem fram fór í dag.  Heimamađurinn Nisipeanu (2672) vann Wang Yue (2752) en Radjabov (2740) og Ponomariov (2733) gerđu jafntefli.  Carlsen hefur 1 vinnings forskot á Gelfand ţegar tveimur umferđum er ólokiđ.  Frídagur er á morgun.

Stađan:
  • 1. Carlsen (2813) 6 v.
  • 2. Gelfand (2741) 5 v.
  • 3. Radjabov (2740) 4 v.
  • 4. Nisipeanu (2672) 3˝
  • 5. Ponomariov (2733) 3 v.
  • 6. Wang Yue (2752) 2˝ v.
Sex skákmenn taka ţátt og tefld er tvöföld umferđ.  Međalstig eru 2742 skákstig sem gerir ţetta eitt sterkasta skákmót ársins.  

Henrik vann í lokaumferđinni í Osló

Henrik ađ tafliStórmeistarinn Henrik Danielsen (2514) vann danska FIDE-meistarann Nils Ragnar Grotnes(2223) í níundu og síđustu umferđ minningarmótsins um Svein Johannessen sem fram fór í Osló í morgun.  Henrik hlaut 6 vinninga og endađi í 5.-10. sćti. 

Sigurvegar mótsins urđu stórmeistararnir Jon Ludvig Hammer (2610), Noregi, og Mark Hebden (2539), Englandi, en ţeir hlutu 7 vinninga.  

Árangur Henriks samsvarar 2498 skákstigum og stendur hann í stađ fyrir frammistöđu sína.  

Alls taka 60 skákmenn ţátt í mótinu og ţar af 6 stórmeistarar.  Henrik er fjórđi stigahćsti ţátttakandi mótsins.  Mótiđ er níu umferđir en tekur ađeins fimm daga.

 

 


Stefán sigrađi á fyrsta sumarmóti Vinnuskólans og Akademíunnar

Stefán BergssonFyrsta sumarmót Vinnuskóla Reykjavíkur og Skákakademíu Reykjavíkur fór fram miđvikudaginn 16. júní síđastliđinn viđ útitafliđ í Lćkjargötu. Mótiđ hófst kl.12.30 og voru tefldar fimm umferđir međ 7 mín. umhugsunartíma. Veđriđ var afar milt og gott ţótt ađ sólin hafi ekki látiđ sjá sig nema ţó akkúrat á međan mótinu stóđ! Alls tóku 28 skákmenn ţátt í mótinu  sem verđur ađ teljast frábćrt og settu börn úr skákhópi Skákakademíu Reykjavíkur sem og unglingar úr Vinnuskólans í Reykjavík mikinn svip á mótiđ í bland viđ reyndari skákmenn.

Skákmótin eru liđur í frćđslustarfi Vinnuskóla Reykjavíkur í ađ vekja áhuga unglinganna á skáklistinni, miđbćjarlífiđ og glćđa bćinn mannlífi. Viđburđir sem ţessi vekja óskipta athygli erlendra ferđamanna og gesta borgarinnar sem eiga leiđ hjá, og myndast ţví mjög skemmtileg stemmning í kringum mótin.

Úrslitaskákin fór fram á sjálfu útitaflinu og var tefld međ klukku. Tilgangurinn var sá ađ afsanna ađ skák vćri ekki íţrótt en viđbúiđ var ađ viđureignin yrđi verulega athyglisverđ ef keppendur kćmust í mikiđ tímahrak. Úrslitaskákin var spennandi og vel tefld af báđum keppendum ţeim Stefáni Bergssyni og Oliver Aron ţar sem Stefán syndi sennilega eina ótrúlegustu takta sem hafa sést á útitaflinu. Skemmtileg og bragđgóđ verđlaun voru í bođi Hamborgarabúllunnar sem fóru ađ sjálfsögđu afar vel í keppendur.

Mótiđ heppnađist frábćrlega og voru ţátttakendur á öllum aldri. Nćsta mót verđur haldiđ á morgun 23 Júní og hefst ţađ kl 12:30

Stađa efstu manna :

  • 1 Stefán Bergsson
  • 2 Oliver Aron Jóhannesson
  • 3. Sigríđur Björg Helgadóttir
  • 4 Kristinn Andri Kristinsson
  • 5. Arnar Valgeirsson
  • 6. Kristófer Jóel Jóhannesson
  • 7. Hrund Hauksdóttir
  • 8, Davíđ Roach Gunnarsson

Skákstjórar : Björn Ţorfinnsson og Davíđ Kjartansson.


Henrik tapađi fyrir Mikkelsen

Henrik ađ tafliStórmeistarinn Henrik Danielsen (2514) tapađi fyrir danska alţjóđlega meistarann Nikolaj Mikkelsen (2409) í áttundu og nćstsíđustu umferđ minningarmótsins um Svein Johannessen sem fram fór í Osló í morgun.  Henrik hefur 5 vinninga og er 12.-14. sćti.   Í níundu og síđustu umferđ, sem fram fer síđar í dag, teflir Henrik viđ danska FIDE-meistarann Nils Ragnar Grotnes (2223).

Norski stórmeistarinn Jon Ludvig Hammer (2610) er efstur međ međ 6˝ vinning og enski stórmeistarinn Mark Hebden (2539) og Mikkelsen eru í 2.-3. sćti međ 6 vinninga.

Alls taka 60 skákmenn ţátt í mótinu og ţar af 6 stórmeistarar.  Henrik er fjórđi stigahćsti ţátttakandi mótsins.  Mótiđ er níu umferđir en tekur ađeins fimm daga.

 

 


Lenka Íslandsmeistari kvenna

Úrslitaskák Jóhönnu og LenkuLenka Ptácníková (2267) sigrađi Jóhönnu Björg Jóhannsdóttur (1738) í síđari einvígisskák ţeirra um Íslandsmeistaratitil kvenna í skák.    Lenka sigrađi ţví í einvíginu 2-0 og er nú Íslandsmeistari í ţriđja sinn!

Verđlaunaafhending fer fram kl. 19:30 í Skáksambandinu á morgun.

Ritstjóri óskar Lenku til hamingju međ titilinn!

Allar skákir Íslandsmótsins sem og einvígisins fylgja međ fréttinni.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 13
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 101
  • Frá upphafi: 8778268

Annađ

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 77
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband