Fćrsluflokkur: Íslendingar erlendis
Íslensku liđin er bćđi efst Norđurlanda ađ lokinni fimmtu umferđ Ólympíuskákmótsins sem fram fór í gćr. Liđiđ í opnum flokki mćtir Íran og stelpurnar mćta mjög sterkri sveit Slóvakíu.
Í dag er frídagur og ćtlar íslenski hópurinn ađ fara í skođunarferđ og skođa slóđir Mammútanna.
Georgíumenn, Ungverjar og Armenar eru efstir međ 10 stig í opnum flokki. Úkraínumenn og Rússar I eru efstir í kvennaflokki međ 10 stig.
Stađa Norđurlandanna í opnum flokki:
- 22. Ísland, 7 stig
- 25. Svíţjóđ, 7 stig
- 30. Noregur, 7 stig
- 35. Finnland, 7 stig
- 62. Fćreyjar, 6 stig
- 64. Danmörk, 5 stig
Stađa Norđurlandanna í kvennaflokki:
- 47. Ísland, 6 stig
- 60. Noregur, 5 stig
- 69. Svíţjóđ, 4 stig
- 78. Danmörk, 4 stig
Íslendingar erlendis | Breytt s.d. kl. 14:43 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2010 | 09:45
Ţriđja umferđ Ólympíuskákmótsins hafin
Ţriđja umferđ Ólympíuskákmótsins er hafin, hófst kl. 9 í morgun. Liđiđ í opna flokknum teflir viđ sterka sveit Grikkja en stelpurnar tefla viđ Víetnama.
Hćgt er ađ horfa a báđar viđureignirnar beint.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar
- Chess-Results (opinn flokkur)
- Chess-Results (kvennaflokkur)
- Chessdom
- Myndaalbúm
Íslendingar erlendis | Breytt s.d. kl. 09:52 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2010 | 15:12
Jafntefli gegn Svíum - sigur gegn Írum
Íslenska liđiđ í opnum flokki gerđi 2-2 jafntefli viđ sveit Svía í 2. umferđ Ólympíuskákmótsins sem fram fór í Khanty Mansiysk Síberíu í dag. Bragi Ţorfinnsson vann stórmeistarann Slavko Cisak, Hannes Hlífar Stefánsson og Héđinn Steingrímsson gerđu jafntefli viđ Emanuel Berg og Evgenij Agrest en Björn Ţorfinnsson tapađi fyrir Nils Grandelius sem virđist ćtla ađ vera Íslendingum erfiđur í skauti. Góđ úrslit enda Svíarnir stigahćrri á öllum borđum. Íslenska kvennaliđiđ vann öruggan 3,5-0,5 sigur á Írum.
Lenka Ptácníková, Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir, Tinna Kristín Finnbogadóttir unnu en Sigurlaug R. Friđţjófsdóttir náđi seiglujafntefli.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar
- Chess-Results (opinn flokkur)
- Chess-Results (kvennaflokkur)
- Chessdom
- Myndaalbúm
22.9.2010 | 10:45
Ól í skák: Fjórđi pistill
Ţađ gekk vel og illa í fyrstu umferđ Ólympíuskákmótsins. Karlaliđiđ vann fremur auđveldan sigur á liđi Haítíbúa 4-0 en íslenska kvennaliđiđ tapađi 0-4 fyrir sterku liđi Pólverja. Bćđi Lenka og Hallgerđur höfđu ţćr vćnlega stöđu. Framkvćmd mótsins hefur veriđ bćđi FIDE og mótshöldurum til mikillar fyrirmyndar, ţvert oní ýmsar hrakspár. Góđ stemming er í íslenska hópnum og tilhlökkun fyrir komandi umferđir.
Helgi Ólafsson, hafđi sagt okkar allmargar sögur af fyrri mótshöldum í Rússlandi/Sovétríkjum ţar sem gengiđ hafđi á ýmsu. Hér er nánast allt eins og ţađ á vera og meira ađ segja veđriđ leikur viđ okkur í Síberíu.
En fyrst um umferđina og eins og vera ber er íslenska kvennaliđiđ í forgrunni hjá ritstjóranum, sem talar nú um okkur stelpurnar". Viđ mćttum sveit Pólverja. Lenka tefldi stórvel á móti hinni sterku Socko, sem er 20. stigahćsta skákkona heims og hafđi sennilega veriđ komin međ betra tafl en lék af sér slysalega manni. Lenka náđi samt góđu sprikli og var ekki langt frá ţví ađ vera komin međ jafnteflissénsa. Hallgerđur fékk einnig mjög vćnlegt tafl og hefur sennilega veriđ komin međ töluvert betra og gat e.t.v. fórnađ manni fyrir vćnlegt tafl. Hallgerđur vanmat hins vegar sénsa sína og smá saman fékk verra og tapađi. Tinna lék af sér manni fljótlega og átti ekki séns eftir ţađ og Jóhanna tapađi ţrátt fyrir skemmtilegt sprikl ţegar hún var komin međ lakara tafl.
Nú er ţađ svo komiđ ađ ég fylgist betur međ stelpunum. Mér skilst á Helga ađ allir strákarnir hafi unniđ fremur öruggra sigra. Ekki kemur á óvart ađ Bjössi hafi lagt töluvert á stöđuna en samt allt undir kóntról!
Stelpurnar mćta írsku stelpunum í dag. Írarnir koma međ nokkuđ breytt liđ miđađ viđ síđustu Ólympíuskákmót og vitum viđ lítum um ţćr og fáar skákir međ í beisnum. Jóhanna Björg hvílir í dag.
Strákarnir mćta Svíum eins og svo áđur. Eins og viđ gerđum ráđ fyrir hvíla ţeir Tiger-inn. Athyglisverđ viđureign en okkur hefur oft gengiđ ágćtlega á móti Svíum.
Hollendingar mćtta Rússlandi IV en ţađ var van Wely, fyrsta borđs mađur ţeirra, sem var manna reiđastur yfir fjölda rússneskra liđa.
Viđ upphaf fyrstu umferđar í gćr setti skákstjórinn mótiđ, sem er rösk rússnesk kona, sem ég ekki kann deili á. Kirsan labbađi svo á milli borđa í fylgd ríkisstjórans og tók í hendur skákstjóranna. Skákstjórinn á okkar borđi kom okkur kunnuglega fyrir sjónir en er vćntanlega náskyldur Alberti Einstein. Ţegar hann kom ađ borđi íslenska
karlaliđsins fór ríkisstjórinn ađ hlćja og sló í bakađi í Hjörvari, fannst greinilega gaman ađ ţví ađ finna ţarna annađ rauđhćrt eintak!
Mađur hitti auđvitađ ýmsa gamla kunningja. Ali, forseti tyrkneska skáksambandsins, og forsetaframbjóđandi í ECU, heilsađi mér eins og viđ vćrum fjölskylduvinir. Hann er sannfćrđur umsigur í forsetakosningunum. Ég hitti einnig Geoffrey Borg, frá Möltu, og spjallađi ég töluvert viđ hann. Á sama tíma kom ţangađ forseti nígeríska skáksambandsins og spurđi Borg okkur hvort viđ hefđum hitt Kirsan. Skömmu síđar greip hann Kirsan og lét okkur heilsa kappanum. Ég er ekki frá ţví ađ hann hafi tekiđ innilegra í hendurnar á ţeim nígeríska en ţeim íslenska.
Í fyrstu umferđ mćttust Ísrael og Jemen. Jemenar mćttu ekki, vćntanlega ţar sem land ţeirra viđurkennir ekki Ísrael. Mér skilst ađ ađeins Egyptar ađ Arabaţjóđunum tefli viđ Ísraelsmenn. Borg fannst ţađ klúđur ađ rađa svona upp, og taldi ađ skákstjórar ćttu í svona tilfellum ađ hliđra einu liđi til eđa frá til ađ koma veg fyrir slík atvit.
Hér á göngunum hittir mađur marga gamla kunningja. Pabbi Cori-systkinina brosir alltaf út af eyrum ţegar hann sér mig en hann kann ekki stakt orđ í ensku svo bros á milli okkar verđur ađ duga.
Ég spjallađi töluvert viđ Ivan Sokolov í dag sem vill ólmur koma á nćsta MP Reykjavíkurskákmót. Ivan er bjartsýnn á gengi Karpovs en ég met stöđu hans fremur slaka. Ivan veit vonandi eitthvađ meira en ég.
Allar ađstćđur eru hér til fyrirmyndar eins og áđur hefur komiđ fram. Eitt atriđi pirrar ţó íslensku skákmennina en til ađ fara á salerniđ ţarf ađ labba í gegnum reykherbergi. Engir Evrópustađlar varđandi reykingar hér í Rússlandi.
Viđ setninguna var lifandi tafl eins og áđur hefur komiđ fram. Ţar var tefld ódauđlega skákin sem ég held ađ allir skákáhugamenn kannist viđ. Fyrir framan Íslendinga voru skákmenn sem voru ađ velta ţví fyrir sér hvađ skák ţetta vćri. Eftir smá umrćđur sagđi einhver some random game". Ég spái ţessu liđi ekki góđu gengi hér!
Björn Ţorfinnsson var í lyftuferđalagi fyrir fyrstu umferđina. Ţar heyrir hann tal enskumćlandi manna. Annar segir:
How is your opponent".
He is very solid players and rarely loses"
Og bćtti svo viđ
I am mostly analyzing his match against Kasparov".
Sá sem svarađi svo skemmtilega var Sam Collins, fyrsta borđs mađur Íra, sem mćttu Rússum. Rússar hvíldu reyndar Kramnik en Collins gerđi jafntefli viđ Grischuk!
Ég sé ađ ţađ er óraunhćft hjá mér ađ koma ţessum pistlum frá mér fyrir kl. 10. Ég spái ađ verđi frekar á milli 10:30-11:00. Ég bendi á fjölda mynda sem ég hef tekiđ og finna má í myndaalbúmi á Skák.is. Allar skákir mótsins eru nú sýndar beint og verđur settur inn tengill á ţćr í upphafi hverrar umferđar. Ég bendi einnig á Facebook-síđu mína, http://www.facebook.com/forzeti, ţar sem ég stefni á styttri komment. Skákir hverrar umferđar verđa svo tengdar á úrslit viđkomandi umferđar.
Eins og fyrr eru allir í góđu standi og viljum viđ ţakka fyrir allar góđu kveđjurnar sem viđ höfum fengiđ frá íslensku skákáhugamönnum.
Kveđja úr sveittu blađamannaherbergi.
Gunnar Björnsson
Íslendingar erlendis | Breytt s.d. kl. 10:47 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
22.9.2010 | 09:28
Önnur umferđ Ólympíuskákmótsins hafin
Önnur umferđ Ólympíuskákmótsins er hafin, hófst kl. 9 í morgun. Hjörvar Steinn Grétarsson hvílir í viđureigninni gegn Svíum og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir hvílir hjá konunum gegn Írunum. Hćgt er ađ horfa a báđar viđureignirnar beint.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar
- Chess-Results (opinn flokkur)
- Chess-Results (kvennaflokkur)
- Chessdom
- Myndaalbúm
21.9.2010 | 18:44
Ól í skák: Svíar og Írar á morgun
Íslensku liđin mćta liđum Svía og Íra í 2. umferđ Ólympíuskákmótsins sem fram fer í fyrramáliđ. Liđiđ í opnum flokki mćtir liđa Svía og kvennaliđiđ mćtir liđi Íra. Umferđin hefst kl. 9. Rétt er ađ minna á beinar útsendingar frá öllum skákum mótsins.
Liđsuppstillingar liđsins liggja fyrir í nótt.
Liđ Svía:
1 GM Berg Emanuel 2616 SWE
2 GM Agrest Evgenij 2585 SWE
3 GM Hillarp Persson Tiger 2517 SWE
4 GM Cicak Slavko 2568 SWE
5 GM Grandelius Nils 2500 SWE
Međalstig Svíanna eru 2527 en til samanburđar eru međalstig íslensku sveitarinnar 2489 skákstig.
Liđ Íra:
1 Shaughnessy Elizabeth 0
2 Alfred Emily 0
3 Hearne Sarah-Jane 0
4 WCM O'Boyle Una 0
5 Benson Nicola 1407
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar
- Chess-Results (opinn flokkur)
- Chess-Results (kvennaflokkur)
- Chessdom
- Myndaalbúm
21.9.2010 | 15:00
Stórsigur á Haítí - tap gegn Pólverjum
Íslenska liđiđ í opnum flokki vann stórsigur á Haítibúum í fyrstu umferđ Ólympíuskákmótsins í Síberíu í Rússland Hannes Hlífar Stefánsson, brćđurnir Bragi og Björn Ţorfinnssynir og Hjörvar Steinn Grétarsson unnu allir fremur góđa sigra. Íslenska kvennaliđiđ tapađi 0-4 fyrir sterku pólsku liđi.
Ađstćđur á skákstađ og mótsstađ eru allar hinar bestu og allir liđsmenn í góđu standi. Pörun fyrir ađra umferđ, sem fram fer í fyrramáliđ og hefst kl. 9, er vćntanleg um 16-17. Gera má ráđ fyrir ađ liđiđ opnum flokki mćti mjög sterkri sveit.
Hćgt er ađ horfa á allar skákir mótsins beint (sjá tenglasafn neđst).
Ritstjóri vill sérstaklega benda á myndaalbúm mótsins en ţar má finna fjölda mynda frá fyrstu umferđ og glćsilegri setningu sem fram fór í gćr.
Úrslit 1. umferđar:
Sanon Mondoly | 2120 | GM | Stefansson Hannes | 2585 | 0-1 |
Luxama Jacques | 0 | IM | Thorfinnsson Bragi | 2415 | 0-1 |
Lebrun Piersont | 1956 | IM | Thorfinnsson Bjorn | 2404 | 0-1 |
Bazil Joslin | 0 | Gretarsson Hjorvar Steinn | 2398 | 0-1 |
GM | Socko Monika | 2486 | WGM | Ptacnikova Lenka | 2282 | 1-0 |
WGM | Zawadzka Jolanta | 2410 | Thorsteinsdottir Hallgerdur | 1995 | 1-0 | |
WGM | Majdan-Gajewska Joanna | 2333 | Finnbogadottir Tinna Kristin | 1781 | 1-0 | |
IM | Dworakowska Joanna | 2315 | Johannsdottir Johanna Bjorg | 1781 | 1-0 |
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar
- Chess-Results (opinn flokkur)
- Chess-Results (kvennaflokkur)
- Chessdom
- Myndaalbúm
Íslendingar erlendis | Breytt s.d. kl. 15:01 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
21.9.2010 | 10:30
Ólympíuskákmótiđ hafiđ - brćđur tefla í fyrsta sinn fyrir Íslands hönd
39. Ólympíuskákmótiđ er hafiđ í Khanty Mansiysk í Síberíu í Rússlandi. Brćđur tefla í fyrsta sinn fyrir Íslands hönd á Ólympíuskakmóti en Bragi og Björn Ţorfinnssynir tefla ásamt ţeim Hannesi Hlífari Stefánssyni og Hjörvari Steini Grétarssyni í opnum flokki gegn sveit Haítí. Héđinn Steingrímsson hvílir. Í kvennaflokki tefla Lenka Ptácníková, Hallgerđur Helga Ţorsteinsdóttir, Tinna Kristín Finnbogadóttir og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir. Sigurlaug Regína Friđţjófsdóttir hvílir.
Björn, Hjörvar, Tinna og Jóhanna Björg eru öll ađ tefla sína fyrstu skák á Ólympíuskakmóti.
21.9.2010 | 10:29
Ól í skák: Pistill nr. 3
Í gćr var Ólympíumótiđ sett međ pompi og prakt Mikiđ sjóv eins og sjá í međfylgjandi myndum. Mikiđ dansađ, dansandi taflmenn, og tefld var skák međ lifandi mönnum. Ég ćtla ađ sleppa ţví ađ upplýsa hvađ skák sé hérna á ferđinni. Treysti ţví ađ skákáhugamenn ţekki stöđumyndina".
Í gćr kom í ljós ađ mér yrđi ekki hnikađ til á milli hótela. Ég á ađ vera hóteli FIDE-fulltrúa. Ekkert stórmál ţar sem hóteliđ er í 5 mínútna akstursfjarlćgđ og leigubílar ódýrir. Ég mun koma á ađalhóteliđ á morgnana, borđa međ liđunum og fara međ til og frá mótsstađ. Hóteliđ mitt verđur fyrst og fremst svefnstađur. Krakkarnir eru á 12. hćđinni, öll á sama gangi, sem auđveldar lífiđ, og ég er međ fínan beis hér frammi á gangi ţar sem ég get skrifađ pistla.
Leigubílar hér virđast ekki vera ţeir skilvirkustu. Í gćrkveldi var mér sagt ađ bíđa í 5 mínútur en eftir 20 mínútur brotnađi ég og labbađi ţeim. Löggur og hermenn eru hér út um allt, hreinlega á öllum gatnamótum ţannig ađ mađur fyllist öryggiskennd. Í morgun tók ég ađ mér ađ skila pörun kvennaliđsins en lenti í ţví ađ leigubílsstjórinn vissi ekki hvar hóteliđ var og ég slapp inn á síđustu metrunum. Er búinn ađ semja viđ Helga um ađ hann skili framvegis fyrir kvennaliđiđ.
Viđ nokkrir félagarnir tókum okkur til og tókum ágćtan göngutúr í í gćr á milli hótelanna. Ţetta er um 20-25 mínútur og skemmtileg leiđ. Viđ löbbum međal annars í gegnum stórt torg ţar sem sjá ýmis minnismerki um um stríđiđ og m.a. skriđdreki. Nokkrar myndir frá ţví í myndaalbúmi.
Ađstćđur á hótelinu eru til fyrirmyndar. Net á herbergjum, reyndar bara eitt net svo krakkarnir ţurfa ađ skiptast á snúru. Maturinn og ţjónusta hvorutveggja til fyrirmyndar og svo erum viđ međ sérstaka ađstođarkonu hana Nataliyu sem á ađ hjálpa okkur. Krakkarnir kvarta reyndar yfir koddum og hefur komiđ upp sú hugmynd ađ finna Rúmfatalagerinn í Khanty! Hóteliđ er mjög nýtt, svo nýtt ađ teppalykt liggur hér yfir öllu og mađur getur smitast af sementi viđ ađ koma viđ veggi. Helsti gallinn er lyfturnar sem hafa tekiđ upp á ýmsu. Sigurlaug lenti í lyftuárás í gćr, fékk stóran marblett en skynjarinn var bilađur. Helgi hefur ráđlagt mönnum ađ taka stigann niđur ţegar lagt er af stađ í umferđir.
Ţađ var gott ađ koma snemma á mótsstađ. Tímamismunurinn eru sex tímar og ţađ tekur alltaf smá tíma ađ ađlaga sig. Í gćr var ég hlusta hádegisfréttir á RÚV í gegnum netiđ kl. 18:20 og kíkti á kvöldfréttirnar áđur ég fór ađ sofa!
Liđsstjórafundur var í gćr. Nokkrir athyglisverđar punktar ţar. Zero-tolarance reglan gildir enn. Ţađ ţýđir ađ menn verđa ađ vera mćttir tímanlega á skákstađ. Pörun á ađ vera tilbúinn um kl. 22-22:30 á kvöldin og liđsuppstillingar eiga ađ liggja fyrir um 10:30 á morgnana. Ţađ gekk ekki eftir en vonandi eru ţar á ferđinni byrjunarerfiđleikar. Svo eiga menn ađ taka rautt spjald ţegar ţeir fara á klósettiđ og skila ţví ţegar ţeir koma til baka. Á eftir ađ átta mig betur á ţví hvernig ţetta virkar. Eitt fyndiđ atriđi gerđist á fundinum. Spurt var hvađ gerđist ef liđsuppstillingu vćri ekki skilađ í tćka tíđ. Ţví var svarađ, then players 1-4 (vonn tú for)". Ţá spurđi einhver útúr sal, What about board three?".
Mikiđ var deilt á FIDE fyrir fjölda rússneskra liđa. Í reglum FIDE mun víst standa ađ heimaliđiđ fái 2 liđ og 3 liđ ef stendur á stöku. FIDE var ţegar búiđ ađ bćta viđ fjórđa liđinu og svo kemur fimmta liđiđ inn ţar sem stendur á stöku! Ţetta féll í grýttan jarđveg. Sum liđ fá greitt í samrćmi viđ lokasćti á mótinu og ţau liđ eru eđli málsins ekki ánćgđ međ ţetta. Van Wely var mjög illur út í Stubbenwoll, sem er einn ađalkallinn, og sagđi you are cheatin". Stubbenwoll varđi sig međ FIDE decision" en Van Wely minnti ţá jafnóđum á FIDE-rules". Mig grunar ađ reglurnar hafi veriđ sveigđar" eins og svo oft áđur í skákinni og Rússarnir styđji enn frekar viđ mótshaldiđ.
Nánar um opnunarhátíđina. Hún var einkar glćsileg. Eftir öllum dansatriđum kom sjálfur Dmitry Medvedev, forseti Rússlands, og hélt rćđu, reyndar í gegnum netbúnađ. Arkady Dvorkovich forseti rússneska skáksambandsins sagđi einnig nokkur orđ sem og Kirsan og bćjarstjórinn í Khanty. Virkilega flott setning og Rússunum til sóma. Hápunkturinn var lifandi tafliđ sem var mjög vel gert.
Ţessir pistlar mínir eru skrifađir í nokkrum áföngum. Yfirleitt byrja ég á kvöldin, skrifa svo aftur ađ morgni til og fínpússa og klára eftir ađ umferđ hefst. Ég á almennt von á ţví ađ pistlarnir verđi ađgengilegir fyrir kl. 10 á morgana. Ég reyni ađ hafa í dag" og í gćr" rétt en lofa engu! Ef til vantar ţví einhverja samfellu í textann en ég biđ menn um virđa ţađ.
Í dag tefla liđin viđ liđ Haítí og Póllands. Liđum í báđum flokkum hefur fćkkađ. Í opnum flokki eru 148 liđ og eru strákunum rađađ nr. 58. Haítí er nr. 128 svo vonandi byrja ţeir vel. Héđinn hvílir og ţví nýliđarnir strax ađ spreyta sig.
Í kvennaflokki taka 114 liđ ţátt. Íslandi er rađađ nr. 67 og tefla viđ Pólland sem er 10. Sterkasta sveitin. Sveitin teflir ţví í svokölluđ minni sal ţar sem efstu sveitirnar tefla. Liđsstjórinn ákvađ ađ skella nýliđunum Tinnu og Jóhönnu strax í djúpu laugina og reynsluboltinn Sigurlaug hvílir í dag. Erfitt verkefni hjá stelpunum ţar sem pólsku stelpurnar eru ađ međaltali 400 stigum hćrri.
Mótiđ hófst á réttum. Kirsan var hér viđ upphaf mótsins, labbađi fram hjá öllum borđum í fylgd ríkisstjórans. Allmargar myndir bćtast viđ bćđi frá setningunni og umferđinni. Ég náđi ţví miđur ekki ađ flokka ţćr og setja inn í textann eins og ćtlađi. Stefni ađ ţví síđar.
Allir eru hressir og kátir!
Meira á morgun,
Gunnar
Íslendingar erlendis | Breytt 22.9.2010 kl. 15:07 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
20.9.2010 | 19:45
Ól í skák: Haíti og Pólland í 1. umferđ
Pörun fyrstu umferđar Ólympíuskákmótsins liggur fyrir. Andstćđingar í opna flokknum verđur liđ Haíti og en stelpurnar mćta sterku liđi Pólverja.
Liđ Haíti:
Bo. | Name | Rtg | |
1 | Sanon Mondoly | 2120 | |
2 | Luxama Jacques | 0 | |
3 | Lebrun Piersont | 1956 | |
4 | Bazil Joslin | 0 | |
5 | Lamothe Pierre Marie Jean | 0 |
Liđ Pólverja:
Bo. | Name | Rtg | |
1 | GM | Socko Monika | 2486 |
2 | WGM | Zawadzka Jolanta | 2410 |
3 | WGM | Majdan-Gajewska Joanna | 2333 |
4 | IM | Dworakowska Joanna | 2315 |
5 | WGM | Kadziolka Beata | 2295 |
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.6.): 3
- Sl. sólarhring: 22
- Sl. viku: 117
- Frá upphafi: 8778438
Annađ
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 93
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar