Færsluflokkur: Íslendingar erlendis
4.7.2009 | 18:20
Guðmundur með fimmta jafnteflið í röð
FIDE-meistarinn Guðmundur Kjartansson (2388) gerði jafntefli við portúgalska stórmeistarann Luis Galego (2454) í áttundu og næstsíðustu umferð Big Slicks-mótsins, sem fram fór í Lundúnum í dag. Guðmundur hefur 2,5 vinning og er níundi.
Rússneski stórmeistarinn Alexander Cherniav (2423) er efstur með 6 vinninga. Annar er enski stórmeistarinn Keith Arkell (2517) með 5,5 vinning. Í 3.-4. sæti með 5 vinninga, eru Galego og Rússinn Alexei Slavin (2308).
Í lokaumferðinni, sem fram fer á morgun, teflir Guðmundur við enska skákmanninn og stigalægsta keppanda mótsins, Peter S Poobalasingam (2240).
Alls taka 10 skákmenn þátt í efsta flokki og tefla þeir allir við alla. Til að ná áfanga að stórmeistaraáfanga þarf 7 vinninga en til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli þarf 5,5 vinning.
30.6.2009 | 19:14
Guðmundur með jafntefli í fjórðu umferð
FIDE-meistarinn Guðmundur Kjartansson (2388) gerði jafntefli við enska FIDE-meistarann Robert Eames (2312) í fjórðu umferð Big Slick-mótsins, sem fram fór í dag, í London. Guðmundur hefur hálfan vinning. Í fimmtu umferð, sem fram fer á morgun, teflir Guðmundur við Rússann Alexei Slavin (2308).
Efstir með 3 vinninga eru enski stórmeistarinn Keith Arkell (2517), rússneski stórmeistarinn Alexmder Cherniav (2423) og andstæðingur Guðmundur á morgun, áðurnefndur Slavin.
Úrslit 4. umferðar:Cherniaev 1/2 Arkell
Eames 1/2 Kjartansson
Slavin 1-0 Rudd
Gormally 1/2 Poobalasingam
Ansell 1/2 Galego
30.6.2009 | 16:41
Guðmundur tapaði í þriðju umferð í London
FIDE-meistarinn Guðmundur Kjartansson (2388) tapaði fyrir enska stórmeistaranum Keith Arkell (2517), sem jafnframt er stigahæsti keppandi mótsins, í þriðju umferð Big Slick-skákmótsins sem fram fór í London í gær. Guðmundur er enn ekki kominn á blað.
Efstir með 2,5 eru Arkell og rússneski stórmeistarinn, Alexander Cherniav (2423).
Úrslit 3. umferðar:
Ansell 0-1 Cherniaev
Galego 1/2 Gormally
Poobalasingam 1/2 Slavin
Rudd 1-0 Eames
Kjartansson 0-1 Arkell
29.6.2009 | 10:22
Guðmundur tapaði í 2. umferð í London
FIDE-meistarinn Guðmundur Kjartansson (2388) tapaði fyrir rússneska alþjóðlega meistaranum Alexander Cherniev (2423) í 2. umferð Blig Slick Chess-mótsins, sem fram fór í London í gær. Guðmundur er enn ekki kominn á blað.
Í þriðju umferð, sem fram fer í dag, teflir Guðmundur við enska stórmeistarann Keith Arkell (2517), sem er stigahæstur keppenda.
Efstir með 1,5 vinning eru Cherniev, landi hans Alexei Slavin (2308), Arkell og portúgalski stórmeistarinn Luis Galego (2454)
Úrslit 1. umferðar:
Gormally 1/2 Cherniaev
Ansell 0 -1 Slavin
Galego 1 0 Eames
Poobalasingam 1/2 Arkell
Rudd 1-0 Kjartansson
Úrslit 2. umferðar:
Cherniaev 1-0 Kjartansson
Arkell 1-0 Rudd
Eames 1/2 Poobalasingam
Slavin 1/2 Galego
Gormally 0-1 Ansell
Alls taka 10 skákmenn þátt í efsta flokki og tefla þeir allir við alla. Til að ná áfanga að stórmeistaraáfanga þarf 7 vinninga en til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli þarf 5,5 vinning.
27.6.2009 | 18:21
Guðmundur tapaði í fyrstu umferð á stóra sleipa skákmótinu
FIDE-meistarinn Guðmundur Kjartansson (2388) tapaði fyrir enska alþjóðlega meistaranum Jack Rudd (2357) í fyrstu umferð stóra sleipa skákmótsins (Big Slick Chess) sem fram fór í dag í London en teflt mun vera í spilavíti. Í 2. umferð, sem fram fer á morgun, teflir Guðmundur við rússneska alþjóðlega meistarann Alexander Cherniev (2423).
Alls taka 10 skákmenn þátt í efsta flokki og tefla þeir allir við alla. Til að ná áfanga að stórmeistaraáfanga þarf 7 vinninga en til að ná áfanga að alþjóðlegum meistaratitli þarf 5,5 vinning.
23.6.2009 | 17:37
Bragi tapaði í lokaumferðinni
Alþjóðlegi meistarinn Bragi Þorfinnsson (2383) tapaði fyrir Norðmanninum Nicolai Getz (2191) í níundu og síðustu umferð minningarmótsins um Svein Johannessen sem fram fór í Osló í dag. Bragi hlaut 5 vinninga og hafnaði í 17.-27 sæti. Bragi lækkar um 16 stig fyrir frammistöðu sína á mótinu.
Norski stórmeistarinn Jon Ludvig Hammer (2582) vann öruggan sigur á mótinu en hann hlaut 8 vinninga. Í 2.-4. sæti urðu Norðmennirnir Frode Olav Olsen Urkedal (2321), sem er FIDE-meistari, og Hallvard V Ådnøy (2316) og enski stórmeistarinn Mark L Hebden (2510) en þeir hlutu allir 6½ vinning.
Heimasíða mótsins
22.6.2009 | 20:03
Bragi sigraði í sjöundu umferð
Alþjóðlegi meistarinn Bragi Þorfinnsson (2383) vann norska FIDE-meistarann Trond Gabrielsen (2300) í sjöundu umferð minningarmótsins um Svein Johannessen sem fram fór í Osló í dag. Bragi hefur 5 vinninga og er í 4.-8. sæti.
Í áttundu og næstsíðustu umferð, sem fram fer í fyrramálið og verður væntanlega sýnd beint á vefsíðu mótsins, teflir Bragi við Norðmanninn Hallvard V Ådnøy (2299).
Efstir með 6 vinninga eru Norðmennirnir Jon Ludvig Hammer (2582), stórmeistari, og Frode Olav Olsen Urkedal (2321). Þriðji með 5½ vinning er áðurnefndur Ådnøy.
Tilvalið er fyrir árrisula að horfa á skák Braga þar sem hún hefst kl. 7 í fyrramálið.
22.6.2009 | 16:17
Bragi með jafntefli í fjórðu umferð
Alþjóðlegi meistarinn Bragi Þorfinnsson (2383) gerði jafntefli við hinn unga og efnilega Dana Mads Andersen (2244) í sjöttu umferð minningarmótsins um Svein Johannessen sem fram fór í dag. Bragi hefur 4 vinninga og er í 8.-14. sæti.
Efstir með 5 vinninga eru danski alþjóðlegi meistarinn Nikolaj Mikkelsen (2394), norsku stórmeistararnir Leif Ögaard (2392) og Jon Ludvig Hammer (2582) og norski FIDE-meistarinn Frode Olav Olsen Urkedal (2321).
22.6.2009 | 00:40
Bragi með 3½ vinning eftir 5 umferðir í Osló
Alþjóðlegi meistarinn Bragi Þorfinnsson (2383) hefur 3½ vinning að loknum fimm umferð á minningarmóti um Svein Johannessen sem fram fer í Osló.
Bragi hefur teflt við Norðmenn í öllum umferðum. Hann sigraði 3 skákmenn á stigabilinu 1966-2191, gerði jafntefli við Daniel Jakobsen Kovachev (2256) og tapaði loks fyrir stórmeistaranum Jon Ludvig Hammer (2566) í fimmtu umferð.
Í sjöttu umferð, sem fram fer í fyrramálið, teflir hann við Danann Mads Andersen (2244).
Norski stórmeistarinn Leif Øgaard (2403) er efstur með fullt hús.
Íslendingar erlendis | Breytt s.d. kl. 00:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2009 | 22:47
Guðmundur gerði jafntefli í níundu umferð
FIDE-meistarinn Guðmundur Kjartansson (2388) gerði jafntefli við ungverska alþjóðlega meistarann Pal Petran (2361) í níundu og næstsíðustu umferð AM-flokks First Saturday-mótsins sem fram fór í kvöld í Búdapest. Guðmundur hefur 6½ vinning og þarf sigur í lokaumferðinni, sem fram fer á morgun, til að tryggja sér lokaáfangann að alþjóðlegum meistaratitli en þá teflir hann við austurríska skákmanninn Florian Potz (2231).
Í AM-flokknum, sem Guðmundur teflir í, taka 6 skákmenn þátt og tefld er tvöföld umferð. Meðalstig eru 2281 skákstig og til að ná áfanga þarf 7,5 vinning í 10 skákum.
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 17
- Sl. sólarhring: 22
- Sl. viku: 132
- Frá upphafi: 8778468
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 99
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar