Bloggfærslur mánaðarins, september 2016
5.9.2016 | 13:22
ÓL: Öruggur sigur gegn Sýrlandi
Ingvar Þór Jóhannesson, landsliðseinvaldur Íslands í opnum flokki, sagði sigur liðsins gegn Sýrlandi í 3.umferð hafa verið mjög öruggan. Ingvar Þór taldi skák Braga Þorfinnssonar á 4.borði hafa verið mjög góða og lærdómsríka. Bragi sagði skjótan sigur Hannesar Hlífars Stefánssonar á 1.borði hafi gefið liðinu aukið sjálfstraust.
5.9.2016 | 13:08
ÓL: Lenka segir undirbúninginn hafa gengið fullkomlega upp
Lenka Ptacnikova (2159) leiddi íslenska liðið til sigurs gegn sterku liði Englands í 3.umferð sem fram fór í gær. Lenka vann sjálf góðan sigur gegn hinni sterku Jovanka Houska (2396) sem er alþjóðlegur meistari.
Lenka sagði undirbúninginn fyrir viðureignina hafa gengið upp og flestar skákir þróuðust eins og reiknað var með. Það sem jók enn á einbeitingu liðsins var loforð þess efnis að ef liðið myndi leggja England að velli fengi það að fara í parísarhjólið sem stendur svo tignarlega við ströndina. Parísarhjólið er um 60 metra hátt og er gjarnan kallað Auga Bakú.
5.9.2016 | 12:43
Haustmisseri Skákskóla Íslands
Skákskólinn Íslands hefur hauststarfsemina uppúr miðjum september með hefðbundinni kennslu í flokkum skólans. Skákskóli Íslands verður einnig með starfsemi í Mosfellsbæ, í Stúkunni á Kópavogsvelli, Selfossi og víðar.
Skákskóli Íslands mun eins og undanfarin ár einbeita sér að kennslu/þjálfun ungra skákmanna, pilta og stúlkna sem vilja bæta árangur sinn verulega.
Bestu ungu skákmenn þjóðarinnar eru meðal nemenda skólans.
Skákskóli Íslands sinnir hlutverki sínu með því að bjóða upp á hóptíma, einkakennslu, æfingabúðir, skákmót á borð við kynslóðamót þar sem ungir skákmenn hafa fengið að spreyta sig gegn fremstu skákmönnum þjóðarinnar og Meistaramót Skákskólans hefur verið langsterkasta og best skipaða skákmót fyrir ungmenni á ári hverju.
Þjálfun fyrir einstök verkefni og á meðan þeim stendur hefur verið snar þáttur í starfsemi Skákskóla Íslands. Má nefna keppnir á borð við heimsmeistaramót ungmenna í öllum aldursflokkum , Evrópumótum ungmenna, ólympíumót 16 ára yngri, Norðurlandamót en fararstjórn og þjálfun á slíkum mótum hefur verið á hendi starfsmanna skólans og skólastjórn. Þjálfun og kennsla fyrir skólalið sem hyggjast taka þátt í hinum ýmsu grunnskólamótum er annar valkostur.
Skákskóli Íslands beinir því til foreldra og forráðamanna skákfélaga að leita eftir samstarfi við Skákskóla Íslands.
Skólastjóri Skákskóla Íslands er Helgi Ólafsson alþjóðlegur stórmeistari og FIDE senior trainer. Hann er jafnframt einn aðalkennari skólans ásamt stórmeistaranum Hjörvari Steini Grétarssyni, Birni Ívari Karlssyni landsliðsþjálfara Lenku Ptacnikovu stórmeistara kvenna , og fleirum.
Verð: Kr. 15.000.- pr. önn
Skráning: skaksamband@skaksamband.is Sími 5689141 kl. 9-13 virka daga.
5.9.2016 | 12:15
ÓL: Kvennaliðið á leið upp í Auga Bakú
Eftir þungt 0-4 tap íslenska kvennaliðsins gegn Ítalíu í 2.umferð opnaði landsliðseinvaldurinn, Björn Ívar Karlsson, verkfærakistuna. Þar fann hann afar öflug verkfæri, trúlega hönnuð og smíðuð í Vestmannaeyjum, sem hann notaði til að styrkja íslenska kvennaliðið fyrir viðureignina gegn mjög sterku liði Englands í 3.umferð.
Taflmennskan gegn Englandi var kröftug og tímastjórnun með miklum ágætum. Það sem vakti þó mesta athygli var aðferðin sem notuð var til að ná fram því besta hjá liðsmönnum. Ákveðið var að ef liðið myndi vinna England færi hópurinn allur saman í parísarhjól sem staðsett er við ströndina. Eftir glæsilegan sigur gegn Englandi, 2,5-1,5, liggur ljóst fyrir að kvennaliðið er á leið upp í hið magnaða 60 metra háa parísarhjól, eða Auga Bakú eins og það er gjarnan kallað.
5.9.2016 | 08:41
Viðureignir dagsins: Færeyjar og Moldóva
Fjórða umferð Ólympíuskákmótsins hefst kl. 11 í dag. Andstæðingar karlaliðsins eru frændur okkar og vinir Færeyingar. Jóhann Hjartarson hvílir í dag.
Íslenska kvennaliðið mætir sveit Moldóvu. Hrund Hauksdóttir hvílir.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 11)
5.9.2016 | 08:25
Haustmót TR hefst sunnudaginn 18. september
Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 2016 hefst sunnudaginn 18. september kl.14. Mótið, sem er hið 83. í röðinni, er eitt af aðalmótum vetrarins í reykvísku skáklífi og er jafnframt meistaramót T.R. Mótið er flokkaskipt og öllum opið.
Haustmótið fer fram í félagsheimili Taflfélags Reykjavíkur, skákhöllinni að Faxafeni 12. Tefldar verða þrjár umferðir á viku og eru alls níu umferðir í hverjum flokki. Lokuðu flokkarnir eru skipaðir tíu keppendum hver þar sem allir tefla við alla, en í opna flokknum er teflt eftir svissnesku kerfi. Í lokaða flokka er keppendum raðað eftir Elo-skákstigum.
Skráningu í alla lokaða flokka lýkur laugardaginn 17. september kl. 18.
Lokaumferð fer fram sunnudaginn 16. október en mótinu lýkur með verðlaunaafhendingu miðvikudaginn 19. október þegar Hraðskákmót TR fer fram.
Núverandi skákmeistari Taflfélags Reykjavíkur er Bragi Þorfinnsson.
Dagskrá:
1. umferð: Sunnudag 18. september kl. 14.00
2. umferð: Miðvikudag 21. september kl. 19.30
3. umferð: Föstudag 23. september kl. 19.30
Hlé
4. umferð: Miðvikudag 5. október kl.19.30
5. umferð: Föstudag 7. október kl. 19.30
6. umferð: Sunnudag 9. október kl. 14.00
7. umferð: Miðvikudag 12. október kl. 19.30
8. umferð: Föstudag 14. október kl. 19.30
9. umferð: Sunnudag 16. október. kl. 14.00
Í opna flokknum eru leyfðar tvær yfirsetur (bye) í umferðum 1-6 og fæst 1/2 vinningur fyrir hvora yfirsetu. Tilkynna þarf skákstjóra um yfirsetu fyrir lok umferðarinnar á undan.
Verðlaun í A-flokki:
1. sæti kr. 100.000
2. sæti kr. 50.000
3. sæti kr. 25.000
4. og 5. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2017
Verðlaun í B-flokki:
1. sæti kr. 20.000
2.-3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2017
Verðlaun í C-flokki:
1. sæti kr. 15.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2017
Verðlaun í opnum flokki:
1. sæti kr. 10.000
2. og 3. sæti ókeypis í Skákþing Reykjavíkur 2017
Ef lokuðum flokkum fjölgar þá verða verðlaun í þeim þau sömu og í C-flokki. Að auki ávinnur sigurvegari hvers flokks sér þátttökurétt í næsta styrkleikaflokki að ári liðnu. Verði keppendur jafnir í efstu sætum verður peningaverðlaunum skipt en stigaútreikningur látinn ráða lokaröð keppenda.
Tímamörk:
1 klst. og 30 mín. + 30 sek. á leik. Að loknum 40 leikjum bætast við 15 mínútur.
Þátttökugjöld:
3.500 kr. fyrir félagsmenn T.R. 18 ára og eldri (5.000 kr. fyrir aðra).
1.500 kr. fyrir félagsmenn T.R. 17 ára og yngri (2.500 kr. fyrir aðra).
5.9.2016 | 07:00
Afmælismót TV fer fram næstu helgi
Helgina 10.-11. september 2016 fer fram atskákmót í Eyjum í tilefni af 90 ára afmæli Taflfélags Vestmannaeyja.
Keppendur verða úr Eyjum og á fastalandinu. Reiknað er með flestir keppendur ofan af landi komi með Herjólfi laugardaginn 10. september. frá Landeyjahöfn kl. 09.45 og til Eyja um kl. 10.30. Akstur frá Reykjavík til Landeyjahafnar tekur tæplega 2 klst. og þurfa farþegar og ökutæki að vera mætt 30 mín. fyrir brottför Herjólfs frá Landeyjahöfn. Algengt er að farþegar geymi ökutæki sín á bílastæðum í Landeyjahöfn meðan á dvöl þeirra í Eyjum stendur.
Næsta ferð til Landeyjahafnar frá Eyjum að loknu skákmótinu er kl. 18.30 sunnudaginn 11. sept og nú síðasta þann dag kl. 21.00 um kvöldið. Mæting um borð 30 mín. fyrir brottför.
Tefldar verða níu umferðir, umhugsun 20 mín. á skák auk 5 sek. á hvern leik. Reiknað er með að umferðin taki um 60 mín. Skákstjóri verður Stefán Bergsson.
Laugardagur 10. sept. 2016
Kl. 12.00 17.00 Tefldar verða fimm umferðir fyrri daginn.
Kl. 17.00 18.00 Skoðunarferð með rútu um Heimaey.
Sunnudagur 11. sept. 2016
Kl. 12.00 - 16.00 Tefldar verða fjórar umferðir seinni daginn.
Kl. 16.30 17.00 Mótsslit og verðlaunahending.
Ekkert þátttökugjald á atskákmótið og í skoðunarferðina.
Fyrstu verðlaun verða 75 þús. kr., önnur verðlaun kr. 50 þús. kr. og þriðju verðlaun kr. 25 þús. kr. Landsbankinn er helsti stuðningsaðili mótsins.
Nánari upplýsingar um ferðir til og frá Eyjum á herjolfur.is og gistingu í Eyjum á visitvestmannaeyjar.is
Skráning þátttakenda á 90 ára afmælismótið fer fram á Skák.is.
Upplýsingar um þegar skráða keppendur má finna hér.
Afmælisnefnd Taflfélags Vestmannaeyja.
Spil og leikir | Breytt 29.8.2016 kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2016 | 21:20
Ólympíuskákmótið: 3. umferð í opnum flokki
Segja má að skyldusigur hafi unnist í dag á sveit Sýrlendinga 3,5-0,5. Fyrirfram vorum við stigahærri á öllum borðum á bilinu 200-400 elostig og því 3,5 eða 4 úrslit sem hefði mátt búast við. Sýrlendingar hvíldu sinn stigahæsta mann í dag en hann hafði í fyrstu umferð náð jafntefli gegn Salgado Lopez hjá Spáni. Sýrlendingar lentu í hremmingum snemma í mótinu með vegabréfbréfsáritun og voru aðeins þrír mættir í fyrstu umferð gegn Spánverjum. Þeir sóttu hinsvegar í sig veðrið í annarri umferð og unnu þar Mauritius 3,5-0,5.
1. borð - Hannes hvítt á A.K. Rayes (2254)
Hannes tefldi eins og í fyrstu umferðinni örugga skák með hvítu mönnunum. Svipað og í fystu umferð var drepið á d4 og margt líkt með þeim skákum í raun og veru. Í báðum tilvikum var Hannes mjög fljótur að fá yfirburðartafl. Í skákinni í dag lék andstæðingurinn ónákvæmum leikjum og lenti fljótlega í algjörri "krippu". Var staða hans í raun svo léleg að Björn Ívar liðsstjóri kvennaliðsins lýsti yfir áhyggjum yfir því að Hannes færi að patta svartan í miðtaflinu, svo léleg var staðan.
(Staðan hvar Björn Ívar hafði áhyggjur af því að svartur væri að verða patt)
Niðurstaðan auðveldur vinningur.
2. borð - Hjörvar svart á G.Bello (2096)
Anstæðingur Hjörvars tefldi varíant á hvítt sem Hjörvar er með 9-0 skor´í! Hjörvar beið spenntur eftir endirbót eða einhverju óvæntu en upp á slíkt var ekki boðið. Var Hjörvar í raun kominn með yfirburðartafl og hvítur búinn að gera það mörg mistök að honum fannst að hann ætti að vinna stöðuna tiltölulega hratt. Hjörvar lagði því e.t.v. aðeins of mikið á stöðuna þar sem hann taldi að hún ætti að vinnast hratt og örugglega. Í staðinn varð verkefni aðeins lengra og erfiðara og varð Hjörvar að snúa hann niður í tímahrakinu.
Staðan úr byrjuninni, svartur með allt sem hann vill!
Í raun var sigurinn þó aldrei í mikilli hættu en samt fékk andstæðingur Hjörvars einn séns á að bjarga sér. Eins og svo oft, þá er munurinn á styrkleika skákmanna að nýta þessa sénsa og það gerði andstæðingur Hjörvars ekki :-)
3. borð - Jóhann hvítt á Sohib (2153)
Jóhann tefldi Spánverjann og kom andstæðingi sínum á óvart með d3 afbrigði sem hann hafði ekki stúderað. Svo vildi til að andstæðingur hans hafði stúderað vel og bjóst við aðalafbrigðum með He1 og vísaði í nokkra sigra á Short hjá Jóhanni. Jóhann hafði stúderað þetta afbrigði fyrir skákina og þá helst þessa blessuðu ofurstórmeistara með 2700 stig. Því miður áttaði Jóhann sig á að þessir 2700 stórmeistarar eru bara ekki að tefla upp á neinn skapaðn hlut með hvítu. Jóhann hafði fylgt bestu skákmönnum heims en svartur í raun jafnar taflið nokkuð auðveldlega.
Jóhann var í raun sáttari við skákina eftir að hafa litið á hana í tölvu eftirá þar sem andstæðingur hans gerir í raun engin mistök. Sohib hafði á nokkrum stöðum breytt útaf því sem ofurstórmeistarnir voru að tefla og svo leikið leik sem leit út eins og hálfgert leiktap en tölvurnar segja að svartur komist upp með þessa taflmennsku.
Í stöðunni áður en Jóhann lék Bd5 hugaði hann vel og lengi í 35 mínútur og fór með megnið af tímanum sem hann hafði áunnið sér umfram andstæðing sinn. Jóhann taldi að hvítur hlyti að eiga eitthvað þar en fann ekkert enda líklega ekkert í stöðunni. Staðan var algjörlega jöfn en Jóhann missti þó mikilvægt peð á d5. Andstæðingur hans bauð honum umsvifalaust jafntefli í sameiginlegu tímahraki. Jóhann taldi þó að hann hefði enn færi en þegar hann uppgötvaði að sú leið sem hann ætlaði að velja var í raun töpuð (eftirá komumst við þó að því að hún var jafntefli) þá var það orðið of seint og Jóhann varð að velja annan leik en hann hafði ætlað sér. Varð niðurstaðan þá hróksendatafl sem líklega var tapað á hann. Sem betur fer var þó loksins komið að Sýrlendingnum að sýna af hverju hann er ekki stigahærri og jafntefli varð niðurstaðan eftir nokkur mistök hjá honum.
Hér náði Jóhann skemmtilegri "X-ray" skák á a8. Andstædðingur hans bauð svo jafntefli eftir ...Kh7 en Jóhann hafnaði því eins og áður sagði. Skömmu síðar kom yfirsjónin í sameiginlegu tímahraki þeirra.
4. borð - Bragi svart á Alzaim (2259)
Bragi tefldi hér mjög góða skák gegn stigahæsta liðsmanni Sýrlendinga í þessari viðureign. Andstæðingur hans tefldi traust afbrigði í e3 Nimanum sem gefur hvítum meira rými þó að sé ekki jafn hættulegt og það lítur út fyrir að vera.
Þrátt fyrir rýmið tefldi Bragi mjög þematískt og lék ...e5 á réttum tíma og smátt og smátt sprakk staða hans út. Skákin var í raun mjög lærdómsrík. Líklegast voru fyrstu strategísku mistökin að leyfa svörtum að drepa á c3 og losna við svartreitbiskupinn. Eftir það varð svarta staðan auðteflanleg og eiginlega unun að fylgjast með Braga stinga sér inn í allar holur sem hvítur skildi eftir í hvítu stöðunni. Eftir að fór að fjara undan mögulegu frumkvæði hvíts fór hann að veikja sig með leikjum eins og f5 og a4 og Bragi nýtti sér það meistaralega. Sérstaklega var skemmtilegt hvernig riddarinn á a6 fór á c7 en svo lúmskur aftur á a6 eftir að hvítur veikti sig með a4.
Eftir að flóðgáttirnar opnuðust var bara tímaspursmál hvenær og hvernig Bragi myndi klára skákina. Varkárari menn hefðu valið ...Dd1 og skipt upp á drottningum en Bragi var með sjálfstraustið í botni og hafði trú á sér og stöðunni og sigldi vinningnum í heimahöfn.
Næst á dagskrá í 4. umferð eru frændur okkar Færeyingar. Við eigum í raun harma að hefna þar sem þeir náðu jafntefli gegn okkur í Tromsö. Slíkt verður ekki í boði og sigur eina sem við sættum okkur við!
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2016 | 20:48
Ólympíuskákmótið: 3. umferð í kvennaflokki
Brexit #3 Ísland 2,5 England 1,5
Andstæðingar okkar í 3. umferð voru Englendingar, með meðalstig 2236. Meistari Speelman, liðsstjóri enska liðsins, tók glaðlega í höndina á mér fyrir viðureignina og bað mig að skrifa undir mótmælaplaggið sitt sem ég nefndi í síðasta pistli. Hann er ekki mannglöggur blessaður því við höfðum rætt lengi saman í fyrradag og ég var löngu búinn að skrifa undir hjá honum.
Enska liðið hafði á að skipa sterkum og reynslumiklum skákkonum á 1. og 2. borði. Lenka hafði hvítt gegn IM Jovanka Houska (2386).
Upp kom Caro-kann vörn sem Lenka var vel undirbúin fyrir. Við höfðum lagt upp með að tefla af ákveðni og ekki gefa alþjóðlega meistaranum neinn frið í byrjuninni. Ég held að Lenku hafi tekist að slá Houska aðeins út af laginu með taflmennsku sinni. Þrátt fyrir þetta eyddi Lenka talsverðum tíma á byrjunina en fékk samt mun betra tafl. Þegar Houska lék 11...c5 notaði Lenka tækifærið og sprengdi upp stöðuna með 12. c4. Í framhaldinu opnuðust allar flóðgáttir og krítístki punkturinn var þegar Lenka lék 17. d5!
Hér lék Lenka 17. d5 og Houska lenti í miklum vandræðum.
Lenka hélt pressunni og Houska komst aldrei inn í skákina. Á einum tímapunkti gat Lenka unnið strax með fallegri hróksfórn, sem hún sá, en krafðist smá úteiknings af hennar hálfu. Á því augnabliki varð henni hugsað til gullkorns Jóhanns Hjartarsonar frá því eftir 1. umferð; ,,Maður á aldrei að fórna með unnið! og valdi því öruggu leiðina. Rannsóknir okkar eftir skákina leiddu hins vegar í ljós að fórnin hefði leitt beint til vinnings svo þetta er sennilega undantekningin sem sannar reglu Jóhanns!
Hér lék Lenka 27. Hd6 með hugmyndinni 28. He6! Houska lék 27...Hc6 og barðist áfram. Lenka gat þó leikið 27. Hd8!! með hugmyndinni 27...Dxd8 28. Dxh5 með máti og eftir 27...Dg6 28. Hd6 De8 29. He6! vinnur hvítur h5-peðið með óstöðvandi mátsókn.
Eftir að skiptist upp á drottningum hirti Lenka svörtu peðin og innbyrti sigurinn af öryggi. Frábær skák hjá Lenku og liðsstjórinn var mjög stoltur.
Gulla hafði svart gegn IM Dagne Ciuksyte (2323). Upp kom Petroffs-vörn sem var vel undirbúin fyrir skákina. Ciuksyte kom okkur nokkuð á óvart með því að velja afbrigði sem hún hafði ekki teflt áður. Í framhaldinu fékk Gulla verra tafl en tókst með mikilli seiglu að halda sér inni í skákinni og tókst svo að snúa taflinu sér í vil í kringum tímamörkin. Hún vann peð en Ciuksyte hafði biskupaparið sem vóg aðeins upp á móti. Gulla leitaði eftir uppskiptum á riddara fyrir biskup og hafði þá hrók, biskup og þrjú peð gegn hrók, biskup og tveimur peðum. Staða hvíts var samt nokkuð virk og svörtu peðin auk þess skorðuð. Á þessum tímapunkti var staðan orðin 2-1 okkur í vil og Ciuksyte, peði undir, lék 60. d4 sem Gulla mátti ekki taka og var auk þess tæp á tíma og með óvirka menn. Allt í einu leit út fyrir að hvítur gæti pressað aðeins og kvikindið hann Speelman glotti til mín!
Hér lék Ciuksyte 60. d4 og Speelman glotti!
Gulla leysti vandamálin auðvitað án nokkurra vandræða í framhaldinu, virkjaði mennina sína og eftir þráleik krafðist hún jafnteflis, sem tryggði sigurinn í viðureigninni.
Hér lék Gulla 68...Bf2 og sama staðan var kominn upp í þriðja sinn. Jafntefli niðurstaðan og sigurinn í höfn! Ég leyfði mér að endurgjalda Speelman glottið.
Hallgerður Helga hafði hvítt gegn WFM Sarah Longson (2103). Þegar við flettum henni upp fyrir skákina komu bara fáar, en mjög nýlegar skákir upp. Halla kannaðist þó við myndina af Söruh og komst að því eftir smá rannsóknarvinnu að stúlkan sú væri nýgift og því búin að taka upp nýtt nafn! Var brúðkaupið bara til þess að fela gömlu skákirnar hennar? Einhver ágætur maður sagði mér eitt sinn að brúðkaup væru ekki góð fyrir skákmenn því þá gætu þeir verið vissir um að tapa 50-100 skákstigum alveg um leið.
En aftur að skákinni! Upp kom ítalskur leikur og Longson náði að jafna taflið eftir byrjunarleikina. Í miðtaflinu tók Halla góða ákvörðun og drap með riddara á d4, 17. Rxd4, sem gaf henni ákveðin færi í skrýtinni stöðu. Henni varð þó fótaskortur í framhaldinu og neyddist þá til að gefa skiptamun. Það sama gerðist í 1. umferð; Halla lenti í vandræðum, gaf skiptamun en fékk virka menn og vann glæsilega. Það sama gerðist einnig í dag. Allt í einu lifnaði yfir stöðunni, Longson þurfti að fara að vanda sig skiptamun yfir og í tímahrakinu urðu henni á mistök. Halla vann skiptamuninn til baka og í lokin var ekkert sem gat stoppað hvíta e-peðið og mikilvægur sigur var í höfn!
Hér kom 47. Rg6! Hee8 47. e7 Hb8 48. Bd7 og taflið snérist Höllu í vil.
Hrund hafði svart gegn WFM Kanwal Bhatia (2133). Upp kom ítalskur leikur, sama afbrigði og hjá Hallgerði Helgu. Hrund lék snemma h6 og gaf Bhatia kost á að leika g4 og fara beint í kóngssókn. Þetta er leið sem Jón Viktor Gunnarsson hefur mælt með fyrir hvítan (sbr. módelskákina JVG - Fiona Steil-Antoni frá Reykjavik Open 2008). Bhatia fékk hörku færi í framhaldinu og Hrund þurfti að finna nákvæma leiki til þess að halda velli. Hún missti af bestu varnarleiðunum og stórsókn hvíts var of hættuleg til þess að stoppa. Sanngjarn sigur þeirrar ensku.
Hér lék Hrund 24...De7 og lenti vandræðum eftir 25. Ba3! Það var einhver von í því að leika í staðinn 24...Hh2 25. Dxf6+ Kg8 og svartur hefur smá pressu á f2-peðið.
Lokatölur 2½ - 1½ okkur í vil, sem eru frábær úrslit. Við Speelman tókumst í hendur í lok viðureignarinnar og hann var ekki sáttur með sínar stúlkur: ,,I was glad I brought a newspaper today so I could hide behind something!
Andinn í liðinu er góður eftir þessa flottu frammistöðu hjá okkur. Ég var ánægður með baráttuþrekið í stelpunum í dag. Á erfiðum augnablikum í skákunum kom ekki til greina að gefa neitt eftir. Tímanotkunin var skynsamari hjá okkur en í gær og við vorum ekki að lenda undir neinni sérstakri tímapressu; þetta höfðum við rætt sérstaklega fyrir umferðina.
Á morgun fáum við lið Moldavíu (meðalstig: 2167) og við erum klárar í slaginn. (athugasemd: Gunnar Björnsson segir að það sé einkennandi fyrir liðsstjóra kvennaliðsins af fara ósjálfrátt að tala um sjálfan sig í kvenkyni!)
Þangað til næst, bestu kveðjur frá Bakú.
- Björn Ívar
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.9.2016 | 16:42
Glæsilegur íslenskur sigur gegn Englandi í kvennaflokki
Íslenski landsliðshópurinn brást við mótlæti gærdagsins af mikilli fagmennsku þegar 3.umferð var tefld í Kristalhöllinni í Baku, Aserbaísjan. Undirbúningur var markviss og einbeiting skein úr hverju andliti þegar skákklukkurnar voru settar í gang klukkan þrjú að staðartíma. Uppskeran varð 6 vinningar í 8 skákum. Kvennaliðið gerði sér lítið fyrir og lagði sterkt lið Englands 2,5-1,5, á meðan karlaliðið gjörsigraði Sýrland 3,5-0,5.
Björn Ívar Karlsson, landsliðseinvaldur kvennaliðs Íslands, var hvergi banginn er liðið settist að tafli gegn Englandi í dag, þrátt fyrir stóran skell gegn Ítalíu í gær. Þó lið Englands væri mun stigahærra á öllum borðum þá var ekki að sjá að Björn Ívar óttaðist annan skell. Viðureignin byrjaði ekki vel því Hrund Hauksdóttir varð að játa sig sigraða á 4.borði og England því komið yfir 1-0. Lenka Ptacnikova (2159) stýrði hvítu mönnunum eins og herforingi á 1.borði gegn hinni stigaháu Jovanka Houska (2396) og gerði sér lítið fyrir og vann skákina. Staðan var því 1-1 þegar Hallgerður H. Þorsteinsdóttir (2015) snéri laglega á andstæðing sinn og vann. Það kom því í hlut reynsluboltans, Guðlaugar Þorsteinsdóttur (2046), að tryggja stigin tvö með því að gera jafntefli með svörtu á 2.borði gegn alþjóðlega meistaranum Dagne Ciuksyte (2323). Sannarlega glæsilegur sigur hjá íslenska liðinu.
Landslið Íslands í opnum flokki beit í skjaldarrendur í dag og gjörsigraði lið Sýrlands. Hannes Hlífar Stefánsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Bragi Þorfinnsson unnu sínar skákir, og Jóhann Hjartarson gerði jafntefli.
4.umferð hefst á morgun klukkan 11 að íslenskum tíma. Ísland mætir Færeyjum í opnum flokki en Moldavíu í kvennaflokki.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 11 að íslenskum tíma)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.9.): 13
- Sl. sólarhring: 15
- Sl. viku: 123
- Frá upphafi: 8780627
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 99
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar