Bloggfćrslur mánađarins, apríl 2016
19.4.2016 | 08:27
Hemmamótiđ-keppnin um VALS-Hrókinn
Hemmamótiđ-keppnin um VALS-Hrókinn fer fram í Lollastúkunni í Valsheimilinu ađ Hlíđarenda fimmtudaginn 28. apríl og hefst kl. 18. Tefldar verđa níu umferđir eftir svissneska kerfinu og verđa tímamörkin 4 2, ţ.e. 4 mínútur á alla skákina ađ viđbćttum 2 sekúndum fyrir hvern leik.
Mótiđ er haldiđ til minningar um Hemma Gunn en hann var međal ţátttakenda í Valsmótinu 2013 en lést nokkrum vikum síđar. Hermann Gunnarsson var ómetanlegur stuđningsmađur skáklistarinnar á íslandi, og hrókur alls fagnađar og ţess vegna rakiđ ađ tefla jafnframt um VALS-Hrókinn en núverandi handhafi hans er Jón Viktor Gunnarsson. Jón Viktor vann einnig mótiđ áriđ 2014.
Hermann Gunnarsson var einn frćknasti afreksmađur Vals, markakóngur í knattspyrnu og handknattleik og klćddist margoft landsliđstreyju í báđum greinum; átti ţess utan nokkra leiki í körfuknattleik međ Val.
VALS-Hrókurinn var gefinn af Jóhanni Eyjólfssyni fyrrverandi formanni Vals en gripurinn sem úr tré kom í leitirnar ekki alls fyrir löngu en fyrst var keppt um hann fyrir meira en 60 árum og međal sigurvegara á ţeim tíma voru Gunnar Gunnarsson og Björn Theódórsson. Fjölmörg önnur verđlaun verđa veitt m.a. varningur frá HENSON fyrirtćki formanns skákdeildar Vals, Halldórs Einarsson. Vakin er athygli ţví ađ EM treyja Tólfunnar er međal verđlauna. Allir skákunnendur er hvattir til ađ taka ţátt í mótinu og gamlir Valsmenn og konur eru alveg sérstaklega velkomin. Mótiđ er öllum opiđ međan húsrúm leyfir.
Mótiđ nú er haldiđ af Skákdeild Vals í samvinnu viđ Skáksamband Íslands og Skákskóla Íslands.
Mótiđ verđur reiknađ til alţjóđlegra hrađskákstiga.
Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn efst). Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 09:35 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2016 | 16:15
Uppskeruhátíđ Fischer-seturs
Síđastliđinn sunnudag var síđasti kennsludagur skákkennslu grunnskólabarna í Fischersetri. En ţetta var síđasti tíminn af 10 skipta námsskeiđi sem byrjađi eftir áramótin og var í umsjón Helga Ólafssonar stórmeistar og skólastjóra Skákskóla Íslands. Haldiđ var skákmót og komu nokkrir gestir úr Grunnskólanum Hellu.
Úrslit skákmótsins urđu ţau ađ í fyrsta sćti var Martein Patryk og í 2.-3. sćti voru ţeir Patrekur Máni Jónsson og Óttar Pétursson. Auk ţess fengu allir ţeir sem stunduđu námsskeiđiđ viđurkenningarskjal.
18.4.2016 | 07:40
Helgi og Hjörvar Steinn efstir á kynslóđamóti Skákskólans
Helgi Ólafsson og Hjövar Steinn Grétarsson urđu efstir á kynslóđamóti Skákskóla Íslands sem fram fór seinni part sunnudagsins 17. apríl. Til mótsins var bođiđ nokkrum valinkunum köppum og voru tefldar níu umferđir eftir svissneska kerfinu. Margir ţátttakenda höfđu veriđ í eldlínunni á Íslandsmóti grunnskólasveita fyrr um daginn en létu sig ekki muna um ađ tefla meira.
Niđurstađan varđ sú sú ađ Helgi og Hjörvar Steinn hlutu 7 vinninga af níu mögulegum en i 3.4. sćti komu stórmeistaranir Jóhann Hjartarson og Jón L. Árnason en ţeir hlutu báđir 6˝ vinning. Hugmyndin međ kynslóđamótunum hefur frá upphafi veriđ sú ađ gefa ungum og efnilegum skákmönnum kost á ađ spreyta sig gegn ţekktum meisturum. Helgi Ólafsson og Stefán Bergsson voru jafnframt mótsstjórar.
17.4.2016 | 15:46
Hörđuvallaskóli Íslandsmeistari grunnskólasveita eftir ćsilega keppni
Eitt mest spennandi Íslandsmót grunnskólasveita í sögunni fór fram um helgina í Rimaskóla. Svo fór ađ skáksveit Hörđuvallaskóla hafđi sigur í keppninni en sveitin hlaut hálfum vinningi meira en Álfhólsskóli sem varđ í öđru sćti. Rimaskóli hlaut svo bronsiđ - en sveitin var öđrum hálfum vinningi ţar á eftir. Smáraskóli og Laugarlćkjaskóli voru skammt undan.
Ţađ sem gerir afrek Hörđuvallaskóla enn betra var ađ allir sveitarmeđlimir sveitarinnar eru á barnaskólastigi. Sveitin vann einmitt öruggan sigur á Íslandsmóti barnaskólasveita sem fram fór síđustu helgi.
Norđurlandamót barna- og grunnskólasveita eru tefldar samtímis í september í Noregi og ţví er ljóst ađ Hörđuvallaskóli getur ekki teflt í báđum mótum samtímis.
Skáksveit Íslandsmeistara Hörđuvallaskóla
- Vignir Vatnar Stefánsson
- Stephan Briem
- Sverrir Hákonarson
- Arnar Heiđarsson
- Benedikt Briem
- Óskar Hákonarson
Vignir var í miklu stuđi og hlaut 8,5 vinninga í 9 skákum.
Liđsstjóri um helgina var Kjartan Briem en skákkennari ţeirra í skólanum er Gunnar Finnsson en hann átti ekki heimangengt um helgina.
Skáksveit Álfhólsskóla
- Dawid Kolka
- Robert Luu
- Felix Steinţórsson
- Halldór Atli Kristjánsson
- Guđmundur Agnar Bragason
- Atli Mar Baldursson
- Ísak Orri Karlsson
Liđsstjóri var Lenka Ptácníková.
Guđmundur Agnar sem varamađur tefldi allar skákirnar á fjórđa borđi og vann ţćr allar!
Skáksveit Rimaskóla
- Nansý Davíđsdóttir
- Jóhann Arnar Finnsson
- Joshua Davíđsson
- Kristófer Helgi Ţorgeirsson
- Hákon Garđarsson
Frammistađa Joshua var frábćr á ţriđja borđi en hann alla ţrátt fyrir ađ vera langt ţví vera stigahćstur á ţriđja borđi.
Borđaverđlaun
Ţađ segir margt um hversu keppnin var jöfn ađ ţau hlutu 4 skákmenn úr fjórum skólum.
- Vignir Vatnar Stefánsson (Hörđuvallaskóla) 8,5 v. af 9
- Björn Hólm Birkisson (Smáraskóla) 7,5 v. af 9
- Joshua Davíđsson (Rimaskóla) 9 v. af 9
- Guđmundur Agnar Bragason (Álfhólsskóla) 9 v. af 9
Skákstjóri var Gunnar Björnsson.
Myndaalbúm (Helgi Árnason)
17.4.2016 | 14:50
Skákmót öđlinga: Skákir ţriđju umferđar
Ţórir Benediktsson hefur slegiđ inn skákir ţriđju umferđar Skákmóts öđlinga sem fram fór sl. miđvikudagskvöld. Ţćr fylgja međ sem viđhengi. Tvćr frestađar skákir voru tefldar á laugardaginn. Ţorvarđur Fannar Ólafsson (2195) og Magnús Kristinsson (1822) eru jafnir og efstir međ fullt hús.
16.4.2016 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Gengiđ í gildruna
Í Eyjum heyrđi ég ţá sögu ađ aflaklóin Binni í Gröf hefđi einhverju sinni veriđ spurđur ađ ţví af hverju hann vćri svona fiskinn og hann átti ađ hafa svarađ: Vegna ţess ađ ég get hugsađ eins og ţorskur. Sú ályktun var nćrtćk ađ mađurinn hefđi veriđ međ göngumynstur ţorsksins algerlega á hreinu.
Atburđir síđustu daga fengu mig til ađ rifja upp kynni mín af bók Garrís Kasparovs, How life imitates chess Hvernig lífiđ líkir eftir skákinni. Höfundurinn telur ţađ greinilega höfuđdyggđ ađ geta hugsađ eins og ţorskur.
Í skýringum viđ skák sem hann tefldi í Stokkhólmi 1962 og birti í 60 minnisverđum skákum skrifar Bobby Fischer um ţćr grunsemdir sínar ađ andstćđingurinn, Trifunovic, hafi náđ ađ ...tjúna sig inn á heilabylgjur mínar... eins og ţađ var orđađ. Fischer gerđi ráđstafanir sem dugđu til sigurs.
Vilji skákmenn ná einhverri dýpt í stílinn er nauđsynlegt ađ kunna til verka. Kynnum okkur nokkur hugtök skákarinnar:
Gildrur
Middleton Rubinstein
Ţessi stađa lítur vel út fyrir skáksnilling Póllands sem getur sótt ađ d6-peđinu međ Hfd8. Andstćđingur hans lék ofur eđilegum leik...
24. He1!?
Í ţessu felst lćvís gildra. Rubinstein uggđi ekki ađ sér...
25. ... Hfd8?? 25. Rxe6! Kxe6 26. f4!
Skyndilega sá Rubinstein ađ hann hafđi veriđ veiddur í gildru. Taki hann á f3 međ framhjáhlaupi, 26. ... exf3 kemur 27. Bc4 mát!
Hann gafst upp stuttu síđar.
Skákin er svo víđfeđm grein ađ ţar finnst meira ađ segja svokallađ músagildruţema:
Helgi Ólafsson Björn Ţorsteinsson
Ég varđ ađ vinna ţessa skák til ađ eiga möguleika á Íslandsmeistaratitlinum. Hvíta stađan er vćnleg og ég sótti ađ b4-peđinu en meira bjó undir:
54. Rd3! Hc3?
Gengur í gildruna.
55. Rc5!
Hrókurinn er lokađur af og a-peđiđ rennur upp í borđ.
Fyrirbyggjandi ađgerđir
Ţekktu óvininn er heilrćđi gefiđ í frćgu riti, Hernađarlist eftir Sun Tsu. Nćmur skilingur á fyrirbyggjandi ađgerđum gerđi Tigran Petrosjan ađ heimsmeistara og Anatolí Karpov líka. Tökum einfalt dćmi:
- Sjá nćstu stöđumynd -
Smyslov Gligoric
Hvítur hyggst leika 19. b4 og helga sér ţannig gott svćđi á drottningarvćng.
18. ... Bb3!
Hindrar 19. b4. Ađ ţessu loknu setti Gligoric einfalda áćtun af stađ a5, Ha6, Had6 o.s.frv. Hann vann skákina eftir 45 leiki.
Öryggisnet
Enginn ágreiningur er um ţađ ađ mađur á borđ viđ Kasparov gat séđ fyrir rás viđburđa langt fram í tímann. Viđ ákvarđanir tók hann yfirleitt alla ţćtti međ í reikninginn. Fćrri vissu ađ viđ útreikning notađi hann stundum öryggisnet. Í eftirfarandi stöđu tók hann ákvörđun sem kom öllum á óvart. Hann sá ađ andstćđingurinn gat náđ jafntefli en ađeins međ bestu vörn:
Kasparov Ĺkeson
Ég sat úti í sal og var ađ horfa á ţessa stöđu. Í fljótu bragđi virtist blasa viđ ađ leika 27. e5 en Kasparov sat međ hönd undir kinn í meira en 20 mínútur. Svo kom leikurinn...
27. Bxf6! Hxf6 28. e5 Hh6?
Vélarnar reikna stöđuna til jafnteflis eftir 27. ... Hff7 28. f6 Hcf8.
29. f6 Hc7 30. e6 Dd8? 31. e7
- og nú varđ Sviínn ađ gefa hrók fyrir e-peđiđ og tapađi stuttu síđar.
Grein ţessi birtist í Morgunblađinu 9. april 2016
Spil og leikir | Breytt 9.4.2016 kl. 09:52 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Ţađ er gríđarlega spenna á Íslandsmót grunnskólasveita sem fram fer um helgina í Rimaskóla. Ađeins munar 1˝ vinningi á forystusveitunum og sveitinni sem er í sjötta sćti. Ţađ er Álfhóls- og Hörđuvallaskóli sem eru efstir međ 14 vinninga af 20 mögulegum. Laugarlćkja- og Rimaskóli eru ađeins vinningi á eftir og Smára- og Ölduselsskóli ađeins hálfum vinningi ţar á eftir. Ţađ eru ţví sex sveitir af sextán alls sem hafa möguleika á sigri á mótinu!
Sjá nánar á Chess-Results.
Fjöriđ heldur áfram á morgun ţegar umferđir 6-9 verđa tefldar. Taflmennskan hefst kl. 11 í fyrramáliđ. Teflt er í Rimaskóla.
Fái tvćr eđa fleiri sveitir jafn marga vinninga í efsta sćti verđur teflt til úrslita. Sigurvegarinn fćr keppnisrétt á NM grunnskólasveita sem fram fer í Noregi í september nk.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 17:13 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
16.4.2016 | 14:27
Sumarskákmót Fjölnis 2016 fer fram á sumardaginn fyrsta Peđaskákmót Fjölnis fyrir leikskólabörn á sama tíma
Skákdeild Fjölnis heldur sitt árlega sumarskákmót í Rimaskóla á sumardaginn fyrsta međ glćsilegum hćtti. Mótiđ hefst kl. 14:00 n.k. fimmtudag 21. apríl og ţví lýkur kl. 16:00. Líkt og í fyrra er ţetta vinsćla skákmót hluti af Barnamenningarhátíđ í Reykjavík. Dagskrá hverfishátíđar Grafarvogs í Rimaskóla lýkur međ ţessu áhugaverđa skákmóti. Rótarýklúbbur Grafarvogs gefur glćsilega eignarbikara til keppninnar til sigurvegara í eldri og yngri flokk og í stúlknaflokki.
Mótiđ er ćtlađ öllum grunnskólabörnum og í verđlaun verđa 20 bíómiđar í SAMbíóunum auk nokkurra happadrćttisvinninga. Ţátttaka er ókeypis en í skákhléi verđur hćgt ađ kaupa veitingar, Prins póló og drykk á 200 kr. Tefldar verđa sex umferđir međ sex mínútna umhugsunartíma. Skráning á mótstađ. Ţátttakendur eru hvattir til ađ mćta tímanlega.
Samhliđa sumarskákmótinu heldur Skákdeild Fjölnis sitt fyrsta Peđaskámót deildarinnar, ćtlađ leikskólabörnum. Í lok peđaskákmótsins fćr sigurvegarinn afhentan eignarbikar og fimm efstu ţátttakendurnir fá verđlaun.
16.4.2016 | 10:13
Stefán Ţór hrađskákmeistari Víkings
Hrađskákmót Víkings fór fram í Víkingsheimilinu fimmtudaginn 14. april. Níu keppendur mćttu til leiks og fljótlega snérist baráttan um efsta sćtiđ milli Stefáns Ţórs Sigurjónssonar og Lenka Ptacnikovu. Stefán vann í innbyrđisviđureign ţeirra og lét svo forustuna ekki ađ hendi. Lenka og Gunnar Fr. enduđu í 2-3 sćti í mótinu, en Gunnar fékk silfriđ eftir stigaútreikning. Tefldar voru 9. umferđir međ 5. mínútna umhugsunartíma. Skákstjóri var Kristján Örn Elíasson.
Lokastađan á Chess-Results.
16.4.2016 | 08:52
Bandaríska meistaramótiđ hafiđ - eitt sterkasta mót ársins
Eitt sterkasta skákmótsins, bandaríska meistaramótiđ hófst í fyrradag. Međel keppenda eru ţrír af 10 stigahćstu skákmönnum heims, ţ.e. Caruana (2795), Nakamura (2787) og Wesley So (273). Alls taka ţátt og sami fjöldi í kvennaflokki sem jafnframt er í gangi.
Ţegar tveimur umferđum er hafa So, Caruana og Ray Robson (2663) efstir međ fullt hús. Nakamura eru fjórđi međ međ 1,5 vinning.
Ţriđja umferđ fer fram í kvöld og hefst kl. 19. Ţá mćtast međal annars So og Caruana.
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 1
- Sl. sólarhring: 20
- Sl. viku: 108
- Frá upphafi: 8778232
Annađ
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 77
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar