Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, júní 2012

Sumarnámskeiđ Skákakademíu Reykjavíkur hefjast 18. júní

Teflt fyrir framan RáđhúsiđSumarnámskeiđ Skákakademíu Reykjavíkur fyrir börn og unglinga á grunnskólaaldri  hefjast 18. júní og standa í 9 vikur eđa til 16. ágúst. Námskeiđin eru jafnt fyrir byrjendur og lengra komna.
 
Kennarar Skákakademíunnar hafa mikla reynslu og hafa átt ţátt í ađ uppgötva og ţjálfa mörg efnilegustu börn landsins. Mikiđ er lagt upp úr virkni og leikgleđi á námskeiđunum, og ţegar sólin skín verđur teflt á útitaflinu viđ Lćkjargötu, sem og á Austurvelli og víđar í borginni. Kennt verđur í húsnćđi Kvennaskólans ađ Ţingholtsstrćti 37 - oft kallađ gamli Versló, beint á móti breska og ţýska sendiráđinu í fögru umhverfi Ţingholtanna.
 
Kennsla er á mánudögum, ţriđjudögum, miđvikudögum og fimmtudögum. Hćgt er ađ velja um kennslu fyrir eđa eftir hádegi, annarsvegar kl. 10-11.30 og hinsvegar kl. 13.30-15.
 
Milli 15 og 16.30 er svo opiđ hús hjá Skákakademíunni ţar sem skákáhugamenn á öllum aldri eru velkomnir.
 
Kennarar: Björn Ívar Karlsson, Björn Ţorfinnsson, Hjörvar Steinn Grétarsson, Róbert Lagerman, Stefán Bergsson, Hrafn Jökulsson og Inga Birgisdóttir. Ţá munu gestakennarar líta viđ og stórmeistarar koma í heimsókn.
 
Verđ:
Ein vika: 4000 kr.
Fjórar vikur: 10.000 kr.
Níu vikur: 22.000 kr. Skráning á www.skak.is
Fram ţarf ađ koma;
a) Nafn og fćđingarár ţátttakanda.
b) Netfang foreldra. Allar nánari upplýsingar í gsm: 863-7562 og netfang stefan@skakakademia.is

Mikael Jóhann efstur á Meistaramóti Skákskólans

Mikael Jóhann KarlssonMikael Jóhann Karlsson (1926) er efstur međ fullt hús ađ lokinni 4. umferđ Meistaramót Skákskóla Íslands sem fram fór í morgun.  Mikael vann Jón Trausta Harđarson (1762).  Í 2.-3. sćti međ 3,5 vinning eru Hrund Hauksdóttir (1676) og Oliver Aron Jóhannesson (2050).  Fimmta umferđ hefst kl. 15.

Úrslit 4. umferđar má finna hér.

Stöđuna má finna í heild sína hér.  

Pörun 5. umferđar má finna hér.

Chess-Results


Henrik međ jafntefli viđ Shadade í 2. umferđ

Henrik Danielsen ađ tafli í ÓđinsvéumStórmeistarinn Henrik Danielsen (2498) gerđi jafntefli viđ bandaríska alţjóđlega meistaranum Greg Shadade (2471) í 2. umferđ stórmeistaraflokks í Brřnshřj í Danmörku sem fram fór í morgun.  Henrik hefur 1,5 vinning og er í 2.-4. sćti. 

Í 3. umferđ, sem hófst nú kl. 13, teflir Henrik viđ danska FIDE-meistarann Jacob Carstensen (2305).  Sćnski stórmeistarinn Jonny Hector (2560) er sá eini sem hefur fullt hús. 

Međalstigin á mótinu eru 2441 skákstig.   Í flokknum taka 10 skákmenn ţátt og ţar af 3 stórmeistarar.  Henrik er nr. 3 í stigaröđ keppenda.  Eins og svo oft á dönskum mótum er tefldar 2 umferđir á dag.   Umferđirnar hefjast kl. 8 og 13.  


Mjóddarmót Hellis fer fram 9. júní

Mjóddarmót Hellis fer fram laugardaginn 9. júní í göngugötunni í Mjódd.  Mótiđ hefst kl. 14 og er mótiđ öllum opiđ. Góđ verđlaun í bođi.  Á síđasta ári sigrađi Brúđarkjólaleiga Katrínar en fyrir ţá tefldi Dađi Ómarsson.  Tefldar verđa sjö umferđir međ sjö mínútna umhugsunartíma.  Skráning fer fram í síma 866-0116 og á heimasíđu Hellis: http://hellir.blog.is.  Ţátttaka er ókeypis!

Verđlaun eru sem hér segir:

  • 1. 10.000
  • 2.   6.000
  • 3.   4.000

Skráning:


Munir tengdir einvíginu sýndir um helgina

Í frétt mbl.is í gćr er fjallađ stćrsta einkasafn muna úr einvígi aldarinnar.  Sýning á vegum Landssambands íslenskra frímerkjasafnara verđur um helgina en munirnir eru söfnum Sigurđur R. Péturssonar og Ríkharđs Sveinssonar.

Frétt mbl.is í heild sinni:

Stćrsta einkasafn landsins af munum tengdum einvígi aldarinnar, einvígi Bobby Fischer og Boris Spassky í Reykjavík 1972, verđur sýnt um helgina á sýningu Landssambands íslenskra frímerkjasafnara.

Munirnir koma úr söfnum Sigurđar R. Péturssonar og Ríkharđs Sveinssonar, auk ţess sem sýnt verđur safn í eigu bandarísks ađila. Ađ auki hefur Skáksamband Íslands lánađ ýmsa muni á sýninguna.

„Um er ađ rćđa safn afar skemmtilegra muna og óhćtt ađ fullyrđa ađ sjaldan eđa aldrei hafi munum tengdum einvíginu veriđ gerđ viđlíka skil. Međal annars má nefna allar medalíur og silfurskeiđar sem gerđar voru í tengslum viđ einvígiđ, veggspjöld, og myndir áritađar af Spassky og Fischer og ýmsum fleirum mektarmönnum sem ađ einvíginu komu," segir í tilkynningu.

Ţá er ađ finna ađgöngumiđa á allar skákirnar, seđlaveski sem útbúiđ var í ađeins fimmtíu eintökum, matseđillinn á lokahófiđ stóra í Laugardalshöll áritađur af Ficher og Spassky og happdrćttismiđi ţar sem ađalvinningurinn var eitt af hinum frćgu skákborđum sem mikiđ hafa veriđ í umrćđunni upp á síđkastiđ eftir ađ ţau voru sett á uppbođ erlendis. 

Ţá eru óvenjulegir og forvitnilegir hlutir á borđ viđ plastdiska og glös sem notuđ voru viđ borđhaldiđ í lokahófinu, en ţađ sótti um ţúsund manns á sínum tíma. Gefiđ var út skákblađ hvern dag sem einvígiđ stóđ og verđur sérútgáfan sýnd og jafnframt stćrsta úrklippusafn sem hćgt er ađ finna um einvígiđ og atburđi ţví tengdu.

Sýning Landsambands íslenskra frímerkjasafnara, FRÍMERKI 2012, var opnuđ í dag í sal KFUM og K á Holtavegi, og stendur til 3. júní.


Magnús Valgeirsson skákmeistari Fljótdalshérađs

Jón Björnsson og Magnús ValgeirssonMagnús Valgeirsson varđ skákmeistari Fljótdalshérađs eftir úrslitaeinvígi viđ Guđmund Ingva Jóhannsson og rétt eins og á Íslandsmótinu í skák ţurfti ađ framlengja einvígiđ. 

Skákţing Fljótdalshérađs fór fram 12. apríl - 9. maí.  Ţar urđu úrslit sem hér segir:

  • 1.-2. Magnús Valgeirsson (1650) og Guđmundur Ingvi Jóhannsson (1606) 3 v. af 4
  • 3.-4. Magnús Ingólfsson (1570) og Jón Björnsson (1558) 2 v.
  • 5. Einar Ólafsson (1465) 0 v.

Magnús og Guđmundur tefldu tveggja skáka einvígi, ţví lauk međ jafntefli.  Ţá var teflt tveggja skáka atskákeinvíg, ţví lauk einnig međ jafntefli.  Ađ lokum tefldu ţeir tveggja skáka einvígi međ 15 mínútna umhugsunartíma.  Ţá hafđi Magnús loks betur, 2-0.

Heimasíđa SSAUST


Landsmót UMFÍ fyrir 50+ fer fram 9. júní

Landsmót UMFÍ fyrir 50+ fer fram um helgina 8.-10. júní í Mosfellsbć.  Skákkeppnin fer fram laugardaginn 9. júní og fer fram á milli 12 og 17.  Keppt verđur í einum flokki eftir Monrad-kerfi.  Veitt verđa verđlaun fyrir bestan árangur karla og kvenna.

Landsmót UMFÍ 50+


Jón Trausti, Mikael Jóhann og Hrund efst á Meistaramóti SSÍ

Hrund forsetabaniJón Trausti Harđarson (1762), Mikael Jóhann Karlsson (1926) og Hrund Hauksdóttir (1676) eru efst og jöfn međ fullt hús ađ loknum ţremur umferđum á Meistaramóti Skákskóla Íslands.   Stöđuna má finna í heild sína hér.  

Tvćr umferđir eru tefldar á morgun og hefjast ţćr kl. 10 og 14.    Pörun 4. umferđar má finna hér.

Chess-Results


Henrik vann Georgiev í 1. umferđ

Henrik Danielsen ađ tafli í ÓđinsvéumStórmeistarinn Henrik Danielsen (2498) vann makedóníska stórmeistarann Vladimir Georgiev (2555) í 1. umferđ alţjóđlega mótsins í Brřnshřj í Danmörku.  Henrik mćtir bandaríska alţjóđlega meistaranum Greg Shadade (2471) í 2. umferđ sem fram fer í fyrramáliđ.

Međalstigin á mótinu eru 2441 skákstig.   Í flokknum taka 10 skákmenn ţátt og ţar af 3 stórmeistarar.  Henrik er nr. 3 í stigaröđ keppenda.  Eins og svo oft á dönskum mótum er tefldar 2 umferđir á dag.   Umferđirnar hefjast kl. 8 og 13.  


Guđmundur Kjartansson međ skákkennslu

Guđmundur KjartanssonAlţjóđlegi meistarinn Guđmundur Kjartansson (2367) er ađ hefja skákkennslu á Netinu.  Auglýst tímagjald eru 30 dollarar fyrir 2 tíma. 

Áhugasamir geta haft samband viđ gummikja@gmail.com.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.8.): 1
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 165
  • Frá upphafi: 8779194

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 100
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband