Bloggfćrslur mánađarins, mars 2012
9.3.2012 | 17:57
Rafmögnuđ spenna í Hörpu: 4. umferđ ađ ná hámarki
Vindurinn gnauđar í Hörpu ţegar fjórđa umferđ N1 Reykjavíkurskákmótsins er ađ ná hámarki. Fjölmargir áhorfendur eru mćttir til ađ fylgjast međ meisturunum.
Friđrik Ólafsson fyrsti stórmeistari Íslendinga og fv. forseti FIDE leit viđ nú seinnipartinn og bar lof á glćsilegt mót. Friđrik tók ţátt í fyrsta Reykjavíkurmótinu fyrir 46 árum og hefur í ţrígang sigrađ á mótinu.
Stefán Kristjánsson teflir hörkuskák viđ stórmeistarann Gawain Jones og Hannes H. Stefánsson og Joachim Thomassen grúfa sig yfir mjög flókna stöđu.
Caruana og L´Ami skylmast á 1. borđi í skák ţar sem allt getur gerst, og heimsmeistarinn Hou Yifan freistar ţess ađ komast aftur á sigurbraut í skák sinni viđ alţjóđlega meistarann Adam Hunt.
Fjölmargar spennandi skák eru í gangi á N1 Reykjavíkurskákmótinu og er 12 ţeirra sendar út beint á netinu. Sjón eru sögu ríkari og eru skákáhugamenn hvattir til ađ koma og taka ţátt í skákveislunni.
Jóhann Hjartarson stórmeistari verđur međ skákskýringar í hliđarsal og fer yfir stöđuna hjá meisturunum.
Ţađ var hart barist í undanúrslitum Gagnaveitumótsins - Reykjavík BarnaBlitz 2012, sem fram fóru í Hörpu á föstudag.
Hilmir Freyr Heimisson sigrađi Vigni Vatnar Stefánsson 2-0 og Nansý Davíđsdóttir sigrađi Baldur Theodor Petersson, einnig 2-0.
Bćđi einvígi voru hörkuskemmtileg og ćsispennandi, og ungu meistararnir kunnu vel viđ sig á sviđinu í Hörpu, ţar sem meistarar á borđ viđ Hue Yifan, Caruana og Navara leika venjulega listir sínar.
Hilmir Freyr og Nansý tefla til úrslita á Gagnaveitumótinu - Reykjavik BarnaBlitz á morgun, áđur en 5. umferđ N1 Reykjavíkurmótsins hefst.
9.3.2012 | 15:45
Bein útsending frá 3. umferđ N1 Reykjavíkurmótsins
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 15:46 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2012 | 14:04
Firmakeppni Fjölnis - Verkísmótiđ 2012
Ţađ styttist í ađ Firmakeppni Fjölnis í skák, međ stuđningi verkfrćđistofunnar Verkís, hefjist í Ráđhúsi Reykjavíkur.
Margir skákmenn og nokkur fyrirtćki hafa komiđ ađ máli viđ undirbúningsnefnd mótsins um hvort ekki vćri möguleiki á ađ rýmka til međ reglurnar og fá ţannig fleiri fyrirtćki og fleiri skákmenn til ađ koma ađ á mótinu.
Undirbúningsnefndin hefur ákveđiđ ađ verđa viđ ţessum óskum ţótt stutt sé í mótshaldiđ, enda um mikla veislu ađ rćđa ţegar horft er til verđlauna fyrir bestu skáksveitirnar og einstaklingana. Nú hvetjum viđ íslenska skákmenn til ađ bregđast fljótt og vel viđ breyttum ţátttökureglum og ţeir kanni möguleika sína á ađ mynda sveit/ir sem fellur undir eftirfarandi skilyrđi:
Fyrirkomulag
- Hvert fyrirtćki sendir fjögurra manna skáksveit til leiks. Leyfilegt er ađ hafa varamenn.
- Liđsmenn skulu starfa hjá viđkomandi fyrirtćki eđa stofnun.
- Leyfilegt er ađ tefla fram sameinuđu liđi tveggja fyrirtćkja.
- Einn lánsmađur er leyfđur í hverju liđi.
- Hvert liđ má tefla fram einum titilhafa ţ.e. GM eđa IM, eđa tveimur FM.
- Teflt verđur í Ráđhúsi Reykjavíkur, 14. og 15. mars nk. kl. 16:00 - 19:00
- Veitingar í hléi í frá Saffran og Icelandic Glacial.
1. Verđlaun: Flug til Evrópu međ Iceland Express fyrir 4 liđsmenn og liđsstjóra - öll gjöld innifalin!
2. Verđlaun: Glćný ljósmyndabók frá Sögum útgáfu og geisladisk frá 12 tónum.
3. Verđlaun: Verđlaun: Ljósmyndabókin frá Sögum útgáfu.
Sérverđlaun, GSM snjallsími frá Símanum, ađ verđmćti 100.000 kr., verđa veitt fyrir bestan árangur einstaklings á mótinu. Einnig verđa vinningar dregnir af handahófi úr hópi allra ţátttakenda.
Skákdeild Fjölnis stendur ađ mótinu en verkfrćđistofan Verkís, sem fagnar 80 ára starfsafmćli í ár er ađalstyrktarađili mótsins.
Ţátttökugjald hvers fyrirtćkis/stofnunar er 50.000 kr. Tilkynniđ ţátttöku sem fyrst á firmakeppnin@gmail.com.
Međ von um jákvćđ viđbrögđ, stuđning og skemmtilegt samstarf,
Undirbúningsnefndin
9.3.2012 | 07:00
Tímaritiđ Skák kemur út í dag
Í dag föstudaginn 9. mars kemur glóđvolgt úr prentun, Tímaritiđ Skák. Blađiđ er stútfullt af efni og má ţar nefna umfjöllun um Reykjavíkurskákmótin 2011 og 2012, Skákţing Íslands, Norđurlandamót öldunga, Íslandsmót skákfélaga og árangur íslenskra skákmanna á erlendri grundu. Einnig má nefna grein um afmćlisbarniđ Bobby Fischer, áhugaverđ skrif um taflmennsku ungra sem aldinna og skáklistaverk eitt mikiđ. Er ţá raunar fátt eitt taliđ.
Skákáhugamenn eru hvattir til ađ tryggja sér eintak en blađiđ verđur til sölu í Hörpu međan á Reykjavíkurskákmótinu stendur en ţar geta óţolinmóđir áskrifendur einnig nálgast sitt eintak fram á sunnudag.
Ţeir áskrifendur sem ekki eiga heimangengt fá blađiđ sent heim en panta má áskrift hér.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 02:14 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
9.3.2012 | 02:08
Frétt á ChessBase um N1 Reykjavíkurskákmótiđ
9.3.2012 | 02:02
Pallborđiđ: Williams og Ingvar ţór
Simon Williams og Ingvar Ţór Jóhannesson voru í pallborđinu í dag og fóru mikinn. Pallborđiđ má nálgast hér ađ neđan.
9.3.2012 | 01:50
Myndband frá ţriđju umferđ
Vijay Kumar heldur áfram ađ senda frá myndböndin. Nú má finna myndbandiđ frá 3. umferđ. Ţar má m.a. finna viđtöl viđ Caruana, Navara og Henrik Danielsen.
9.3.2012 | 01:17
Reykjavík Barna Blitz: Ungstirnin áfram
Átta manna úrslit í Reykjavik Barna Blitz fóru fram í dag. Spennan var mikil enda nokkur áfangi ađ komast í gegnum undanrásir taflfélaganna. Hilmir Freyr og Vignir Vatnar komust nokkuđ örugglega áfram. Hilmir lagđi nafna sinn Hrafnson ađ velli og Vignir sigrađi félaga sinn úr TR Gauta Pál Jónsson. Baldur Teodor Petersson komst áfram eftir bráđabana ţar sem Kristófer Jóel lék af sér kóngnum í unninni stöđu. Loks lagđi Nansý Davíđsdóttir Dawid Kolka ađ velli í sviptingamiklu einvígi.
Undanúrslitin fara fram á morgun klukkan 14:00 í Hörpu.
Ţá mćtast:
Hilmir Freyr - Vignir Vatnar
Baldur Teodor - Nansý Davíđsdóttir
Vignir og Nansý komust einnig í undanúrslit í fyrra og lenti Nansý ţá í öđru sćti en Vignir í ţriđja.
Myndaalbúm (Hrafn Jökulsson)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 01:35 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
8.3.2012 | 21:23
Henrik og Stefán međ fullt hús á N1 Reykjavíkurskákmótinu

Stórmeistararnir Henrik Danielsen og Stefán Kristjánsson eru međal efstu manna međ fullt hús ađ lokinni 3. umferđ N1 Reykjavíkurmótsins sem fram fór í kvöld. Henrik vann Dag Ragnarsson, sem hefur veriđ sá skákmađur sem mest hefur komiđ á óvart.
Stefán Kristjánsson vann litháískan FIDE-meistara. Heimsmeistarinn Hou Yifan mátti sćtta viđ jafntefli viđ ţýska alţjóđlegan meistara í hörkuskák.
Međal óvćntra úrslita má nefna ađ Einar Hjalti Jensson gerđi sitt annađ jafntefli viđ stórmeistara ađ ţessu sinni viđ franska stórmeistarann Fabian Libiszewski. Björn Freyr Björnsson gerđi jafntefli viđ bandaríska stórmeistarann Yuri Shulman.
Einnig náđu Dagur Kjartansson, Halldór Pálsson, Hrannar Jónsson, Nökkvi Sverrisson og Svandís Rós Ríkharđsdóttir eftirtektarverđum úrslitum.
Öll úrslit 3. umferđar má finna hér.
Stöđu mótsins má finna hér.
Fjórđa umferđ fer fram á morgun og hefst kl. 15. Ţá hefjast skákskýringar í umsjón Jóhanns Hjartarsonar kl. 17:30. Röđun 4. umferđar má finnast hér.
Í 4. umferđ mćtast m.a.:
- Fabiano Caruana - Erwin L´ami
- Ivan Sokolov - Simon Williams
- Robert Hess - Henrik Danielsen
- Stefán Kristjánsson - Gawain Jones
- Adam Hunt - Hou Yifan
- Thomas Trella - Héđinn Steingrímsson
- Hannes Hlífar Stefánsson - Joachim Thomassen
Heimasíđur
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 22:13 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.8.): 10
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 202
- Frá upphafi: 8779845
Annađ
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 107
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar