Leita í fréttum mbl.is

Bloggfćrslur mánađarins, júlí 2009

Hannes tapađi í fimmtu umferđ

Hannes ađ tafli í Lúx2Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2580) tapađi fyrir spćnska alţjóđlega meistarann Diego Guerra Bastida (2410) í fimmtu umferđ opna skákmótsins í Malaga á Spáni.  Hannes hefur 3 vinninga og er í 24.-44. sćti. 

Í sjöttu umferđ, sem fram fer á morgun, teflir Hannes viđ spćnska FIDE-meistarann Juan Carlos Pardo Perez (2280).  

Efstir međ 4,5 vinning er alţjóđlegi meistarinn Jerez Jose Carlos Ibarra (2511) og stórmeistararnir Oleg Korneev (2600), Rússlandi, og Dragan Paunovic (2519), Serbíu.


Alls taka 104 skákmenn í mótinu og ţar af 13 stórmeistarar og 8 alţjóđlegir meistarar.  Hannes er ţriđji stigahćstur keppenda. 

Enn sigrar Guđmundur indverskan stórmeistara og er efstur!

Guđmundur KjartanssonFIDE-meistarinn Guđmundur Kjartansson (2356) vann enn á ný indverskan stórmeistara á skoska meistaramótinu en í fjórđu umferđ  vann hann Magesh Chandran Panchanath (2493).  Guđmundur er einn efstur á mótinu međ fullt hús vinninga!

Ekki liggur fyrir viđ hvern Guđmundur teflir í fimmtu umferđ á morgun en hann mun tefla á fyrsta borđi og verđur skákin sýnd beint á vefsíđu mótsins og hefst kl. 13.   

Guđmundur er 13. stigahćsti keppandi á mótinu en alls tefla 88 skákmenn í efsta flokki.  Međal annarra keppenda má nefna skosku stórmeistarana Jonathan Rowson (2591), Kati Arakhamia-Grant (2506), Paul Motwani (2503), Colin McNab (2474) og John Shaw (2462).  Alls taka 10 stórmeistarar ţátt, 1 alţjóđlegur meistari og 8 FIDE-meistarar.


Hannes međ 3 vinninga eftir fjórar umferđir í Malaga

Hannes ađ tafli í Lúx2Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2580) er í 7.-24. sćti á opnu skákmóti í Malaga međ 3 vinninga af 4 mögulegum.    Í fimmtu umferđ, sem fram fer í dag, teflir Hannes viđ spćnska alţjóđlega meistarann Diego Guerra Bastida (2410).

Efstur međ fullt hús er serbneski stórmeistarinn Dragan Paunovic (2519).

Árangur Hannesar:

 

Rd. NameRtgFEDRes.
1 Flores Chico Jorge 2054ESPs 1 
2FMGarrido Dominguez Jesus 2301ESPw 1 
3IMCuenca Jimenez Jose Fernando 2418ESPs 1 
4GMPaunovic Dragan 2519SRBw 0 
5IMGuerra Bastida Diego 2410ESPs   

Alls taka 104 skákmenn í mótinu og ţar af 13 stórmeistarar og 8 alţjóđlegir meistarar.  Hannes er ţriđji stigahćstur keppenda. 

Guđmundur sigrađi stórmeistara í ţriđju umferđ í Edinborg!

Guđmundur KjartanssonFIDE-meistarinn Guđmundur Kjartansson (2356) sigrađi indverska stórmeistarann S. Arun Prasad (2556) í ţriđju umferđ skoska meistaramótsins í skák sem fram fór í Edinborg í dag.  Ţriđji sigur Guđmundar, í jafnmörgum skákum, og er hann nú í 1.-2. sćti á mótinu.

Aron Ingi Óskarsson tapađi fyrir Skotanum Ian McDonald (1545) og er enn ekki kominn á blađ.

Í fjórđu umferđ, sem fram fer á morgun, teflir Guđmundur viđ annan indverska stórmeistara, ađ ţessu sinni Magesh Chandran Panchanath (2493).  Skákin verđur sýnd beint og hefst kl. 13.   

Guđmundur er 13. stigahćsti keppandi á mótinu en alls tefla 88 skákmenn í efsta flokki.  Međal annarra keppenda má nefna skosku stórmeistarana Jonathan Rowson (2591), Kati Arakhamia-Grant (2506), Paul Motwani (2503), Colin McNab (2474) og John Shaw (2462).  Alls taka 10 stórmeistarar ţátt, 1 alţjóđlegur meistari og 8 FIDE-meistarar.


Björn Freyr í TV

Björn Freyr og Bragi ParkódínBjörn Freyr Björnsson (2166) er genginn til liđs viđ Taflfélag Vestmannaeyja. TV er um ţessar mundir ađ styrkja a-liđ sitt fyrir komandi átök í deildakeppninni en liđiđ vann sér sćti í efstu deild á síđustu leiktíđ. Liđiđ mun styrkast enn frekar á nćstu dögum dögum og vikum og verđur ţađ tilkynnt ţegar ţađ liggur fyrir.

 


Kramnik sigrađi á Dortmund-mótinu í níunda sinn

Kramnik kampakátur eftir sigurinn á mótinuRússneski stórmeistarinn Vladimir Kramnik (2759) sigrađi á Dortmund Sparkassen-mótinu sem lauk í Dortmund í dag.  Kramnik sigrađi Naiditsch (2697) í lokaumferđinni en öđrum skák lauk međ jafntefli.  Kramnik fékk ţ.a.l. einum vinningi meira en nćstu menn.

 

 

Lokastađan:
  • 1. Kramnik (2759) 6,5 v.
  • 2.-4. Carlsen (2772), Leko (2756) og Jakovenko (2760) 5,5 v.
  • 5. Bacrot (2721) 4 v.
  • 6. Naiditsch (2697) 3 v.

Međalstig á mótinu voru  2744 skákstig og tefld var tvöföld umferđ.

Heimasíđa mótsins


Kjetil A. Lie norskur meistari

Kjetil LieStórmeistarinn Kjetil A Lie (2541) varđ í dag skákmeistari Noregs.  Ketill hlaut 6,5 vinning í 9 skákum og varđ hálfum vinning fyrir alţjóđlega meistarann Frode Elsness (2445) og stórmeistarann Simen Agdestein (2572) en sá síđarnefndi tefldi úrslitaskák viđ Ketil í dag sem lauk međ jafntefli.

Alls tóku 24 skákmenn ţátt í landsliđsflokki (Klasse Elite) og tefldar voru 9 umferđir.  Athyglisvert og e.t.v. til umhugsunar ađ prófa ţetta fyrirkomulag á Íslandi a.m.k. einu sinni í stađ hins hefđbundna 12 manna lokađa flokks.

Heimasíđa mótsins


Guđmundur vann í 2. umferđ á skoska meistaramótinu

Guđmundur KjartanssonFIDE-meistarinn Guđmundur Kjartansson (2356) vann Skotann Graeme Kafka (2077) í 2. umferđ skoska meistaramótsins í skák sem fram fór í dag Edinborg.  Guđmundur hefur 2 vinninga og er í 1.-8. sćti.  Aron Ingi Óskarsson tapađi fyrir Englendingnum Dominic Food (2069) og er enn ekki kominn á blađ.

Ekki liggur fyrir pörun ţriđju umferđar sem fram fer á morgun.  Sú skák ćtti ađ sýnd beint og hefst kl. 13.   

Guđmundur er 13. stigahćsti keppandi á mótinu en alls tefla 88 skákmenn í efsta flokki.  Međal annarra keppenda má nefna skosku stórmeistarana Jonathan Rowson (2591), Kati Arakhamia-Grant (2506), Paul Motwani (2503), Colin McNab (2474) og John Shaw (2462).  Alls taka 10 stórmeistarar ţátt, 1 alţjóđlegur meistari og 8 FIDE-meistarar.


Hannes vann í fyrstu umferđ

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2580) sigrađi Spánverjann Jorge Flores Chico (2054) í fyrstu umferđ opins skákmóts í Malaga á Spáni sem hófst í dag.  Í 2. umferđ, sem fram fer á morgun, teflir Hannes viđ spćnska FIDE-meistarann Jesus Garrido Dominguez (2301).  Tvćr umferđir verđa tefldar á morgun.

Alls taka 104 skákmenn í mótinu og ţar af 13 stórmeistarar og 8 alţjóđlegir meistarar.  Hannes er ţriđji stigahćstur keppenda.


Tómas í TV

Nú í vikunni gekk Tómas Björnsson, Vík, yfir í Taflfélag Vestmannaeyja, hann er međ 2160 Íslensk stig og á skráđar 943 skákir og ţví međ reyndustu skákmönnum hérlendis.

Eyjamenn bjóđa Tómas velkominn í félagiđ en hann verđur öflugur liđsmađur nú ţegar félagiđ leggur kapp á ađ verđa sterkir í 1 deildar keppninni í haust og ekki síđur ađ freista ţess ađ koma B-sveitinni upp í 3 deild.

Heimasíđa TV


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.9.): 13
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 123
  • Frá upphafi: 8780627

Annađ

  • Innlit í dag: 8
  • Innlit sl. viku: 99
  • Gestir í dag: 7
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband