Leita í fréttum mbl.is

Dagur, Snorri og Guðmundur unnu í fjórðu umferð

Dagur Arngrímsson að tafli í BúdapestDagur Arngrímsson (2392), Snorri G. Bergsson (2340) og Guðmundur Kjartansson (2284) sigruðu allir í fjórðu umferð Belgrad Trophy sem fram fór í Serbíu í dag.  Jón Viktor Gunnarsson (2430) gerði jafntefli.

Dagur vann Zoran Tasic (2159), Snorri sigraði Mladen Z Knezevic (2167) og Guðmundur vann Zoran Z Petrovic (2149).  Jón Viktor gerði jafntefli við Mersid Kahrovic (2259).

Jón Viktor hefur 3,5 vinning og er í 5.-16. sæti en hinir hafa 3 vinninga og eru í 17.-54. sæti.   Í fimmtu umferð, sem fram fer á morgun, teflir Guðmundur við stórmeistarann Miodrag R Savic (2522) en hinir tefla við stigalægri andstæðinga.  

230 skákmenn taka þátt í mótinu og þar af 17 stórmeistarar og 18 alþjóðlegir meistarar.   

 

Heimasíða mótsins

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 12
  • Sl. sólarhring: 48
  • Sl. viku: 179
  • Frá upphafi: 8764024

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 148
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband