Leita í fréttum mbl.is

EM: Héðinn vann í áttundu umferð

Héðinn SteingrímssonStórmeistarinn Héðinn Steingrímsson (2551) sigraði austurríska alþjóðlega meistarann Siegried Baumegger (2440) í áttundu umferð EM einstaklinga sem fram fór í Plovdid í Búlgaríu í dag.  Hannes Hlífar Stefánsson gerði jafntefli við búlgarska stórmeistarann Evgeni Janev (2472).   Héðinn hefur 4½ vinning og er í 85.-148. sæti en Hannes hefur 4 vinninga og er í 149.-198. sæti.

Efstir með 6½ vinning eru stórmeistararnir Sergei Movsesian (2695), Slóvakíu, Emil Sutovsky (2630), Ísrael, og Pavel Tregubov (2629), Rússlandi.  Efstar í kvennaflokki eru Kateryna Lahno (2479) og Anna Ushenina (2474), Úkraínu, og sænska skákdrottningin Pia Cramling (2539). 

Í níundu umferð, sem fram fer á morgun, teflir Héðinn við hvít-rússneska stórmeistarann Alexei Federov (2603) og Hannes við búlgarska alþjóðlega meistarann Momchil Nikolov (2488). 

Alls taka 336 skákmenn þátt í opnum flokki og þar á meðal 185 stórmeistarar!   Hannes er  92. stigahæsti keppandinn en Héðinn sá 130. í stigaröðuninni.    

EM einstaklinga

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 48
  • Sl. viku: 181
  • Frá upphafi: 8764583

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 147
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband