Leita í fréttum mbl.is

Íslandsmót grunnskólasveita fer fram á sunnudaginn - skráningarfrestur rennur út á hádegi

Íslandsmót grunnskóla 8.–10. bekkur 2018 fer fram í Taflfélagi Reykjavíkur, Faxafeni 12, sunnudaginn 15. apríl. Tefldar verða 7 umferðir með umhugsunartímanum 10+5. Teflt verður eftir svissneska kerfinu. Taflmennskan hefst kl. 13 og lýkur mótinu um kl. 17.  

Hver skóli getur sent fleiri en eina sveit. Í hverri sveit eru fjórir skákmenn. Keppendur skulu vera í 8.–10. bekk. Ef sérstaklega efnilegir skákmenn finnast í 1.–7. bekk er þeim leyfilegt að tefla með sínum skóla en þá aðeins í a- og b-sveit. Í hverri sveit mega vera allt að þrír varamenn. 

Þátttökugjöld kr. 7.500.- á sveit. Þó ekki hærri en kr. 15.000.- fyrir hvern skóla. 

Veitt verða verðlaun fyrir efstu b-c sveitir ásamt verðunum fyrir efstu sveitir af landsbyggðinni. 

Veitt verða borðaverðlaun fyrir bestan árangur á 1.-4. borði.  

Íslandsmeistarinn fær  keppnisrétt til þátttöku á Norðurlandamóti grunnskólasveita sem fram fer í Finnlandi í september.  

Skráning fer fram á Skák.is. Skráningu skal lokið í í síðasta lagi á hádegi 13. apríl nk

Ath. Áríðandi er að sveitirnar séu skráðar fyrirfram. 

Upplýsingar um þegar skráðar sveitir má finna hér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.7.): 1
  • Sl. sólarhring: 23
  • Sl. viku: 127
  • Frá upphafi: 8779007

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 102
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband