Leita í fréttum mbl.is

Meistaramót Skákskóla Íslands fer fram 26.-28. maí

Skákskóli Íslands

Meistaramót Skákskóla Íslands fyrir starfsárið 2016/2017 fer fram dagana 26.–28. maí og verður í tveim styrkleika/stigaflokkum.  Annar flokkurinn verður skipaður keppendum sem hafa 1600 alþjóðleg elo-stig eða meira en hinn flokkurinn er skipaður keppendum sem er undir 1600 elo stigum eða stigalausir. 

Skráning fer fram hér á Skák.is (guli kassinn efst). Upplýsingar um þegar skráða keppendur má finna hér.

Vakin er athygli á því að tímamörk eru mismunandi í flokkunum og færri umferðir verða tefldar í efri styrkleikaflokknum en þar er teflt um sæmdarheitið Meistari  Skákskóla Íslands. Núverandi meistari Skákskólans er Dagur Ragnarsson. 

Þátttökurétt hafa nemendur skólans og allir þeir sem tekið hafa þátt í námskeiðum á vegum skólans eða hlotið þjálfun á vegum skólans.  

Að öðru leyti áskilur skólastjóri/mótsnefnd sér rétt til að bjóða völdum einstaklingum til þátttöku. 

Mótsnefnd mun jafnframt taka afstöðu til óska þeirra sem ekki ná stigalágmörkum en vilja líka tefla í stigahærri flokknum.  

Flokkur undir 1600–elo-stigum og stigalausir: 

  1. umferð: Föstudagur 26. maí kl. 18
  2. umferð: Föstudagur 26. maí kl. 20 
  1. umferð. Laugardagur 27. maí kl. 10-13.
  2. umferð: Laugardagur 27. maí 13 –16
  3. umferð: Laugardagur 27. maí 16-19 

6.. umferð: Sunnudagur 28. maí kl. 10-13.

  1. umferð: Laugardagur 28. maí kl. 13 –16
  2. umferð: Laugardagur 28. maí kl. 16-19 

Tímamörk í öllum umferðunum 30 30. 

Keppendur geta tekið eina eða tvær ½ vinnings yfirsetur í fyrstu fimm umferðunum en tilkynna verður um yfirsetuna fyrir umferð og áður en raðað er í þá næstu. 

 

Flokkur keppenda með 1600 – elo stig og meira. 

 

Tefldar verða sex umferðir eftir svissneska kerfinu í báðum flokkum.

Dagskrá mótsins verður með eftirfarandi hætti:

 

Flokkur 1600 alþjóðleg elo – stig og ofar:

 

  1. umferð: Föstudagur 26. maí kl. 16
  2. umferð: Föstudagur 26. maí kl. 20

 

  1. umferð. Laugardagur 27. maí kl. 10
  2. umferð: Laugardagur 27. maí 15

 

  1. umferð: Sunnudagur 28. maí kl. 10
  2. umferð: Sunnudagur 28. maí kl. 15

 

Tímamörk í öllum umferðunum 90 30.

 

Keppendur geta tekið eða tvær ½ vinnings yfirsetu í fyrstu fjórum umferðunum en verða að tilkynna um yfirsetuna fyrir umferðina og áður en raðað er í næstu umferð.

Skákmenn sem eru með minna en 1600 elo- stig geta óskað eftir því að tefla í flokki stigahærri keppenda og mun mótsnefnd taka afstöðu til þess og skila niðurstöðu með góðum fyrirvara. 

 

Verðlaun í flokki 1600 elo +

 

  1. verðlaun: farmiði á skákmót að verðmæti kr. 50 þús + uppihaldskostnaður kr. 35 þús.
  2. verðlaun: Farmiði á skákmót að verðmæti kr. 40 þús.
  3. – 5. sæti Vandaðar skákbækur.

Auk þess verða veitt stigaflokkaverðlaun í mótinu:

 

1800 – 2000 elo:

  1. verðlaun: Farmiði á skákmót að verðmæti kr. 40 þús.

 

1600-1800 elo:

  1. verðlaun: Farmiði á skákmót að verðmæti kr. 40 þús.

 

Verðlaun í flokki 1600 elo og minna  og stigalausra:

 

  1. verðlaun: farmiði á skákmót að verðmæti kr. 40 þús:
  2. – 3. verðlaun: vandaðar skákbækur að eigin vali.

 

Verðlaun keppenda sem eru undir 1200 elo stig eða stigalausir:

  1. verðlaun: Vandaðar skákbækur.
  2. verðlaun: Landsliðstreyja „tólfunnar“.
  3. verðlaun: Landsliðstreyja „tólfunnar“.

 

Mótsstig úrskurða verði keppendur jafnir að vinningum í báðum flokkum - nema í keppni um 1.  sæti í stigahærri flokknum . Þá skal teflt um titilinn: 

Meistari Skákskóla Íslands 2017. 

Aðalstyrktaraðili Meistaramóts Skákskóla Íslands 2017 er  GAMMA. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.7.): 3
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 139
  • Frá upphafi: 8779032

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 111
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband