Leita í fréttum mbl.is

Bakú-pistill forseta nr. 3: Forsetanum vísađ út!

P1040417

Ţađ gekk ekki vel í annarri umferđ Ólympíuskákmótsins. Einn vinnur af átta kom í hús. Ţađ var reyndar mjög góđur vinningur. Hjörvar Steinn Grétarsson vann glćsilegan sigur á Tékkanum sterka, Viktor Laznika. Ađrar skákir töpuđust. Kvennaliđiđ tapađi 0-4. Liđsstjórarnir hafa fariđ betur yfir gang mál

Í dag mćta karlarnir liđi Sýrlands sem hefur međalstigin 2241 á móti 2527 hjá okkur mönnum. Gummi hvílir. Sýrlandi höfum viđ aldrei mćtt áđur á Ólympíuskákmóti.

Clipboard04

Bein útsending frá viđureign dagsins

Kvennaliđiđ mćtir liđi Englands. Veronika hvílir aftur. Ţar hallar verulega á okkur stigalega séđ. Međalstigin íslenska liđsins eru 2003 á međan enska kvennaliđiđ hefur ađ međaltali 2236 skákstig. Viđ höfum mćtt Englendingum tvisvar áđur. 1982 og 2010. Í Khanty Mansiesk 2010 vanst frćkinn og mjög óvćntur 3-1 sigur á ţeim ensku ţar sem Lenka, Hallgerđur og Sigurlaug unnu sínar skákir. Íslendingar voru mun stigalćgri á öllum borđum.  Ég sé ađ ég hef ţá talađ ţá um liđiđ hafi “jafnvel náđ besta árangri íslensks kvennaliđs á Ólympíuskákmóti”.

Clipboard06

Bein útsending frá viđureign dagsins

Skipulagning Aseranna er almennt góđ á mótinu. Einstaka hnökrar eru ţó til stađar og snúa ţeir helst ađ ađgangsmálum. Mér og reyndar fleirum finnst mótshaldarar og FIDE taka anti-cheating full langt. Ţótt koma verđi fyrir svindl međ öllum tiltćkum ráđum má ţađ ekki vera til ţess ađ skákin og fjölmiđlaumfjöllun líđi of mikiđ fyrir ţađ. 

Margir liđsstjórar mótmćltu ţví í gćr ađ tilkynna ţurfi í hvert skipti sem fariđ er á klósettiđ eins og lesa má um á Chess24. Sömuleiđis hafa menn veriđ ađ vandrćđum ađ taka myndir eins og lesa má um á Chess.com. Eins og Peter Doggers bendir á í ţeirri grein:

No other major sporting event in the world seems so restrictive with the press, making it difficult to highlight the major stories, people, and subplots of the competition. Organizers of the Olympiad, so far, are preferring to suspend access to what should be one of the most interesting and feature-rich worldwide chess events.

Í fyrstu umferđ komst ég sjálfur ekki inní nema áhorfendasvćđiđ. Ţar var ég myndavélalaus. Ég gafst upp og dreif mig uppá hótel.

Í gćr tókst mér ađ herja út blađamannapassa eftir mikiđ japl, jamm og fuđur. Ţegar ég komst loks inn í skáksalinn var korteriđ liđiđ og ég náđi ađeins ađ taka 3 myndir af karlaliđinu áđur en skákstjóri stöđvađi mig. Ţađ ađ komast inn reyndist mjög skammgóđur vermir.

Eftir 45 mínútur kom nefnilega mjög ábúđarfullur öryggisvörđur og vísađi mér út! Ég mátti víst ekki vera lengur inní skáksalnum. Viđ sem eru FIDE-fulltrúar eru vanir ţví ađ fá góđan og mikinn ađgang. Ţví er ekki fyrir ađ fara hér. Heldur betur ekki!

Aserarnir eru mjög strangir og hlýđa greinilega fyrirmćlum mjög nákvćmlega. Ţađ lýsir ţeim eiginlega mjög vel ađ ég gćr ţá ćtlađi Joanna Golas, sem er ein ćđsta manneskja mótshaldaranna, ađ hleypa mér inn bakdyra meginn en öruggsvörđurinn sem hún talađi viđ hlustađi ekkert á hana. Sagđi henni ađ ég hefđi ekki viđeigandi ađgang og fengi ekki fara inn! Og ţar viđ sat.

Mér skilst hins vegar ađ ţessu verđi kippt í liđinn í dag og ađ viđ munum fá fullan ađgang ađ skákstađnum. Sjáum til!

Umferđ dagsins hefst kl. 11.

Áfram Ísland!

Kveđja frá Bakú,
Gunnar Björnsson


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 92
  • Frá upphafi: 8778323

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 66
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband