13.5.2015 | 10:25
Sterkasta Íslandsmótið hefst á morgun í Hörpu!
Sterkasta Íslandsmót sögunnar í skák hefst á morgun í Háuloftum í Hörpu. Sex stórmeistarar taka þar þátt, þeirra á meðal Jóhann Hjartarson og Jón L. Árnason sem hafa ekki verið meðal keppenda síðan á síðustu öld! Keppt er um vegleg verðlaun og nafnbótina Skákmeistari Íslands.
Sex keppendur hafa hampað Íslandsmeistaratitlinum. Alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson hefur titil að verja og Hannes Hlífar Stefánsson hefur tækifærið til að slá eigið met vinni hann þrettánda Íslandsmeistaratitilinn!
Meðal annarra keppenda má nefna Héðin Steingrímsson sem er yngsti Íslandsmeistari sögunnar en hann vann mótið 1990 á Höfn í Hornafirði, þá aðeins 15 ára. Met sem verður seint slegið. Hjörvar Steinn Grétarsson er eini stórmeistarinn sem tekur þátt sem ekki hefur hlotið nafnbótina eftirsóttu. Henrik Danielsen varð Íslandsmeistari í Bolungarvík árið 2009.
Keppendalistinn lítur út sem hér segir:
- GM Hannes Hlífar Stefánsson (2590)
- GM Jóhann Hjartarson (2566)
- GM Hjörvar Steinn Grétarsson (2561)
- GM Héðinn Steingrímsson (2532)
- GM Henrik Danielsen (2520)
- GM Jón L. Árnason (2499)
- IM Guðmundur Kjartansson (2474)
- IM Bragi Þorfinnsson (2416)
- IM Björn Þorfinnsson (2407)
- FM Einar Hjalti Jensson (2359)
- FM Sigurður Daði Sigfússon (2319)
- WGM Lenka Ptácníková (2284)
Teflt verður daglega 14.-24. maí. Fyrsta umferð hefst á morgun (uppstigningardag) kl. 14. Skákum verður varpað upp á skjái, heitt kaffi á könnunni og áhorfendur velkomnir.
Bent er á að hægt er að spá fyrir um röð efstu manna mótsins hér á Skák.is (guli kassinn efst).
Flokkur: Spil og leikir | Facebook
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 1
- Sl. sólarhring: 14
- Sl. viku: 97
- Frá upphafi: 8778337
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 71
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.