Leita í fréttum mbl.is

Atskákmót Skákklúbbs Icelandair 2013 - Sveitakeppni

2012 Icelandair 038Þá er komið að því, hið skemmtilega og spennandi Atskákmót Icelandair 2013 verður haldið á Reykjavík Natura, 28.-29. desember. Þetta mót verður með svipuðu sniði og undanfarin tvö ár en fjöldi þátttakenda hefur einhver áhrif á keppnisfyrirkomlagið.

Mörg merkileg skákmót hafa verið haldin á gamla á Hótel 2012 Icelandair 026Loftleiðum í gegnum tíðina og hafa margir heimsþekktir skákmenn teflt þar ásamt okkar stórmeisturum og því má búast við að þessi staður rifji upp gamlar minningar hjá mörgum og skapi skemmtilegt andrúmsloft.

Þetta er opin sveitakeppni með fjögurra manna liði en leyfilegt er að hafa 3 varamenn. Þó að þetta sé opin sveitakeppni eru fyrirtæki, stofnanir, klúbbar, eða önnur félög hvött til að senda lið til keppni. Markmiðið er að hafa jafna og skemmtilega keppni og því er sá hátturinn hafður á að hver sveit má ekki hafa fleiri en 8.500 skákstig í hverri umferð.

2012 Icelandair 017Vissulega er hægt að setja saman allskonar sveitir sem væru innan við 8.500 stig en það væri gaman ef að sveitir væru skipaðar bæði stigaháum annars vegar og stigalægri hins vegar, "Gens Una Sumus" - "Við Erum Ein fjölskylda"

Miðað er við alþjóðleg stig en ef alþjóðleg stig eru ekki til staðar er miðað við íslensk stig og stigalausir reiknast með 1.500 stig.

  • Reykjavík Natura, áður Hótel Loftleiðir
  • 28.-29. desember, byrjað klukkan 13:00 báða dagana
  • 4 í liði, leyfilegt að hafa 3 varamenn
  • Þátttökufjöldi 14-28 sveitir, en það verður hægt að setja lið á biðlista.
  • 8.500 stig á sveitina í hverri umferð.
  • Stigalausir og þeir sem hafa færri en 1.500 stig verða skráðir með 1.500 stig
  • Miðað er við desember lista FIDE og einnig íslenska listans.
  • 15 mínútur á mann, þátttökufjöldi gæti haft áhrif á tímatakmörkin.
  • 9-14 umferðir, en umferðafjöldi ræðst af fjölda liða.
  • Miðað er við að teflt verði á milli kl. 13:00-18:00 báða dagana.
  • Keppnisfyrirkomulagið er svissneskt kerfi.
  • Flestir vinningar gilda.
  • Þátttökugjald: 18.000 á sveit og greiðist á skákstað. Kaffi og djús innifalið.
  • Þátttakendur eru hvattir til að skrá sig tímanlega þar sem að þátttökufjöldinn er takmarkaður.


Verðlaun:*

Sveitakeppni:

  • 1. sæti: 4x farmiðar fyrir tvo til Evrópu með Icelandair
  • 2. sæti: 4x gjafabréf fyrir tvo á veitingastaðnum Satt .
  • 3. sæti: 4x gjafabréf fyrir tvo í Fontana

Borðaverðlaun.

Borðaverðlaunin eru farmiðar innanlands fyrir tvo í boði Flugfélags Íslands og Icelandair Saga Club og gisting í 2 nætur fyrir tvo á Icelandair Hótelum ásamt morgunverðarhlaðborði. Hægt verður að velja um gistingu á Hótel Akureyri eða á Hótel Héraði.

Óvæntasti sigurinn
Sá aðili sem vinnur óvæntasta sigurinn mun fá gjafabréf fyrir tvo á veitingastaðnum Satt . Miðað er við stigamun.

Útdráttarverðlaun - einvígi, teflt á meðan er verið að taka saman lokaúrslit.
Einnig eru glæsileg útdráttarverðlaun en þau eru 25.000

Tveir verða dregnir út til að tefla hraðskák um þessi verðlaun. 10 mínútum verða skipt á milli skákmannanna í öfugu hlutfalli við stigin sem skákmennirnir hafa til að gefa þeim stigalægri meiri möguleika og auka spennuna.

Sá sem er dreginn fyrr fær hvítt og verður að vinna, svörtum nægir jafntefli.

Sá sem tapar fær gjafabréf á veitingastaðnum Satt fyrir tvo.

* ATH. Sami aðili getur ekki unnið til fleiri en einna ferðavinninga, ef slíkt kemur upp mun viðkomandi aðili velja hvaða vinning hann vill, útfærist nánar á skákstað!
- Greiða þarf flugvallarskatta af öllum flugmiðum.

Skráning fer fram hér.

Hægt er að fylgjast með skráningum hér.

Á Facebook er hægt að skiptast á skoðunum og auglýsa sig eða eftir liðsmönnum

Skráningu lýkur aðfaranótt laugardagsins 14. desember.
Frekari upplýsingar er hægt að fá með því að senda póst á Óskar Long;
ole@icelandair.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 24
  • Sl. viku: 143
  • Frá upphafi: 8765507

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 120
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband