9.6.2013 | 10:18
Skákhátíð í Árneshreppi: Fjórir stórmeistarar mæta til leiks á Afmælismót Jóhanns Hjartarsonar
Skákhátíð í Árneshreppi verður haldin dagana 21. til 23. júní og sem fyrr verður boðið upp á fjölda skemmtilegra viðburða fyrir áhugamenn úr öllum áttum. Þetta er sjötta skákhátíðin á Ströndum, sem hefur unnið sér sess sem fastur liður í skákdagatalinu. Fjórir stórmeistarar eru skráðir til leiks, auk margra öflugra meistara og áhugamanna úr öllum áttum.
Að þessu sinni verða skákviðburðir á fjórum stöðum: Hólmavík, Djúpavík, Trékyllisvík og í Norðurfirði.
Föstudaginn 21. júní klukkan 16 verður fjöltefli í Hólmavík og um kvöldið verður hið vinsæla tvískákarmót haldið á Hótel Djúpavík. Staðarhaldarar í Djúpavík bjóða gestum hátíðarinnar upp á sérstakt tilboð á gistingu og eru áhugasamir hvattir til að hafa samband sem fyrst. Þá verður sérstakt tilboð á ljúffengu hlaðborði, áður en taflmennska hefst á föstudagskvöldið, og eru gestir hvattir til að setjast að veisluborði saman. Laugardaginn 22. júní verður svo efnt til Afmælismóts Jóhanns Hjartarsonar stórmeistara, sem varð fimmtugur fyrr á árinu, í samkomuhúsinu í Trékyllisvík. Meðal keppenda verða stórmeistararnir Jóhann, Helgi Ólafsson, Henrik Danielsen og Jón L. Árnason. Af öðrum kunnum köppum má nefna Guðmund Gíslason, Róbert Lagerman, Sævar Bjarnason, Gunnar Björnsson og ungu ljónin Hilmi Frey Heimisson, Vigni Vatnar Stefánsson, Jón Kristin Þorgeirsson, Heimi Pál Ragnarsson.
Heildarverðlaun á mótinu verða 100 þúsund krónur, auk fjölda veglegra aukavinninga. Sigurvegarinn fær auk þess í sinn hlut listaverk eftir Guðjón Kristinsson frá Dröngum.
Um kvöldið verður svo efnt til hins árlega ,,landsleiks" heimamanna úr Ungmennafélaginu Leifi heppna og aðkomumanna og að leik loknum verður grill og varðeldur.Sunnudaginn 23. júní lýkur hátíðinni í Norðurfirði með Afmælismóti Böðvars Böðvarssonar, hinnar gamalreyndu skákkempu, sem verður 77 ára þennan dag. Böðvar þarf vart að kynna fyrir skákáhugamönnum, en skákferill hans spannar áratugi.
Gisting er í boði á Hótel Djúpavík, sem býður gestum hátíðarinnar sérstakt tilboð. Full ástæða er til að mæla með gistingu í Djúpavík, enda staðurinn ævintýralegur og hótelið engu líkt. Sími þar er 451 4037.
Þá býður Urðartindur í Norðurfirði upp á herbergi í nýlegu hóteli í botni fjarðarins. Sími þar er 843 8110.
Auk þess sem mótshaldarar hafa yfir að ráða fyrsta flokks svefnpokagistingu í Norðurfirði, með góðri eldunaraðstöðu. Þá eru góð tjaldstæði í Árneshreppi svo allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband sem fyrst við Hrafn Jökulsson í hrafnjokuls@hotmail.com eða Róbert Lagerman í chesslion@hotmail.com.Árneshreppur á Ströndum er afskektasta en að margra mati landsins fegursta sveit. Skákfélagið Hrókurinn stendur að hátíðinni sjötta árið í röð, en félagið hefur að auki efnt til skákviðburða í Árneshreppi í rúman áratug. Mótshaldarar hlakka til að hitta gamla vini og nýja á skemmtilegri hátíð!
Allir eru velkomnir á Skákhátíð á Ströndum, og er þáttaka ókeypis.
Mynddalbúm tileiknkað hátíðinni (HJ)
Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:29 | Facebook
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.7.): 11
- Sl. sólarhring: 26
- Sl. viku: 137
- Frá upphafi: 8779017
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 109
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.