Leita í fréttum mbl.is

Útiskákmót Goðans í Vaglaskógi fer fram annað kvöld

Útiskákmót Goðans verður haldið við verslunina í Vaglaskógi föstudaginn 24 júní og hefst það kl 21.00. Mótið er útiskákmót og verður teflt á pallinum framan við verslunina. 
Verslunin verður opin þetta kvöld og geta keppendur fengið sér mæru og drykk á meðan mótið stendur yfir.  Líkleg tímamörk verða 5-7 mín á mann og líklegt er að umferðirnar verði ekki fleiri en 11.

Goðinn býður nágrönnum sínum í SA velkomna yfir í Vaglaskóg til þátttöku í mótinu, en ekkert mótsgjald er og engin verðlaun verða veitt. Mótið er einungis til gamans og væntir stjórn Goðans þess að félagsmenn fjölmenni til keppni og vonandi geta Akureyringar litið við í einni af perlum Þingeyinga sem Vaglagskógur er svo sannarlega.

Að afloknu móti er ætlunin að taka hópmynd af keppendum á gömlu bogabrúnni yfir Fnjóská í tilefni dagsins en bogabrú þessi var, samkvæmt öruggum heimildum, ein elsta og ef ekki stærsta brú slíkrar gerðar á norðurlöndunum þegar hún var byggð. Er því um frekar merkilegt mannvirki að ræða.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.7.): 16
  • Sl. sólarhring: 28
  • Sl. viku: 140
  • Frá upphafi: 8779000

Annað

  • Innlit í dag: 15
  • Innlit sl. viku: 112
  • Gestir í dag: 14
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband