Fćrsluflokkur: Spil og leikir
12.10.2011 | 18:30
Haustmót TR: Sjötta umferđ í beinni
Skákir 6. umferđar í a-flokki Haustmóts TR auk einnar skákar í b-flokki, sem hefst kl. 19:30, má nálgast í beinni útsendingu.
Bein útsending frá Haustmóti TR
Spil og leikir | Breytt 5.10.2011 kl. 20:45 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
12.10.2011 | 12:34
Vinafélagiđ stofnađ fimmtudaginn 13. október undir kjörorđinu: Allir saman!
Vinafélagiđ blćs til stofnfundar á stórmóti í skák, í tilefni Alţjóđlegs geđheilbrigđisdags, fimmtudaginn 13. október klukkan 19 í Faxafeni 12. Ađ Vinafélaginu standa vinir og velunnarar Vinjar, athvarfs Rauđa krossins viđ Hverfisgötu, en lokun vofir nú yfir ţessum griđastađ mörg hundruđ einstaklinga.
Af ţessum sökum hafa nokkrir einstaklingar tekiđ höndum saman um ađ stofna Vinafélagiđ, og eru allir hjartanlega velkomnir í félagiđ. Markmiđiđ er ađ standa vörđ um og efla samfélagiđ í Vin. Markmiđ félagsins er ađ safna árlega ţeirri upphćđ, sem ţarf til reksturs Vinjar, fyrir utan starfsmannahald.
Rauđi krossinn hefur rekiđ Vin í 20 ár, en Reykjavíkurborg hefur lagt til húsnćđiđ. Í Vin eru fjórir starfsmenn og heildarkostnađur viđ rekstur rétt rúmlega 20 milljónir króna. Vinafélagiđ mun beita sér fyrir ţví ađ fleiri ađilar komi ađ rekstrinum, enda allir sammála um mikilvćgi heimilisins í Vin.
Strax ađ loknum stofnfundi Vinafélagsins hefst stórmót sem Skákfélag Vinjar heldur, í samvinnu viđ TR, Helli, Skákakademíu Reykjavíkur og fleiri. Forlagiđ gefur glćsilega vinninga og má lofa skemmtilegu móti.
Tekiđ verđur viđ skráningum í Vinafélagiđ á stađnum. Einnig tekur Björn Ívar Karlsson viđ skráningum í póstfanginu bivark@gmail.com. Fólk er hvatt til ađ gerast stofnfélagar í Vinafélaginu og sýna ţannig gestum Vinjar stuđning.
Ljóst er ađ málstađur Vinjar nýtur víđa samúđar og stuđnings. Međal ţeirra sem gefa kost á kröftum sínum eru Magnús Matthíasson kennari og skákfrömuđur, Styrmir Gunnarsson ritstjóri, Vigdís Grímsdóttir rithöfundur, Jón Kristjánsson fv. heilbrigđisráđherra, Ţráinn Bertelsson rithöfundur og fleiri.
Vonandi munu sem flestir gerast stofnfélagar í Vinafélaginu, sem starfar undir kjörorđinu: Allir saman!
12.10.2011 | 00:45
Karpov í RÚV
Heimsókn Karpovs í síđustu viku tókst ljómandi vel og skipuleggjendunum; Taflfélagi Reykjavíkur, CCP og MP banka til mikils sóma. Töluvert var um heimsókn fjallađ í fjölmiđlum, ađallega í RÚV og í Mogganum. Eftirfarandi fréttir voru birtar í RÚV á međan heimsókn meistarans stóđ.
- http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4604103/2011/10/06/17/ Fréttir
- http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4604104/2011/10/07/16/ Fréttir
- http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4604105/2011/10/08/9/ Fréttir
- http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4605457/2011/10/10/2/ Kastljósiđ
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 00:48 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
12.10.2011 | 00:42
Fimmtudagurinn ţrettándi - stórmót í TR
Í tilefni Alţjóđlegs geđheilbrigđisdags verđur blásiđ til móts í sal TR viđ Faxafen klukkan 19:30, fimmtudaginn 13. okt. Skráning hefst strax uppúr klukkan 19:00. Taflfélagiđ Hellir, Taflfélag Reykjavíkur og Skákfélag Vinjar sameina krafta sína, líkt og í fyrra og ţá varđ úr magnađ kvöld međ 79 ţátttakendum.
Tefldar verđa sex umferđir međ sjö mínútna umhugsunartíma og skákstjóri er Gunnar Björnsson, forseti Skáksambandsins međ dyggri ađstođ Sigurlaugar Regínu Friđţjófsdóttur, formanns TR.
Forlagiđ gefur glćsilega vinninga og veitt verđa níu verđlaun. Allir ţátttakendur eiga möguleika á bókaverđlaunum auk verđlaunapenings um háls en verđlaun verđa veitt fyrir:
- 3 efstu sćtin og efsta sćtiđ í flokkunum:
- 60 ára og eldri
- Kvenna
- 13-18 ára (fćdd 1993-98)
- 12 ára og yngri (fćdd 1999 of eftir)
- Stigalausir
- Auk ţess er bókavinningur fyrir óvćntasta vinningin ađ mati skákstjóra.
Ţetta er í sjöunda skipti sem mót í tilefni Alţjóđlegs geđheilbrigđisdags (sem reyndar er haldinn hátíđlegur um allan heim ţann 10. okt) er haldiđ og hefur ţátttaka aukist ár frá ári og algjört met sl ár ţegar ţessi ţrjú félög sameinuđust um mótshaldiđ. En áđur hefur mótiđ fariđ fram í Ráđhúsinu, Perlunni og í Mjódd.
Félögin hvetja allt skákáhugafólk, á öllum aldri, ađ vera međ ţví gott er ađ muna ađ ţađ er engin heilsa án geđheilsu. Og svo er ekkert ţátttökugjald.
11.10.2011 | 21:33
Skemmtilegar myndir frá Íslandsmóti skákfélaga
Mikill fjölda mynda hefur veriđ birtar frá Íslandsmóti skákfélaga. Myndirnar hafa veriđ teknar af Helga Árnasyni, Einari S. Einarssyni og Halldóri Grétari Einarssyni. Í dag bćttust viđ einkar skemmtilegar myndir teknar af Uros Matovic.
Uros ţessi er serbneskur sjálfbođaliđi í Vin, athvarfi Rauđa kross Íslands. Hann hefur engan áhuga á skák en sćkir mannfagnađi og myndar sem enginn sé morgundagurinn. Hann semsagt kíkti viđ í Rimaskóla á laugardeginum og komst í feitt, hafđi lítinn áhuga á stöđum og flćkjum en myndađi einbeitt andlit og augu á stilkum. Uros hefur komist ađ ţví ađ Ísland er nafli alheimsins, hér hefur hann hitt Kofi Annan, Yoko Ono og Sean Lennon. Hann er miđur sín ađ hafa misst af Karpov en er ađ fara á tónleika međ Björk.
Myndaalbúm Íslandsmóts skákfélaga
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:35 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2011 | 21:09
Sigfús Jónsson óstöđvandi í Stangarhyl
Sigfús Jónsson var í stuđi í Stangarhylnum í dag. Hann vann alla sína andstćđinga og endađi međ fullt hús, eđa 9 vinninga. Haraldur Axel varđ í öđru sćti međ 7 vinninga og jafnir í 3.-4. sćti urđu Ţorsteinn Guđlaugsson og Valdimar Ásmundsson međ 6 vinninga.
Tuttugu og ţrír mćttu til leiks í dag.
Heildarúrslit:
- 1 Sigfús Jónsson 9 vinningar
- 2 Haraldur Axel Sveinbjörnsson 7
- 3-4 Ţorsteinn Guđlaugsson 6
- Valdimar Ásmundsson 6
- 5-7 Leifur Eiríksson 5.5
- Finnur Kr Finnsson 5.5
- Bragi G Bjarnarson 5.5
- 8-10 Einar S Einarsson 5
- Halldór Skaftason 5
- Eiđur Á Gunnarsson 5
- 11-14 Ásgeir Sigurđsson 4.5
- Jón Bjarnason 4.5
- Gísli Sigurhansson 4.5
- Jón Steinţórsson 4.5
- 15-19 Hálfdán Hermannsson 4
- Óli Árni Vilhjálmsson 4
- Jónas Ástráđsson 4
- Gísli Árnason 4
- Baldur Garđarsson 4
- 20-22 Viđar Arthúrsson 3
- Grímur Jónsson 3
- Friđrik Sófusson 3
- 23 Hrafnkell Guđjónsson 1.5
Myndaalbúm (ESE)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 21:21 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2011 | 20:58
Carlsen sigrađi í Bilbao eftir sigur á Ivanchuk í hrađskák
Carlsen (2823) og Ivanchuk (2765) komu jafnir og efstir í mark á Alslemmumótinu sem lauk í Bilbao í dag. Ţeir gerđu báđir jafntefli í lokaumferđinni en Anand (2817) vann Vallejo (2716) og tókst ţví ađ forđa sér úr neđsta sćtinu. Carlsen vann svo Ivanchuk í einvígi 2,5-1,5 og telst ţví sigurvegari mótsins.
Stađan:
- 1.-2. Carlsen (2823) og Ivanchuk (2765) 15 stig
- 3.-5. Nakamura (2753), Aronian (2807) og Anand (2817) 12 stig
- 6. Vallejo (2716) 10 stig
Tefld er tvöföld umferđ. Fyrri hlutinn fer fram í Sao Paulo í Brasilíu en sá síđari í Bilbao á Spáni. Veitt eru 3 stig fyrir sigur en 1 fyrir jafntefli.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 14:30 í Bilbao)
- ChessBomb
11.10.2011 | 20:00
Áskrift ađ Tímaritinu Skák
Stjórn Skáksambands Íslands hefur til athugunar ţann möguleika ađ endurvekja Tímaritiđ Skák. Hugmyndin er ađ gefa út árstímarit í mars ţar sem fariđ vćri yfir liđiđ ár og fjallađ um helstu viđburđi eins og Reykjavíkurskákmótiđ, Ólympíuskákmótiđ, Skákţing Íslands, Íslandsmót skákfélaga, unglingastarf o.s.frv. Vandađ yrđi til verka í alla stađi ţar sem andi gamla blađsins svifi yfir vötnum. Gengiđ er út frá ţví ađ blađiđ verđi 90-100 bls. í fallegu broti.
Slík útgáfa er mjög dýr og ţví ljóst ađ grundvöllur hennar nćst eingöngu ef áhugi međal skákmanna fyrir ţví ađ kaupa blađiđ er umtalsverđur. Áćtlađ er ađ blađiđ muni kosta um kr. 2.000. Til ađ kanna útgáfugrundvöll fyrir slíku ársriti stendur Skáksambandiđ fyrir könnun međal skákmanna á ţví hvort ţeir muni kaupa slíkt rit.
Ţeir sem eru tilbúnir ađ styđja málefniđ og kaupa Tímaritiđ Skák árlega á 2.000 kr. eru vinsamlegast beđnir ađ skrá sig hér.
Spil og leikir | Breytt 5.10.2011 kl. 19:41 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2011 | 11:25
Fleiri pistlar um Íslandsmót skákfélaga
Ţađ fjölgar pistlinum frá Íslandsmóti skákfélaga. Guđmundur M. Dađason hefur skrifađ pistil á heimasíđu Taflfélags Bolungarvíkur og Ţorsteinn Ţorsteinsson hefur skrifađ pistil á heimasíđu TV. Áđur voru komnir nokkrir pistlar.
Nýir pistlar
- Bolapistill
- Eyjapistill (tengill lagfćrđur)
Eldri pistlar
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 12:46 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2011 | 00:44
Ritstjórapistill
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 20
- Sl. sólarhring: 20
- Sl. viku: 127
- Frá upphafi: 8778229
Annađ
- Innlit í dag: 17
- Innlit sl. viku: 87
- Gestir í dag: 16
- IP-tölur í dag: 16
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar