Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Íslandsmót víkingaskákfélaga

Ţriđja Íslandsmót Víkingaskákfélaga verđur haldiđ í húsnćđi Vinjar viđ Hverfisgötu ţriđjudaginn 15. mai og hefst taflmennska kl. 19.00.  Ţegar hafa nokkur liđ skráđ sig til leiks.  Liđin verđa skipuđ ţriggja manna sveitum auk varamanna og eru tímamörk 15 mínútur á skákina. Reiknađ er međ 8-9 liđ verđi međ.  Búist er viđ hörku barátu jafnra liđa um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn í Víkingaskák, en teflt verđur um stóran farandbikar og eignarbikar.  Einnig er sérstök verđlaun fyrir besta skólaliđiđ, en Rimaskóli og Laugarlćkjaskóli ćtla ađ senda liđ á mótiđ auk ţess sem veitt verđa sérstök verđlaun fyrir árangur á hverju borđi. Ţeir sem ekki eru skráđir í liđ geta komiđ og fengiđ ađ tefla međ ţeim liđum sem skráđ eru til leiks.  Bođiđ er upp á veitingar á stađnum.

Nánar um mótiđ um heimasíđu Víkingaklúbbsins.


HM-einvígi: Jafntefli í 3. skák - stađan 1˝-1˝

Anand og Gelfand

Anand og Gelfand gerđu jafntefli í í 3. skák heimsmeistaraeinvígis ţeirra sem nú fer fram í Moskvu.  Lengsta skák einvígins til ţessa en skákin var 37 leikir.  Fjórđa skákin fer fram á morgun og hefst kl. 11.  

Henrik Danielsen er međ myndbandsskýringar frá hverri skák sem finna má á Chessdom

Alls tefla ţeir 12 skákir. 


Stigamót Hellis hefst á miđvikudag

Stigamót Taflfélagsins Hellis verđur haldiđ í tíunda sinn dagana 16.-18. maí.   Fyrirkomulag mótsins hefur veriđ mismunandi í gegnum tíđina en ađ ţessu sinni er mótiđ haldiđ í kringum uppstigningadaginn ţannig ađ keppendur munu eiga frí helgina á eftir.  Góđ verđlaun eru í bođi á mótinu og mótiđ er opiđ öllum.  Skráning á mótiđ er á heimasíđu Hellis:  http://www.hellir.blog.is.  Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má nálgast hér

Ţátttökugjöld eru kr. 3.000 fyrir fullorđna og 2.000 kr. fyrir 15 ára og yngri og rennur óskipt í verđlaunasjóđ mótsins.  

Síđasta tćkifćri fyrir marga til ađ tefla kappskákir innanlands í sumar.   

Núverandi Stigameistari Hellis er Sigurđur Dađi Sigfússon.

Umferđatafla:
  • 1.-4. umferđ, miđvikudaginn 16. maí (19:30-23:30)
  • 5. umferđ, fimmtudaginn 17. maí (11-15)
  • 6. umferđ, fimmtudaginn 17. maí (17-21)
  • 7. umferđ, föstudaginn 18. maí (19:30-23:30)
Verđlaun:

  • 1. 50% af ţátttökugjöldum
  • 2. 30% af ţátttökugjöldum
  • 3. 20% af ţátttökugjöldum

Skráning:

Tímamörk:

  • 1.-4. umferđ: 20 mínútur + 5 sekúndur á leik
  • 5.-7. umferđ: 1˝ klst. + 30 sekúndur á leik

Hrađkvöld hjá Helli í kvöld

Taflfélagiđ Hellir heldur hrađkvöld mánudaginn 14. maí nk. og hefst tafliđ kl. 20:00. Tefldar verđa 7 umferđir međ sjö mínútna umhugsunartíma.  Teflt er í félagsheimili Hellis í Álfabakka 14a í Mjóddinni.

Sigurvegarinn á hrađkvöldinu fćr í verđlaun pizzu frá Dominos Pizzum. Einnig verđur dreginn út af handahófi annar keppandi, sem einnig fćr pizzu hjá Dominos Pizzum. Ţar eiga allir jafna möguleika, án tillits til árangurs á mótinu.

Ţátttökugjöld eru kr. 300 fyrir félagsmenn (kr. 200 fyrir 15 ára og yngri) og kr. 500 fyrir ađra (kr. 300 fyrir 15 ára og yngri).


Nakamura efstur á bandaríska meistaramótinu

NakamuraHikaru Nakamura (2775) er efstur međ 4,5 vinning ađ loknum 6 umferđum á bandaríska meistaramótinu í skák sem nú fer fram í Saint Louis.   Gata Kamsky (2741) er nćstur međ 4 vinninga en Alexander Onichuk (2660), Aleksandr Lenderman (2587) og Yuri Shulman (2571) eru í 3.-5. sćti međ 3,5 vinning.  12 skákmenn taka ţátt. 

Irina Krush (2457) er efst í kvennaflokki međ 4 vinninga eftir 5 umferđir.  Anna Zatonskih (2510) er önnur međ 3,5 vinning.

Frídagur er á morgun en mótunum verđur framhaldiđ 15.-20. maí.  Umferđirnar hefjast kl. 18 og ađ bandarískum siđ umgjörđ útsendingana afar góđ.   


Gallerý Skák: Gunnar hlaut Skák-Kyndilinn

Einar S. Einarsson og Gunnar Skarphéđinsson

Lokamótiđ í Gallerý Skák á ţessum vetri fór fram í vikunni sem leiđ enda komiđ vor og ţá leitar hugur sumra til annarra átta , einkum aukinnar útiveru í birtu langra sumardaga. Ţó má búast viđ ţví ađ margir hinna stađföstu ástríđuskákmanna leggi áfram leiđ sína í KR-klúbbinn á mánudagskvöldum og ţeirra sem eru 60+ í RIDDARINN á miđvikudögum, en ţar tefla menn af miklum krafti og óţreyju allan ársins hring, hvernig sem viđrar og vindurinn blćs.   

Haldin hafa veriđ yfir 30 skákkvöld í Gallerýinu á liđnu keppnistímabili sem hafa jafnan veriđ vel sótt.   Nú verđur gert hlé fram til 20. september eđa svo ţegar vetrarhúmiđ fer ađ leggjast yfir eyjuna bláu   á ný.   Í millitíđinni er ţess ţó ađ vćnta ađ haldiđ verđi glćsilegt "Sumarmót viđ Selvatn", líkt og mörg undanfarin ár, sem nánar verđur frá greint ţegar nćr dregur.  

Hlutskarpastur á  Lokamótinu varđ enginn annar en hinn valinkunni skákgarpur Gunnar Skarphéđinsson,   sá hćgláti ţrautgóđi stöđubaráttumađur, sem hefur veriđ einkar iđinn viđ ađ máta andstćđinga sína ţennan veturinn fyrirhafnarlítiđ. (sjá međf.mótstöflu).

 

dscn0586.jpg

Í virđingar- og ţakklćtisskyni fyrir glćsilegan árangur og í  ljósi ţess ađ Gunnar vann hvađ flest mót ţennan veturinn í Gallerýinu, reyndar sá eini sem unniđ hefur međ fullu húsi, 11v af 11 mögulegum, var hann heiđrađur međ forláta „Skák-Kyndli", undratćki međ sólarrafhlöđum, í leiktíđarlok,  sem gerir honum kleypt ađ halda heiđri skáklistarinnar á lofti í bókstaflegri merkingu en leggur honum jafnframt ţćr skyldur á herđar og láta ljós sitt skína skćrt  skáksviđinu, hér eftir sem hingađ til, í góđum skákvinahópi.    

Gleđilegt sumar !  


Hjörvar Steinn Íslandsmeistari í atskák

 

Hjörvar óstöđvandi á 1. borđi Verzló: Vann allar 7 skákirnar

Alţjóđlegi meistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson varđ í dag Íslandsmeistari í atskák annađ áriđ í röđ.  Hann vann Guđmund Gíslason í úrslitaeinvígi 2-0.   Úrslitaeinvígiđ fór fram í beinni útsendingu í sjónvarpssal.   Helgi Ólafsson og Björn Ţorfinnsson voru skákskýrendur.


Ákaflega vel heppnuđ útsending sem hćgt er ađ nálgast í heilu lagi hér:  http://ruv.is/sarpurinn/islandsmotid-i-atskak/13052012.

RÚV fćr miklar ţakkir fyrir ađ sýna einvígi í sjónvarpinu.  

Skákirnar fylgja međ fréttinni.


Skákmót á Akureyri

Fimmtudaginn 10. maí var teflt hrađmót sem upphaflega var auglýst sem 15 mínútna mót. Keppendur sameinuđust hinsvegar um breytt fyrirkomulag svo allir gćtu teflt viđ alla og var umhugsunartími styttur í 7 mínútur á mann og skák. Svipuđ bellibrögđ hafa veriđ viđhöfđ áđur, međ góđum árangri. Mótinu lauk sem hér segir:

  • 1. Tómas Veigar Sigurđarson                7
  • 2. Haki Jóhannesson                             6,5
  • 3. Jón Kristinn Ţorgeirsson                   6
  • 4. Sigurđur Eiríksson                             5
  •     Smári Ólafsson                                 5
  • 6. Ari Friđfinnsson                                2,5
  •     Logi Rúnar Jónsson                          2,5
  • 8. Atli Benediktsson                              1
  • 9. Bragi Pálmason                                 0,5

 

Laugardagurinn 12. maí var frátekinn fyrir sveitakeppni grunnskóla á Akureyri. 5-6 sveitir höfđu tilkynnt ţátttöku, en veikindi og ýmis óútskýrđ forföll settu strik í reikninginn. Ţegar til kastanna kom mćtti ađeins ein fullmönnuđ sveit til leiks, frá Brekkuskóla. Hún telfdi svo tvöfalda umferđ viđ keppendur frá öđrum skólum og vann báđar viđureignirnar 3-1. Ţar međ tókst Brekkuskóla ađ rjúfa margra ára sigurgöngu Glerárskóla í ţessari keppni. Sigursveitina skipuđu ţessir meistarar:

  1. Andri Freyr Björgvinsson, 9. bekk
  2. Magnús Mar Väljaots, 9. bekk
  3. Ađalsteinn Leifsson, 8. bekk
  4. Oliver Ísak Ólason, 4. bekk.

Ađ endingu var svo haldiđ hraöskákmót. Ţar urđu brekkskćlingar einnig sigursćlir; ţeir Andri Freyr og Ađalsteinn komu jafnir í mark en Símon Ţórhallsson úr Brekkuskóla varđ ţriđji.

Sunnudaginn 13. maí, í norđanfannkomu og frosti fóru svo úrslit firmakeppninnar fram. 12 fyrirtćki höfđu komist upp úr undanrásum og tókust nú á um hin eftirsóknarverđu sigurlaun. Í lok mótsins hófst bein útsending frá lokaeinvígi Atskákmóts Íslands og fylgdust keppendur međ framvindunni á breiđtjaldi. En lyktir firmakeppninnar urđu ţessar:
  • 1. Samherji (Áskell Örn Kárason)         9,5
  • 2. Ásbyrgi (Smári Ólafsson)                  9
  • 3. Arion banki (Jón Kr. Ţorgeirsson)    7,5
  • 4. Gullsmiđir S&P (Sig. Arnarson)        7
  •     Akureyrarbćr (Tómas V. Sig.)         7
  • 6. Norđlenska (Sig. Eiríksson)  6,5
  • 7. Olís (Haki Jóhannesson)                   6
  • 8. Rafeyri (Sveinbj. Sigurđsson)            5
  • 9. Höldur-Bílaleiga Ak (Logi R. Jns)     4
  • 10. VÍS (Símon Ţórhallsson)                3
  • 11. Bautinn (Ari Friđfinnsson)   1,5
  • 12. Fasteignasalan Byggđ (Oliver)         0

Skákţáttur Morgunblađsins: Tveir titlar á NM stúlkna í Stavangri

DSC01707Íslensku stúlkurnar sem tóku ţátt í Norđurlandamóti einstaklinga 10-20 ára í Stavangri í Noregi fyrir hálfum mánuđi náđu afbragđsárangri, ţeim besta á ţessum vettvangi frá upphafi keppninnar.

Í elsta flokknum vann Jóhanna Björg Jóhannsdóttirglćsilegan sigur, hlaut 4 vinninga af fimm mögulegum, og Sigríđur Björg Helgadóttir varđ í 4. sćti af 10 keppendum, hlaut 3 vinninga.

Í B-flokknum sem skipađur var stúlkum á aldrinum 11-15 ára vann Hrund Hauksdóttir međ umtalsverđum yfirburđum, hlaut 4 ˝ vinning af fimm en Veronika Magnúsdóttir varđ í 6. sćti međ 2 ˝ vinning.

Í C-riđli ţar sem yngstu stúlkurnar 10 ára og yngri tefldu, ţ.ám. hin 9Hópurinn ára gamla Nancy Davíđsdóttir, varđ Sóley Lind Pálsdóttir í 3. sćti međ 3 vinninga og fékk bronsverđlaun en Nancy var einnig međ 3 vinninga en lćgri á stigum og rađast í 5. sćti.

Davíđ Ólafsson, einn reyndasti kennari Skákskóla Íslands, var fararstjóri og ţjálfari stúlknanna. Hann er jafnframt landsliđsţjálfari ólympíuliđs kvenna sem teflir í Istanbúl í Tyrklandi í haust. Davíđ fór međ stóran hóp stúlkna á skákmót í Tékklandi sl. haust og er uppskeran úr ţeirri keppnisferđ ađ koma ć betur í ljós. Ţađ er alveg kristaltćrt ađ báđir sigurvegararnir, ţćr Jóhanna og Hrund, hafa bćtt sig verulega undanfariđ sem kemur m.a. fram í hćrri elo-stigatölu og meira sjálfsöryggi viđ skákborđiđ. Jóhanna náđi strax forystunni og varđ ađ lokum ˝ vinningi fyrir ofan sćnsku stúlkuna Jessicu Bengtsson sem varđ í 2. sćti. Jóhanna var farsćl í lokaumferđinni ţegar andstćđingi hennar sást yfir fremur einfalda leiđ til ađ tryggja allmikla liđsyfirburđi. Hrund var hinsvegar öryggiđ uppmálađ allt mótiđ og varđ vinningi á undan norsku stúlkunni Edit Machlik sem náđi 2. sćti. Stíll hennar lćtur lítiđ yfir sér. Hún byggir tafliđ yfirleitt upp á fremur rólegan hátt en mestar framfarir hjá henni koma fram í stöđum sem bjóđa upp á taktíska möguleika, m.ö.o. slagkrafturinn hefur aukist sem kemur skýrt fram í skákinni viđ norsku stúlkuna sem hér fylgir og tefld var í 1. umferđ:

Hanna Kyrkjebo - Hrund Hauksdóttir

Kóngspeđsbyrjun

1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 Bc5 4. Rxe5 Bxf2+ 5. Kxf2 Rxe5 6. d4 Rg6 7. Bc4 d6 8. Hf1 Rf6 9. Kg1 h6 10. De2 O-O 11. Df2 Be6 12. Bd3 De7

Hrund óttađist ekki 13. Bxh6 sem hćgt er ađ svara međ 13. ... Rg4! og vinnur mann.

13. Bd2 Had8 14. Hae1 Hfe8 15. d5

Vinnur peđ en gefur eftir e5-reitinn sem kalla má dágóđar bćtur.

15. ... Bc8 16. Dxa7 Rg4 17. h3 R4e5 18. De3 Dh4 19. Df2 He7 20. Dxh4 Rxh4 21. He3 Hde8 22. Hg3 Rhg6 23. Be2 Rd7 24. Bg4 Rc5 25. Bf5 Kh7 26. Hgf3 Bxf5 27. exf5 Re5 28. Hf4 Rcd7!

Góđur varnarleikur sem hindrar framrás f-peđsins. Hvítur er peđi yfir og á góđa möguleika en varnir svarts eru ađ sama skapi traustar.

29. Rb5 Rf6 30. Ha4?

Hér var best ađ leika 30. Hd4 en af einhverjum ástćđum gefur hvítur d5-peđiđ.

30. ... Rxd5 31. Ha7 b6 32. b3 Rc6 33. Ha4 He2 34. Hd1 H8e5 35. c4 Rde7 36. Rxc7 Hxf5 37. Be1 Rg6 38. Bg3 Rce5 39. Hf1 Hg5 40. Kh2?

Hér var 40 Hf2 eini leikurinn.

gctp1hb8.jpg40. ... Rh4!

Skyndilega er Hrund komin međ óstöđvandi kóngssókn.

41. Bxh4 Hgxg2+ 42. Kh1 Hh2+ 43. Kg1 Heg2 mát!

 Helgi Ólafsson helol@simnet.is

-------------------------------------------

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.  

Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 6. maí

Skákţćttir Morgunblađsins


Búdapest: Fyrsta tapskák Dags

Dagur Arngrímsson

Dagur Arngrímsson (2381) tapađi sinni fyrstu skák í dag á First Saturday-mótinu í Búdapest er hann tapađi fyrir ungverska stórmeistaranum Dr. Andras Flumbort (2503) í áttundu umferđ.  Dagur hefur 4,5 vinning og er í 5.-6. sćti. 

Í 9. umferđ, sem fram fer á morgun, teflir Dagur viđ bandaríska FIDE-meistarann Alexander Battey (2403). 

12 skákmenn tefla í SM-flokki og eru međalstigin 2393 skákstig.  Til ađ fá stórmeistaraáfanga ţarf 8,5 vinning.

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.8.): 1
  • Sl. sólarhring: 16
  • Sl. viku: 115
  • Frá upphafi: 8779694

Annađ

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 89
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband