Fćrsluflokkur: Spil og leikir
8.12.2012 | 18:56
Jólahrađskákmót Ćsa
Ćsir halda sitt Jólahrađskákmót ţriđjudaginn 11. desember og hefst ţađ kl. 13. Mótstađur er Stangarhylur 4. Tefldar verđa níu umferđir međ 7 mín. umh.t.
Ţrír efstu fá verđlaunapeninga.Síđan verđur dregiđ í nokkurskonar happdrćtti, ţar sem allir ţátttakendur fá einhvern vinning óháđ ţví hvađ marga vinninga ţeir fá í mótinu.
Allir skákmenn 60+ hjartanlega velkomnir.
Í dag í Podebredy í Tékklandi hefst skákmót ţar sem heldri skákmenn mćta skákkonum. Í liđi heldri skákmanna er sjálfur Friđrik Ólafsson, sem ţessa dagana, virđist tefla meira en flestir innlendir kollegar hans í stórmeistarastétt ţrátt fyrir ađ verđa 78 ára í byrjun nćsta árs!
Í liđi heldri skákmenna eru auk Friđriks Tékkinn Vlastimil Hort (2455), Ţjóđverjinn Wolgang Uhlmann (2319) og Oleg Romanishin (2530). Upphaflega átti Korchnoi ađ tefla en hann forfallađist og tók Uhlmann hans sćti.
Kvennaliđiđ er sterkt. Ţar ber hćst, Evrópumeistara kvenna og ólympíumeistarann Valentina Gunina (2514), sem Friđrik mćtir henni í fyrstu umferđ sem hefst nú kl. 14.
Einnig tekur indverska skákdrottningin Tania Sachdev (2400), sem hefur veriđ fastagestur á Reykjavíkurskákmótinu, rússneska skákkonan Alina Kaslinskaya (2344), sem var um tíma yngsti stórmeistari kvenna, ađeins 15 ára. Alina, sem er unnusta Alexander Ipatov, heimsmeistara 20 ára og yngri, en ţau munu báđi taka ţátt í Reykjavíkurskákmótinu. Minnst ţekkti keppandinn er tékkneska skákkonan Kristyna Havlikova (2310).
Tefld er tvöföld umferđ, ţ.e. allir heldri skákmennirnir tefla tvisvar viđ hverja skákkonu.
- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast almennt kl. 14).
8.12.2012 | 13:48
MAGNUS CARLSEN

Judit Polgar (2705) var lítil hindrun fyrir Magnus Carlsen (2848) í sjöttu umferđ London Chess Classis sem fram fór í gćr. Magnus heldur ţví áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni. Hann hefur nú 16 stig (5,5 vinning) og er langefstur. Sem fyrr hćkkar hann á tifandi stigalistanum og hefur nú ţar 2864 skákstig og ţegar ljóst ađ á áramótalistanum verđi hann stigahćsti skákmađur allra tíma, ţótt hann myndi báđum skákunum sem etftir eru.
Aronian (2815) og Kramnik (2795) gerđu jafntefli. Adams (2710) vann Anand (2775) sem tapar yfirleitt ekki mörgum skákum og McShane (2713) lagđi Jones (2644).
Í sjöundu, sem fram fer í dag og hefst nú kl. 14 mćtast međal annars Nakamura-Carlsen. Vinnur Carlsen enn? Verđur hér á ferđinni einn besti árangur sögunnar?
Níu skákmenn taka ţátt í mótinu og ţví situr alltaf einn yfir. Viđkomandi sér um skákskýringar í ţeirri umferđ. Veitt eru 3 stig fyrir sigur og 1 fyrir jafntefli.Birkir Karl Sigurđsson (1725) teflir í FIDE-Open, sem fram fer samhliđa. Eftir 7 umferđir hefur Birkir Karl 2,5 vinning en hann hefur hins vegar teflt upp fyrir sig allt mótiđ. Hann hefur hins vegar ekki sigrađi skák en hefur 2 umferđir til ađ breyta ţví!
Úrslit 6. umferđar:
Magnus Carlsen | 1-0 | Judit Polgar |
Vishy Anand | 0-1 | Michael Adams |
Luke McShane | 1-0 | Gawain Jones |
Levon Aronian | ˝-˝ | Vladimir Kramnik |
Stađan:
- 1. Carlsen (2848) 16/6
- 2. Kramnik (2795) 12/6
- 3. Adams (2710) 10/5
- 4. Nakamura (2760) 8/5
- 5. Anand (2775) 6/5
- 6. Aronian (2815) 5/5
- 7. McShane (2713) 4/5
- 8. Jones (2644) 2/6
- 9. Polgar (2705) 1/5
8.12.2012 | 13:23
Fjölmenn Fjölnisćfing eftir flottan árangur á jólaskákmóti SFS og TR
Eftir frábćra frammistöđu Grafarvogskrakka á jólaskákmóti SFS og TR um síđustu helgi, ţar sem sveitir Rimaskóla og Kelduskóla urđur í 4 af 5 efstu sćtum mótsins, ţá var ţađ viđbúiđ ađ fjölmennt yrđi á nćstu ćfingu skákdeildarinnar. Sú varđ raunin ţví ađ tćplega 40 krakkar mćttu á aldrinum 7 - 15 ára.
Skipt var upp í ţrjá hópa. Tverir hópar fóru í kennslu en fjölmennasti flokkurinn tók ţátt í 5 skáka móti. Ţađ voru ţau Sigríđur Björg, Oliver Aron og Jón Trausti sem sáu um kennsluna og gekk hún mjög vel.
Rúmlega 20 krakkar tóku ţátt í skákmótinu sem Rimaskólakrakkarnir Kristófer Jóel og Nansý unnu međ 4,5 vinninga. Auk ţeirra lentu í verđlaunasćtum ţeir Kristófer Halldór, Jóhann Arnar, Joshua, Mikolaj og Kacper frá Rimaskóla, Hilmir úr Kelduskóla og Ţorsteinn úr Sćmundarskóla, allir međ góđa ćfingasókn hjá skákdeildinni.
Nettó, Ásbjörn ehf og Nói - Síríus sáu um ađ gefa veitingar og verđlaun á ćfinguna. Í lokin voru tveir áhugaverđir happadrćttiasvinningar dregnir út úr potti allra ţátttakenda, 16" pítsur frá Pizzunni Hverafold.
Síđasta ćfing skákdeildar Fjölnis á ţessu ári verđur nćsta laugardag, 15. des. í Rimaskóla kl. 11:00. Ţar međ lýkur árangursríku starfsári deildarinnar hvađ varđar fjölda ţátttakenda og glćsilegra sigra.
8.12.2012 | 11:10
Elsa María sigrađi á hrađkvöldi hjá Helli
Hrađkvöldi Hellis sem fram fór 3. desember sl var jafnt og spennandi eins og ţađ nćsta á undan. Í ţetta sinn voru ţađ Elsa María Kristínardóttir og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir sem voru í ađalhlutverkum. Ţćr enduđu efstar og jafnar međ 6v og ţurfti stigaútreikning til ađ skera úr um sigurvegarann og ţar hafđi Elsa María betur ţegar hún tryggđi sér sigurinn í öđrum útreikningi. Ţćr voru einnig jafnar og efstar fyrir síđustu umferđ en ţá var Jóhanna efst á stigum ţannig ađ ţćr höfđu sćtaskipti á stigum í lokaumferđinni. Ţriđji varđ svo Örn Leó Jóhannsson međ 5v. Elsa María vandađi svo í úrdrćttinum og dró Jón Úlfljótsson.
Skákkvöld í Hellisheimilinu eru ţá komin í smá jólafrí en nćst verđur bikarmót Hellis föstudaginn 28. desember og á nýju ári verđur atkvöld mánudaginn 7. janúar og síđan hrađkvöld á hverjum mánudegi fram ađ Reykjavíkurskákmótinu.
Lokastađan á hrađkvöldinu:
Röđ Nafn Vinningar M-Buch. Buch. Progr. 1-2 Elsa María Kristínardóttir, 6 19.5 28.0 24.0 Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, 6 19.5 25.5 26.0 3 Örn Leó Jóhannsson, 5 19.0 27.5 17.0 4-5 Kristófer Ómarsson, 4 21.0 29.0 18.0 Jón Úlfljótsson, 4 19.0 27.0 16.5 6 Vigfús Ó. Vigfússon, 3.5 19.0 25.0 14.0 7-9 Finnur Kr. Finnsson, 3 16.5 22.5 11.0 Gunnar Nikulásson, 3 15.5 21.5 10.0 Kristján Halldórsson, 3 14.5 19.5 11.0 10 Hermann Ragnarsson, 2.5 19.0 25.0 11.5 11 Björgvin Kristbergsson, 2 16.5 20.5 9.0 12 Pétur Jóhannesson, 0 15.0 23.0 0.0
8.12.2012 | 11:08
Forgjafarmót á morgun sunnudag hjá SA
Enn brydda Skákfélagsmenn upp á nýjungum og vona ađ í hjarta sínu ađ ţađ veki áhuga ţeirra sem hafa gaman af manntafli.
Nú á sunnudag verđur efnt til forgjafarmóts međ ţeim hćtti ađ forgjöfin gefst á klukkunni (áhald sem var samviskusamlega kynnt hér fyrir nokkrum fćrslum).
Ađferđin er ţessi:
Samanlagđur umhugsunartími er 14 mínútur, sem ţýđir ađ báđir hafa 7 mínútur ef ţeir eru jafnsettir, en eftir ţví sem stigamunur eykst er umhugsunartímanum breytt ţeim í hag sem er stigalćgri. Svona verđur ţetta gert:
Stigamunur Tímaskipting í mínútum
0-150 7-7
151-300 8-6
301-450 9-5
451-600 10-4
601 og meiri munur 11-3
Stuđst verđur viđ íslenski skákstig og reiknast stigalausir međ 1500 stig, ef ţeir mćta. Menn eru beđnir um ađ brýna kuta sína hóflega og mćta tímanlega. Helst er búist viđ ađ 7 umferđir verđi tefldar, ef ţćr verđa fleiri ná ţćr í mesta lagi 9. Í ţađ minnsta vonumst viđ eftir ađ fá sem flesta og nú fá hinir stigalćgri einstćtt tćkifćri til ađ klekkja á hinum skelfilegu stigamönnum í röđum félagsins.
Mótiđ hefst kl. 13 á sunnudag og ađgangseyrir er ađ venju kr. 500.
7.12.2012 | 17:57
Gallerý Skák: Teflt í anda Larsen
Friđsöm átaka taflmennska einkenndi Minningarskákvöldiđ um hinn gođsagnakennda skákmeistara og Íslandsvin BENT LARSEN, sem fram fór í Gallerý Skák í gćrkvöldi međ nokkrum hátíđarblć. Hins fallna meistara var minnst í upphafi mótsins, höfđ stutt ţögn, kveikt á kertum í minningu hans og gömul skákklukka sem hann notađi gegn Boris Spassky í heimahúsi á sinni tíđ látin ganga út.
Larsen sem heimsótti Ísland oftar en tölu verđur komiđ á lagđi drjúgan skerf til íslensks skáklífs og menningar. Honum var veitt Fálkaorđan í ţakkar- og virđingarskyni af forseta Íslands áriđ 2003. Viđureignir hans viđ okkar mann Friđrik Ólafsson besta áhugaskákmann heims ađ mati Larsens" eru eldri skákmönnum mjög minnisstćđar enda ófáir hildarleikirnir sem ţeir háđu međ sér. Einvígi ţeirra um Norđurlandameistaratitilinn í skák í Sjómannaskólanum 1956 vakti ţjóđarathygli og ć síđar ţegar ţeir áttust viđ hér heima og erlendis eđa í sjónvarpi stóđ ţjóđin jafnan á öndinni af spenningi og metnađi.
Bent Larsen var einn albesti skákmeistari heims á 7. og 8. áratug liđinnar aldar, vann hvert millisvćđamótiđ á fćtur öđru. Hann var mikil hugsuđur, skemmtilaga orđhagur og afar hress í tilsvörum. Ţegar hann var spurđur ađ ţví á Hótel Borg í miđju heimsmeistaraeinvígi Fischers og Spasskys 1972 af Gunnari Finnsyni, ţá blađamanni Vísis, "Hver vćri sterkasti skákmađur heimsins í dag"? stóđ ekki á svarinu, hann benti međ ţumalfingri á brjóst sér og sagđi Ađ sjálfsögđu ég" Hann hafđi ţó tapađ 6-0 fyrir Bobby Fischer áriđ áđur sem frćgt varđ í Denver, en ţađ var bara hitasvćkjunni ađ kenna. Ţau eru ófá hin hnittnu tilsvör meistara Larsens ađdáendum hans, sem og öllum ţeim sem honum kynntust mjög eftirminnilegur mađur og stórmeistari.
Fjölbreyttur og fjölmennur keppendahópur var mćttur til heiđra meistarann. Óskađ var eftir ţví og ţung áhersla lögđ á ađ menn tefldu í anda hins mikla skákmanns og helst af ţeirri leiftrandi ljóslifandi snilld sem einkenndi skákstíl Larsens heitins. Ţrátt fyrir tilţrifamikla taflmennsku tókst ţađ ţví miđur ekki fyllilega enda vart viđ ađ búast. Ýmsir úr hópnum höfđu mćtt Larsen í fjöltefli og tveir haft árangur sem erfiđi, ţeir Gylfi Ţórhallsson, sem vann hann á Akureyri og Kristján Stefánsson, KR-ingur sem náđi jafntefli viđ hann í klukkufjölteflinu á loftinu Ísafold hjá Gunna Gunn 1989, ţví sama og ţegar Larsen náđi frćgu tveggja biskupamáti á M. Pétursson, sem lesendur Extrablađins tóku fyrir Margeir, en var Magnús V. Pétursson í Jóa Útherja. Reyndar útskýrđi Larsen ţađ óbeint í grein sinni ţví ţar segir ađ ef Pétursson hefđi leikiđ öđru en hann lék í 17. leik hefđi legiđ beint viđ ađ ţeir hefđu hlutverkaskipti í lífinu, hann gerđist milliríkjadómari í knattspyrnu en Magnús stórmeistari í skák. Gamansemi og skopskyn Larsens var oft á tíđum óborganlegt.
Norđanmađurinn geysigóđi Gylfi Ţórhallsson sýndi gamla Larsens takta í mótinu og var langefstur fyrir elleftu umferđ međ ađeins hálfan vinning niđur. Hann tapađi hins vegar óvćnt í síđustu umferđinni ćsilegri skák fyrir Guđfinni R. Kjartanssyni, en vann mótiđ engu ađ síđur glćsilega međ 9.5 vinningi. Annar skákmađur af norđlenskri rót, Stefán Bergsson, skákćskulýđsleiđtogi, varđ í öđru sćti međ 8.5 v. Hinn ótrúlega erni Gunnar Kr. Gunnarson (79) varđ ţriđji međ 8v og Ingimar Jónsson, af Akureyskri rót líka, jafn honum ađ vinningum í fjórđa sćti. Ţví má segja ađ norđlenskir skákjaxlar hafi komiđ, séđ og sigrađ í ţessu minningarmóti um hinn magnađa meistara, sem er fagnađarefni ţeim sem ţađan eru ćttađir.
Ţrátt fyrir metnađarfulla taflmennsku vildu glćstir vinningar stundum ganga gegnum mönnum slysalega úr greipum. Ţví segir međf. mótstafla segir ekki alla söguna af mikilfenglegum vopnaviđskiptum heldur einungis tćknilegum leikslokum.
Ţeir fórnfúsustu" verđa stundum ađ sýna raunverulega fórnfýsi međ ţví axla sćti fyrir neđan miđju í mótum eđa jafnvel ţá virđingarstöđu ađ verma neđsta sćtiđ af ţegnskap öđrum til yndisauka.
Myndaalbúm (ESE)
ESE - Skákţankar 7.12.2012
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 18:01 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (1)
7.12.2012 | 14:06
Teflt yfir sundin blá
Mćttar til leiks voru fjórar ţriggja manna sveitir ásamt varamönnum. Tefld var tvöföld umferđ, međ sjö mínútna umhugsunartíma. Í fyrsta sinn í sögu mótsins, sem haldiđ hefur veriđ međ hléum frá áttunda áratug síđustu aldar, náđi sveit Vinjar ađ sigra. Sigurinn hjá VIN var öruggur í ár, eđa 17 vinningar af 18 mögulegum.
Deild 32-c hafnađi í öđru sćti međ Gunnar Freyr Rúnarsson í broddi fylkingar, og bronsiđ tók Deild 15, ţar sem Jónas Jónasson leiddi sveitina.
Sigurliđiđ var skipađ eftirtöldum, Róbert Lagerman, Rafn Jónsson og Hjálmar H. Sigurvaldason. Nýr og efnilegur skákstjóri var Jóhann Ţorvarđarson, knattspyrnuhetja međ Víking og íslenska landsliđinu hér á árum áđur, sýndi hann flotta takta viđ skákstjórn. Mótstjóri var Róbert Lagerman. Bókaforlagiđ Sögur og Skákakademía Reykjarvíkur gáfu myndarlega vinninga viđ mótslok.
7.12.2012 | 11:08
Friđriksmót Landsbankans - 80 sćti fylltust á ađeins 14 tímum
80 sćti á Friđriksmóti Landsbankans voru ekki lengi ađ klárast en ţau fóru á ađeins 14 klukkustundum. Hćgt er ţó ađ skrá sig á biđlista á mótiđ hér á Skák.is.
Međal skráđra keppenda má nefna stórmeistarana Jóhann Hjartarson (2592), Helga Ólafsson (2547), Hannes Hlífar Stefánsson (2512), Jón L. Árnason (2498) og Helga Áss Grétarsson (2464) og alţjóđlega meistarann Hjörvar Stein Grétarsson (2516).
Nánar má lesa um mótiđ hér.
Skráđir keppendur, sem sjá fram forfallast, eru hvattir til ađ láta vita međ tölvupósti í netfangiđ gunnar@skaksamband.is til ađ ađrir komast ađ.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 12:07 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
7.12.2012 | 11:00
Bréfskák: Jafntefli viđ Englendinga
Ísland gerđi jafntefli viđ Englendinga í landskeppni í bréfskák sem lauk nýlega. Lokaúrslitin urđu 15-15.
Lengi vel leit út fyrir sigur Íslands, en Englendingar eru harđir í horn ađ taka í bréfskákinni. Ţeir náđu góđum lokaspretti, minnkuđu smám saman muninn og jöfnuđu leikinn svo međ sigri í lokaskák keppninnar.
Jón Árni Halldórsson (SIM, 2475), sem er okkar stigahćsti skákmađur um ţessar mundir, leiddi liđiđ á fyrsta borđi og fékk 1˝ vinning af tveimur gegn John D. Rhodes (2446).
Ţeir Árni H. Kristjánsson, Ţorsteinn Ţorsteinsson, Haraldur Haraldsson, Snorri Hergill Kristjánsson og Dađi Örn Jónsson sigruđu einnig í sínum viđureignum, en sá síđastnefndi bćttist nýlega í vaxandi hóp íslenskra bréfskákmanna og tefldi ţarna sínar fyrstu bréfskákir á ICCF.
Teflt var á fimmtán borđum og hver skákmađur tefldi tvćr skákir viđandstćđing sinn, međ hvítu og svörtu. Skákirnar voru tefldar á ICCF-bréfskákţjóninum, en ICCF er alţjóđasamband bréfskákmanna, og gegnirsvipuđu hlutverki í bréfskák og FIDE í kappskák. Mikil gróska er í bréfskákinni hér á landi. Nú standa yfir landskeppnir viđ Dani og Hollendinga og eru Íslendingar yfir í báđum ţessum viđureignum. Sjá nánar á: http://www.simnet.is/chess/
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.8.): 14
- Sl. sólarhring: 33
- Sl. viku: 142
- Frá upphafi: 8779692
Annađ
- Innlit í dag: 11
- Innlit sl. viku: 115
- Gestir í dag: 10
- IP-tölur í dag: 10
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar