Færsluflokkur: Spil og leikir
8.6.2013 | 15:07
Lenka Íslandsmeistari kvenna
Lenka Ptácníková varð rétt í þessu Íslandsmeistari kvenna eftir að hafa unnið Jón Þór Bergþórsson í tíundu og síðustu umferð Opna Íslandsmótsins í skák. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir og Elsa María Kristínardóttir eru í skipta öðru sæti og Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir, sem situr enn að tafli gegn Dawid Kolka, gæti bæst við í þann hóp vinni hún skákina.
Rafmagnað loft er í Turninum fyrir einvígi Hannesar og Björns um Íslandsmeistaratitilinn sem hefst kl. 18 í kvöld.
Fyrirkomulag úrslitakeppninnar er sem hér segir:
Tefldar verði tvær atskákir (25+10). Verði keppendur enn jafnir þá styttist tíminn (10+10) og svo enn í (5+3). Verði enn jafnt verður tefld Armageddon-skák, hrein úrslitaskák (hvítur með 5 mínútur og svartur með 4 mínútur - ein sekúnda bætist við á leik hjá báðum eftir 60 leiki).
Það urðu miklar sviptingar í lokaumferð Íslandsmótsins í skák í dag. Hannes Hlífar Stefánsson, sem hafði vinningsforskot fyrir hana, tapaði fyrir Héðni Steingrímssyni eftir að hafa leikið af sér manni. Á nánast sama augnabliki vann Björn Þorfinnsson Braga bróður sinn.
Hannes og Björn urðu efstir og jafnir með 8 vinninga og munu há einvígi með atskákfyrirkomulagi sem hefst kl. 18 í kvöld í Turninum Borgartúni. Áhorfendur velkomnir.
Þess fyrir utan náði Björn sínum fyrsta stórmeistaraáfanga með sigrinum í dag!
Fyrirkomulag úrslitakeppninnar er sem hér segir:
Tefldar verði tvær atskákir (25+10). Verði keppendur enn jafnir þá styttist tíminn (10+10) og svo enn í (5+3). Verði enn jafnt verður tefld Armageddon-skák, hrein úrslitaskák (hvítur með 5 mínútur og svartur með 4 mínútur - ein sekúnda bætist við á leik hjá báðum eftir 60 leiki).
8.6.2013 | 11:39
Skákir níundu umferðar
Þórir Benediktsson hefur slegið inn skákir níundu og næstsíðustu umferðar Opna Íslandsmótsins í skák. Þær fylgja með sem viðhengi.
Skákir mótsins er einnig hægt að nálgast á vefsíðu mótsins.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 11:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2013 | 09:00
Lokaumferð Íslandsmótsins hefst kl. 11

Tíunda og síðasta umferð Íslandsmótsins í skák hefst í dag kl. 11. Fjórar viðureignir ráða mestu um lokaúrslit mótsins. Á fyrsta borði mætast stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson og Héðinn Steingrímsson. Hannesi dugar jafntefli til að tryggja sér sinn tólfta Íslandsmeistaratitil. Á öðru borði mætast svo bræðurnir Björn og Bragi Þorfinnnsynir. Sigurvegari þeirrar skákar eigir von um einvígi við Hannes - það er ef hann tapar fyrir Héðni.
Á Íslandsmóti kvenna eru það svo tvær viðureignir sem skipta meginmáli en þar eru Lenka Ptácníková og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir með vinningsforskot á næstu skákkonur. Lenka mætir Jóni Þór Bergþórssyni en Jóhanna teflir við Sigurð Pál Steindórsson.
Áhorfendur eru velkomnir á skákstað en þar eru afar góðar aðstæður fyrir keppendur og áhorfendur. Teflt er á efstu hæðinni (20. hæð) í Turninum Borgartúni (Höfðatorg).
Tíu skákir eru sýndar beint frá hverri umferð. Eftirtaldar skákir eru sýndar beint í dag:- SM Hannes Hlífar Stefánsson (8) - SM Héðinn Steingrímsson (6½)
- AM Björn Þorfinnsson (7) - AM Bragi Þorfinnsson (7)
- AM Hjörvar Grétarsson (6½) - FM Sigurbjörn Björnsson (6½)
- SM Henrik Danielsen (6) - SM Stefán Kristjánsson (6½)
- Gylfi Þórhallsson (6) - FM Guðmundur Gíslason (6)
- Nökkvi Sverrisson (6) - AM Stefán Guðmundur Kjartansson (5½)
- KSM Lenka Ptácníková (5½) - Jón Þór Bergþórsson (5½)
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (5½) - Sigurður Páll Steindórsson (5½)
- Kristján Eðvarðsson (5½) - Mikael Jóhann Karlsson (5½)
- FM Þorsteinn Þorsteinsson (5) - Sverrir Sigurðsson (5)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 01:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.6.2013 | 00:49
Ef Íslandsmótið væri aðeins níu umferðir?
Níunda og síðasta umferð Íslandsmótsins í skák fór fram í gær. Hér má sjá hina daglegu úttekt á mótinu. Hannes Hlífar Stefánsson þarf aðeins hálfan vinning til að tryggja sér sinn tólfta Íslandsmeistaratitli og eins og staðan er í dag myndu Lenka Ptácníková og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir tefla úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitil kvenna.
- 1. SM Hannes Hlífar Stefánsson (2507) 8 v.
- 2.-3. AM Björn Þorfinnsson (2377) og AM Bragi Þorfinnsson (2478) 7 v.
- 4.-7. SM Stefán Kristjánsson (2494), AM Hjörvar Steinn Grétarsson (2516), SM Héðinn Steingrímsson (2558) og FM Sigurbjörn Björnsson (2397) 6½ v.
Sjá nánar stöðuna á Chess-Results.
Ef þetta yrði niðurstaðan hefði Hannes tryggt sér sinn tólfta Íslandsmeistaratitil og tæki 2.000 evrur eða um 320.000 kr. í verðlaun fyrir að vera einn efstur.
Björn og Bragi myndu skipta á milli sín öðrum og þriðju verðlaunum sem nema samtals 1.500 evrum. Björn fengi 875 evrur en Bragi 625 evrur.
Stefán, Hjörvar, Héðinn og Sigurbjörn myndu skipta á milli fjórðu og fimmtu verðlaunum samtals 500 evrum. Stefán fengi 212 evrur, Hjörvar 162 evrur en Héðinn og Sigurbjörn 62 evrur hvor.
Íslandsmót kvenna
- 1.-2. KSM Lenka Ptácníková (2255) og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1890) 5½ v.
- 3.-4. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (1985) og Elsa María Kristínardóttir (1785) 4½ v.
- 5. Hrund Hauksdóttir (1680) 4 v.

Aukaverðlaun
Og þá er það samantekt á aukaverðlaununum. Þau eru veitt í tveimur flokkum fyrir bestan árangur í samanburði við eigin skákstig. Fyrir skákmenn með meira en 2000 skákstig og fyrir skákmenn með minna en 2000 skákstig. Ein verðlaun eru í hvorum flokki upp á 500 evrur. Reiknað er út frá alþjóðlegum skákstigum en innlendum stigum ef menn hafa ekki alþjóðleg skákstig.
Hannes Hlífar Stefánsson leiðir sem fyrr í flokki þeirri stigahærri en Felix Steinþórsson hefur tekið forystunna í flokki hinna stigalægri.
Staða efstu manna:
Yfir 2000 skákstigum
- Hannes Hlífar Stefánsson 155 (2662-2507)
- Oliver Aron Jóhannesson 128 (2134-2006)
- Björn Þorfinnsson 96 (2473-2377)
- Mikael Jóhann Karlsson 57 (2079-2022)
- Michael Grove 5 (2026-2021)
Undir 2000 skákstigum
- Felix Steinþórsson 293 (1736-1443)
- Hilmir Freyr Heimisson 286 (1962-1676)
- Loftur Baldvinsson 269 (1975-1706)
- Vignir Vatnar Stefánsson 246 (1924-1678)
- Þór Hjaltalín 221 (1594-1373)
Upplýsingar um verðlaun má finna hér.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 00:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2013 | 22:32
Hannes með vinningsforskot á bræðurna - Lenka og Jóhanna efstar
Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson gerði jafntefli við alþjóðlega meistarann Hjörvar Stein Grétarsson í níundu og næstsíðustu umferð Íslandsmótsins í skák sem fram fór í kvöld. Hannes hefur vinningsforskot á bræðurna Björn og Braga Þorfinnssyni fyrir lokaumferðina sem fram fer á morgun og dugar jafntefli til að tryggja sér sinn tólfta Íslandsmeistaratitiil.
Björn gerði jafntefli við Héðin í kvöld eftir að hafa lent í erfiðleikum eftir glannalega taflmennsku en Bragi vann Guðmund Kjartansson.
Hannes mætir Héðni Steingrímssyni í fyrramálið en lokaumferðin hefst mun fyrr en venjulega eða 11. Bræðurnir mætast svo í hinni toppviðureign dagsins þar sem sigurvegarinn gæti hugsanlega náð einvígi um Íslandsmeistaratitilinn við Hannes.
Á Íslandsmóti kvenna sem er hluti af Íslandsmótinu er einnig mikil spenna. Þar eru þær Lenka Ptácníková, sem vann Hallgerði Helgu Þorsteinsdóttur, og Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, sem lagði alþjóðlega meistarann Sævar Bjarnason að velli efstar með 5,5 vinning. Í lokaumferðinni teflir Lenka við Jón Þór Bergþórsson en Jóhanna við Sigurð Pál Steindórsson.
Sem fyrr var nokkuð um óvænt úrslit. Ungu ljónin Hilmir Freyr Heimisson og Vignir Vatnar Stefánsson gerðu báðir jafntefli við mun stigahærri andstæðinga. Baldur Teodór Petersson vann landsliðskonuna Tinnu Kristínu Finnbogadóttur og Felix Steinþórsson sigraði Atla Jóhann Leósson en þar er stigamunurinn um 300 skákstig.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 23:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2013 | 16:00
Níunda og næstsíðasta umferð Íslandsmótsins hefst kl. 17

Níunda og næstsíðasta umferð Íslandsmótsins í skák hefst nú kl. 17. Margar spennandi viðureignir fara fram í dag. Á efsta borði teflir forystumaðurinn Hannes Hlífar Stefánsson við Hjörvar Stein Grétarsson og á öðru borði tefla Héðinn Steingrímsson og Björn Þorfinnsson. Á þriðja borði er það svo barátta alþjóðlegu meistaranna Braga Þorfinnssonar og Guðmundar Kjartanssonar.
Áhorfendur eru velkomnir á skákstað en þar eru afar góðar aðstæður fyrir keppendur og áhorfendur. Teflt er á efstu hæðinni (20. hæð) í Turninum Borgartúni (Höfðatorg).Tíu skákir eru sýndar beint frá hverri umferð. Eftirtaldar skákir eru sýndar beint í dag:
- SM Hannes Hlífar Stefánsson (7½) - AM Hjörvar Steinn Grétarsson (6)
- SM Héðinn Steingrímsson (6) - AM Björn Þorfinnsson (6½)
- AM Guðmundur Kjartansson (5½) - AM Bragi Þorfinnsson (6)
- Sigurður Páll Steindórsson (5½) - SM Stefán Kristjánsson (5½)
- Mikael Jóhann Karlsson (5½) - FM Sigurbjörn Björnsson (5½)
- Oliver Aron Jóhannesson (5) SM Henrik Danielsen (5)
- FM Guðmundur Gíslason (5) - Björgvin S. Guðmundsson (5)
- Stefán Bergsson (5) - Nökkvi Sverrisson (5)
- Sverrir Sigurðsson (5) - Gylfi Þórhallsson (5)
- Michael Grove (4½) - FM Þorsteinn Þorsteinsson (4½)
- Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (4½) - Lenka Ptácníkova (4½)
- Elsa María Kristínardóttir (4½) - Kristján Eðvarðsson (2220)
- AM Sævar Bjarnason (2130) - Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (4½)
- Jón Trausti Harðarson (1907) - Hrund Hauksdóttir (4)
- Baldur Teódór Petersson (1579) - Tinna Kristín Finnbogadóttir (3½)
- Gauti Páll Jónsson (1546) - Sigríður Björg Helgadóttir (3½)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 16:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2013 | 13:00
Ef Íslandsmótið væri aðeins átta umferðir?
Hin daglega úttekt á Íslandsmótinu heldur áfram í dag en nú eru aðeins tvær umferðir eftir á mótinu. Ef þetta væri lokastaðan þá væri Hannes Íslandsmeistari í tólfta sinn. Á Íslandsmóti kvenna þyrfti úrslitakeppni um titilinn. Hannes myndi auk þess taka aukaverðlaunin fyrir bestan árangur í samanburði við eigin skákstig ásamt Lofti Baldvinssyni.
- 1. SM Hannes Hlífar Stefánsson (2507) 7½ v.
- 2. AM Björn Þorfinnsson (2377) 6½ v.
- 3.-5. AM Hjörvar Steinn Grétarsson (2516), SM Héðinn Steingrímsson (2558) og AM Bragi Þorfinnsson 6 v.
- 6.-10. SM Stefán Kristjánsson (2494), FM Sigurbjörn Björnsson (2397), AM Guðmundur Kjartansson (2446), Sigurður Páll Steindórsson (2234) og Mikael Jóhann Karlsson (2022) 5½ v.
Sjá nánar stöðuna á Chess-Results.
Ef þetta yrði niðurstaðan hefði Hannes tryggt sér sinn tólfta Íslandsmeistaratitil og tæki 2.000 evrur eða um 320.000 kr. í verðlaun fyrir að vera einn efstur.
Björn væri annar og fengi fyrir það 1.000 evrur.
Hjörvar, Héðinn og Bragi myndi skipta á milli 3.-5. verðlaunum samtals 1.000 evrum. Af þeim fengi Hjörvar mest (417), Héðinn næstmest (317) en Bragi minnst (267).
Íslandsmót kvenna- 1.-4. KSM Lenka Ptácníková (2255), Jóhanna Björg Jóhannsdóttir (1890), Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (1985) og Elsa María Kristínardóttir (1785) 4½ v.
- 5. Hrund Hauksdóttir (1680) 4 v.
- 6.-7. Tinna Kristín Finnbogadóttir (1922) og Sigríður Björg Helgadóttir (1760) 3½ v.
Hér yrði að grípa reglna mótsins en þar segir að ef tvær eða fleiri verði efstar og jafnar eigi þær tvær sem séu efstar eftir stigaútreikning að keppa til úrslita. Semsagt Lenka og Jóhann myndu heyja aukakeppni.
Sigurvegari þeirrar keppni fengi 500 evrur í sérstök verðlaun fyrir Íslandsmeistarann en að öðru leyti myndu verðlaunin (1.000 evrur) skiptast á milli þeirra fjögurra sem hér segir: Lenka (375), Jóhanna (275), Hallgerður (225) og Elsa (125).
Aukaverðlaun
Og þá er það samantekt á aukaverðlaununum. Þau eru veitt í tveimur flokkum fyrir bestan árangur í samanburði við eigin skákstig. Fyrir skákmenn með meira en 2000 skákstig og fyrir skákmenn með minna en 2000 skákstig. Ein verðlaun eru í hvorum flokki upp á 500 evrur. Reiknað er út frá alþjóðlegum skákstigum en innlendum stigum ef menn hafa ekki alþjóðleg skákstig.
Hannes Hlífar Stefánsson og Loftur Baldvinsson leiða sem fyrr í sitthvorum flokknum.
Staða efstu manna:
Yfir 2000 skákstigum
- Hannes Hlífar Stefánsson 222 (2729-2507)
- Oliver Aron Jóhannesson 129 (2135-2006)
- Björn Þorfinnsson 89 (2466-2377)
- Mikael Jóhann Karlsson 69 (2091-2022)
Undir 2000 skákstigum
- Loftur Baldvinsson 299 (2005-1706)
- Hilmir Freyr Heimisson 264 (1940-1676)
- Felix Steinþórsson 248 (1691-1443)
- Bárður Örn Birkisson 235 (1586-1351)
- Þór Hjaltalín 230 (1603-1373)
Upplýsingar um verðlaun má finna hér.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2013 | 10:16
Skákir áttundu umferðar
Þórir Benediktsson hefur slegið inn skákir áttundu umferðar Opna Íslandsmótsins í skák. Þær fylgja með sem viðhengi.
Skákir mótsins er einnig hægt að nálgast á vefsíðu mótsins.
7.6.2013 | 10:13
Dagur með 4 vinninga eftir 6 umferðir
Alþjóðlegi meistarinn Dagur Arngrímsson (2396) tekur þessa dagana þátt í alþjóðlegu móti í Albena í Búlgaríu. Eftir 6 umferðir hefur Dagur hlotið 4 vinninga.
Upplýsingar um úrslit Dags hingað til má nálgast hér.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 12)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 11:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Ný vefsíða Skák.is!
- Loftur fær Héðin í fyrstu umferð
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bættust við á keppendalistann á l...
- Ný alþjóðleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - með vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Æsir - vertíðarlok
- Fundargerð aðalfundar SÍ
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferð Altibox Norway Chess
- Þrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimilið, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíða SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíða tileinkuð Friðriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíþróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallþráður skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef þú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alþjóðlega skáksambandið
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norræna skákfréttasíðan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 10
- Sl. sólarhring: 19
- Sl. viku: 98
- Frá upphafi: 8778265
Annað
- Innlit í dag: 9
- Innlit sl. viku: 75
- Gestir í dag: 9
- IP-tölur í dag: 9
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar