Leita í fréttum mbl.is

Fćrsluflokkur: Spil og leikir

Jón Ţorvaldsson fjallar um Landsmót UMFÍ og sigur Ţingeyinga ţar

Hluti sigursveitar Ţingeyinga á Landsmóti UMFÍJón Ţorvaldssonar, liđsstjóri sveitar HSŢ (Hérađssamband Ţingeyinga), fjallar um Landsmót UMFÍ á heimasíđu Gođans-Máta en ţađ voru liđsmenn ţeirra sem skipuđu sveit Ţingeyinga á Landsmóti UMFÍ um síđustu helgi. Í pistli hans segir međal annars:

Ţar segir hann međal annars:

Ţađ var eftirminnileg upplifun ađ taka ţátt í Landsmóti UMFÍ á Selfossi um helgina. Ţar skeiđuđum viđ fram á köflóttan völlinn nokkrir félagar úr Gođanum-Mátum fyrir hönd HSŢ og tókumst á viđ skemmtilegar og vel mannađar sveitir annarra ungmennafélaga. Ekki spillti ánćgjunni ađ viđ höfđum sigur í keppninni, hlutum 27 vinninga af 32 mögulegum og vorum 5,5 vinningum á undan liđinu í 2. sćti, UMSK, en „ungliđarnir" í Fjölni náđu 3. sćti. Sigur HSŢ var reyndar í sjónmáli eftir velgengni fyrri keppnisdaginn ţar sem tefldar voru 5 umferđir. Viđ létum svo kné fylgja kviđi síđari daginn ţegar stórmeistararnir Ţröstur Ţórhallsson og Helgi Áss Grétarsson komu til liđs viđ okkur síđustu 3 umferđirnar. 

Pistil Jóns má finna í heild sinni á heimsíđu Gođans Máta.


Hjörvar međ jafntefli í 2. umferđ

Hjörvar SteinnAlţjóđlegi meistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2511) gerđi í gćr jafntefli viđ enska alţjóđlega meistarann Lawrence Trent (2420) í 2. umferđ opna skoska meistaramótsins sem nú er í gangi í Helensburgh. Hjörvar hefur 1,5 vinning.

Í dag mćtir hann Skotanum Alan Borwell (2017) og verđur skákin sýnd beint á vefsíđu mótsins. Beina slóđ á skákina má finna hér. Umferđin hefst kl. 12.

Um ţađ bil 55 skákmenn taka ţátt í ađalmótinu. Ţar af eru 9 stórmeistarar og 8 alţjóđlegir meistarar. Hjörvar er nr. 5 í stigaröđ keppenda. 


Héđinn međ jafntefli í 3. umferđ

Héđinn leíkur 1. d2-24

Héđinn Steingrímsson (2557) gerđi jafntefli viđ serbneska alţjóđlega meistarann Slobodan Kovacevic (2332) í 4. umferđ alţjóđlega mótsins í Benasque á Spáni sem fram fór í gćr. Guđmundur Kjartansson (2444) tapađi hins vegar fyrir spćnska stórmeistaranum Viktor Moskalenko (2529). Báđir hafa 3 vinninga og eru í 33.-95. sćti.

Í fimmtu umferđ, sem fram fer í dag, teflir Héđinn viđ finnska stórmeistarann Heikki Westerinen (2283) en Guđmundur viđ tékknesku skákkonuna Teresa Olsarova (2203) sem er alţjóđlegur meistari kvenna.

Ţátt í mótinu taka 428 skákmenn frá 37 löndum. Ţar af eru 36 stórmeistarar og 25 alţjóđlegir meistarar. Héđinn er nr. 15 í stigaröđ keppenda en Guđmundur er nr. 44. Tíu skákir eru sýndar beint í hverri umferđ.


Karjakin efstur í Beijing

KarjakinRússneski stórmeistarinn Sergei Karjakin (2776) er efstur međ 3,5 vinning á FIDE Grand Prix-móti sem nú er í gangi í Beijing í Kína. Aserinn Mamedyarov (2761) er annar međ 3 vinninga. Grischuk (2780), Wang Yue (2705) og Topalov (2767) koma nćstir međ 2,5 vinning.

Frí er í dag en mótinu verđur framhaldiđ á morgun.


Íslandsmót skákmanna í golfi

Íslandsmót skákmanna í golfi 2013 verđur haldiđ á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirđi laugardaginn 10. ágúst n.k.  Keppt verđur í tvíkeppni ţar sem árangur í golfi og skák erlagđur saman. 

Golfmótiđ er innifaliđ í Epli.is mótinu og fáum viđ rástíma ţar milli kl 13 og 14.

Eftir ađ leik líkur verđur bođiđ upp á kvöldverđ í golfskálanum og ađ honum loknum verđur 9 umferđa hrađskákmót.

Skákdeild Breiđabliks sér um framkvćmd Íslandsmóts skákmanna í golfi.

Núverandi Íslandsmeistari er Helgi Ólafsson.

Upplýsingar um mótiđ í fyrra er hćgt ađ nálgast á: http://chess.is/golf/chessgolf2012.htm

Ţátttökutilkynningar berist til Halldór Grétars ( halldorgretar@isl.is ) fyrir 8.júlí til ađ fá öruggan rástíma. Eftir ţann tíma erum viđ í samkeppni viđ almenna keppendur!

7.júlí er 21 keppandi skráđur til leiks.
 
Sjá nánar vefsíđu mótsins.

Sigurđur stóđ sig vel í Bćjaralandi

Sigurđur EiríkssonSigurđur Eiríksson (1950) stóđ sig vel á skákmóti sem lauk í Bćjaralandi í Ţýskalandi í gćr. Sigurđur hlaut 5 vinninga í 9 skákum og endađi í 16.-21. sćti af 55 keppendum. Varđ efstur keppenda međ minna en 2000 skákstig. Jakob Sćvar Sigurđsson (1768) hlaut 4 vinninga og endađi í 32.-37. sćti.

Sigurvegari mótsins varđ rússneski stórmeistarinn Evgeny Vorobiov (2583)

Heimasíđa mótsins


Skákţáttur Morgunblađsins: Hemmi Gunn og skákin

2013 04 23 19.53.25Fáir greiddu götu listamanna betur en Hermann Gunnarsson. Ţađ var eins og rauđur ţráđur í starfi hans og kom sennilega best fram í ţáttunum „Á tali" ţar sem alltaf var opiđ fyrir nýja og ferska krafta. Viđ fráfall hans er vert minnast ţáttar Hemma viđ ađ auka hlut skákarinnar í sjónvarpi. Uppúr 1990 ţegar undirritađur var ađ bera fram hugmyndir um skák-útsendingar hjá RÚV hitti ég Hermann á göngum sjónvarpsins og hann bauđ strax fram ađstođ sína. Útsendingar frá úrslitum At-skákmóts Íslands fóru fram árum saman hjá RÚV og einnig á Stöđ 2, SÝN og Skjá 1. Međ hjálp kostunarađila voru síđar fengin í sjónvarpssal Garrí Kasparov, Anatolí Karpov, og Judit Polgar. Hermann náđi góđu sambandi viđ ţessa höfuđsnillinga skákarinnar og á „Reykjavik rapid 2004" komu fram Magnús Carlsen og Lev Aronjan. Oft var Jón L. Árnason stórmeistari međ í ţessum útsendingum og Hermann bar snemma fram ţá ósk ađ Egill Eđvarđsson yrđi stjórnandi útsendinga. Skáksamband Íslands heiđrađi Hermann sérstaklega fyrir framlag hans á ţessu sviđi.

Hermann var býsna slyngur skákmađur, tefldi stundum fyrir Skattstofuna í Skákkeppni stofnana, tók ţátt í fjölmörgum skákmótum međ styttri umhugsunartíma. Síđasta mót hans var hrađskákmót Vals sem fram fór í Lollastúku á Valsvellinum í apríl sl. Halldór í Henson vinur hans dró fram „Hrókinn", gamlan grip úr timbri sem fyrst var keppt um áriđ 1959. Á yngri árum var Hermann stundum međal áhorfenda á skákmótum í Breiđfirđingabúđ. Hann var alvörugefinn og íbygginn ţegar hann tefldi. Ef hann vann lék hann á als oddi - og ef hann tapađi ţá lék hann líka á als oddi.

Veturinn 1997 efndi greinarhöfundur til skáknámskeiđs fyrir vini og kunningja og Hemmi mćtti til leiks. Á námskeiđinu var mikil áhersla lögđ á gambíta: kóngsbragđ, miđbragđ og íslenska gambítinn. Eitt kvöldiđ var haldiđ „ţema-fjöltefli". Af skákinni sem viđ tefldum ađ dćma og birtist í ţćtti Jóns L. í DV, virđist ákveđin léttúđ hafa ríkt og taflmennskan stenst ekki nákvćma skođun. Hermann tók á móti fórnum í anda „rómantíska tímabilsins" međ bros á vör og vann ađ lokum:

Helgi Ólafsson - Hermann Gunnarsson

Kóngsbragđ

1. e4 e5 2. f4 exf4 3. Rf3 g5 4. Bc4 d6 5. 0-0 Bg7 6. d4 Bg4 7. g3 Bh3 8. Bxf7+ Kxf7 9. Rxg5+ Dxg5 10. Hxf4+ Rf6 11. Rc3 Kg6!? 12. Hf5 Dxf5 13. exf5+ Bxf5 14. Re2 Rbd7 15. Rf4+ Kf7 16. c3 Hae8 17. Db3+ Kf8 18. Bd2 Re4 19. Hf1!? Rxd2 20. Re6+ Ke7

Hvítur er búinn ađ fara alltof geyst og 20. ... Kg8 vinnur létt.

21. Dd1 Rxf1 22. Rxg7 Re3 23. Df3 Hef8 24. Dxe3+ Kf6 25. Dh6+ Bg6 26. d5 Re5 27. Re6 He8 28. Dg7+ Kf5 29. Dxc7 Bf7 30. Rg7+ Kg4 31. Dxd6 Rf3+ 32. Kf2 Re5 33. h3+ Kg5 34. Rxe8??

„Stílbrot," skrifar Jón L. Og ţađ eru orđ ađ sönnu. Eftir 34. h4+! Kg4 35. Kg2! hótar hvítur 36. Db4+ o.s.frv. og á unniđ tafl.

34. ... Hxe8 35. c4 Rd3+ 36. Kf3 Re5+ 37. Kg2 Bg6 38. b3 Rd3 39. Dd7 He5 40. Kf1??

Eftir ţennan afleik tapast skákin. „Nú verđa óvćnt endalok," skrifar Jón L.

gr0qunrt.jpg40. ... He1+ 41. Kg2 Be4+ 42. Kh2 Hh1 mát!

Eftir námskeiđiđ fengu ţátttakendur skákirnar úr fjölteflinu í hendur međ skýringum. Á góđri stundu nokkru síđar kom Hermann međ plaggiđ til mín útprentađ, rétti fram penna og sagđi: „Skrifađu: Algjör klassi hjá nemanda."


Helgi Ólafsson helol@simnet.is

----------------------------------------------

Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.  

Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 30. júní 2013.

Skákţćttir Morgunblađsins


Rúnar sigrađi á afmćlismóti Áskels Arnar

Áskell Örn KárasonAfmćlisfögnuđur Áskels Arnar Kárasonar á Litlu-Laugum ţann 5. júlí hófst međ skákmóti eins og vera ber. 14 keppendur skráđu sig til leiks og voru tefldar 7 umferđir eftir svissnesku kerfi. Skákstjóri var Hermann Ađalsteinsson, sem fékk frí frá kvöldmjöltum í ţetta sinn. 

Úrslit urđu sem hér segir:

  1. Rúnar Sigurpálsson                   7
  2. Áskell Örn Kárason                  4,5
  3. Smári Ólafsson                       4,5
  4. Jón Kristinn Ţorgeirsson           4,5
  5. Kári Arnór Kárason                   4
  6. Rúnar Ísleifsson                        4
  7. Símon Ţórhallsson                    4
  8. Karl E. Steingrímsson               4
  9. Haki Jóhannesson                     3,5
  10. Hermann Ađalsteinsson            3
  11. Grétar Eyţórsson                     3
  12. Ţorgeir Smári Jónsson              2
  13. Sigurđur A. Ţórarinsson            1
  14. Örvar Sigurđsson                      0

Ađ móti loknu var sungiđ og dansađ.

Heimasíđa SA

 


Opna skoska: Hjörvar vann í fyrstu umferđ

Hjörvar SteinnAlţjóđlegi meistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2511) vann skoska skákmanninn Clement Sreeves (2251) í fyrstu umferđ opna skoska meistaramótsins sem hófst í Helensburgh í gćr. Í gćr mćtir hann enska alţjóđlega meistaranum Lawrance Trent (2420). Skák Hjörvars verđur sýnd beint á vefsíđu mótsins en skákin hefst kl. 12.

Um ţađ bil 75 skákmenn taka ţátt í ađalmótinu. Ţar af eru 9 stórmeistarar og 8 alţjóđlegir meistarar. Hjörvar er nr. 5 stigaröđ keppenda. 


Guđmundur og Héđinn unnu í 3. umferđ

Héđinn leíkur 1. d2-24Guđmundur Kjartansson (2444) og Héđinn Steingrímsson (2557) unnu báđir í 3. umferđ alţjóđlega mótsins í Benasque á Spáni sem fram fór í gćr. Andstćđingar ţeirra voru á stigabilinu (2100-2176).  Guđmundur hefur fullt hús en Héđinn hefur 2,5 vinning.

Í fjórđu umferđ, sem fram fer í dag, teflir Guđmundur viđ spćnska stórmeistarann Viktor Moskalenko (2529) en Héđinn viđ serbneska alţjóđlega meistarann Slobodan Kovacevic (2332).

Ţátt taka 428 skákmenn frá 37 löndum. Ţar af eru 36 stórmeistarar og 25 alţjóđlegir meistarar. Héđinn er nr. 15 í stigaröđ keppenda en Guđmundur er nr. 44. Tíu skákir eru sýndar beint í hverri umferđ.

« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíđurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sćki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 22
  • Sl. sólarhring: 22
  • Sl. viku: 129
  • Frá upphafi: 8778231

Annađ

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 88
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 17

Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband