Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Spil og leikir

Grischuk og Mamedyarov efstir í Beijing

GrischukRússinn Grischuk (2780) og Aserinn Mamedyarov (2761) eru efstir og jafnir með 5,5 vinning að loknum átta umferðum á FIDE Grand Prix-mótinu sem nú er í gangi í Beijing í Kína. Taflmennskan hefur verið hraustleg og skemmtileg. Ungverjinn Peter Leko (2737), sem er í 3.-4. sæti með 4,5 vinning ásamt Topalov (2767), á þó lítinn heiður af því.

Karjakin sem byrjaði á því vinna þrjár fyrstu skákirnar og gera jafntefli í tveimur næstum hefur nú tapað þremur skákum í röð. Gelfand (2773) sem vann afar óvæntan sigur á Tal Memorial er næstneðstur á mótinu. Skákmeistari Bandaríkjanna Gata Kamsky (2763) rekur svo lestina.

Frí er á morgun en mótinu verður framhaldið á sunnudag.

Guðmundur vann í áttundu umferð

Guðmundur KjartanssonGuðmundur Kjartansson (2444) vann sína aðra skák í röð er hann lagði Spánverja (2239) í áttundu umferð alþjóðlega mótsins í Benasque á Spáni sem fram fór í gær. Héðinn Steingrímsson (2544) gerði jafntefli við spænska FIDE-meistarann Enrique Fernandez (2384).

Guðmundur hefur 6 vinninga og er í 9.-31. sæti en Héðinn hefur 5,5 vinning og er í 32.-67. sæti. Stórmeistarinn Eduardo Iturriizaga (2642) frá Venúsela er efstur með 7,5 vinning. 

Í níundu og næstsíðustu umferð, sem fram fer í dag, teflir Guðmundur við spænska stórmeistarann Julen Luis Arizmendi Martinez (2580) en Héðinn við spænska alþjóðlega meistarann Rufino Giminez (2359).

Þátt í mótinu taka 428 skákmenn frá 37 löndum. Þar af eru 36 stórmeistarar og 25 alþjóðlegir meistarar. Héðinn er nr. 15 í stigaröð keppenda en Guðmundur er nr. 44. Tíu skákir eru sýndar beint í hverri umferð.


,,Sitt er hvort gæfa eða gjörvileikur"

103_9610
Sigurður Ingi Jóhannsson,  Sjávarútvegs- og landbúnaðar-ráðherra og Umhverfis- og auðlinda-ráðherra, flutti snjalla tölu við opnun á Fischer-setrinu á Selfossi. Ræða Sigurðar fer hér á eftir:
 
Þeir voru miklir menn Grettir sterki Ásmundarson og Bobby skákmeistari Fischer.

Þeir fæddust í sitt hvorri heimsálfunni og um þúsund ár skildu þá að í aldri. Í fljótu bragði er ekki að sjá að þeir hafi átt margt sameiginlegt – en þó.

103_9584
Í Grettissögu kemur fyrst fyrir - en síðar þekkt - alþekkt íslenskt spakmæli: „Sitt er hvort gæfa eða gjörvileikur“. Með nokkru sanni tel ég að heimfæra megi þessa speki upp á þá báða. Aflið skorti þá ekki, hvorn á sinn hátt - bardagamenn voru þeir þar sem annar beitti skarpri hugsun en hinn lét höndina ráða. Báðir voru þeir útlægir gerðir – báðir áttu sína Gláma að glíma við – og báðir áttu trausta vini.

103_9582
Mér er það sönn ánægja af fá að segja nokkur orð er Fischers setur er opnað hér á Selfossi; - setur eða staður til heiðurs og til minningar um þann skáksnilling sem við Íslendingar kynntumst fyrst að ráði eftir að hann gjörsigraði FIDE heimsmeistarann Boris Spasskíj í Laugardalshöllinni í Reykjavík, 1. september 1972. Einvígi þeirra er öllum sem það muna ógleymanlegt og hefur að sönnu verið nefnt „Einvígi aldarinnar“.

103_9580
Yfirburðir Fischers og saga hans í heimi skáklistarinnar heillaði fólkið, en það var ekki síður hin sérstaka framkoma hans sem vakti athygli. Okkur Íslendingum fannst við þá strax eignast hlutdeild í honum og vorum stolt af sigrinum. Þá spillti ekki er hann valdi velþekktan og glæsilegan rokksnilling sér til halds og trausts – eins konar lífvörð sem hann fól líf sitt og heilsu á meðan á einvíginu stóð. En þar komu fleiri að – hópur skákmanna og aðdáenda sem stóð með honum alla tíð – hverju svo sem á gekk og veitti ekki af – líf Fischers var nefnilega ekki eilífur dans á rósum.

103_9598
Í Brennu-Njálssögu er að finna máltækið; „Ber er hver að baki nema sér bróður eigi“ – og íslenski vinahópurinn stóð svo sannarlega að baki Fischers; fylgdist með afrekum hans og studdi hann í vanda – ef mér leyfist að orða það svo; héldu verndarhendi yfir honum. Ég leyfi mér að fullyrða að ef þessi hópur hefði ekki verið til staðar, værum við ekki hér í dag að heiðra minningu Bobby Fischers og því síður að opna sérstakt setur í hans nafni. Þrátt fyrri styrkleika sinn á sviði skáklistarinnar þarfnaðist hann vina. Síðustu orð Bobby Fischers munu hafa verið: „Ekkert linar þjáningar eins og mannleg snerting.“

103_9613
Orðsnillingurinn og Nóbelsskáldið okkar Halldór Laxnes segir svo um vináttuna í sinni frægu bók, Gerplu:

„Sannast mála er að eingi vinátta er betur fest en sú er tveir menn eru slíkir kappar að hvorugur þar til hins að leita í nokkru efni, uns annar er fallinn; mun þá hinn fara og hefna hans“.

Það er ekki mikill vandi að heimfæra þessi orð upp á hina tryggu vini Fischers á Íslandi.

103_9596
Sannarlega var Fischer fallinn – útlægur orðinn frá sínu heimalandi og við það að týnast og gleymast umheiminum þegar vinahópurinn vígvæddist íslensku ríkisborgarabréfi Fischer til handa og hélt til hans í útlegðinni.

Þetta björgunarafrek var ekki unnið í skjóli myrkurs – heimsbyggðin fylgdist með.

103_9623
Það merkilega var að þrátt fyrir að allur heimurinn – þar með taldar stórþjóðirnar, vissu af ógæfu Fischers, útlegð hans og einangrun hans létu þær sér fátt um finnast – hinn mikli snillingur var óalandi og óferjandi í margra augum fyrir það eitt að virða ekki bann við að tefla vegna refsiaðgerða stjórnmálamanna gegn ákveðnu landi. Það fannst okkar snillingi langt til seilst á taflborði stjórnmálanna og tefldi en missti við það öll sín réttindi – eigur gerðar upptækar og hann eftirlýstur af heimalandinu og í framhaldi þessa beið hans fangelsi í fjarlægu landi.

103_9643
Við Íslendingar, höfum sem aðrar þjóðir, átt okkar sérstæðu snillinga og má nefna einn til sögunnar; Sölva Helgason eða Sólon Íslandus. Á hans dögum var samtíðin ekki tilbúin að taka þeim manni sem skyldi; listamanni sem eflaust hefur verið veikur á geði og kaus fremur fangelsi, opinberar hýðingar og aðra niðurlægingu en að fórna frelsinu og eigin listsköpun.

Um hann orti Bólu- Hjálmar eftir að þeir sátu saman að spjalli eina nótt.

Heimspekingur hér kom einn í húsgangsklæðum,

með gleraugu hann gekk á skíðum,

gæfuleysið féll að síðum.

103_9617
Já svona var staða Fishers og útlitið ekki gott. Vinahópurinn íslenski gat ekki horft upp á þetta aðgerðarlaus og hóf sína baráttu við ótal kerfi og aðrar hindranir, staðráðinn í bjarga sínum manni – snillingi með sérstaka hugsun.

Þeim tókst með dyggum stuðningi helstu forystumanna þjóðarinnar og sjálfs Alþingis að leysa upp stöðuna og finna leiki til sigurs og bjarga snillingnum úr vanda sem honum var óleysanleg þraut. Skákborð lífsins var nefnilega allt annað og mun flóknara fyrir Bobby Fischer en þetta með svörtu og hvítu mönnunum. Og til Íslands kom hópurinn með hinn nýja ríkisborgara – heim til þess lands sem Fischer kaus sitt nýja föðurland.

Ágæta samkoma.

103_9652
Ég ætla mér ekki að rekja æviferil skáksnillingsins Robert James Fischer eins og hann hét fullu nafni og var fæddur í Chicago 9. mars 1943. Hér eru aðrir staddir betur færari en ég um þá hluti. Aðeins vildi ég nefna að hann lést í Reykjavík fyrr en flesta grunaði þann 17. janúar 2008.

103_9577
Síðan eru liðin 5 ár og nú er verið að opna setur honum til heiðurs – það er vel.

Fischerssetri er ekki í kot vísað hér á Selfossi – fær inni í Gamla bankanum sem á sína sögu. Hingað kom húsið vestan úr Búðardal og eftir að hafa verið endurreist, var það aðsetur Landsbanka Íslands á Selfossi í fjölda ára. Og þar sem við erum að minnast heimsþekkts manns má nefna að í húsinu gisti Danakonungur ásamt sínu fríða föruneyti 1921.

103_9593
Hér í Fischerssetrinu verður sögð saga þessa sérstæða snillings og til sýnis verða munir og myndir sem tengjast skákmeistaranum. Án efa á eftir að bætast í safnið eftir því sem árin líða. Eitt og annað á eftir að koma í dagsins ljós og gott að vita til þess að nú er hægt að vísa slíku á ákveðinn stað.

Og saga Fischers verður ekki sögð nema hægt sé að setjast við taflborð og heygja einvígi með hugann að vopni. Hér verður aðstaða til slíks og annað það sem skáklistinni tilheyrir. Og hver veit nema skáksnillingurinn sé þá nærri þótt í öðrum heimi sé. Hann kaus sér hinsta legstað að Laugardælum - skamman veg hér frá.

103_9579
Hingað eiga eftir að koma ferðamenn og aðrir gestir til að forvitnast og fræðast um þennan meistara skáklistarinnar. Við skulum hafa það í huga að eftir því sem árin líða og sú kynslóð kveður sem þekkti Fischer, hefði minning hans smám saman dofnað og jafnvel horfið ef ekkert hefði verið að gert.

Þessi staður sem tileinkaður er snillingnum spornar gegn þeirri hnignun og með hjálp Fischerssetursins mun minning Íslendingsins Bobby Fischers lifa um ókomin ár.

Öllum þeim fjölmörgu sem að stofnun Fischerssetursins hafa komið vil ég færa þakkir og er mér nær að halda að þar tali ég fyrir hönd íslensku þjóðarinnar.

Fjölmargir hafa lagt hönd á plóginn og erfitt að tiltaka einn sérstakan, má þó nefna skákmanninn Gunnar Finnlaugsson í Lundi í Svíþjóð og athafnakonuna Aldísi Sigfúsdóttur verkfræðing á Selfossi.

Góðir gestir.

Megi Fischerssetur ná markmiðum sínum og megi það verða öllum þeim til sóma sem að standa.
 

Hjörvar með jafntefli í 6. umferð

HjörvarAlþjóðlegi meistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2511) gerði jafntefli við skoska alþjóðlega meistarann Roderick McKay (2370) í sjöttu umferð skoska meistaramótsins sem fram fór í gær í Helenburgh. Hjörvar hefur 4 vinninga og er í 9.-16. sæti.

Enski stórmeistarinn Daniel Gormally (2496) er efstur með 5 vinninga. 

Í sjöundu umferð, sem fram fer í dag, teflir Hjörvar við skoska alþjóðlega meistarann Andrew Muir (2325).  Skákin verður sýnd beint eins og allrar aðrar skákir mótsins og hefst kl. 12.

55 skákmenn taka þátt í aðalmótinu. Þar af eru 9 stórmeistarar og 8 alþjóðlegir meistarar. Hjörvar er nr. 5 í stigaröð keppenda. Allar skákir mótsins eru sýndar beint.

Benasque: Guðmundur vann í sjöundu umferð

Guðmundur KjartanssonGuðmundur Kjartansson (2444) vann stigalágan Spánverja (2166) í sjöundu umferð alþjóðlegs móts í Benasque á Spáni sem fram fór í dag. Héðinn Steingrímsson (2557) gerði jafntefli við tékkneska alþjóðlega meistarann Daniel Zuniga (2428). Báðir hafa þeir 5 vinninga og eru í 27.-61. sæti.

Í áttundu umferð sem fram fer á morgun tefla þeir báðir við Spánverja. Héðinn við FIDE-meistara (2384) en Guðmundur við titillausan (2239).

Efstur með 6,5 vinning er stórmeistarinn Eduardo Iturriizaga (2642) frá Venúsela.

Þátt í mótinu taka 428 skákmenn frá 37 löndum. Þar af eru 36 stórmeistarar og 25 alþjóðlegir meistarar. Héðinn er nr. 15 í stigaröð keppenda en Guðmundur er nr. 44. Tíu skákir eru sýndar beint í hverri umferð.


Hjörvar tapaði fyrir Gormally

HjörvarAlþjóðlegi meistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2511) tapaði fyrir enska stórmeistaranum Daniel Gormally (2496) í 5. umferð skoska meistaramótsins sem fram fór í dag. Hjörvar hefur 3,5 vinning og er í 5.-15. sæti.

Gormally sjálfur er efstur með 4,5 vinning. Í sjöttu umferð, sem fram fer á morgun, teflir Hjörvar við skoska alþjóðlega meistarann Roderick McKay (2370).

 55 skákmenn taka þátt í aðalmótinu. Þar af eru 9 stórmeistarar og 8 alþjóðlegir meistarar. Hjörvar er nr. 5 í stigaröð keppenda. Allar skákir mótsins eru sýndar beint.


Hjörvar efstur ásamt tveimur öðrum á opna skoska

Hjörvar1Alþjóðlegi meistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2511) vann Skotann David Oswald (2055) í 4. umferð opna skoska meistaramótsins sem fram fór í dag í Helensburgh. Hjörvar hefur 3,5 vinning og er efstur ásamt stórmeisturunum Aleksa Strikovic (2504), Serbíu, og Daniel Gormally, Englandi, (2496).

Í 5. umferð, sem fram fer á morgun, teflir Hjörvar við Gormally og verður skákin sýnd beint reyndar eins og allar aðrar skákir mótsins.

Um það bil 55 skákmenn taka þátt í aðalmótinu. Þar af eru 9 stórmeistarar og 8 alþjóðlegir meistarar. Hjörvar er nr. 5 í stigaröð keppenda. 

Héðinn með jafntefli í sjöttu umferð

HéðinnHéðinn Steingrímsson (2557) gerði jafntefli við franska alþjóðlega meistarann Matthew Tan (2435) í sjöttu umferð alþjóðlega mótsins í Benasque á Spáni sem fram fór í dag. Guðmundur Kjartansson (2444) tapaði hins vegar fyrir ísraelska stórmeistaranum Dan Zoler (2538). Héðinn hefur 4,5 vinning og er 20.-52. sæti en Guðmundur hefur 4 vinninga og er í 53.-107. sæti.

Í sjöundu umferð, sem fram fer á morgun, teflir Héðinn við tékkneska alþjóðlega meistarann Daniel Zuniga (2428) en Guðmundur við stigalágan Spánverja (2166).

Fimm skákmenn eru efstir og jafnir með 5,5 vinning.

Þátt í mótinu taka 428 skákmenn frá 37 löndum. Þar af eru 36 stórmeistarar og 25 alþjóðlegir meistarar. Héðinn er nr. 15 í stigaröð keppenda en Guðmundur er nr. 44. Tíu skákir eru sýndar beint í hverri umferð.

Héðinn og Guðmundur unnu báðir í 5. umferð - Héðinn í beinni í dag

Guðmundur KjartanssonHéðinn Steingrímsson (2557) og Guðmundur Kjartansson (2444) unnu báðir sínar skákir í 5. umferð alþjóðlega mótsins í Benasque á Spáni sem fram fór í gær. Héðinn vann finnska stórmeistarann Heikki Westerien (2283) en Guðmundur vann tékknesku skákkonuna Teresa Olsarova (2203) sem er alþjóðlegur meistari kvenna. Þeir hafa 4 vinninga og eru í 12.-51. sæti.

Í sjöttu umferð, sem fram fer í dag, teflir Héðinn við franska alþjóðlega meistarann Matthew Tan (2435) en Guðmundur við ísraelska stórmeistarann Dan Zoler (2538). Skák Héðins verður sýnd beint á vefsíðu mótsins en umferðin hefjast kl. 14.

Ísraelski stórmeistarinn Maxim Rodshtein (2641) er einn efstur með fullt hús.

Þátt í mótinu taka 428 skákmenn frá 37 löndum. Þar af eru 36 stórmeistarar og 25 alþjóðlegir meistarar. Héðinn er nr. 15 í stigaröð keppenda en Guðmundur er nr. 44. Tíu skákir eru sýndar beint í hverri umferð.

Hjörvar vann í 3. umferð á Opna skoska - efstur ásamt níu öðrum

Hjörvar1Alþjóðlegi meistarinn Hjörvar Steinn Grétarsson (2511) vann í gær Skotann Alan Borwell (2017) í 3. umferð opna skoska meistaramótinu sem fram fer í Helenburgh. Hjörvar hefur 2,5 vinning og er í 1.-10. sæti

Í fjórðu umferð, sem fer í dag mætir Hjörvar Skotanum David Oswald (2055).  Skákin verður sýnd beint sem og allar aðrar skákir hverjar umferðar.

Um það bil 55 skákmenn taka þátt í aðalmótinu. Þar af eru 9 stórmeistarar og 8 alþjóðlegir meistarar. Hjörvar er nr. 5 í stigaröð keppenda. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.6.): 12
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 119
  • Frá upphafi: 8778221

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 80
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 9

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband