Fćrsluflokkur: Spil og leikir
30.7.2013 | 22:38
Kramnik og Adams efstir í Dortmund
Vladimir Kramnik (2784) og Michael Adams (2740) eru efstir og jafnir á ofurskákmótinu í Dortmund ţegar fimm umferđum af níu er lokiđ. Ţeir hafa yfirburđi á nćstu menn en ţeir hafa 1,5 vinnings forskot. Adams vann Wang Hao (2752) í dag en Kramnik hafđi betur gegn Peter Leko (2737).
Frídagur er á morgun.
Ţátt taka 10 skákmenn í mótinu og ţar af sex alţjóđlegar stjörnur. Hin fjögur sćtin fylla svo ţýskir landsliđsmenn.- Heimasíđa mótsins
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 13)
30.7.2013 | 22:34
Henrik tapađi í fimmtu umferđ
Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2510) tapađi fyrir franska stórmeistaranum Romain Edouard (2662) í fimmtu umferđ Politiken Cup sem fram fór í dag í Helsingör. Henrik hefur 4 vinninga. Hilmir Freyr Heimisson (1690) heldur áfram ađ ná góđum úrslitum og gerđi jafntefli stigahćrri Dana (1921)
Búlgarski stórmeistarinn Ivan Cheparinov (2678) er efstur međ fullt hús.
Í sjöttu umferđ, sem fram fer á morgun, teflir Henrik viđ skákkonuna Dinara Saduakassova (2340) frá Kasakstan sem var međal keppenda á síđasta Reykjavíkurskákmóti. Hilmir teflir í fimmta skipti í röđ viđ keppenda á stigabilinu 1900-2000.
Alls taka 309 skákmenn frá 26 löndum ţátt í mótinu. Ţar af er 21 stórmeistari og 11 alţjóđlegir meistarar. Henrik er nr. 17 í stigaröđ keppenda og Hilmir er nr. 247. Tefldar eru 10 umferđir.
- Heimasíđa mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 11)
29.7.2013 | 17:19
Politiken Cup: Henrik međ fullt hús eftir fjórar umferđir
Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2510) vann norska FIDE-meistarann Benjamin Arvola (2342) í fjórđu umferđ Politiken Cup sem fram fór í dag. Henrik hefur fullt hús vinninga. Hilmir Freyr Heimisson (1690) gerđi jafntefli viđ heimamann međ 1918 skákstig og hefur 1˝ vinning.
Henrik er efstur ásamt átta öđrum skákmönnum. Í fimmtu umferđ, sem fram fer á morgun, teflir hann viđ franska stórmeistarann Romain Edouard (2662).
Alls taka 309 skákmenn frá 26 löndum ţátt í mótinu. Ţar af er 21 stórmeistari og 11 alţjóđlegir meistarar. Henrik er nr. 17 í stigaröđ keppenda og Hilmir er nr. 247. Tefldar eru 10 umferđir.
- Heimasíđa mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 11)
29.7.2013 | 09:12
Margfalt Afmćlismót í Vin í dag kl. 13

Vinaskákfélagiđ viđ Hverfisgötu býđur til mikils verđlaunamóts, mánudaginn 29. júlí klukkan 13. Tefldar verđa 6 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma og eru allir hjartanlega velkomnir.
Mótiđ er haldiđ til ađ fagna sameiginlegu 145 ára afmćli ţriggja liđsmanna Vinaskákfélagsins. Róbert Lagerman, forseti félagsins, á afmćli nú á mánudaginn og nýveriđ fögnuđu afmćlum tveir af hinum knáu fastamönnum Vinaskákfélagsins, Hjálmar Sigurvaldason og Hörđur Jónasson.
Ţá er ţví líka fagnađ um ţessar mundir ađ 10 ár eru síđan skákstarf hófst í Vin. Í júní 2003 var Vinaskákfélagiđ stofnađ og efnt til fyrsta meistaramótsins. Ţar sigrađi kempan Jón Torfason, en hann afsalađi sér titlinum til Rafns Jónssonar sem varđ í 2. sćti.
Ćfingar og skákviđburđir í Vin skipta hundruđum á síđustu 10 árum, og Vinaskákfélagiđ tekur virkan ţátt í skáklífinu á Íslandi og sendi í vetur tvćr sveitir til keppni á Íslandsmóti skákfélaga.
Skákáhugamenn eru hvattir til ađ mćta í Vin á morgun, mánudag, og taka ţátt í skemmtilegu móti í góđum félagsskap. Í leikhléi verđur ađ vanda bođiđ upp á gómsćtar veitingar.
28.7.2013 | 22:00
Sumarmót viđ Selvatn - Stórislagur 2013: Bragi brosti breitt í mótslok
Í vikunni sem leiđ var haldin skákhátíđ mikil viđ Selvatn á Nesjavallaleiđ á vegum Sd. KR í samvinnu viđ GALLERÝ SKÁK ađ sveitasetri ţeirra heiđurshjóna Guđfinns R. Kjartanssonar, skákforkólfs og Erlu Axels listmálara. Teflt var í hinum fagra myndlistarskála sem Sverrir heitinn Norđfjörđ hannađi og heitir Listasel en stundum líka Skáksel ţegar betur hentar. Ţetta var í 7. sinn sem slíkt hátíđarskákmót er ţar haldiđ međ viđhafnarsniđi og veislukvöldverđi
Tafliđ hófst upp úr klukkan fjögur og stóđ langt fram eftir kvöldi. Telfdar voru 11 umferđir međ 10 mín. uht. Keppendur voru 40 talsins og hafa aldrei veriđ fleiri - flestir af eldri kynslóđinni. Ţrír fyrri sigurvegarar ţessara sumarmóta voru međal ţátttakenda, ţeir Gunni Gunni (2008), Jóhann Örn (2009) og Bragi Halldórsson (2012) en sumir voru ţarna međ í fyrsta sinn.
Léttur keppnisandi sveif yfir vötnunum sérstaklega eftir ađ reykinn af réttunum fór ađ leggja yfir og bera ađ vitum ţátttakenda. Í hálfleik leiddi Gunnar Björnsson, forseti SÍ mótiđ međ fullu húsi - sex vinningum af sex - sem vakti nokkra undrun og kátínu einkum hjá honum sjálfum. Ţađ átti ţó eftir ađ breytast og fleiri blönduđu sér í baráttuna um efsta sćtiđ eftir ţví sem á leiđ mótiđ. Ađrir komu sjálfum sér ađeins á óvart međ slakri taflmennsku og kenndu ýmsu um - ađallega taflhöndinni. Ţegar upp var stađiđ reyndust ţeir einna snjallastir BRAGI HALLDÓRSSON og STEFÁN BERGSSON báđir efstir og jafnir međ níu vinninga og gátu leyft sér ađ brosa breitt, eins og sjá má á myndum, einkum Bragi sem vann međ minnsta mun á stigum. Var hann síđan krýndur Selvatnsmeistari annađ áriđ í röđ og var vel ađ ţví kominn. Nánari úrslit má sjá á međf. mótstöflu og vettvangs- og klippimyndir í albúmi.
Í skákhléi kvaddi Kristján Stefánsson sér hljóđs međ ađstođ gjallarhorns og afhenti Gunnari Kr. Gunnarssyni viđurkenningarskjöld en hann hafđi veriđ kjörinn heiđursfélagi Skákdeildar KR á síđasta ađalfundi í tilefni af 80 ára afmćli sínu fyrir langt og heilladrjúgt framlag til félagsins og skáklistarinnar. Einnig fćrđi hann ţeim Páli G. Jónssyni og Einari S. Einarssyni, síđbúnar afmćlisgjafir og skjallađi ţá ađeins í tilefni ađ 80 og 75 ára afmćlum ţeirra fyrir í sumar. Einnig fćrđi hann gestgjöfum mótsins ţeim hjónum Guđfinni og Erlu ţakkargjöf. Allir voru ţessir gjafţolar" hylltir međ góđu lófataki en síđan sneru menn sér ađ öđru mikilvćgara ţ.e. ađ reyna ađ máta nćsta andstćđing, sem mörgum tókst bćrilega og réttu ađeins sinn hlut.
Ađ lokinni verđlaunaafhendingu var dregiđ í happdrćtti um bókavinninga, sem UGLA bókaforlag hafđi gefiđ til mótsins og bar ţar hćst ENDATAFL ćvisögu Bobby Fischers.
Ađrir styrktarađilar mótsins voru: KRST-Lögmannsstofa, Toppfiskur, Eldhús Sćlkerans.
Lokastađan
ESE
Spil og leikir | Breytt 29.7.2013 kl. 16:09 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
28.7.2013 | 21:00
Henrik međ fullt hús eftir ţrjár umferđir
Stórmeistarinn Henrik Danielsen (2510) er međ fullt hús eftir ţrjár umferđir á Politiken Cup en önnur og ţriđja umferđ fóru fram í dag. Andstćđingar dagsins voru á stigabilinu 2218-2251. Hilmir Freyr Heimisson (1690) fékk einn vinning í dag en andstćđingar voru á stigbilinu 1932-1992. Henrik er efstur međ fullt hús ásamt 26 öđrum skákmönnum en Hilmir hefur 1 vinning.
Á morgun teflir Henrik viđ norska FIDE-meistarann Benjamin Arvola (2342). Skákin verđur sýnd beint eins og vćntanlega allar skákir hans á mótinu.
Alls taka 309 skákmenn frá 26 löndum ţátt í mótinu. Ţar af er 21 stórmeistari og 11 alţjóđlegir meistarar. Henrik er nr. 17 í stigaröđ keppenda og Hilmir er nr. 247.- Heimasíđa mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 11)
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 20:50 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
28.7.2013 | 20:00
Skákţáttur Morgunblađsins: Síđasta skák Friđriks viđ Bobby Fischer

- og báđir áttu trausta vini," sagđi hann međal annars.
Guđni Ágústsson, sem vart lýkur upp munni án ţess ađ nefna Gunnar á Hlíđarenda, talađi síđastur og tókst auđvitađ ađ spyrđa kappana saman. Guđni glettist góđlátlega viđ vini sína úr kjördćminu, taldi augljóst ađ draugur nokkur, sem lengi hefđi leikiđ lausum hala í Flóanum, myndi hafa ýtt á send-takkann" ţegar tölvupósturinn frćgi fór af stađ úr tölvu Bjarna bóksala; Ólafur Helgi sýslumađur vćri landskunnur fyrir dálćti sitt á hljómsveit sem hann mundi ađ vísu ekki hver var en kom ekki ađ sök ţar sem öđrum var ljóst ađ hér var átt viđ The Rolling Stones. Friđrik Ólafsson talađi um kynni sín af Fischer og fćrđi setrinu ađ gjöf skorblöđ af nokkrum skákum ţeirra. Ţeir tefldu samtals 12 skákir, ţar af ellefu á tímabilinu 1958-'62. Friđrik vann ţá fyrstu međ glćsibrag en eftir ţađ hallađi undir fćti og heildarniđurstađan var 9:3, Fischer í vil. Fischer var afar beittur kóngspeđsmađur og Friđrik var međ svart í sjö síđustu skákum ţeirra. Hann rćddi síđustu viđureignina sem fram fór á
Ólympíumótinu í Havana áriđ 1966, viđ rannsóknir eftirá taldi Fischer peđsfórn Friđriks í byrjun tafls ekki mikils virđi, hann sá viđ brellum Friđriks undir lokin, vann sannfćrandi sigur og hlaut 15 vinninga af 17 mögulegum á 1. borđi fyrir Bandaríkin. En Friđrik átti sín tćkifćri í ţessari skák og kannski fyrr en keppendur hugđu:
Bobby Fischer - Friđrik Ólafsson
Spćnski leikurinn
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O-O Rxe4
Á Piatigorsky-mótinu fyrr um áriđ hafđi Fischer átt í basli gegn opna afbrigđi spćnska leiksins í skákum viđ Bent Larsen og Wolfgang Unzicker.
6. d4 b5 7. Bb3 d5 8. dxe5 Be6 9. c3 Be7 10. Bc2 Bg4
Upphafiđ ađ athyglisverđri peđsfórn. Seinni tíma ţróun byggđ á skákum Kortsnojs gerđi ráđ fyrir leikjum á borđ viđ 10. ... Dd7 og - Hd8.
11. h3 Bh5 12. g4 Bg6 13. Bb3 Ra5?!
Best var 13. ... Rc5! - Houdini". Eftir 14. Bxd5 kemur 14. ... Dd7! međ góđum fćrum og 14. Dxd5 er svarađ međ 14. ...Ra5.
14. Bxd5 c6 15. Bxe4 Bxe4 16. Dxd8+ Hxd8 17. Rbd2 Bd5 18. He1 h5 19. Re4 hxg4 20. hxg4 Rc4?!
Betri reitur fyrir riddarann var á b7 og 20. ... b4 kom einnig til greina.
21. Kg2! Be6 22. b3 Rb6 23. Be3 Rd5 24. Kg3 f6
Friđrik hafđi litlar bćtur fyrir peđiđ og ţessi leikur bćtir ekki úr skák.
25. Bc5! f5 26. Rd6+ Bxd6
Skárra var 26. ... Kd7.
27. exd6 Kd7 28. Re5 Kc8 29. Rxc6 f4 30. Kg2 Re3+!
Byggir á hugmyndinni 31. fxe3 Bd5+ o.s. frv. En Fischer hafđi séđ ţetta fyrir.
31. Kg1! Bd5 32. Re7+ Kd7 33. fxe3 Hh1+ 34. Kf2 Hh2+ 35. Kf1 Bf3 36. Rg6 Be4 37. Re5+
- og svartur gafst upp.
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
----------------------------------------------
Skákţćttir Morgunblađsins eru birtir á Skák.is viku síđar en í sjálfu Morgunblađinu.
Grein ţessi birtist í Sunnudagsmogganum, 21. júlí 2013
Spil og leikir | Breytt 22.7.2013 kl. 12:25 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
28.7.2013 | 15:19
Margfalt afmćlismót í Vin á mánudaginn!

Vinaskákfélagiđ viđ Hverfisgötu býđur til mikils verđlaunamóts, mánudaginn 29. júlí klukkan 13. Tefldar verđa 6 umferđir međ 7 mínútna umhugsunartíma og eru allir hjartanlega velkomnir.
Mótiđ er haldiđ til ađ fagna sameiginlegu 145 ára afmćli ţriggja liđsmanna Vinaskákfélagsins. Róbert Lagerman, forseti félagsins, á afmćli nú á mánudaginn og nýveriđ fögnuđu afmćlum tveir af hinum knáu fastamönnum Vinaskákfélagsins, Hjálmar Sigurvaldason og Hörđur Jónasson.
Ţá er ţví líka fagnađ um ţessar mundir ađ 10 ár eru síđan skákstarf hófst í Vin. Í júní 2003 var Vinaskákfélagiđ stofnađ og efnt til fyrsta meistaramótsins. Ţar sigrađi kempan Jón Torfason, en hann afsalađi sér titlinum til Rafns Jónssonar sem varđ í 2. sćti.
Ćfingar og skákviđburđir í Vin skipta hundruđum á síđustu 10 árum, og Vinaskákfélagiđ tekur virkan ţátt í skáklífinu á Íslandi og sendi í vetur tvćr sveitir til keppni á Íslandsmóti skákfélaga.
Skákáhugamenn eru hvattir til ađ mćta í Vin á morgun, mánudag, og taka ţátt í skemmtilegu móti í góđum félagsskap. Í leikhléi verđur ađ vanda bođiđ upp á gómsćtar veitingar.
28.7.2013 | 13:09
Héđinn međ jafntefli viđ Tönju í lokaumferđinni
Stórmeistarinn Héđinn Steingrímsson (2557) gerđi jafntefli viđ indversku skákdrottninguna Tania Sadchev (2430) í níundu og síđustu umferđ Andorra Open sem fram fór í morgun. Guđmundur Kjartansson (2444) tapađi hins vegar fyrir alţjóđlega meistaranum Bryan Macias (2298) frá Ekvador.
Héđinn hlaut 6,5 vinning og endađi í 9.-17. sćti (12. á stigum) en Guđmundur hlaut 5,5 vinning og endađi í 32.-51. sćti (34. sćti á stigum.
Frammistađa Héđins samsvarađi 2457 skákstigum en frammistađa Guđmundar samsvarađi 2384 skákstigum. Báđir lćkka ţeir á stigum. Héđinn um 6 stig en Guđmundur um 4 stig.
Úkraínski stórmeistarinn Andrey Vovk (2567) sigrađi á mótinu en hann hlaut 7,5 vinning.
Alls taka 178 skákmenn frá 20 löndum ţátt í mótinu. Ţar af eru 16 stórmeistarar og 14 alţjóđlegir meistarar. Héđinn er nr. 9 í stigaröđ keppenda en Guđmundur er nr. 22.
- Heimasíđa mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar - 4 skákir (hefjast kl. 13:30 eđa 14:00)
27.7.2013 | 20:53
Hannes vann í lokaumferđinni - góđur árangur íslenskra skákmanna
Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2522) vann ţýska alţjóđlega meistarann Sebastian Plischiki (2413) í níundu og síđustu umferđ Czech Open sem fram fór í Pardubice í dag. Hjörvar Steinn Grétarsson (2511) og Dagur Arngrímsson (2384) gerđu báđir jafntefli. Hjörvar viđ tékkneska alţjóđlega meistarann Vojtech Rojicek (2413) og Dagur viđ Barbara Jaracz (2270) sem er tékkneskur stórmeistari kvenna.
Íslenskum skákmönnum gekk heilt yfir afar vel og alls hćkkuđu 8 af ţeim 11 sem höfđu alţjóđleg stig á stigum.
A-flokkur:
- Hannes hlaut 6 vinninga og endađi í 13.-37. sćti (22.)
- Hjörvar hlaut 5,5 vinning og endađi í 38.-66. sćti (59.)
- Dagur hlaut 4,5 vinning og endađi í 99.-137. sćti (102.)
Stórmeistarinn Liviu-Dieter Nisipeanu (2670), Rúmeníu, og Mikhailo Olekseinko (2568), úkraínskur TR-ingur, sigruđu á mótinu en ţeir hlutu 7,5 vinning.
Frammistađa Hannesar samsvarađi 2551 stigi, frammistađa Hjörvars samsvarađi 2407 stigum og frammistađa Dags samsvarađi 2393 skákstigum.
Hannes og Dagur hćkka á stigum. Hannes hćkkar um 4 stig en Dagur um 1 stig. Hjörvar lćkkar um 11 stig.
B-flokkur:
Dagur Ragnarsson (2020), Oliver Aron Jóhannesson (2015) og Jón Trausti Harđarson unnu í lokaumferđinni, Nökkvi Sverrisson (2041) gerđi jafntefli en Mikael Jóhann Karlsson (2029) tapađi.
Mikael og Nökkvi hlutu 5,5 vinning, Dagur og Oliver hlutu 5 vinninga og Jón Trausti hlaut 4,5 vinning.
Mikael hćkkar um 39 stig, Jón Trausti um 31 stig, Nökkvi um 23 stig og Dagur um 20 stig. Oliver lćkkar lítisháttar eđa um 8 stig.
D-flokkur:
Heimir Páll Ragnarsson (1406) og Felix Steinţórsson (1488) unnu en Dawid Kolka (1669) gerđi jafntefli.
Dawid hlaut 5 vinninga en Felix og Heimir Páll hlutu 4,5 vinning.
Heimir hćkkar um 49 stig, Felix um 25 stig en Dawid lćkkar um 3 stig.
E-flokkur
Steinţór Baldursson vann og hlaut 5 vinninga.
238 skákmenn frá 35 löndum tefla í efsta flokki. Ţar af eru 46 stórmeistarar og 63 alţjóđlegir meistarar. Hannes er nr. 24 í stigaröđ keppenda, Hjörvar er nr. 29 og Dagur er nr. 89. Hámarksstig í b-flokki eru 2400 skákstig og ţar taka 235 skákmenn ţátt. Íslensku skákmennirnir eru nr. 96-192 í stigaröđ keppenda.- Heimasíđa mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 13)
- Myndaalbúm (Steinţór Baldursson)
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 22
- Sl. sólarhring: 22
- Sl. viku: 129
- Frá upphafi: 8778231
Annađ
- Innlit í dag: 18
- Innlit sl. viku: 88
- Gestir í dag: 17
- IP-tölur í dag: 17
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar