Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Spil og leikir

Degi gekk ekki vel á First Saturday

Alþjóðlega meistaranum Degi Arngrímsson (2397) gekk ekki vel á First Saturday-mótinu sem lauk í gær í Búdapest. Dagur hlaut 2 vinninga og endaði í tíunda sæti með 2 vinninga. 

Frammistaða hans samsvaraði 2212 skákstigum og tapaði hann 19 stigum fyrir hana.

Tíu skákmenn tóku þátt og tefldu þeir allir við alla. Meðalstig var 2416 skákstig og var Dagur nr. 7 í stigaröð keppenda.

 


EM: Töp gegn Póllandi og Ítalíu - Hjörvar með góðan sigur

Hjörvar SteinnBæði íslensku liðin töpuðu í fimmtu umferð EM landsliða sem fram fór í dag í Varsjá. Íslenska liðið í opnum flokki tapaði 1-3 fyrir Póllandi. Þar vann Hjörvar Steinn afar góðan sigur á stórmeistaranum sterka Grzegorz Gajewski (2634) á þriðja borði en aðrar skákir töpuðust. Kvennaliðið tapaði 0,5-3,5 fyrir sveit Ítalíu. Lenka gerði jafntefli en aðrar skákirLenka töpuðust.

Frakkar eru efstir í opnum flokki með 9 stig af 10 mögulegum eftir jafntefli við Ungverja. Grikkir, Georgíumenn og Aserar koma næstir með 8 stig.

Úkraínukonur leiða með fullu húsi stiga í kvennaflokki og hafa tveggja stiga forskot á Georgíukonur og Pólverjar sem koma næstar.


 


EM-pistill nr. 5 - Skotar skotnir niður

Lenkur leikurEnn á ný voru Skotar lagðir af vell á EM landsliða. Fimmti sigurinn í jafnmörgum tilvikum. Og alltaf er gott að vinna 3,5-0,5. Hannes, Henrik og Guðmundur unnu en Héðinn gerði jafntefli. Kvennaliðið gerði 2-2 jafntefli við Norðmenn. Lenka og Tinna unnu. Í dag eru það sterkir andstæðingar í báðum riðlum þ.e. Pólverjar og Ítalir.

Viðureignir gærdagsins

Strax frá byrjun leit þetta vel út á móti Skotum. Bæði Guðmundur og HjörvarHannes og Henrik fengu fljótlega mjög vænlegt tafl og unnu örugglega. Hannes virðist vera í mjög góðu formi og teflir fantavel.

Andstæðingur Guðmundar jafnaði hins vegar taflið og þurfti hann meira að hafa fyrir sínum sigri en hafðist þó eftir tímahrakið. Guðmundur hefur nú tvær skákir í röð.

Héðinn tefldi langa teoríu sem að sögn Helga er jafnteflisleg og það varð raunin. Góður 3,5-0,5 sigur staðreynd.

Viðureign stelpnanna var spennandi. Lenka fékk fljótlega vænlegt tafl og vann mjög góðan sigur á fyrsta borði. Jóhanna lenti hins vegar í tómum vandræðum og tapaði fljótt og vel.

Davíð og HallgerðurHallgerður virtist vera að jafna taflið en ónákvæmni kostaði jafnteflið. Tinna átti skemmtilegustu skákina. Hún vann peð en lenti þess í stað með drottninguna á smá flandri. Henni tókst að lagfæra það og vann sigur eftir riddaraendatafl. 2-2 úrslit á móti Norðmönnum eru vel ásættanleg enda var Tiger Hillarp-Persson, liðsstjóri Norðmannanna ekki allt of ánægður með úrslitin.

Viðureignir dagsins

Andstæðingarnir í dag eru erfiðir. Í opnum flokki er það aðallið heimamanna. Lið er feykisterkt og er talið hið tólfta sterkasta hér. Þrír er fimm félagsmönnum liðsins voru Íslandsmeistarar með Víkingaklúbbnum og sá fjórði hefur teflt með Eyjamönnum!

Eins og kom fram í fyrri pistli hefur einu sinni áður teflt við Pólverja á EM. Það var árið 2007 á Krít. Þá unnum við mjög óvæntan 3-1 sigur á mjög sterkri pólskri sveit. Sú sveit er að 4/5 sú sama og er hér. Hannes vann Socko sem teflir í dag við Héðin, Héðinn vann Mitov (sem hvílir í dag) og Stefán vann Wojtaszek, sem er ekki með þeim í liðinu. Ég hef heyrt að hann sé meðal aðstoðarmanna á heimsmeistaraeinvíginu. Henrik tapaði fyrir Gajewski sem teflir nú við Hjörvar. Þetta verður erfið viðureign og vonandi náum við ásættanlegum úrslitum. Henrik hvílir. Pólverjar hafa tapað tveimur viðureignum í röð fyrir Aserum og Slóvenum.

Kvennaliðið mætir sveit Ítalíu. Við höfum einu teflt við þá á EM. Það var árið 2001 en þá töpuðum við Liðsstjórar spjalla - Davíð og Helgi0,5-1,5.  Við höfum mætt ítalskri sveit sex sinnum á Ólympíuskákmóti og erum þar undir 8-12. Höfum unnið tvo sigra, tapað þrisvar og gert eitt jafntefli. Ítalirnir unnu Englendinga 4-0 í síðustu umferð en töpuðu 1-3 fyrir Norðmönnum þar á undan. Jóhanna hvílir.

Baráttan

Frakkar eru í miklu stuði og unnu Tékka í gær. Þeir héldu sig við Bridge-ið í gær. Þeir eru einir efstir með 8 stig og mæta Ungverjum í dag. Ein átta lið hafa 6 stig og átta lið hafa 5 stig og þar á meðal eru Rússar, Armenar og Englendingar. Það getur því allt gerst.

Úkraínumenn unnu í gær nokkuð óvæntan 3-1 á Armenum. Marga sterka vantar í Úkraínu og má þar nefna Ivanchuk, Ponomariov og Eljanov.

Rússarnir flengdu Austurríki 4-0. Allir Rússarnir eru óaðfinnanlegir klæddir í jakkafötum nema Grischuk sem er yfirleitt bara klæddur í bol og gallabuxur.

Topalov og Caruana í gúanóinuTopalov er samt flottastur keppenda. Alltaf klæddur í toppföt og svo kjaftar á honum hver tuska við allt og alla og fer með gamanmál. Mætti honum í lyftunni í morgun - reyndar þá með heddsettið á að fullu og dillandi sér.

Pólverjar og Úkraínumenn leiða í kvennaflokki.

Norðurlandamótið

Það hefur ekki gengið vel hjá Norðurlandaþjóðunum. Í gær náði við forystunni í Norðurlandakeppninni - höfum 3 stig. Mótmæli okkar Róberts í gær hafa greinilega skilað árangri!

Finnur hafa reyndar einnig 3 stig og eru samt neðar í röðinni. Norðmenn og Danir hafa 2 stig. Ungu norsku ljóninNorðmenn unnu Wales í gær - en Danir töpuðu óþarflega stórt, 1-3, fyrir Hollendingum miðað við stöðurnar á borðinu.  Þessi lið mætast innbyrðis. 

Svíar reka lestina með 1 stig. Það stig náðu þér í fyrstu umferð gegn sjálfum Aserum! Mæta Makedóníumönnum í dag - sem er ein lakasta sveitin hér.

Sem fyrr er öll Norðurlöndin í „gúanóinu". Mikilvægasta viðureignin í gúanóinu verður samt að teljast viðureign Skotlands og Wales - tvö lökustu liðin og baráttan um Bretland!

Rútínan

Dagurinn í gær var nokkuð óvenjulegur eins og áður hefur komið fram.  Umferðin byrjaði síðar vegna mótmæla fyrir utan. Mér skilst meira að segja að um mótmælin hafa verið fjallað í 10-fréttum RÚV (ca. 3 mín) í gær.

Mér sjálfum fannst rútínan fara svolítið úr skorðum við þessa breytingu enda kom pörunin ekki fyrr en miðnætti. Á morgun er svo frídagur og þá stefnum við skoðunarferð (kastali eða höll - stelpurnar ráða!). Auk þess ætlar SÍ að bjóða hópnum í mat.

Mótið

Socko brosmildur fyrir skákina gegn HéðniÉg hef áður sagt frá góðum aðstæðum. Í rými frammi á skákstað er frítt vatn og kaffi. Þar er hægt að fá úrvals pólskt latté með karamellubragði sem ég er alvegin fallinn fyrir.

Í miðrýminu er stundum svolítið hávaði og berst hann sérstaklega inn í kvennasalinn sem stelpurnar hafa verið tefla í. Ein enska konan varð alveg brjáluð í gær - gekk fram og öskraði „Respect" svo undir tók í! Það hélt í einhvern tíma.

Enska liðinu hefur gengið hræðilega hefur 0 stig og 0 vinninga eftir 4 umferðir. Liðið er engu að síður 23. sterkasta af 32.

Samkvæmt lögum eiga víst mótshaldarar réttinn á því að sýna skákir beint og hafa barið á þeim semWales og Skotland - Slagurinn um Bretland! ekki hafa samið við þá um sýningarréttinn t.d. Chessbomb og ICC. Þeir fyrrnefndu hafa a.m.k. hætt að sýna skákirnar beint sem þýtt hefur aukið álag á netþjónana hér sem hefur þurft að bregðast við. Þessi útsendingarbúnaður, sem fenginn er frá Bundesliga, er annars frábær og að mínu mati mun betri en Chessbomb.

Nóg í bili. Pistill morgundagsins verður án efa í styttra og/eða í síðari lagi vegna frídagsins.

Kveðja frá Varsjá,
Gunnar

 


Heimsmeistaraeinvígið: Enn eitt jafntefli - en samt líflegra

Anand og CarlsenÞriðja skák heimsmeistaraeinvígis Carlsen (2870) og Anand (2775) var töluvert tilþrifameiri en skákirnar hingað til. Carlsen tefldi 1. Rf3 og fékk ekkert út úr byrjuninni og fékk Anand betra tafl ef eitthvað var. 

Smá saman náði samt Carlsen að jafna taflið aftur og var jafntefli samið eftir 51 leik. Staðan er 1,5-1,5. Fjórða skákin fer fram á morgun og hefst kl. 9:30. 



Björn Þorfinnsson með fjöltefli á krakkaæfingu Víkingaklúbbsins

Björn ÞorfinnssonAlþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinsson einn stigahæsti íslenski skákmaður Víkingaklúbbsins verður með fjöltefli í Víkinni Víkingsheimilinu í dag miðvikudagin 13. nóvember kl. 17.10-18.30.  Allir krakkar velkomnir að tefla við meistarann meðan næg töfl eru til staðar (öruggast að taka tafl og dúk með sér).  Víkingaklúbburinn og Knattspyrnufélagið Víkingur hafa verið með barnaæfingar kl. 17.10 á miðvikudögum í vetur, en síðusta æfingin fyrir jólafrí verður miðvikudaginn 11. desember (jólamót).

Einar Hjalti atskákmeistari Reykjavíkur og GM Hellis

Einar HjaltiEinar Hjalti Jensson sigraði á vel skipuðu Atskákmóti Reykjavíkur sem sem lauk í gærkvöldi með 5,5 vinning í sex skákum. Einar Hjalti sigraði Guðmund Gíslason í spennandi skák í næstsíðustu umferð og tryggði svo sigurinn með jafntefli við Ögmund í lokaumferðinni. Einar Hjalti er einnig félagsmaður í GM Helli og varð einnig Atskákmeistari GM Hellis á suðursvæði og gekk því út með tvo titla í farteskinu.

Jafnir í öðru og þriðja sæti með 5 voru svo Ögmundur Kristinsson og Dagur Ragnarsson með 5 vinninga.

Lokastaðan á Atskákmóti Reykjavíkur

RöðNafnVinn.TB1TB2TB3
1Einar Hjalti Jensson5,5221519
2Ögmundur Kristinsson 5231518
3Dagur Ragnarsson 5181213
4Guðmundur Gíslason 4,5251717
5Vigfús Vigfússon4231512
6Andri Grétarsson4201312
7Felix Steinþórsson3,520138,8
8Hjálmar Sigurvaldason3,517118,3
9Oliver Jóhannesson322158
10Gunnar Nikulásson321147,5
11Jon Olav Fivelstad 319137,5
12Kristján Halldórsson316114
13Bárður Örn Birkisson31595
14Björn Hólm Birkisson2,5159,52
15Hermann Ragnarsson2,5139,53,3
16Loftur Baldvinsson219143
17Árni Thoroddsen218123
18Óskar Víkingur Davíðsson215111
19Hörður Jónasson1159,50
20Brynjar Haraldsson01390
21Björgvin Kristbergsson0138,50

Mótstföflu má finna á Chess-Results.


Viðureignir dagsins: Pólland og Ítalía

 

Muir og HenrikAndstæðingarnir í dag á EM landsliða eru erfiðir. Liðið í opnum flokki mætir sterku liði heimamanna, sem hefur 113 skákstigum hærri meðalstig en okkar lið (2637-2524) og er talið 12. sterkasta liðið hér á meðan okkar lið er talið hið 28. sterkasta. Umferðin hefst kl. 14

Liðið í kvennaflokki mætir liði Ítalíu. Þar er munurinn enn meiri eða 245 skákstig (2238-1993). Hið ítalska er talið hið 20. sterkasta en okkar lið það 32. sterkasta.

Opinn flokkur:

Henrik hvílir hjá íslenska liðinu en Pólverjarnir hvíla varamanninn Kamil Miton (2597). Eins og sjá má er stigamunur ávallt meira en 100 stig nema á öðru borði.

Bo.28  ICELANDRtg-12  POLANDRtg0 : 0
13.1GMSTEINGRIMSSON, Hedinn2543-GMSOCKO, Bartosz2661
13.2GMSTEFANSSON, Hannes2539-GMSWIERCZ, Dariusz2627
13.3IMGRETARSSON, Hjorvar Steinn2511-GMGAJEWSKI, Grzegorz2634
13.4IMKJARTANSSON, Gudmundur2455-GMBARTEL, Mateusz2626

 


Kvennaflokkur:

Jóhanna Björg hvílir hjá íslenska liðinu. Ítalarnir hvíla varmaninn sinn Tea Gueci. Eins og smá er Ítalarnir a.m.k. 200 stigum hærri á öllum borðum nema á fyrsta borði.

Bo.20  ItalyRtg-32  IcelandRtg0 : 0
14.1IMSedina, Elena2302-WGMPtacnikova, Lenka2238
14.2IMZimina, Olga2338-
Thorsteinsdottir, Hallgerdur1951
14.3WIMBrunello, Marina2248-
Finnbogadottir, Tinna Kristin1882
14.4WFMMessina, Roberta2064-
Kristinardottir, Elsa Maria1819


Smári og Jón Kristinn efstir á Atskákmóti Akureyrar

Um helgina lauk spennandi atskáksmóti Skákfélags Akureyrar. Ellefu keppendur mættu til leiks og tefldu 7 skákir eftir Monradkerfi. Í lokin munaði aðeins einum vinningi á 1. sæti og 5. sæti. Leikar fóru svo að Smári Ólafsson og Jón Kristinn Þorgeirsson urðu jafnir og efstir með 5,5 vinninga af 7 mögulegum. Þeir þurfa því að tefla einvígi um titilinn. Ekki hefur verið ákveðið hvenær það fer fram en stefnt er að því að þeir tefli tvær skákir um titilinn Atskáksmeistari Skákfélags Akureyrar.

Karl Egill Steingrímsson tefldi vel á mótinu og hafnaði í 3. sæti.

Heildarúrslitin má sjá hér að neða.

1-2. Smári Ólafsson og Jón Kristinn Þorgeirsson 5,5 af 7

3. Karl Egill Steingrímsson 5

4-5. Símon Þórhallsson og Haraldur Haraldsson 4,5

6-8. Sigurður Eiríksson, Rúnar Ísleifsson og Hjörleifur Halldórsson 3,5

9. Andri Freyr Stefánsson 3

10. Logi Rúnar Jónsson 2

11. Ari Friðfinnsson 1,5


Heimsmeistaraeinvígið: Þriðja skákin hafin

Anand og CarlsenÞriðja skák heimsmeistaraeinvígis Carlsen (2870) og Anand (2775) hófst nú kl. 9:30. Magnus hefur hvítt og tefldi Magnús 1. Rf3 rétt eins og í fyrstu skákinni. Auðvelt er að fylgjast með skákinni á flestum skákvefliðum heims. Vísað er á nokkra valkosti hér að neðan.



Skákæfing hjá Breiðabliki í kvöld

BreiðabliksæfingSkákæfing hjá Skákdeild Breiðabliks í kvöld Mæting  kl 19:45 og hraðskákmótið byrjar stundvíslega kl 20:00 !

Átta umferða hraðskákmótið (5mín + 2sek) verður reiknað til FIDE hraðskákstiga eins og öll þriðjudagsmótin í vetur !

Allir velkomnir ókeypis í einn glæsilegasta skáksal landsins óháð því í hvaða taflfélagi þeir eru.

Æfingin er í Stúkunni við Kópavogsvöll (3ju hæð). Gengið inn um kjallarahæð bakatil. Húsið opnar kl 19:30.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Síðan

Skák.is
Skák.is

Skák.is, skákfréttavefur Íslands. Gunnar Björnsson er ritsjóri vefsins.

 

RSS-straumar

Erlendar vefsíður

Helstu erlendu fréttasíðurnar

Chessdom

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Chess24

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

FIDE

  • Augnablik... Augnablik - sæki gögn...

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.8.): 1
  • Sl. sólarhring: 33
  • Sl. viku: 129
  • Frá upphafi: 8779279

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 91
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband