Fćrsluflokkur: Spil og leikir
9.1.2015 | 09:49
Baráttan heldur áfram á Skákţingi Reykjavíkur
Nokkuđ var um óvćnt úrslit í 2.umferđ Skákţings Reykjavíkur sem fram fór síđastliđiđ miđvikudagskvöld. Bar ţar hćst sigur hins efnilega TR-ings Arons Ţórs Mai (1262) á stjórnarmanni Skáksambands Íslands, Óskari Long Einarssyni (1619). Sterkur sigur hjá Aroni sem er til alls líklegur viđ skákborđiđ um ţessar mundir. Ţá gerđi Bjarni Sćmundsson (1895) jafntefli viđ annan stjórnarmann Skáksambandsins, skákdómarann geđţekka Omar Salama (2282). Ţriđji stjórnarmađur Skáksambandsins lenti einnig í kröppum dansi ţví akademíuforinginn Stefán Bergsson (2085) varđ ađ gera sér ađ góđu jafntefli međ hvítu mönnunum gegn John Ontiveros (1810). Gárungarnir velta ţví nú fyrir sér hvort ţađ hafi mögulega veikjandi áhrif á skákstyrkleika ađ taka sćti í stjórn Skáksambandsins. Ekki verđur um ţađ fullyrt hér.
Í ţriđju umferđ sem tefld verđur á sunnudag klukkan 14 eru nokkrar athygliverđar rimmur. Á efsta borđi glímir Ţorvarđur Fannar Ólafsson (2245) viđ stórmeistarann Stefán Kristjánsson (2492), á öđru borđi stýrir fyrrum Íslandsmeistarinn Jón Viktor Gunnarsson (2433) hvítu mönnunum gegn Rimaskólaprinsinum Oliver Aroni Jóhannessyni (2170) og á ţriđja borđi mćtast alţjóđlegu meistararnir og samfélagsrýnarnir Sćvar Bjarnason (2114) og Björn Ţorfinnsson (2373) í fyrstu skák mótsins á milli tveggja titilhafa.
Nú ţegar titilhafarnir eru farnir ađ mćtast innbyrđis ţá harđna átökin og línur taka ađ skýrast í toppbaráttunni. Nćr einhver ađ stöđva stórmeistarann? Hver hćkkar mest á stigum? Hver mun koma mest á óvart? Hvor mun fórna fleiri mönnum í mótinu, Björn Ţorfinnsson eđa Stefán Bergsson? Gerir Sćvar Bjarnason atlögu ađ sínum fyrsta sigri á Skákţinginu í 21 ár? Munu stjórnarmenn Skáksambandsins rétta sinn hlut? Ekki missa af fjörinu í húsakynnum TR ađ Faxafeni 12. Allir velkomnir!
- Úrslit, stađa og pörun
- Dagskrá og upplýsingar
- Myndir
- Skákţing Reykjavíkur 2014
- Skákmeistarar Reykjavíkur
- Mótstöflur
9.1.2015 | 01:44
Gallerý Skák flytur um sig set á ný
Ekki verđur framhald á starfsemi Gallerý Skákar í Faxafeninu ţar sem haldin hafa veriđ skákkvöld á hennar vegum á fimmtudögum undanfarna mánuđi eftir ađ hún missti húsnćđi sitt til margra ára í Bolholtinu. Viđburđir á hennar vegum halda ţó áfram - nú í samvinnu Skákdeild KR í Frostaskjóli -fyrst um sinn međan leitađ er eftir nýjum skáksal miđsvćđis í borginni.
Á mánudaginn kemur hefst ţar mótaröđin KAPPTEFLIĐ UM FRIĐRIKSKÓNGINN sem nú fer fram í fjórđa sinn og kynnt verđur nánar um sérstaklega. Viđ Grallararnir í Gallerýinu ţökkum TR fyrir ánćgjulegt samstarf og húsaskjól síđan í haust og óskum félaginu, forstöđumönnum ţess og skákmönnum alls hins besta. /ESE
8.1.2015 | 20:51
Viđamikil dagskrá framundan hjá TR
Öflugri dagskrá Taflfélags Reykjavíkur síđastliđiđ haust verđur fylgt eftir af krafti á nýju ári. Ţegar er hafiđ hiđ sögufrćga Skákţing Reykjavíkur sem nú er haldiđ í 84. sinn. Međal ţátttakenda eru einn stórmeistari og fjórir alţjóđlegir meistarar en ţegar ţetta er skrifađ er einungis tveimur umferđum af níu lokiđ svo snúiđ er ađ spá fyrir um framvindu mála. Skákţingiđ í ár er haldiđ til heiđurs Friđriki Ólafssyni sem verđur áttrćđur međan á mótinu stendur. Fylgist međ gangi mála á Skákţinginu hér.

Skákţingiđ er ađeins toppurinn á ísjakanum ţví alls eru hátt í tuttugu viđburđir á döfinni hjá TR á komandi vetrar- og vormánuđum ásamt öflugum barna-og unglingaćfingum í viku hverri. Skemmtikvöld félagsins verđa á sínum stađ en ţau hafa vakiđ stormandi lukku og ţá má nefna hiđ sívinsćla Öđlingamót sem hefst í lok mars. Nýtt Vormót félagsins verđur haldiđ öđru sinni og ţá heldur Bikarsyrpan fyrir börnin áfram ásamt ţví ađ blásiđ verđur til leiks í Nóa Síríusar Páskaeggjasyrpunni um miđjan mars.
Hér hefur ekki allt veriđ taliđ upp en starfsárinu lýkur međ glćsibrag í maí međ uppskeruhátíđ fyrir yngri kynslóđina og síđan allsherjar úrslitakvöldi Skemmtikvöldanna en ítarlega dagskrá má finna í starfsáćtlun félagsins ţar sem ađ auki er útlistađ nánar fyrirkomulag barna- og unglingastarfsins.
8.1.2015 | 16:23
Afmćlisbörn heiđruđ - Ólafur H. og Bragi sjötugir
Bragi Kristjánsson og Ólafur H. Ólafsson urđu báđir sjötugir í dag. Af ţví tilefni var ţeim bođiđ í morgunverđ í húsnćđi Skáksambands Íslands ţar sem nokkrir vinir og vandamenn tóku á móti ţeim og óskuđu ţeim til hamingju međ áfangann og ţeim ţökkuđ störf í ţágu skákhreyfingarinnar.
Skáksambandiđ fćrđi ţeim báđum gjafir međ ţökkum fyrir fórnfúst starf í um hálfa öld. Helgi Ólafsson, skólastjóri Skákskóla Íslands, ţakkađi ţeim kćrlega fyrir ţeirra framlag til skáklistarinnar međ snjallri rćđu.
Bragi Kristjánsson var um árabil í stjórn TR og SÍ og er margreyndar fararstjóri á vegum SÍ ţar sem hann međal annars fararstjóri á Ólympíuskákmótinu og áđur fyrr međ TR. Hann var og oftsinnis skákstjóri á mótum og áđur fyrr voru ţeir Bragi og Ólafur iđulega saman skákstjórar á skólamótum á vegum TR.
Ólafur H. Ólafsson er heiđursfélagi SÍ og var í stjórn SÍ og TR um áratugaskeiđ og formađur TR um tíma. Óli H. var fyrsti skákkennari margra núverandi landsliđsmanna og er ţađ skođun ţess sem ţetta ritar ađ sumar kynslóđir skákmanna vćru umtalsvert fámennari hefđi elju Óla H. viđ unglingasarf ekki notiđ viđ.
Til hamingju međ afmćliđ heiđursmenn!
8.1.2015 | 13:56
Nóa Síríus mótiđ hefst í kvöld
Nóa Síríus mótiđ, Gestamót Hugins og Skákdeildar Breiđabliks, hefst á dag í Stúkunni á Kópavegsvelli.
Mótiđ er afar vel skipađ en mótiđ í fyrra var sterkasta innlenda mót sem haldiđ hefur hérlendis.
Međal keppenda nú eru tveir stórmeistarar, einn stórmeistari kvenna, fimm alţjóđlegir meistarar og fjórir FIDE-meistarar. Alls hafa um 35 keppendur meira en 2.000 skákstig!
Ađstćđur í Stúkunni í einstakar sennilega ţćr bestu á landsvísu til skákiđkunar. Hér má sjá nokkar myndir frá skákstađ en skáksalurinn var settur upp í fyrradag.
Fyrsta umferđ hefst kl. 19:30. Gestir og gangandi eru sérstaklega bođnir velkomnir en bođiđ verđur upp á kaffi og konfekt frá Nóa Síríusi!
8.1.2015 | 13:06
FIDE-ţjálfara námskeiđ hefst kl. 17 - afar góđ ţátttaka
FIDE-ţjálfara námsekiđ hefst kl. 17 í dag. Ţátttaka hefur fariđ framúr björtustu vonum ađstandanda en 18 hafa skráđ sig til leiks. Enn er opiđ fyrir skráningu fyrir ţá sem hafa áhuga.
Skákskóli Íslands og Skáksamband Íslands kynna:
FIDE trainer námskeiđ 8.-11. janúar 2015
Haldiđ í samvinnu viđ FIDE, FIDE trainers commision (TRG ) og Evrópska skáksambandinu (ECU)
Síđustu árin hafa sífellt fleiri komiđ ađ skákkennslu- og ţjálfun barna og unglinga. Áhugasamt og hćft fólk er á hverju strái en til ađ auka enn ţekkingu og hćfni til kennslu efnir Skákskóli Íslands og Skáksambandiđ til FIDE trainer námskeiđs. Eftir setu á námskeiđinu og próf ađ ţví loknu öđlast ţátttakendur mismunandi gráđur eftir árangri á prófinu, reynslu, ELO-stigum og öđrum ţáttum.
Eftir áramót mun hefjast stefnumótun um menntun kennara og ţjálfara, hvađa réttindi gráđur fela í sér o.s.frv. Sú vinna mun tengjast inn í hugmyndir innan stjórnar SÍ um ađ hanna leyfiskerfi eins og er til stađar í öđrum íţróttum. Til dćmis yrđu félögum í efstu deild skylt ađ hafa ákveđiđ marga innan sinna rađa međ tiltekin réttindi til ţjálfunar og kennslu.
Rétt er ađ geta ţess ađ mót á vegum FIDE greiđa götu ţjálfara sem eru međ FIDE ţjálfara gráđu. Mót sem FIDE stendur fyrir gera kröfu til ţess ađ ţjálfarar og liđsstjórar hafi gráđu af ţessu tagi.
Einnig má ţess FIDE-trainer gráđu geta gefiđ mönnum tćkifćri á ađ ţjálfa á erlendri grundu stefni hugurinn ţangađ.
Umsjónarmađur:
Helgi Ólafsson stórmeistari og skólastjóri Skákskóla Íslands. Hann er FIDE senior trainer (FST) og á sćti í stjórn FIDE trainers commision. Helgi er eini Íslendingurinn sem hefur réttindi til ađ halda námskeiđ af ţessu tagi sem veitir full réttindi.
Dagsetning:
8.11. janúar 2015
Lengd:
16 klst.
Tilhögun:
Námskeiđiđ stendur í 16 klst og verđur gert stutt hlé eftir eftir hverja kennslustund. Ţađ hefst:
Fimmtudaginn 8. janúar kl. 17-21
Föstudaginn 9. janúar kl. 17-21.
Laugardaginn 10. janúar kl. 14-18.
Sunnudaginn 11. janúar kl. 14-18.
Í lok námskeiđsins taka ţátttakendur próf sem samanstendur af 30 spurningum upp úr ţví námsefni sem ţátttakendur hafa undir höndum.
Standist ţátttakandi próf og hefur haft fulla viđveru út námskeiđiđ mun viđkomandi fá útnefningu og diploma sem FIDE trainer eđa samkvćmt nánari skilgreiningu:
Ţćr gráđur sem eru bođi eru. Nánari skýringar eru í viđauka á ensku.
- FIDE Trainer (FT) Ţjálfarar hafi kunnáttu og getu til ađ ţjálfa skákmenn sem hafa vilja til ađ ná langt.
- FIDE Instructor (FI) Ţjálfarar kunni grundvallaratriđi í miđtafli og endatafli. Geti ađstođađ viđ ađ byggja upp byrjunarkerfi.
- National Instructor (NI) Ţjálfarar geti ađstođađ skákmenn til ađ ná góđri getu og geti kennt nemendum upp ađ 1.700 skákstigum.
- Developmental Instructor (DI) Ţjálfarar sem geta aukiđ áhuga krakka á skák og komiđ ţeim á nćsta stig. Leiđbeinendur fyrir byrjendur og ţá sem eru skemmra komnir. Tilvaliđ fyrir kennara í skólum. .
Innifalin eru kennslugögn og verđur prófađ upp úr ţeim kennslugögnum sem ţátttakendur fá.
Efni sem notađ er á námskeiđinu kemur frá TRG.
Ţátttökugjald er kr. 39.000.
Innifaliđ í ţátttökugjöldum er námskeiđsgjald til FIDE (100), gjald til FIDE fyrir ţjálfaragráđuna í tvö ár (allt ađ 200) sem og öll kennslugögn.
Bent er á ađ flest verkalýđsfélög taka ţátt í greiđslu námskeiđsgjalda af ţessari tegund.
Ítarupplýsingar: http://www.fide.com/images/stories/NEWS_2014/Trainers/FTS-REY_2015-Prospectus.pdf
Skráning fer fram á Skák.is (guli kassinn efst).
Viđauki
FIDE Trainer (FT)
Introducing the trainee to important aspects of chess, such as the concept of and preparation for competitive success. This is necessary for trainees who wish to reach a high level of play or seek competitive success in any form.
FIDE Instructor (FI)
Teach the trainee the theory of the middlegame and the endgame. He will work closely with the trainee towards the creation of the trainee's personalized opening repertoire, which he will also help enrich with new ideas.
National Instructor (NI)
- Raising the level of competitive chess players to a national level standard.
- Training trainees with rating up to 1700.
- School teacher.
Developmental Instructor (DI)
- Spread the love for chess among children and methodically bring them to a competitive level.
- Instructor for beginners, elementary, intermediate and recreational level players.
- School teacher.
7.1.2015 | 18:21
Íslandsmót barna fer fram á laugardaginn
Íslandsmót barna í skák fer fram í Rimaskóla laugardaginn 10. janúar og hefst klukkan 12. Ţátttökurétt hafa börnfćdd 2004 og síđar og sigurvegarinn fćr sćmdarheitiđ Íslandsmeistari barna 2015 og keppnisrétt á Norđurlandamótiđ í skólaskák sem haldiđ verđur í Fćreyjum um miđjan febrúar.
Alls verđa tefldar 9 umferđir međ 10 mínútna umhugsunartíma. Eftir 5 umferđir verđur keppendum fćkkađ ţannig ađ ţeir sem hafa 3 vinninga eđa fleiri halda áfram keppninni um Íslandsmeistaratitilinn en ţeir sem hafa fćrri en 3 vinninga hafa lokiđ ţátttöku.
Peđaskákmót verđur haldiđ samhliđa mótinu og hefst klukkan 13:00. Ţađ er ćtlađ fyrir leikskólabörn og ţau allra yngstu í grunnskólum sem eru ekki tilbúin fyrir Íslandsmótiđ.
Skákdeild Fjölnis verđur međ veitingasölu á međan mótinu stendur.
Ţetta er í 22. sinn sem keppt er um Íslandsmeistaratitil barna. Sigurđur Páll Steindórsson sigrađi á fyrsta mótinu áriđ 1994, en međal annarra meistara má nefna titilhafana Dag Arngrímsson, Guđmund Kjartansson og Hjörvar Stein Grétarsson. Núverandi Íslandsmeistari barna er Vignir Vatnar Stefánsson.
Skáksamband Íslands og Skákakademían annast framkvćmd mótsins. Keppendur eru hvattir til ađ skrá sig sem fyrst hér á Skák.is. Fram ţarf ađ koma fullt nafn, grunnskóli og fćđingarár. Ţátttökugjald er 1.000 kr (1.500 ađ hámarki á systkini) og greiđist á mótsstađ fyrir upphaf umferđar.
Veitt eru sérstök verđlaun fyrir bestan árangur í hverjum árgangi.
Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér.
Sigurvegarar á Íslandsmóti barna frá upphafi:
- 1994 Sigurđur Páll Steindórsson
- 1995 Hlynur Hafliđason
- 1996 Guđjón H. Valgarđsson
- 1997 Dagur Arngrímsson
- 1998 Guđmundur Kjartansson
- 1999 Víđir Smári Petersen
- 2000 Viđar Berndsen
- 2001 Jón Heiđar Sigurđsson
- 2002 Sverrir Ţorgeirsson
- 2003 Hjörvar Steinn Grétarsson
- 2004 Svanberg Már Pálsson
- 2005 Nökkvi Sverrisson
- 2006 Dagur Andri Friđgeirsson
- 2007 Kristófer Gautason
- 2008 Kristófer Gautason
- 2009 Jón Kristinn Ţorgeirsson
- 2010 Jón Kristinn Ţorgeirsson
- 2011 Dawid Kolka
- 2012 Nansý Davíđsdóttir
- 2013 Vignir Vatnar Stefánsson
- 2014 Vignir Vatnar Stefánsson
7.1.2015 | 15:56
Janúarmót Hróksins og Stofunnar á fimmtudagskvöld

7.1.2015 | 08:34
Bragi Halldórsson sigrađi á jólahrađskákmóti Ása
Í gćr á ţrettándanum tefldu Ćsir sitt jólahrađskákmót. Mótiđ átti ađ fara fram 16 desember sl. en ţví var frestađ vegna veđurs. Ţrjátíu og tveir kappar mćttu til leiks í dag. Tefldar voru ellefu umferđir međ 7 mínútna umhugsunar tíma.
Ţađ gekk ađ vísu dálítiđ brösótt međ fyrstu umferđirnar vegna ţess ađ laumukommi hafđi séđ sér leik á borđi og vildi vera međ í leiknum. Skákstjórinn hafđi sett óţarfa kommu međ einu nafninu ţegar hann sló inn gestalistann og ţetta ruglađi niđurröđun fyrstu ţrjár umferđirnar. Ţađ var ţarna eins og alltaf ţegar draugar komast í spiliđ ađ ţá er gott ađ hafa menn sem kunna eitthvađ fyrir sér.Guđfinnur sá fjölhćfi snillingur sýndi ađ hann er góđur í fleiru en ađ tefla skák, náđi ađ kveđa draugsa niđur í ţriđju tilraun.
Ţetta var mjög sterkt mót og hart barist á í mörgum umferđum. Bragi Halldórsson sigrađi ađ lokum međ 10 vinninga, hann gerđi ađeins tvö jafntefli, viđ Björgvin og Magnús V Pétursson, ţann óútreiknanlega skákmann. Björgvin Víglundsson varđ síđan í öđru sćti međ 9˝ vinning. Guđfinnur var sá eini sem náđi ađ vinna hann í dag. Í ţriđja til fimmta sćti komu svo ţrír jafnir međ 7˝ vinning. Ţađ voru ţeir Sćbjörn Larsen,Ţór Valtýsson og Guđfinnur R Kjartansson. Sćbjörn var hćstur á stigum og fékk bronsiđ.
Kaffikonan okkar hún Hallfríđur framreiddi kaffi og tertu fyrir okkur og kunnum viđ henni bestu ţakkir fyrir.
Finnur Kr Finnsson og Garđar Guđmundsson sáu um skákstjórn.
Ég minni ţá sem eiga heimangengt ađ Riddarar tefla í dag í Hafnarfirđi.
Sjá nánari úrslit í međfylgjandi töflu og myndir frá ESE.
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 08:39 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2015 | 22:17
Frábćr frammistađa Guđmundar - hársbreidd frá stórmeistaraáfanga
Alţjóđlegi meistarinn Guđmundur Kjartansson (2451) vann enska stórmeistarann Mark Hebden (2523) í níundu og síđustu umferđ Hastings-mótsins sem fram fór í dag. Guđmundur hlaut 7 vinninga og endađi í 2.-4. sćti. Frábćr frammistađa.
Guđmundur var afar nálćgt stórmeistaraáfanga. Til ţess hefđu međalstigin ţurft ađ vera 2379,50 en voru 2379,44. Ţađ munar ţví ađeins 0,06 stigum. Ţađ hefđi dugađ Gumma ef einn andstćđinga hans hefđi veriđ einu stigi hćrri.
Gummi heldur áfram ađ hćkka á stigum og hćkkar um 17 stig. Hann er kominn međ 2485 skákstig og vantar ađeins 15 stig til ađ ná tilskyldum 2500 skákstigum.
Einstök úrslit Gumma má nálgast hér.
Alls tóku 110 skákmenn frá 29 löndum ţátt í ţessu fornfrćga móti. Ţar af voru 14 stórmeistarar og 9 alţjóđlegir meistarar. Guđmundur var nr. 15 í stigaröđ keppenda.
- Heimasíđa mótsins
- Chess-Results
- Beinar útstendingar (hefjast kl. 14:15)
- ChessBomb
Nýjustu fćrslur
- Ný vefsíđa Skák.is!
- Loftur fćr Héđin í fyrstu umferđ
- Tveir fyrrum heimsmeistarar bćttust viđ á keppendalistann á l...
- Ný alţjóđleg skákstig
- Carlsen vann Aronian - međ vinningsforskot og aftur yfir 2850
- Skákklúbburinn Ćsir - vertíđarlok
- Fundargerđ ađalfundar SÍ
- Íslandsmótiđ í skák - Icelandic Open hefst á föstudaginn
- Carlsen vann Caruana í fyrstu umferđ Altibox Norway Chess
- Ţrír efstir og jafnir eftir fyrsta minningarmót Vinaskákfélag...
Tenglar
Mót í gangi
Mót sem eru í gangi hverju sinni
- Íslandsmótið í skák - Icelandic Open Valsheimiliđ, 1.-9. júní
- Altibox Norway Chess 27. maí - 8. júní: Carlsen og flestir sterkustu skákmenn heims
Lykilvefir
- Skáksamband Íslands Heimasíđa SÍ
- Mótaáætlun SÍ
- Vefsvæði Friðriks Ólafssonar Vefsíđa tileinkuđ Friđriki Ólafssyni
- Skákskóli Íslands
- Skáksögufélagið
- F3-klúbburinn Vildarvinir skákíţróttarinnar á Íslandi
- Tímaritið Skák
- Fischersetur Selfoss
- Skákbækur til sölu
- Bobbý skáksverslun
- Skákhornið Spjallţráđur skákmanna
- Skáklandið Stefán Bergsson bloggar
- Skákmyndir
Kennsluvefir
Íslensk taflfélög
Ef ţú vilt tefla á netinu!
- Vinaskákfélagið
- Skákfélagið Hrókurinn
- Skákfélagið Huginn
- Taflfélag Reykjavíkur
- Víkingaklúbburinn
- Skákfélag Akureyrar
- Taflfélag Garðabæjar
- Taflfélag Vestmannaeyja
- Æsir
- Skáksamband Austurlands
- Skákdeild Fjölnis
- Skákfélag Sauðárkróks
- Taflfélag Bolungarvíkur
- Skákfélag Selfoss og nágrennis
- Skákdeild Breiðablik
- Skákdeild KR
- Skákdeild Breiðabliks
- Gallerý Skák
- Riddarinn
- Félag íslenskra bréfskákmanna
Erlendir skákvefir
- FIDE Alţjóđlega skáksambandiđ
- ECU
- The Week in Chess
- ChessBase
- Chess Vibes
- Chessdom
- Your Chess News Umsjón Jóhann H. Ragnarsson
- Bergens Schakklub Besta norrćna skákfréttasíđan
- Færeyska skáksambandið
- Bloggsíða Susan Polgar
- ChessCafe Pistlar og greinar
Almanök
Teflt á netinu
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.7.): 2
- Sl. sólarhring: 30
- Sl. viku: 127
- Frá upphafi: 8778706
Annađ
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 81
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar